Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 29

Morgunblaðið - 03.11.2014, Síða 29
utan og íslenskan veruleika al- mennt, sérstaklega ekki eftir fyrri senur úr Reykjavík. Persónurnar eru byggðar á erki- týpum. Perla er hið viðkvæma og hreina stúlkubarn sem ratar í óhugnanlegar aðstæður. Sonja holdgerir melódramatísku móður- ímyndina sem er undirokuð heft- andi karlveldi og Gunnar er breyska, þjakaða hetjan sem skort- ir því miður alla dýpt í þessu tilviki. Persónurnar eru mjög ósamstæðar og ósannfærandi og samtöl þeirra síður en svo lipur. Sálarangist og yfirvofandi sturlun þeirra snertir því áhorfendur lítið svo dramatískir tilburðir leikara verða afar hjákát- legir. Hið óhugnanlega í hrollvekju verður að þjóna tilgangi, vera í senn þægilega kunnuglegt og ógn- vænlega framandi til að áhorfendur upplifi taugatrekkjandi spennu. Áhorfandinn þarf að vera hæfilega óviss um hvort sumir atburðir og persónur séu raunveruleg, án þess þó að dramatísk spenna ljái honum ráðrúm til að velta því mikið fyrir sér. Myndinni tekst á stöku stað að framkalla vísa að slíkri spennu. Persóna Perlu er t.d. fremur ann- arleg og vel heppnuð, enda segir hún minnst og tjáning hennar er yfirveguð og mest líkamleg. Hin unga Elva María er í raun eini styrkleiki myndarinnar en óvæntur flutningur Ellýjar Villhjálms á lag- inu „Heyr mína bæn“ af plötuspil- ara er einnig nokkuð magnaður. Það virka ekki jafnvel tilgerðarlegir draugar í ofhlöðnum gervum sem birtast stirðbusalega við rúmgafla og í speglum og samhengislausum stældum atriðum eins og af- skræmdum ljósmyndum og blóð- ugum fótsporum á stangli, slíkt verður iðulega hlægilegt og aðeins til þess fallið að drepa alveg niður alla spennu. Það er einstaklega sorglegt að þessi mynd skyldi hljóta brauðfæt- ur í vöggugjöf, sérstaklega með til- liti til þess að flestir sem koma að henni búa að hæfileikum og reynslu og því er fall þeirra ansi hátt. Kvik- myndir þurfa ekki alltaf að kosta heil ósköp en vanda verður grunn- inn svo útkoman renni ekki út í sandinn. Gunnars í kvikmyndinni Grafir og bein, en margt ágætt fagfólk kemur að myndinni. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2014 Ragnar Kjartansson myndlistar- maður hratt um helgina nýrri sýningu sinni í menningarhúsinu Skúrnum af stað með gjörningi. Á laugardag og sunnudag var hann í Skúrnum, sem hefur að þessu sinni verið komið fyrir við heimili Hrafns Gunnlaugssonar á Laugarnestanga, og málaði portrett- myndir af Bjarna Friðrik Jónssyni sem Ragnar kallar „Bjarna bömmer“. Meðan á sköpuninni stóð hlustuðu málarinn og fyrirsætan síendurtekið á sama gamla lagið með hljómsveit- inni Eagles, „Take it Easy“. Sýning Ragnars mun síðan standa næsta mánuðinn og þá geta gestir gægst á Glugga og virt málverk Ragnars fyrir sér. Ragnar kemur víða við um þessar mundir, sýnir í Buswick-útibúi gall- erís síns í New York, LuhringAugust- ine Gallery, og undirbýr stóra sýn- ingu fyrir Palais Tokyo í París. Morgunblaðið/Ómar List Hægt var að guða á gluggann og sjá hvað fram fór inni í skúrnum. Ragnar málaði Bjarna bömmer Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control (YAIC) verður haldin í Reykjavík í sjöunda sinn í dag og á morgun og fer hún fram í Bíó Para- dís. Á ráðstefnunni mætast skapandi greinar; hönnun, tónlist, bókmenntir, tölvutækni, leiklist, kvikmyndagerð og myndlist og sækja hana listamenn og skapandi frumkvöðlar í bland við erlenda gesti og þátttakendur á heimsmælikvarða, eins og segir í til- kynningu. Þema ráðstefnunnar í ár er „skap- andi samsláttur“ (e. creative syn- ergy) og er áhersla lögð á verkefni og skapandi fólk sem vinnur þvert á eða milli listgreina og rýnt í hvaða nýju tækifæri er að finna í þessum sam- slætti. Meðal þeirra sem taka þátt í ráðstefnunni er Ragnar Kjartansson og mun hann flytja erindi á ráðstefn- unni auk þess sem verk hans „The Man“ verður sýnt. Aðrir fyrirlesarar eru Christine Boland sem er þekkt af sk. „trend forecasting“ á sviði tísku, hönnunar og neyslumynsturs, þ.e. að spá fyrir um hvað muni slá í gegn; bandaríski tónlistarmaðurinn Zebra Katz sem hefur unnið þvert á list- greinar í listsköpun sinni og Nelly Ben Hayoun sem hefur verið nefnd „Willy Wonka hönnunar og vísinda“. Hayoun er sk. upplifunarhönnuður og þúsundþjalasmiður og vinnur með vísindamönnum, verkfræðingum og listamönnum og hefur unnið til margra verðlauna fyrir verk sín. Ha- youn er stjórnandi The International Space Orchestra og vinnur m.a. með geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, The SETI Institute og WeTr- ansfer. Vala Halldórsdóttir, innihaldsstýra QuizUp, frumkvöðull og leikstjóri mun einnig halda erindi en hún leik- stýrði meðal annars myndinni The Startup Kids. Edward Nawotka, rit- stjóri og stofnandi Publishing Per- spectives sem er leiðandi tímarit um útgáfumál og hefur verið nefnt BBC bókaheimsins, er einnig meðal fyr- irlesara. Auk dagskrár með fyrirles- urum verður boðið upp á fjölbreyttar vinnustofur og uppákomur tengdar þema ráðstefnunnar í ár. Fyrirlesari Tónlistarmaðurinn Zebra Katz með kött í fanginu. Skapandi samsláttur á YAIC í Bíó Paradís Trúlofunarhringar - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Ísl. tal POWERSÝNING KL. 10:10 -H.S., MBL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 16 16 16 L JOHN WICK Sýnd kl. 8-10:10 (power) GRAFIR OG BEIN Sýnd kl. 6 - 8 BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50 - 10:10 FURY Sýnd kl. 10:30 KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Töff, naglhörð og dúndurskemmtileg hefndarmynd sem ætti alls ekki að valda hasarunnendum vonbrigðum. -T.V. - Bíóvefurinn.is Hörku spennumynd Keanu Reeves

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.