Morgunblaðið - 18.06.2014, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2014
Að temja drekann sinn 2
Framhald teiknimyndarinnar Að
temja drekann sinn. Í fyrri mynd-
inni sagði af ungum pilti, Hiksta,
syni ætthöfðingja í víkingaþorpi
sem tókst að stilla til friðar í stríði
manna og dreka og temja drekann
Tannlausan. Saga framhaldsmynd-
arinnar hefst fimm árum síðar og
Hiksti er þá orðinn mikill drek-
areiðmaður. Hætta steðjar að, því
að illmenni mikið og vægðarlaus
drekatemjari hefur safnað dreka-
her og hyggst gera árás á þorpið og
leggja alla dreka undir sig. Hiksti
og Tannlaus uppgötva mikinn ís-
helli þar sem hundruð villtra dreka
búa ásamt friðelskandi drekatemj-
ara sínum sem farið hefur huldu
höfði í 20 ár.
Leikstjóri og handritshöfundur er
Dean Deblois og meðal leikara í ís-
lenskri talsetningu eru Sturla Sig-
hvatsson, Þórunn Lárusdóttir, Ólaf-
ur Darri Ólafsson og Vigdís
Pálsdóttir.
Metacritic: 77/100
IMDb: 8,7/10
Make Your Move
Tveir hæfileikaríkir dansarar,
Donny og Aya, fella hugi saman en
eru milli steins og sleggju þegar
bræður þeirra lenda í hatrömmum
deilum.
Leikstjóri er Duane Adler og í aðal-
hlutverkum eru Derek Hough, Boa
Kwon, Will Yun Lee, Wesley Jona-
than, Izabella Miko, Jefferson
Brown, Miki Ishikawa og Rick
Gonzalez. Þess má geta fyrir dans-
unnendur að þau Derek Hough og
Boa Kwon vöktu óskipta athygli
dansunnenda í dansþáttunum Danc-
ing with the Stars og So You Think
You Can Dance.
Metacritic: 40/100
IMDb: 5,6/10
Brick Mansions
Glundroði ríkir í borginni Denver
og gömul múrsteinsshús sem voru
áður minnisvarðar um betri tíð
hýsa nú aðeins hættulegustu glæpa-
menn borgarinnar, eins og segir í
tilkynningu um þessa spennumynd.
Há glæpatíðni reynist lögreglunni
ofviða og því reisir hún risavaxinn
vegg í kringum svæðið til að vernda
borgarbúa. Segir af lögreglumann-
inum Damien Collier sem reynir að
uppræta spillingu í borginni og
fyrrverandi fanga, Lino, sem reynir
eftir fremsta megni að feta rétta
braut í lífinu. Dag einn liggja leiðir
Collier og Lino saman, glæpafor-
inginn Tremaine rænir kærustu Li-
nos og Damien nýtur aðstoðar hans
í baráttunni gegn glæpum. Leik-
stjóri er Camille Delamarre og með
aðalhlutverk fara David Belle, Paul
Walker og RZA.
Metacritic: 40/100
IMDb: 6,1/10
Bíófrumsýningar
Drekar, dans og
glundroði í Denver
Framhald Hiksti og drekinn Tannlaus í myndinni Að temja drekann sinn 2.
Kvikmynd Benedikts Erlings-
sonar, Hross í oss, hlaut verðlaun
sem besta myndin á kvikmynda-
hátíðinni í Brussel í liðinni viku,
svokölluð Golden Iris-verðlaun, og
nemur verðlaunafé 10.000 evrum.
Um 30 þúsund manns sóttu hátíð-
ina, sem haldin var í tólfta sinn og
lauk henni á laugardaginn.
Hross í oss hefur hlotið fjölda
verðlauna, bæði hér á landi og er-
lendis, frá því að hún var frum-
sýnd í fyrra og að auki lofsamlega
dóma, m.a. frá virtustu kvik-
myndagagnrýnendum Bretlands.
Af þeim verðlaunum sem myndin
hefur fengið má nefna íslensku
Edduverðlaunin, verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Amiens, áhorf-
endaverðlaun CPH:PIX og ýmis
verðlaun á alþjóðlegum hátíðum í
Gautaborg, San Francisco, San Se-
bastián, Tallinn, Tókýó og
Tromsö.
Velgengni Hross í oss hefur verið hlaðin lofi og verðlaunum.
Hross í oss valin besta myndin í Brussel
Breska rokksveitin Genesis og ís-
lenska bandið Todmobile hafa tekið
höndum saman, en forsprakkar
Todmobile náðu samkomulagi við
Steve Hackett, meðlim Genesis, um
flutning verka beggja banda í Eld-
borgarsal Hörpu í vetur. Auk þess
mun kappinn semja nýtt lag ásamt
meðlimum Todmobile og spila inn á
plötu með þeim sem mun líta dags-
ins ljós á næstunni.
Todmobile mun koma fram
ásamt strengjasveit, blásurum og
kór í samstarfi við listamenn víðs
vegar að úr heiminum, en sveitin
mun flytja ný lög sem og gömul í
nýjum búningi. Todmobile hélt
keimlíka tónleika í sama sal fyrir
nokkru ásamt forsprakka Yes, Jon
Anderson. Þess má auk þess til
gamans geta að Eyþór Ingi Gunn-
laugsson, sigurvegari Söngva-
keppni sjónvarpsins árið 2013, sér
nú um söng sveitarinnar.
Todmobile og Genesis í samstarf
Tónlistarveisla Todmobile kom fram ásamt Jon Anderson fyrir nokkru.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
L
L
16
12
12
★ ★ ★ ★ ★
„Besta íslenska
kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
Fréttablaðið
ÍSL.
TAL
ÍSL.
TAL
ÞRÆLGÓÐ SPENNUMYND
MEÐ PAUL WALKER
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
BRICK MANSIONS Sýnd kl. 8 - 10
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 3.40 - 5.50
22 JUMP STREET Sýnd kl. 5.40 - 8 - 10.20
MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 4 - 7
TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 3.40
14
TÖFRANDI MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
„Ég hló svo mikið að
ég skammaðist mín!”
- Guardian
"Þú sérð ekki fyndnari
mynd í sumar!"
-T.V., Biovefurinn.is