Morgunblaðið - 03.11.2014, Side 24

Morgunblaðið - 03.11.2014, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt auðvelt með að sannfæra við- mælendur þína og átt að notfæra þér það til hins ýtrasta. Eitthvað á eftir að koma þér ánægjulega á óvart. Sinntu þessu verkefni. 20. apríl - 20. maí  Naut Gerðu greinarmun á skoðunum og staðreyndum. Ekkert er aumkunarverðara en sá sem gasprar af engu viti. En málið er ekki að allt sé auðvelt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Af þér fer orðstír sem þú hefur unnið til og þú munt gera eitthvað til að bæta hann eða vernda. Minntu fólk ljúflega á það. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú óttast ekki hvað öðrum finnst, sem gerir þig flinka í því að koma sjónar- miðum þínum áleiðis á frumlegan máta. Vertu sérstaklega á verði með það hvað þú segir öðrum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt bágt með að einbeita þér að starfinu, þar sem áhyggjur af einkamálum dreifa athyglinni. Þegar fólk kynnist þér á einn hátt ætlast það til að þú breytist ekki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú leiðist inn í furðulegar aðstæður. Auðvitað er það ekki sérstaklega gaman en einhver verður að taka það að sér til þess að efla liðsandann. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur fullt af orku í vinnunni og kemur miklu í verk. Frábær tækifæri eru í þann mund að falla þér í skaut. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Aðstæður þínar hafa breyst og þú sérð að þú þarft að breyta klæðaburði þínum. Hvort sem þú ætlar þér það eða ekki verður þú í félagsskap þeirra sem þér eru kærastir innan tveggja sólarhringa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Að vinna með hópi felur ósjálfrátt í sér málamiðlanir. Gerðu annað í dag; skoð- aðu þitt nánasta umhverfi betur en áður. Gættu þín samt á því að verða ekki fyrir- hyggjuleysinu að bráð. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt í mörg horn sé að líta skaltu ekki gleyma að sinna þeim sem standa þér næstir. Ferðalag myndi seðja hungur til æv- intýra og hrista upp í þér andlega. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Settu saman lista í huganum yfir alla þá sem þig langar til þess að kynnast. Best er að öðlast vitneskjuna á óformlegan hátt, með því að tala við fólk. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vitneskja þín um orkuflæði bætir nýrri vídd við líf þitt. Haltu ótrauð áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni á ólíklegustu stöðum. Sigrún Haraldsdóttir orti þessahringhendu nýhendu og er vel kveðið: Lítt fékk í nátt að leita hlés, líða um máttug draumavengi, stormur um gáttir bráður blés, bölvaði hátt og rýtti lengi. Helgi R. Einarsson orti af því til- efni að Helgi Hjörvar og forsætis- ráðherra vor sáu hlutina ekki í sama ljósi á þingi daginn þann: Sigmundur Davíð er gildur græðari, í gjafmildi sinni er flestum skæðari, en ef loforðin svíkur hann öðrum er líkur. Árinni kennir illur ræðari. Ærist í pontunni Helgi Hjörvar, í herðar klýfur og blóðþrýsting örvar, ljúflingnum Simma líkir við krimma. Kappar á þingi, hvorugur hörfar. Davíð Hjálmar Haraldsson vakti athygli á því á Leirnum á föstudag að „Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær konu til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að slá son sinn með stólfæti“: Oft hún grætur atburð þann enda mikill skaðinn. Betur hefð́ún barið́ann með borðfæti í staðinn. Dagsetningar verða að vera ná- kvæmar. Deginum áður, á fimmtu- daginn, var að sögn vegna meng- unar frá Holugosi slökkt á kynding- unni í sjúkrahúsinu á Akureyri. Davíð