Morgunblaðið - 03.11.2014, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
Tillögur að súpumáltíð:
Settu í súpuna smátt skorinn fisk og berðu frammeð nýbökuðu brauði & hummus
Settu í súpuna grænmeti og þurristuð sólkjarna- og graskersfræ og toppaðu með skeið af sýrðum rjóma
Settu í súpuna steikta kjúklingabita, nachos, cayenne pipar og toppaðu með skeið af sýrðum rjóma
KRAFTMIKIL SÚPA
Á KÖLDUM DEGI
Ítalska súpan er með maukuðum tómat & basil
Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 - laugardaga frá 11.00 - 14.00 (Kópavogur)
Bjóðum einnig fjölbreytt úrval af girnilegum fiskréttum,
ferskum fiski og ómótstæðilegumeðlæti
Sjá nánar á fylgifiskar.is
afsláttur af súpunum okkar20%
Gildir 3. og 4. nóvember
Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðar-
son, annar höfunda óperunnar
Ragnheiðar, er byrjaður að viða að
sér efni fyrir aðra óperu.
Ragnheiður, sem Gunnar samdi
ásamt Friðriki Erlingssyni, sló
rækilega í gegn. Ríflega 12 þúsund
manns sáu níu sýningar fyrir full-
um Eldborgarsal í Hörpu sl. vor.
Gunnar segir að vegna fjölda
áskorana verði bætt við aukasýn-
ingum 27. og 28. desember, eins og
fram kom í samtali Morgunblaðsins
við óperusöngkonuna Þóru Einars-
dóttur, sem fer með hlutverk Ragn-
heiðar, hinn 20. október sl.
Gunnar segist aðspurður vera
byrjaður að undirbúa nýja íslenska
óperu. Umfjöllunarefnið verður
ekki gefið upp að sinni. „Ég er að
lesa mér til og er aðeins byrjaður
að fikta í einum hlut. En það er
varla tímabært að segja frá því,“
segir Gunnar sem vill koma á fram-
færi þakklæti fyrir góðar viðtökur
á Ragnheiði. Miðasalan á sýning-
arnar hefst í dag. b aldura@mbl.is
Ný íslensk
ópera er
í smíðum
Gunnar Þórðarson
viðar að sér efnivið
Morgunblaðið/Ómar
Óperan Ragnheiður Tónlistin úr
verkinu kemur út á diski fyrir jól.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Ekki hefur verið nógu mikið lagt í
rannsóknir á súrnun sjávar miðað
við að það er líklega helsta umhverf-
isvá sem steðjar að Íslandi. Þetta
segir Hrönn Egilsdóttir, dokt-
orsnemi við jarðvísindadeild Há-
skóla Íslands. Hún hlaut hvatning-
arverðlaun Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi (SFS) á föstudag fyrir
rannsóknir sínar á áhrifun súrn-
unarinnar á kalkmyndandi lífríki í
hafinu við Ísland.
Áætlað er að höfin hafi tekið upp
um fjórðung af því koltvíoxíði sem
menn hafa dælt út í lofthjúp jarðar
frá iðnbyltingunni. Þetta hefur leitt
til þess að höfin hafa súrnað sem
hefur áhrif á lífríkið.
„Allar lífverur sem mynda kalk,
kórallar, ígulker, kræklingar og
kalkþörungar til dæmis, eru í mest-
um áhættuhóp,“ segir Hrönn.
Ef þessum stofnum hnignar hefur
það aftur áhrif á
alla fæðukeðjuna
í hafinu, þar á
meðal fiskteg-
undir sem veidd-
ar eru hér við
land.
Hafið súrnar
hins vegar ekki í
sama mæli alls
staðar. Þannig
segir Hrönn að pH-gildi eða sýru-
stig sjávarins við Ísland lækki 50%
hraðar við Ísland en sunnar í Atl-
antshafi. Ástæða þess að hafið súrn-
ar hraðar hér er sú að kaldari sjór
tekur upp meira af koltvísýringi en
hlýrri.
„Hafið við Ísland er viðkvæmara
út af því hvað það er kaldur sjór við
landið,“ segir hún.
Efla rannsóknir til framtíðar
Rannsóknir Hrannar fyrir háskól-
ann og Hafrannsóknastofnun bein-
ast fyrst og fremst að kalkmyndandi
lífverum en hún gerir einnig beinar
mælingar á sýrustigi hafsins. Hún
telur að miðað við hættuna sem
steðjar að Íslandi af völdum súrn-
unar sjávar þá sé ekki lögð nógu
mikil áhersla á rannsóknir á henni.
„Með þessum hvatning-
arverðlaunum SFS eru hags-
munaaðilar núna farnir að kalla eft-
ir rannsóknum á þessu. Mér finnst
líklegt að það hjálpi til við að efla
þær á Íslandi til framtíðar,“ segir
Hrönn.
Súrnun sjávar helsta umhverfisógnin
Doktorsnemi í líffræði hlaut hvatningarverðlaun SFS Hagsmunaaðilar kalla eftir rannsóknum
Hrönn
Egilsdóttir
Haförninn sem
rjúpnaskytt-
urnar Ingvar
Helgason og
Hafþór Óskar
Gestsson björg-
uðu við veiðar á
Skógarströnd við
Breiðafjörð á
föstudaginn er
nú í Húsdýra-
garðinum í
Reykjavík þar sem hann nýtur að-
hlynningar. Fyrsta verk starfsfólks-
ins var að fá örninn til að éta og
heilsast honum vel að sögn Jóns
Gíslasonar, yfirdýrahirðis Hús-
dýragarðarins. Gæðir örninn sér á
ýmsu kjötmeti en hann er hrifnastur
af geita- og lambakjöti.
Örninn var grútarblautur þegar
hann fannst og átti þess vegna erfitt
með flug. Ef þörf er á frekari að-
hlynningu gæti verið að örninn yrði
til sýnis í garðinum en honum verður
sleppt þegar hann verður hraustari.
Verður mögu-
lega til sýnis
Haförn Örninn er
farinn að éta vel.