Morgunblaðið - 03.11.2014, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 03.11.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 Við bjóðum spennandi matseðil Íslendingar hafa fjölbreyttan smekk sem við gerum okkar allra besta á hverjum degi að sinna. Þitt er valið! SKELLTU ÞÉR ÚT AÐ BORÐA. 565 6000 / somi.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Dekk Nú þurfa ökumenn að huga betur að dekkjunum en áður. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Um helgina gekk í gildi ný reglu- gerð um leyfða lágmarksmynstur- dýpt á hjólbörðum. Þann 1. nóv- ember rann jafnframt úr gildi bann við notkun nagladekkja en heimilt er að nota þau frá þeim tíma til 14. apríl ár hvert. Lágmarksmynsturdýpt er nú 3 mm yfir veturinn en 1,6 mm yfir sumarið. Hún var áður 1,6 mm sum- ar sem vetur ef undan eru skildir vörubílar en lágmarkið var 1 mm. Eigendur bera ábyrgð Dagur Benónýsson, rekstrar- stjóri verkstæðis N1, segir að fólk sé sjálft ábyrgt fyrir því að hafa nægjanlega mynsturdýpt á dekkj- unum. „Að sjálfsögðu bendum við fólki á það ef dekkin eru orðin léleg og í sumum tilvikum neitum við að setja þau undir. Sem betur fer hafa orðið umskipti í hugsun fólks á undan- förnum árum varðandi það. Fólk er orðið mun meðvitaðra um að vera á góðum hjólbörðum en var. Ég hef starfað við þetta í 30 ár og þetta hefur breyst mikið.“ Mörg dekk ansi slitin Hann segir að mikið hafi verið að gera undanfarnar vikur. „Það kom smáhret um daginn og þá er í raun kominn tími á að skipta um dekk,“ segir Dagur. Ásgeir Gíslason, eigandi Hjól- barðaverkstæðis Sigurjóns, tekur í sama streng. „Fólk hendir allavega dekkjum sem eru alveg galin. Þessi reglu- gerðarbreyting hjálpar fólki að komast á betri dekk. Nú slítur fólk sjaldan dekkjunum alveg niður í kviku,“ segir Ásgeir. Hann segir þó enn of algengt að fólk sé á lökum dekkjum. „Við sjáum það á rusla- haugnum okkar að dekkin eru mörg hver ansi slitin,“ segir Ásgeir. „Alveg galin“ dekk fara á haugana  Ný reglugerð um mynsturdýpt sumar- og vetrardekkja hefur tekið gildi  Dýptin er 3 mm yfir veturinn en 1,6 mm á sumrin  Fólk meðvitaðra Þingmenn allra flokka hafa lagt fram þingsálykt- unartillögu um að seinka klukk- unni á Íslandi um eina klukku- stund. Seinkunin væri í gildi allt árið, þannig að ekki yrði um sumartíma að ræða. Í tillögunni, sem var lögð fram á síðasta degi októbermánaðar, segir að miðað við gang sólar sé klukkan á Íslandi rangt skráð. Síðan 1968 hafi hún verið stillt á sumartíma allt árið og sé því klukkutíma of fljót miðað við legu landsins. Það leiði til þess að ljósaskiptum seinki, bæði dagrenningu og kvöldi. Í tillögunni er einnig bent á að með núverandi fyrirkomulagi fái Íslendingar bjartari kvöld á sumr- in, en fórnarkostnaðurinn sé að á veturna styttist birtutíminn um rúmar sex vikur. Þingmenn vilja seinka klukkunni um einn tíma Á flokksráðs- fundi Sjálfstæðis- flokksins um helgina var Guð- laugur Þór Þórð- arson alþingis- maður kjörinn ritari flokksins með 83% greiddra at- kvæða. „Ég er af- skaplega þakklátur fyrir þennan mikla stuðning sem ég fann. Þetta er spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með forystu flokksins og sjálfstæðisfólki um allt land að því að styrkja Sjálfstæðisflokkinn og það sem hann stendur fyrir enn frekar,“ sagði Guðlaugur Þór við mbl.is Kjörinn ritari Sjálf- stæðisflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra hefur skipað Stefán Hauk Jó- hannesson ráðu- neytisstjóra í utanríkisráðu- neytinu frá 1. nóvember. Einar Gunnarsson sem verið hefur ráðu- neytisstjóri frá árinu 2009 verður fastafulltrúi hjá fastanefnd Íslands í New York frá 1. janúar, segir í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu. Stefán hefur undanfarin ár gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum í utan- ríkisþjónustunni. Undanfarna mán- uði var Stefán yfirmaður eins af eftirlitsteymum Öryggis- og sam- vinnustofnunar Evrópu í Úkraínu. Stefán Haukur orð- inn ráðuneytisstjóri Stefán Haukur Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.