Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 10

Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 Malín Brand malin@mbl.is Þ að er ljóst, eftir tiltölu- lega stutt spjall, að tón- listarkonan Brynhildur Oddsdóttir hefur fjöl- margt fyrir stafni og býr yfir ótakmarkaðri lífsorku auk smitandi lífsgleði sem er sannar- lega mikill kostur hvar sem er í líf- inu sjálfu. Hún er rúmlega þrítug og hefur gert býsna margt þrátt fyrir ungan aldur. „Ég er menntuð tamningakona og hef verið að temja í mörg ár,“ segir Brynhildur sem lærði tamningar á Hólum í Hjaltadal og lauk náminu þar fyrir um áratug. Söngnám með tamningunum Tónlistin hefur alltaf ómað innra með Brynhildi og lærði hún á fiðlu sem barn og var grunnurinn því lagður snemma. „Ég hafði samt lítið gert af því að syngja og það var ekki fyrr en ég fór að læra söng eftir að ég kláraði Hóla sem ég fór alveg út í tónlistina,“ segir hún. Samhliða tamningunum stundaði hún söngnámið af kappi. Hún er enn í hestamennskunni en ekki leið á löngu þar til tónlistin varð aðalatriðið og hestarnir þurftu að víkja. „Tónlistin hefur tekið yfir og það hefur verið nóg að gera,“ segir Brynhildur og það skýrir sig sjálft þegar tónlistarferillinn er skoðaður nánar. „Tónsmíðaáhuginn kviknaði í söngnáminu í Nýja tón- listarskólanum og ákvað að sækja um í Listaháskólanum, í tónsmíða- nám. Ég komst inn þar og það voru alveg frábær ár sem ég átti Úr tamningunum yfir í tónlistina Tónlistarkonan Brynhildur Oddsdóttir sendi fyrir skemmstu frá sér plötuna Burn- ing Heart. Brynhildur er í fararbroddi Beebee and the bluebirds og leikur á raf- magnsgítar, syngur og semur tónlistina. Hún er vel menntuð í tónlist og hefur lok- ið tónsmíðanámi, söngnámi og er komin langt í námi í rafgítarleik við FÍH. Það kann því að koma á óvart að þessi stelpa sé menntuð tamningakona líka. Ljósmynd/Eva Rut Hjaltadóttir Afköst Nýlega kom út platan Burning Heart með Beebee and the bluebird. Menningarhátíðin Vökudagar stendur nú sem hæst á Akranesi og af því til- efni kemur fjöldi listamanna fram. Á meðal viðburða er höfundakvöld í Bókasafni Akraness, sem orðið er að árlegum viðburði. Yfirskriftin að þessu sinni er „Viltu hjálpa mér að lifa þessa kátu stund?“ og lesa fimm höfundar þar úr nýjum bókum sínum á bókasafninu klukkan 20 í kvöld. Þeir eru: Ari Jóhannesson, Kristín Steinsdóttir, Orri Harðarson, Sigurbjörg Þrastardóttir og Þorgrímur Þráinsson. Auk þess mun Karl Hallgrímsson, söngvaskáld, flytja tónlist við eigin texta, en hann er m.a. meðlimur í hljómsveitunum Karl og mennirnir og danssveitinni Blek og byttur. Bókasafn Akraness fagnar 150 ára afmæli sínu í vikunni og er höfunda- kvöldið liður í hátíðarhöldum. Vefsíðan www.bokasafn.akranes.is Morgunblaðið/Kristinn Afmæli Í næstu viku fagnar Bókasafnið 150 ára afmæli og er margt um að vera. Að lifa þessa kátu stund Í tilefni af útgáfu Eddukvæða I-II býður Hið íslenzka fornritafélag til kynningar í dag, mánudag á Litla torgi í Háskólatorgi. Hún hefst kl. 16.30. Vésteinn Ólason spjallar um út- gáfuna og Svanhildur Óskarsdóttir les upp úr Eddukvæðum. Útgefendurnir, Jónas Krist- jánsson og Vésteinn Ólason, voru samanlagt í röska þrjá áratugi for- stöðumenn Árnastofnunar. Verkið nýtur reynslu þeirra af rannsóknum og útgáfum fornra texta og áhuga- vert að kynna sér það sem fram kemur í dag. Endilega … … lesið Eddukvæði Morgunblaðið/Ómar Kynning Ný útgáfa Eddukvæða kynnt. Opinn fundur verður í hádeginu í dag á vegum Alþjóðamálastofnunar Há- skóla Íslands í samstarfi við Evrópu- stofu. Að því er fram kemur í kynn- ingu fundarins á vef Háskóla Íslands hafa það sem af er þessu ári yfir 160 þúsund hælisleitendur og farand- verkamenn lagt í hættuför yfir hafið frá Norður-Afríku til Evrópu, fyrir ut- an þá 3.000 sem aldrei náðu landi. „Mikil aukning á alvarlegum vopn- uðum átökum allt frá Malí í Vestur- Afríku yfir til Gaza, Sýrlands, Íraks og víðar, hefur verið sannkölluð gull- náma fyrir þá sem stunda smygl á fólki. Flestir, í það minnsta 4.000 manns, leggja í hann frá eftirlits- lausum höfnum Líbíu, aðallega á leið til Ítalíu,“ segir ennfremur í kynning- unni. Á fundinum mun Hugo Brady, sérfræðingur hjá Ör- yggismálastofnun Evrópusambands- ins, leitast við að útskýra hvað liggur að baki þessum miklu fólksflutn- ingum yfir Miðjarðarhafið og vanda þeirra sem móta stefnuna í glímunni við þennan mannlega harmleik. Fundarstjóri: Pia Hansson, for- stöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands. Fundurinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir í stofu 201 í Odda þar sem fundurinn er frá klukkan 12 til 13. Nánar á www.ams.hi.is. Hryllingsárið til umræðu í hádeginu Schengen og landamæri þess við Miðjarðarhafið Reuters Hví? Rætt verður um ástæður hættulegra fólksflutninga yfir Miðjarðarhafið. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. TÖLVUDEILD - ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568 1581 www.thor.is EPSON WORKFORCE PRO WF-5620 Þráðlaus fjölnota skrifstofuprentari (Fax, skanni, ljósritun og prentun) Þægilegur snertiskjár, 30 bls á mínútu, prentar báðumeginn, auðvelt að skipta um blek, hægt að prenta á umslög og þykkari pappír, minni rekstrarkostnaður en af laser prenturum. EPSON WORKFORCE PRO WF-5110W Þráðlaus skrifstofuprentari Prentar báðumeginn, auðvelt að skipta um blek, hægt að prenta á umslög og þykkari pappír, minni rekstrarkostnaður en af laser prenturum 42.00 0 EPSO NWo rkFor ce ProW F-511 0W ,- Einfaldur og þægilegur heimilisprentari. - Hentar vel fyrir skólafólk - Prentar út ljósmyndir - Skannar og ljósritar - Með AirPrint (beinn stuðningur við iPhone/iPad) - Hægt að fá App fyrir bæði Iphone og Android tæki - Allar skipanir á skjá - Þráðlaus 14.00 0 EPSO N Exp ressio n Home XP-32 2 ,- EPSON EXPRESSION HOME XP-322 Prentarar fyrir skrifstofuna, heimilið og ljósmyndara 64.00 0 EPSO NWo rkFor ce ProW F-562 0DWF ,- ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.