Hjálmar orti: Sjúkrahúsin eiga öll að spara, umönnun þau minnka vegna skulda. Eyfirðingar aðra leið þó fara og aumingjana drepa strax úr kulda. Ármann Þorgrímsson yrkir og ekki að ástæðulausu: Íslensk hagfræði – fyrir hverja? Hagfræði blárra, hagfræði rauðra, hagfræði ríkra manna eða snauðra, hagfræði lifandi, hagfræði dauðra, hagfræði þúsund blaðsíðna auðra. Jón Arnljótsson segir ekki gott af sjálfum sér: Eftir vegferð vondra hramma, veikur núna get ég sagst. Margra þúsund míkrógramma mengun hefur á mig lagst. Hallmundur Kristinsson orti á Boðnarmiði: Þegar með Lilju frá Lundi lokið var ástarfundi, „það endar víst allt sem aumt er og valt,“ mælti hann Stefán og stundi. Halldór Blöndal (halldorblondal@simnet.is) Vísnahorn Af veðrabrigðum, erjum á þingi og lífsins gangi Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „... OG ÞEGAR ÞÚ FERÐ Í KVÖLDGÖNGUNA, REYNDU AÐ GANGA AÐEINS HRAÐAR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hlusta á hjartslátt- inn hans. ... ÞANNIG AÐ ÞÚ ERT ALDURS- MARTRÖÐIN MÍN Í NÓTT? HVAÐ ÁTT ÞÚ AÐ VERA? ÞESSI KASTALI ER MEÐ STÓRA DÝFLISSU... ...SEM ER AUÐVELDLEGA HÆGT AÐ BREYTA Í HERBERGI FYRIR TENGDAMÆÐUR! ÉG ER SMÁTT LETUR! MÚ-HA-HA-HAAAA! MMMMFF! MMMFFF! MUN ÖRUGGLEGA ENDURNÆRA HÁRIÐ ÞITT. AÐ ÖÐRU LEYTI ERTU Á EIGIN VEGUMA Tekið skal undir það sem fram komá ráðstefnu í síðustu viku og sagt var frá í Morgunblaðinu, að frásagnir um börn og unglinga sem í vanda lenda séu hættuspil. Það sem fram komi á opinberum vettvangi, svo sem í blöðum, ljósvaka og á netinu, lifi þar um ókomna tíð, sem tæknilega séð er hárrétt. Hitt ber á að líta að allflestir fjölmiðlar eru varfærnir í þessum fréttamálum og munum líka að það sem ratar á netið fer í svelg þar sem öllu ægir saman og margt týnist. Vef- síður eru settar upp og teknar niður sitt á hvað og í hraða fjölmiðlunar nú- tímans eru fréttir fljótar að gleymast. Sama gildir um færslur á Facebook. Það er hending ef einstaka umfjöll- unarefni lifir lengur en tvo til þrjá daga. Því er ástæðulítið að hafa áhyggjur af að umfjöllunin vari lengi, þó Víkverji dagsins sýni því skilning að sár geti sest í sálir fólks, af þessum sökum. x x x Fyrir klaufaskap á yngri árum lendamargir á sakaskrá sem þýðir úti- lokun í ýmsu tilliti. Það er óréttlátt. Til er sú óskráða regla að elta ekki ólar við glappaskot sem fólk gerir fyrir tví- tugt, hvort sem þau eru færð í saka- bækur eða eru til í netheimum. Bernskubrek geta verið manndóms- merki og upprifjun unnið með fólki þegar og ef það tekur sér tak svo úr aulum verður afreksfólk og sannir sig- urvegarar. x x x Það eru önnur mál sem snúa aðungu fólk sem Víkverji hefur áhyggjur af. Oft heyrum við frásagnir af afleiðingum eineltis, en fórnar- lömbin eru einatt varnarlítið fólk og uppburðarlítið. Gerendur eru oft skólasystkini sem í ungdæmi Víkverja voru kölluð hrekkjusvín. Vandinn er þó ekki bundin við þau. Fullorðið fólk getur sært krakka hræðilega. Margir geta sagt slíkar sögur um kennara eða foreldra eða minnast harðleikinnar löggu, leiðinlegs karls í næsta húsi og svo framvegis. Aðgát skal höfð í nær- veru sálar, orti Einar Ben. og það tel- ur Víkverji að fjölmiðlar geri yfirleitt í umfjöllun um börn. Mörgum öðrum bregst þó bogalistin þar – því mörgum eru mannasiðir framandi latína. víkverji@mbl.is Víkverji Kenn mér að gera vilja þinn því að þú ert Guð minn, þinn góði andi leiði mig um slétta braut. (Sálmarnir 143:10) Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922 Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is Gripahúsagluggar á góðu verði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.