Morgunblaðið - 03.11.2014, Side 32

Morgunblaðið - 03.11.2014, Side 32
MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 307. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Hent fyrir bíl af dyraverði 2. Engu munaði að illa færi … 3. Óveður á Kjalarnesi 4. Eins marks tap í Svartfjallalandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Einn liður í því að opna Borgarleik- húsið fyrir almenningi er að bjóða leikhúsáhugafólki að fylgjast með frá byrjun æfinga á verkum. Í dag kl. 10 verður leiklesið verkið Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen í forsal leikhúss- ins. Dúkkuheimili er jólasýning Borgarleikhússins og fer Unnur Ösp með aðalhlutverkið. Allir velkomnir. Opinn samlestur á Dúkkuheimili Ibsens  Í kvöld verður afmælisblús- djamm á blús- kvöldi Blúsfélags Reykjavíkur á Rósenberg kl. 21. Þar munu helstu blúsarar landsins mæta og taka lag- ið. Ný súper- grúppa, Blue Wild Angels, kemur fram í fyrsta skipti, en einnig hljóm- sveitin Kveinstafir og Jón frændi eða Uncle John jr. Afmælisblúsdjamm á Kaffi Rósenberg  Dagana 3.-15. nóvember er fólki boðið að fylgjast með ferlinu á leikrit- inu Ríkharði III. (fyrir eina konu), sem er unnið upp úr verki Shakespeare. Leikstjóri er Kolbrún Björt Sigfús- dóttir og leikari er Emily Carding. Þær eru komnar í Tjarnarbíó til að rann- saka verkið, afstöðu sína til pólitíkusa og hvort það breyti einhverju ef Ríkharður III. er kona. Nánar á Arty Hour 3. nóv. Breytir einhverju ef Ríkharður III. er kona? Á þriðjudag Hæg breytileg átt og víða léttskýjað. Frost 0 til 13 stig, mest í innsveitum fyrir norðan. Á miðvikudag Vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri, 10-18 m/s síðdegis. Þurrt á N- og A-landi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Minnkandi norðanátt, yfirleitt 5-13 síðdegis með éljum norðaustantil og kólnandi veður, hægari á Vestfjörðum. VEÐUR „Það er að sjálfsögðu mikill léttir að þetta mál skuli vera endanlega úr sögunni og nú getur maður loksins horft fram á veginn á ný. En það er búið að valda mér miklum skaða að standa í þessu, ekki síst ómakleg ummæli sem hafa fallið í minn garð,“ segir Guðjón Þórðarson knattspyrnu- þjálfari sem vann mál gegn knattspyrnudeild Grinda- víkur fyrir Hæstarétti. »8 Búið að valda mér miklum skaða „Þetta er mjög gaman eins og deildin er núna, jafnt eins og stigataflan sýn- ir og leikirnir líka jafnir og margir þeirra farið í framlengingu,“ segir Ingvar Jónsson, landsliðsmaður í ís- hokkíi og einn reyndasti leikmaður Akureyringa, sem unnu ævintýra- legan sigur á Esju á Íslandsmótinu um helgina. Þeir eru því með góða forystu í annars hnífjöfnu móti. »7 Mjög gaman eins og deildin er núna ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Benedikta Br. Alexandersdóttir benedikta@mbl.is Fullt var út úr dyrum í Vídalínskirkju í Garðabæ í gær þegar um 700 manns sóttu Stjörnumessu „með Jesú og Pollapönkurum“. Var ekki annað að sjá en að ungir sem aldnir hefðu skemmt sér vel. Auk Pollapönks léku liðsmenn íþróttafélagsins Stjörnunnar í Garða- bæ listir sínar en stúlkur í fimleika- félaginu gengu inn kirkjugólfið á höndunum á meðan knattspyrnuiðk- endur héldu bolta á lofti. Í ár flutti svo Glódís Perla Viggósdóttir, knatt- spyrnukona, hvatningarræðu fyrir hönd félagsins. Samstarfið skapar félagsauð Við undirbúning guðþjónustunnar stakk Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknar- prestur Garðabæjar, upp á því við Heiðar Örn Kristjánsson, Pollapönk- ara og æskulýðsfulltrúa Vídalíns- kirkju, að hljómsveitin myndi koma og skemmta. „Hann hringdi í sína menn og þeir voru ekki lengi að samþykkja þetta, en það var stórmannlegt af þeim því þrír þeirra eru harðir FH-ingar,“ segir Jóna Hrönn kímin en eins og kunnugt er sigraði Stjarnan FH í úr- slitaleik um meistaratitillinn í knatt- spyrnu í ár. „Þeir voru samt í FH- búningunum undir göllunum sínum.“ Heiðar Örn segir messuna hafa tek- ist vel. „Þetta var meiriháttar stuð og gaman að taka þátt í þessu.“ Um ein- stakan viðburð var að ræða fyrir Polla- pönk, en Vídalínskirkja hefur haldið sérstaka guðsþjónustu í samstarfi við Stjörnuna síðastliðin fimm ár. Sam- starfið skiptir starfsfólk kirkjunnar miklu máli og skapar mikinn félagsauð í bæjarfélaginu að sögn Jónu Hrannar. Auk þess að skemmta gestum kynnti hljómsveitin sérstakan sjóð sem meðlimir hennar stofnuðu hjá Hjálparstarfi kirkjunnar þar sem hægt er að styrkja íslensk börn í tón- listarnámi. Í FH-treyjum undir göllunum  700 manns sóttu Stjörnumessu í Vídalínskirkju Morgunblaðið/Styrmir Kári Stuð Hljómsveitin Pollapönk spilaði mörg þekktustu laga sinna við góðar undirtektir kirkjugesta í messunni. Flink Knattspyrnuiðkendur Stjörnunnar sýndu listir sínar og héldu á lofti. Flott Jóna Hrönn var í skýjunum. „Það eru allir hundsvekktir, þetta var algjörlega á okkar herðum,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðs- maður í handknatt- leik, og segir tap Ís- lands gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM í gær hafa rifjað upp minningar um HM- drauminn sem varð að martröð í vor. »1,2 Rifjaði upp óþægilegar minningar frá því í vor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.