Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Haldinn var bangsadagur á Barnaspítala Hringsins í gær en þá gafst börnum færi á að láta læknanema annast veika bangsa sína. Syst- kinin Jón Andri, 8 ára, og Sigrún Eva, 5 ára, Arnarsbörn komu með hryssuna Fjólu sem hafði fótbrotnað og ísbjörninn Kúda sem var bæði með hálsbólgu og hafði fótbrotnað í áhorfendastúku þar sem þau höfðu verið að horfa á handbolta- leik. Morgunblaðið/Ómar Lappað upp á hryssuna Fjólu og ísbjörninn Kúda Bangsadagur Barnaspítala Hringsins var haldinn hátíðlegur í gær Jarðskjálfti upp á 5,3 stig reið yf- ir klukkan rúm- lega fjögur síð- degis í gær en upptök hans voru 9,3 km suðs- uðvestur af Kistufelli. Kl. rúmlega hálfsex reið yfir annar skjálfti upp á 3,7 stig og voru upptök hans 6,5 km austsuðaustur af Bárðarbungu. Á milli kl. 11 og 12 í gærmorgun voru einnig tveir skjálftar sem reyndust báðir yfir 4 stig í Bárðarbunguöskj- unni. Allt í allt mældust níu jarð- skjálftar, 3,7 stig eða stærri, á þess- um slóðum í gær. Virknin er því enn mikil og Bárðarbunga heldur áfram að síga. Mikil skjálftavirkni við Bárðarbungu Nötur Jörð skelfur við gossvæðið. Rjúpnaveiði hef- ur verið fremur dræm í ár eftir því sem Kristinn Gísli Guðmunds- son, einn með- stjórnenda Skotvís, veit best. Segist hann sjálf- ur aðeins hafa veitt einn fugl á tímabilinu. Að- stæðurnar hafi ekki verið þær bestu fyrir rjúpnaveiðimenn og vantar snjó til þess að hægt sé að koma auga á fuglana. Veiðitímabilið er fjórar helgar og er það nú hálfnað. Eru því tvær helgar eftir af rjúpna- veiðitímabilinu og hafa þeir sem vilja rjúpu í jólasteikina enn tæki- færi til þess að veiða sér til matar. Snjóinn vantar til að veiða rjúpuna Veiði Lítið hefur borið á rjúpunni í ár Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samtals hafa 213 einstaklingar fengið réttarstöðu sakbornings hjá sérstökum saksóknara án þess að rannsókn viðkomandi máls hafi leitt til ákæru á hendur þeim. Þetta kemur fram í svari Sigmundar Dav- íðs Gunnlaugssonar forsætis- og dómsmálaráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, þing- manns Samfylkingar. Hvorki náðist í Sigmund Davíð né Össur við vinnslu fréttarinnar í gær. Varðaði fyrirspurnin stöðu manna sem eru grunaðir um refsi- verða háttsemi í skilningi 1. gr. laga um embætti sérstaks saksóknara. Í svari dómsmálaráðherra segir að alls hafi 72 einstaklingar nú rétt- arstöðu sakbornings hjá embætt- inu. Viðkomandi einstaklingar eru flokkaðir án þess að nöfnin komi fram eftir því hversu lengi þeir hafa haft þessa réttarstöðu. Tímalengd- in er frá 2 og upp í 63 mánuði. Tengjast allt að tíu málum Í þriðja lagi segir í svarinu að alls 33 einstaklingar hafi nú réttarstöðu sakbornings í tveimur málum eða fleiri hjá embættinu. Þeir eru flokk- aðir eftir fjölda mála, sem er frá tveimur málum og upp í tíu. Í síðasta lið fyrirspurnarinnar er spurt hvort Ísland hafi „undirgeng- ist einhverja þjóðréttarsamninga sem kveða á um takmörk við því hve lengi menn geta haft stöðu grunaðra manna án þess að þeir sæti ákæru“. Óskaði fyrirspyrjandi, þ.e. Össur, þess að svarið yrði sund- urliðað eftir samningum og ákvæð- um þeirra. Í svarinu segir að Ísland hafi „ekki undirgengist þjóðréttarsamn- inga sem með beinum hætti kveða á um takmörk við því hve lengi menn geta haft stöðu grunaðra manna án þess að sæta ákæru“. Hins vegar er tekið fram að Ísland hafi undir- gengist þjóðréttarsamninga á borð við t.d. mannréttindasáttmála Evr- ópu. Bent er á að í 6. gr. sáttmálans megi finna hliðstæða reglu og í 70. gr. stjórnarskrár Íslands, „þar sem kveðið er á um að öllum beri réttur til að fá úrlausn um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli“. Vísað er til þess að þessari reglu hafi verið beitt og hún skilgreind sem svo að hún taki einnig til mála