Morgunblaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 3. N Ó V E M B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  257. tölublað  102. árgangur  ALDREI HÆGT AÐ REIKNA MEÐ AUÐVELDUM LEIK LJÓÐHEIMAR EINARS BEN. TAMNINGAKONA SYNGUR, SEMUR OG SPILAR SVALA OG ARTHÚR Í HÖRPU 26 BRYNHILDUR ODDSDÓTTIR 10SÓLVEIG LÁRA ÍÞRÓTTIR Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Kostnaður viðbragðsaðila og ýmissa stofnana í samfélaginu vegna eldgoss- ins í Holuhrauni stefnir að óbreyttu í rúman milljarð króna á þessu ári. Að sögn Víðis Reynissonar, deildarstjóra almannavarnadeildar ríkisreglu- stjóra, má gera ráð fyrir að kostnað- urinn sé nú þegar 700-800 milljónir króna þegar allt er saman tekið. Aðilar sem um ræðir eru einkum Almannavarnir, Umhverfisstofnun, lögreglan, Raunvísindastofnun HÍ, Veðurstofan, Landhelgisgæslan, Vatnajökulsþjóðgarður, sóttvarna- læknir, Vegagerðin, björgunarsveitir og fleiri. Sérstakur samráðshópur fimm ráðuneytisstjóra kemur saman reglulega til að fara yfir stöðu mála. Lengsta mönnun til þessa Mönnun Almannavarna í stjórn- stöðinni í Skógarhlíð vegna eldgos- anna í Fimmvörðuhálsi og Eyjafjalla- jökli stóð yfir í 75 daga en gosið í Holuhrauni hefur staðið lengur en það. Mönnunin í Skógarhlíð hefur í dag staðið yfir í 80 daga. „Eyjafjallajökulsgosið kallaði þá á lengstu mönnun í sögu almannavarna hér á landi þannig að við erum komin vel fram yfir það,“ segir Víðir en dags daglega vinna hundruð manna með einum eða öðrum hætti við að fylgjast með gosinu, stunda eftirlit og mæl- ingar og aðrar rannsóknir. Víðir áætl- ar að 50-70 stöðugildi standi að baki störfum sem snúast eingöngu um gos- ið og til viðbótar séu stöðugildin um 150 við að sinna gosinu og öðrum verkefnum því samfara, til dæmis hafa lögreglumenn víða um land tekið að sér mælingar á gasmenguninni. Þannig eru hátt í 40 handmælar í um- ferð um allt land til að fylgjast með menguninni. Aðstoð erlendis frá Eldgosið í Holuhrauni er orðið mesta hraungos síðan í Skaftáreldum og alþjóðlegir vísindamenn fylgjast einnig náið með framvindunni. Að sögn Víðis væri kostnaður stjórn- valda enn meiri ef ekki kæmi stuðn- ingur erlendis frá í formi búnaðar og mannskapar. MViðbúnaður miðast við … »16 Gosið kostar yfir milljarð  Kostnaður vegna eldgossins í Holuhrauni nú þegar kominn í 700-800 milljónir  Stefnir að óbreyttu yfir milljarð um áramót  Um 200 stöðugildi við vöktunina Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ákært hefur verið í einu máli af þremur sem verið hafa eða eru til rannsóknar hjá lögreglu vegna meintra mistaka eða vanrækslu í starfi í heilbrigðiskerfinu frá árinu 2011. Á árunum 2011-2013 voru tilkynnt 23 atvik sem geta talist óvænt eða al- varleg. Slík atvik eru skilgreind í lögum „sem atvik sem valdið hefur eða hefði getað valdið sjúklingi al- varlegu tjóni, svo sem dauða eða var- anlegri örkumlun“. Þau atvik sem falla undir þessa skilgreiningu fara til rannsóknar hjá landlækni. Samkvæmt upplýs- ingum frá embættinu var það mat þess að gera þurfti úrbætur í fjór- um tilvikum, eitt var sent til yfir- stjórnar en rannsókn var ekki lokið í tveimur málum. Ekki þótti þörf á úrbótum í 16 tilvikum. Mikil um- ræða hefur farið fram um það í heil- brigðiskerfinu hvort ekki sé rétt að rannasaka slík atvik sem sakamál. Starfsumhverfi þykir flókið og hætt er við truflunum vegna utanaðkom- andi áreitis. Í heild bárust 537 kvartanir eða skyld erindi til land- læknis á árunum 2011-2013. »12 Þrjú mál í lögreglurannsókn  Ein ákæra vegna atviks úr heilbrigðiskerfinu  Þykja umdeild sakamál Bráðamóttakan Erill er á bráðamóttöku. Morgunblaðið/Árni Sæberg  Ríkisstjórnir heims þurfa að grípa til róttækra aðgerða svo að hægt verði að draga verulega úr notkun jarðefnaeldsneytis á næstu áratugum og hætta henni alveg fyr- ir lok aldarinnar. Ella gætu þær loftslagsbreytingar sem þegar eru hafnar af völdum losunar manna á gróðurhúsalofttegundum orðið verri og átt sér stað of hratt til að menn og vistkerfi jarðar nái að að- lagast þeim. Þetta kemur fram í skýrslu lofts- lagsnefndar Sameinuðu þjóðanna sem er sú afdráttarlausasta hingað til. John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir þá sem kjósa að hunsa eða véfengja vísindin að baki stefni öllum í hættu, börnum þeirra og barnabörnum. »15 Afdráttarlaus um nauðsyn aðgerða AFP Vá Skýrslan var kynnt í Kaupmannahöfn.  „Vinna við leiðréttinguna er á lokastigi. Það er verið að hnýta síðustu lausu endana. Gert er ráð fyr- ir að leiðrétt- ingin verði kynnt opin- berlega mánudaginn 10. nóv- ember og niðurstaðan birtist um- sækjendum daginn eftir, 11. nóvember,“ segir Sigurður Már Jónsson, upplýsingafulltrúi ríkis- stjórnarinnar, um gang vinnunn- ar hjá stjórnvöldum við skulda- leiðréttingu. Alls bárust um 69 þúsund umsóknir um leiðréttingu húsnæðislána frá um 105 þúsund kennitölum. Nota þarf rafræn skilríki til undirritunar á ráð- stöfun leiðréttingarfjárhæðar. Leiðréttingin verður kynnt 10. nóvember Gestir sem heimsóttu menningarhúsið Skúrinn á Laugarnestanga um helgina, gátu guðað á gluggann og fylgst með Ragnari Kjartanssyni myndlistarmanni mála myndir af félaga sínum Bjarna bömmer. Á fóninum hljómaði „Take it easy“ með Eagles, aftur og aftur. »29 Morgunblaðið/Ómar Myndlistarsköpun í skúr á Laugarnestanga  Íslenska sprotafyrirtækið MURE VR vinn- ur að þróun sýndarveruleika- vinnustöðva sem byggjast á tækni Oculus Rift. Bandaríski tæknirisinn Google hyggst gera prófanir á hugbúnaði MURE VR á eigin starfsmönnum þegar varan er tilbúin. Diðrik Steinsson er einn stofn- enda MURE VR og segir hann fjár- festa hafa sýnt fyrirtækinu vaxandi áhuga. »14 Google hyggst nota íslenska tölvutækni Diðrik Steinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.