Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014
Anna Rósa Böðvarsdóttir er deildarstjóri gæða og öryggis hjáumhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar og er núnaað vinna að innleiðingu gæðastjórnunarkerfis fyrir bygging-
arfulltrúa Reykjavíkurborgar. Tilgangurinn með því að vera með
vottað kerfi er að geta sýnt fram á að ástunduð séu vönduð vinnu-
brögð. „Þau eru til staðar en með vottuninni er komin staðfesting á
því að svo sé og um leið tækifæri til að gera enn betur. Sviðið er ný-
komið með vottað umhverfisstjórnunarkerfi fyrir alla starfsemina,
en með því erum við búin að ná utan um þá þætti í rekstri sviðsins
sem varða umhverfið. Það er t.d. gefið út grænt bókhald, en í því
eru umhverfisáhrif sviðsins vöktuð s.s. eldneytisnotkun.
Svo er ég einnig að undirbúa fund með öryggisvörðum og trún-
aðarmönnum sviðsins um öryggismál, m.a. slysaskráningar og
áhættumat. „Það er því nóg að gera en mér finnst þetta mjög
skemmtileg starf. Ég er mikið að vinna með starfsfólki sviðsins og
það gefur innsýn inn í ólík störf og um leið tækifæri til að kynnast
nýju og skemmtilegu fólki.“
Fjölskylda Önnu Rósu á jörð í Miðfirði í V-Húnavatnssýslu, en
Anna Rósa er alin upp þar og er hún dugleg að heimsækja æskuslóð-
irnar, ekki síst á veturna. Á vorin hefur svo verið stunduð skógrækt
á jörðinni. Foreldrar hennar eru Böðvar Sigvaldason og Eva Thor-
stensen og eiginmaður Önnu Rósu er Sigurður Benedikt Stefánsson.
Anna Rósa Böðvarsdóttir er 45 ára í dag
Við veiðar Anna Rósa stödd við Austurkvísl í Miðfjarðará.
Dugleg að fara
á æskuslóðirnar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Kópavogi Gabríel Elías
Snæland Úlfarsson fædd-
ist 22. mars 2014 kl. 0.55.
Hann vó 4.006 g og var 53
cm langur. Foreldrar hans
eru Suzette Barriga Cui-
zon og Úlfar Harri Elías-
son.
Nýir borgarar
L
íneik Anna fæddist í
Reykjavík 3.11. 1964 en
flutti nokkurra mánaða
með foreldrum sínum
austur á Hérað þar sem
þau hófu búskap í Rauðholti í Hjalta-
staðaþinghá vorið 1965.
„Í Rauðholti var þá sauðfjár- og
kúabú. Ég lifði mig snemma inn í
sveitastörfin og hafði sérstakan
áhuga á sauðfénu og hestunum.
Á unglingsárunum komst ég að því
að fátt er meira róandi en að mjólka,
því þar verður að fylgja nákvæmu
verklagi og taktvisst hljóðið í mjalta-
vélunum hefur afar sefandi áhrif.“
Líneik Anna var í Barnaskólanum
á Eiðum, Alþýðuskólanum á Eiðum
og skiptinemi við Midlakes High
School í norðanverðu New York-ríki í
Bandaríjunum. Hún lauk stúdents-
prófi frá Menntskólanum á Egils-
stöðum vorið 1985 og tók síðan ár í að
vinna og þvælast um Evrópu.
Líneik Anna lauk BS-prófi í líf-
fræði við HÍ 1989, prófi í uppeldis- og
kennslufræði frá HÍ 1991, hefur lokið
framhaldskúrsum og námskeiðum í
kennslufræði og stjórnun og prófi í
svæðisleiðsögn.
Með náminu vann Líneik Anna við
búskapinn í fríum, hjá Kaupfélagi
Héraðsbúa í nokkur sumur og kynnt-
ist þá mörgum íbúum á Héraði, og
síðan sex sumur á Hótel Eddu á Eið-
um.
Skólastjóri á Fáskrúðsfirði
Líneik Anna kenndi og sinnti rann-
sóknum 1989-93, var endurmennt-
unarstjóri við Bændaskólann á
Hvanneyri 1993-96, kennari við
Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 1996-97,
verkefnisstjóri samstarfsnefndar
framhaldsskóla á Austurlandi 1998-
2000, starfaði við endurmenntunar-
deild Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri 1998-2002, var fram-
kvæmdastjóri Fræðslunets Austur-
lands 2002-2004, kennari við Grunn-
skóla Fáskrúðsfjarðar 2004-2006,
skólastjóri þar 2006-2013 og er alþm.
Framsóknarflokksins frá 2013.
Líneik Anna sat í sveitarstjórn
Búðahrepps og Austurbyggðar 1998-
Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður – 50 ára
Úti í garði Líneik með börnunum sínum, þeim Ásgeiri Páli, Ingu Sæbjörgu, Ástu Hlín og Jóni Braga.
Sækir orku í sveitina
Við eyktarvörðu Magnús og Líneik
ofan við Ögurvíkina í Ísafjarðadjúpi.
Yngsta systkinabarnið Líneik Anna
með Almar Frey Sigbjarnarson.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.