á rannsókn- arstigi. Hraða skuli meðferð mála Þá er vísað til alþjóðasamnings- ins um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þar sem kveðið er á um að mál skuli rannsökuð án óhæfilegrar tafar. Loks er vísað til 53. gr. laga um meðferð sakamála þar sem „kveðið [er] á um skyldu þeirra sem rannsaka sakamál að hraða með- ferð mála eftir því sem kostur er“. Hundruð verið til rannsóknar  Á þriðja hundrað manns hafa fengið réttarstöðu sakbornings hjá sérstökum saksóknara án þess að rannsókn viðkomandi máls hafi leitt til ákæru á hendur þeim  72 hafa nú réttarstöðu sakbornings Morgunblaðið/Ómar Sérstakur saksóknari Skrifstofur embættisins eru á Skúlagötu. Benedikta Br. Alexandersdóttir benedikta@mbl.is Á miðnætti hófust verkfallsaðgerðir Læknafélags Íslands og í fyrramálið hefst verkfall Skurðlæknafélags Ís- lands. Ljóst er að mikil röskun verð- ur vegna verkfallanna enda um lækna beggja félaganna að ræða. Bráðatilvikum verður sinnt að venju en gera má ráð fyrir áhrifum á alla aðra starfsemi, samkvæmt upplýs- ingum frá Landspítala. Enn fleiri aðgerðum frestað Í vikunni ná verkfallsaðgerðir til flæðisviðs, aðgerðasviðs og geðsviðs. Óljóst er hversu mörgum aðgerðum verður frestað sökum verkfallsins en gera má ráð fyrir enn fleiri en í síð- ustu viku þegar 500 dag- og göngu- deildarkomum, 56 skurðaðgerðum og tugum rannsókna og meðferða var frestað. Er það að hluta til vegna verkfallsaðgerða svæfingalækna í vikunni. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum fer fjöldi aflýstra að- gerða eftir fjölda bókana en um 60 að- gerðir eru bókaðar á dag, þar af 40 valaðgerðir eða aðgerðir sem fram- kvæmdar eru fram í tímann. Í vik- unni falla bókaðar endurkomur á bráða- og göngudeild niður á flæði- deild, öll starfsemi á aðgerða- og svæðingadeild miðast við bráðastarf- semi og verða t.d. göngudeildir að- gerða- og skurðlækningasviðs og augnlæknasviðs lokaðar einhverja daga. Einhverjar aðgerðir tannlækna falla niður, auk valrannsókna sem þarfnast svæfingar. Á geðdeild falla allir bókaðir tímar á göngudeildum geðlækna niður. Ljóst er að framundan er mikil vinna við að vinda ofan af áhrifum verkfallsins og eru langtímaáhrifin óljós. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum hefur starfsemi spítalans gengið vel þrátt fyrir rask- anir og hafa engin stór áföll átt sér stað. Ekkert þokast í kjaradeilum Ekkert þokast í viðræðum Lækna- félags Íslands og samninganefndar ríkisins en samningafundur er á dag- skrá í dag. Þorbjörn Jónsson, formaður LÍ, bíður eftir að samninganefnd ríkisins fái víðtækara umboð til þess að ræða við fulltrúa félagsins. Hingað til hefur nefndin ekki hvikað frá þeirri launa- stefnu að bjóða 3-4% launahækkanir, sem Þorbjörn segir óviðunandi. Aflýstum aðgerðum fjölgar  Ekkert þokast í kjaradeilum lækna  Gera má ráð fyrir enn fleiri aflýstum að- gerðum í vikunni er læknar LÍ og Skurðlæknafélags Íslands fara í verkfall Morgunblaðið/Sigurður Bogi Verkfall Miklar raskanir verða á starfsemi sjúkrahússins í vikunni. Maðurinn sem handtekinn var sl. laugardag á Þórshöfn eftir að hafa gengið um vopnaður haglabyssu var látinn laus úr haldi lögreglu í gær eftir skýrslutöku. Sex lög- reglumenn tóku þátt í að handtaka manninn, þrír þeirra úr sérsveit lögreglunnar á Akureyri, tveir frá Húsavík og einn frá Þórshöfn. Tilkynning þess efnis að vopn- aður maður væri á ferð á Þórshöfn barst lögreglunni um hálfsjöleytið um morguninn og var götum í ná- grenni heimilis mannsins lokað meðan á aðgerðum stóð en hann hafði sýnt ógnandi tilburði á ferð sinni um bæinn. Ekki verður farið fram á gæsluvarðhald yfir mann- inum, sem er á fertugsaldri, þar sem rannsóknarhagsmunir krefjast þess ekki. davidmar@mbl.is Byssumaður á Þórs- höfn laus úr haldi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.