Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 18.06.2014, Qupperneq 31
AF MÁLMI Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Af engri sérstakri ástæðu stóðForrest Gump upp og hljópyfir Bandaríkin þver og endilöng – og aftur til baka. Af sömu ástæðu byrjaði ég að hlusta aftur á WASP á dögunum. Bandarískt málmband sem reis og hneig áður en Ronald Reagan sté fæti inn í Höfða ásamt Mikaíl gamla Gorbat- sjov. Ögmundi Jónassyni var ekki hleypt inn. Við erum að tala um tæpa þrjá áratugi. Segi ég og skrifa. Aldrei flokkaði ég WASP með merkilegri málmböndum í gamla daga og á til að mynda ekki eina ein- ustu vínylplötu með sveitinni – sem er ágætur mælikvarði. Það kom í ljós þegar ég dustaði rykið af safn- inu fyrir skemmstu. Eftir þessa óvæntu endurfundi hefur það svo sem ekkert breyst. En enda þótt gæðunum sá ábótavant er samt eitt- hvert „attitjúd“ þarna. Einhver x- faktor, eins og sagt er á nútímamáli. WASP spratt fram úr sama skauti og Van Halen, Mötley Crüe, Ratt, Quiet Riot og Guns N’ Roses í borg englanna. Tónlistin var skil- greind sem „sjokkrokk“ á þeim tíma en er oftar kennd við glys eða hár í seinni tíð. Varla getur WASP þó tal- ist dæmigert „hárband“. Svo skemmtilega vill til að í sumar eru þrjátíu ár liðin frá útgáfu fyrstu plötu WASP, sem bar nafn sveitarinnar. Hún hefur að geyma vinsælasta lag þeirra félaga til þessa dags, I Wanna Be Somebody, og hið áleitna L.O.V.E. Machine. Hin lögin átta eru að mestu gleymd. Uppruna- lega átti að vera á plötunni hið táp- mikla Animal (Fuck Like a Beast) en að vandlega athuguðu máli ákvað útgáfan, Capitol, að fórna þeirri frómu smíð. Skýringin er líklega sú að skuggi siðapostulans Tippers Gore hvíldi á Capitol eins og mara. Það var hennar æðsta markmið í líf- inu á þessum tíma að leggja þunga- rokkið til hvílu. Tipper var sem kunnugt er eiginkona Als Gore, loftslagsfrömuðar og fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Þau skildu. Hvort það tengdist málm- vísindum skal ósagt látið. Önnur breiðskífa WASP, The Last Command, kom út ári síðar, 1985, og er af sumum talin há- punkturinn á starfi sveitarinnar. Innihélt lög á borð við Wild Child, Fistful of Diamonds, Blind in Texas og Widowmaker. Geðslegt starfs- heiti þar á ferð: Ekkjugerðill. Færi til dæmis hreint ekki illa í símaskrá: Gunnar Hergilsson, ekkjugerðill. Eftir það hallaði hratt undan Brokkgengt rokk í sjokkflokki Hress Enginn bilbugur er á Blackie gamla Lawless. fæti hjá WASP. Að vísu staldra sumir vísdómsmenn við The Crim- son Idol, sem kom út 1992, ekki síst vegna örlaga söguhetju konsept- plötunnar, sem svipti sig lífi eftir að hafa verið endanlega hafnað af for- eldrum sínum. Gömul saga og ný. Síðan hafa níu plötur komið út án þess að nokkur hafi misst vatn yfir þeim. Hvað þá meira. Sú síð- asta, Babylon, árið 2009. WASP var um margt merkileg sveit. Fyrir það fyrsta stóðu engir unglingar að bandinu, eins og gjarn- an tíðkaðist í þessum kreðsum. Að- alsprautan, bassaleikarinn og söngvarinn Blackie Lawless var 28 ára þegar frumburðurinn kom út og gítarleikararnir og stýrimennirnir Randy Piper og Chris Holmes voru 31 og 26 ára. Hér um bil karlægir menn á sinni tíð. Blackie, sem skírður var Steven Edward Duren, er eini upprunalegi meðlimurinn í dag. Í annan stað voru tónleikar WASP með hressasta móti. Það eru ekki allir sem tjóðra hálfnakin mód- el við pyntingarbretti á sviðinu, fleygja hráu kjöti út í sal og höggva höfuð af hænsnfuglum. Í þessum heimi eða öðrum. Vona að harð- kjarna femínistar séu ekki að lesa þennan pistil! Í þriðja lagi vakti nafnið óskipta athygli. Margir hafa ugg- laust gefið sér í upphafi að WASP standi fyrir White Anglo-Saxon Pro- testants. Það hefur þó aldrei fengist staðfest. Þvert á móti hafa Blackie og félagar iðulega farið undan í flæmingi þegar nafnið ber á góma. Í ljósi þess að móðir Blackies Lawless er indíáni er líklega hægt að útiloka möguleikann hér að ofan – nema að kaldhæðnin sé þeim mun meiri. Hver veit? We Are Sexual Perverts, We All Smoke Pot, We Are Satan’s People og We Appreciate Stinky Pussy eru aðrir möguleikar en sjálf- ur aðhyllist ég skýringu sem Blackie gaf sjálfur í blaðaviðtali í gamla daga. Þegar spurt var svaraði hann einfaldlega: We Ain’t Sure, Pal. Við erum ekki vissir, lagsi. Er það eitthvað verra en ann- að? » Í ljósi þess að móð-ir Blackies Lawless er indíáni er líklega hægt að útiloka mögu- leikann hér að ofan – nema að kaldhæðnin sé þeim mun meiri. Hver veit? Stuð WASP gefur engan afslátt á tónleikum, slær upp allsherjar sýningu í anda Kiss og Alice Cooper. MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014 MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ert þú búin að prófa nýja lágkolvetnabrauðið okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð. Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þéri i Alvöru blandarar fyrir veitingastaðinn kaffihúsið, ísbúðina & booztbarinn Ýmsir ánægðir viðskiptavinir • World Class & flestir líkamsræktarstaðir íslands • Kaffi Tár & Te & Kaffi • Heilsuhúsið & Lifandi Markaður • Ýmsir veitingastaðir s.s. Vox, Perlan, Ruby Tuesday ofl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.