Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 1

Morgunblaðið - 18.06.2014, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  141. tölublað  102. árgangur  ENGINN ER ALLTAF Í GÓÐU SKAPI NÝ ÓPERA Í SMÍÐUM GESTUM FJÖLGAR STÖÐUGT Í SKAFTAFELLI GUNNAR BORGARLISTAMAÐUR 30 FRAMKVÆMDIR 10HAFDÍS HULD 32 Ljósmynd/Sigurður Ægisson Blendingshvalur Synt um Skjálfandaflóa.  Ekki er vitað hvers vegna hvalir ólíkra tegunda sækja hverjir í aðra og eignast saman afkvæmi. Nýverið varð vart við hval á Skjálfandaflóa sem talinn er vera svokallaður blendingur, afkvæmi steypireyðar og langreyðar. Með því að skjóta að hvalnum sýnatökuör úr til þess gerðri byssu tókst vísindamönnum Hafró að ná úr honum sýni. Ef grunur þeirra reynist á rökum reistur er þar um að ræða sjötta blendingshvalinn sem finnst við Íslandsstrendur. Slíkir blendingar eru afar líkir langreyðum ofan frá séð í sjónum og hafa því verið veiddir í mis- gripum. Komið hefur í ljós að blendingshvalir geta getið af- kvæmi. »12 Gæti verið sjötti blendingshvalurinn við Íslandsstrendur Réttarstaðan skýrð » Seðlabankinn hefur stöðvað ólögleg gjaldeyrisviðskipti er- lendra tryggingafélaga. » Seðlabankinn hyggst veita frekari upplýsingar um réttar- stöðu viðskiptavina erlendu tryggingafélaganna í dag. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Einstaklingum sem eiga sparnað hjá erlendum tryggingafélögum ber ekki skylda til að skila honum og fá í staðinn krónur, eftir að Seðlabank- inn stöðvaði slíka söfnun sparnaðar. Rætt var við viðskiptavin Friends Provident á Íslandi sem hefur í 10 ár greitt inn á erlendan reikning sem er í pundum. Fyrirtækið Tryggingar & ráðgjöf hefur milligöngu um við- skiptin. Reikningurinn er óbundinn. Sérfræðingur hjá gjaldeyriseftir- liti Seðlabankans sagði að umrædd- um viðskiptavini bæri ekki skylda til að skila pundunum og fá í staðinn krónur á íslenskum sparireikningi. Viðkomandi geti haldið sparnaði áfram svo lengi sem upphaflegur samningur sé í gildi, enda hafi inn- borganir hafist fyrir setningu hafta. Veittur verður fjögurra mánaða aðlögunartími fyrir þjónustufyrir- tæki og viðskiptavini þeirra til þess að laga greiðslur að fyrirkomulagi sem samræmist lögum um gjald- eyrismál. Taki einstaklingur ákvörð- un um að segja upp reikningnum og taka út sparnaðinn verði fjármunirn- ir hins vegar skilaskyldir. Það þýðir að millifæra þarf hina erlendu upp- hæð á gjaldeyrisreikning á Íslandi. Getur orðið skilaskyldur  Ekki verður skylt að breyta erlendum sparnaði hjá tryggingafélögum í krónur  Sé erlendum sparireikningi sagt upp verða fjármunirnir hins vegar skilaskyldir MSamþykkti ekki »4 Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is Hvítbók Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra er komin út, en þar kemur fram umbótaáætlun hans í menntamálum. Ráðherra set- ur fram tvö meginmarkmið fyrir árið 2018 til þess að ná þessu fram. Í fyrsta lagi að 90% grunnskólanema nái lágmarksviðmiðum í lestri, en hlutfallið er nú 79%. Til að ná þessu markmiði er lagt til að hlutur móður- málskennslu verði aukinn og að mót- uð verði viðmið um þá lestrarkunn- áttu sem nemendur eiga að búa yfir á hverju stigi grunnskólans. Í öðru lagi er sett það markmið að hlutfall nemenda sem ljúka námi úr fram- haldsskóla á tilsettum tíma hækki úr 44% og upp í 60%. Því verður náð með því að endurskipuleggja náms- tíma, stytta nám til lokaprófa og draga þannig úr brotthvarfi. Hafist verður handa strax í haust þegar verkefnastjórar verða ráðnir og samráðshópur verður settur sam- an með Samtökum atvinnulífsins, Kennarasambandinu, Sambandi sveitarfélaga, Heimili og skóla ásamt fleiri aðilum. Í kjölfarið verður farið í ferðalag í kringum landið þar sem efni Hvítbókarinnar verður kynnt og reynt verður að ná samstöðu um þau markmið sem sett eru fram. Illugi greindi stuttlega frá Hvít- bókinni í hátíðarræðu sinni á Hrafnseyri við Arnarfjörð í gær. Hvítbók Illuga komin út  Umbótaáætlun ráðherra í menntamálum  Sett eru fram tvö meginmarkmið fyrir árið 2018  Hafist verður handa strax í haust  Vill stórefla lestrarfærni M Illugi telur... »2 Þúsundir Íslendinga lögðu leið sína í miðbæ Reykjavíkur í gær til þess að fagna þjóðhátíðardeginum. Stemningin var góð og létu gestir rign- inguna ekki á sig fá, en margir klæddust þjóðbúningum af ýmsum gerð- um. Valgerður G. Guðnadóttir var fjallkonan í ár og flutti hún ávarp eftir Valgeir Guðjónsson tónlistarmann. Að lokinni athöfn á Austurvelli var farið í skrúðgöngu í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Sóley Tómas- dóttir, forseti borgarstjórnar, lagði blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar. Mikil hátíðarhöld vegna sjötíu ára afmælis lýðveldisins Morgunblaðið/Eggert Þjóðhátíðardagurinn haldinn hátíðlegur um allt land  Hamborgara- búlla Tómasar opnaði nýjan stað í Kaup- mannahöfn í gær. Starfsfólk frá Íslandi kom á staðinn til að hjálpa til við und- irbúninginn og í tilefni opnunar- innar var boðið upp á fría hamborgara. Undir kvöld í gær sagði rekstrar- stjóri staðarins að 900 hamborg- arar hefðu verið gefnir gestum og gangandi og biðu um 450 til við- bótar í röð fyrir utan staðinn. Dan- mörk er nú fjórða landið þar sem fá má Búlluborgara. »8 Tómas fjölgar ham- borgarastöðum Hamborgarabúllan í Kaupmannahöfn.  Mikil neyð rík- ir í Suður-Súdan en hungursneyð getur skollið á ef ekki verður grip- ið í taumana. Sjúkdómar og farsóttir herja á íbúa landsins og hefur mikill fjöldi neyðst til að flýja heimili sín vegna átaka í landinu. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, heldur til Suður- Súdans næstkomandi laugardag en þar mun hann sinna hjálparstarfi á vegum stofnunarinnar. »4 Fjöldi fólks neyðist til að flýja átök Hungursneyð gæti skollið á í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.