Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Nýjar reglur um aðgengi að hættu-
svæðinu við eldsumbrotin við Holu-
hraun tóku gildi 17. október. Gilda
reglurnar um fjölmiðla- og vísinda-
menn en svæðinu er lokað fyrir al-
menning. Er þetta í fyrsta sinn sem
sérstakar reglur eru settar um elds-
umbrot hér á landi.
Þeir vísinda- og fjölmiðlamenn
sem vilja fara á eldstöðvarnar þurfa
að staðfesta með undirskrift að þeir
ábyrgist greiðslu þess kostnaðar sem
hlotist getur af björgun þeirra. Þá
þurfa þeir að hafa í gildi tryggingu
vegna líkams- eða heilsutjóns sem
þeir kunna að verða fyrir á meðan.
Þá afsala þeir sér öllum rétti á kröf-
um á ríkissjóð vegna eigna-, líkams-
eða heilsutjóns sem starfsmaðurinn
kann að verða fyrir vegna starfa
sinna við Holuhraun. Eingöngu sér-
stök tímabundin leyfisbréf veita að-
gang að svæðinu. Áður útgefin skír-
teini ríkislögreglustjóra, svokölluð
almannavarnaskírteini sem gáfu fjöl-
miðlum aðgang inn fyrir ytri lokanir í
almannavarnaástandi, gilda ekki við
Holuhraun.
Tvo virka daga tekur að afgreiða
leyfin og eru fjölmiðlar hér á landi
margir afar ósáttir við þessa niður-
stöðu enda oft ákveðið að gera frétt
samdægurs, ekki með þriggja daga
fyrirvara.
Einungis 14 aðilar geta verið á lok-
aða svæðinu á hverjum tíma auk lög-
reglu og starfsmanna Vatnajök-
ulsþjóðgarðs sem þurfa ekki að
sækja um leyfi til að vera við um-
brotin.
Vísindamenn Háskóla Íslands og
Veðurstofunnar njóta forgangs um
dvöl á svæðinu vegna starfa sinna
fyrir almannavarnir. Er það byggt á
hættumati og björgunaráætlun fyrir
svæðið. Þar er gert ráð fyrir því að sú
staða komi upp að allir sem á svæð-
inu eru verði að dvelja í skálum í
Drekagili svo sólarhringum skipti og
eru neyðarvistir þar við það miðaðar.
Allir sem fá leyfi til að fara inn á
lokuð svæði skulu vera á ökutæki
sem eru með lágmarksdekkjastærð
upp á 38 tommur, gps-búnað og fjar-
skiptabúnað.
Nýjar reglur um aðgengi
við eldgosið í Holuhrauni
Morgunblaðið/Eggert
Eldgos Margir vilja mynda og skjal-
festa söguna en fáir komast.
Nýjar reglur
tóku gildi í október
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Í upphafi vildu menn fara varlega
og stilla af væntingar. Þá var gert
ráð fyrir um 400 manns í vinnu. Nú
þegar unnið er að nákvæmum ráðn-
ingar- og þjálfunaráætlunum er ljóst
að 450 manns þarf fyrir verkefnið,“
segir Davíð Stefánsson, ráðgjafi Sili-
cor Materials á Íslandi, um mann-
aflsþörf fyrirhugaðs sólarkísilvers
fyrirtækisins á Grundartanga.
Unnið er að lokafrágangi samn-
inga vegna sólarkísilversins. Upp-
haflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að
framkvæmdir við fyrsta áfanga gætu
hafist í október. Þær áætlanir hafa
raskast lítillega og eru nú bundnar
vonir við að framkvæmdir geti hafist
í byrjun næsta árs. Áform fyrirtæk-
isins um að framkvæmdum ljúki í
júní 2016 eru hins vegar óbreytt.
Unnið að lúkningu samninga
Davíð segir að hnýta þurfi nokkra
lausa enda. „Mál standa þannig að
unnið er að fjárhagslegri lúkningu
samninga. Það tefst eitthvað fram í
desember. Það er vonandi að sú
vinna klárist um miðjan desember.
Þá þurfa allir samningar að vera
klárir út af þessum fyrsta áfanga. Þá
vísa ég til orkusamnings, lóðarsamn-
ings og ótal annarra samninga. Þá í
kjölfarið klárast samningar um eigið
fé og lánapakkann. Sé eitthvað úti-
standandi væri hægt að klára samn-
inga með fyrirvara um þau atriði. En
það er mikilvægt að sem flest klárist
við undirritunina. Nú eru menn á
fullu að loka þessu,“ segir Davíð.
Fram hefur komið að Landsvirkj-
un og Orka náttúrunnar, dótturfélag
OR, muni sjá kísilverinu fyrir orku.
Davíð segir kostnað við verkefnið
hljóða upp á 90 milljarða króna. Áð-
ur hefur verið rætt um 77,5 milljarða
króna og segir Davíð langstærstu
skýringuna þá að gengi krónu hafi
veikst gagnvart Bandaríkjadal.
Umfangið hefur aukist
Þá verði umfang einstakra liða í
fjárfestingunni meira en áður var
ráðgert. Þar af eru 48 milljarðar
áætlaðir í tækjabúnað, sem að mestu
kemur frá hinu þýska fyrirtæki SMS
Siemag. Bygging versins skapar
fjölda starfa á framkvæmdatíma.
Skapar 450 störf á Grundartanga
Silicor Materials hefur endurskoðað mannaflsþörf fyrirhugaðs sólarkísilvers
50 fleiri störf en áður var talið Kostnaður við verið eykst úr 77,5 í 90 milljarða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í pípunum Sólarkísilverið verður á
iðnaðarsvæðinu á Grundartanga.
Uppgötvaðar hafa verið ljósmyndir frá Íslandi í einka-
eigu safnara í Frakklandi. Ljósmyndarinn er franskur
og er um að ræða þjóðlífs- og mannamyndir frá 6. ára-
tug 19. aldarinnar á Íslandi. Þjóðminjasafnið fékk leyfi
til þess að sýna nokkrar myndanna á fyrirlestraröð
safnsins klukkan 12 þriðjudaginn 11. nóvember, þar
sem Inga Lára Baldvinsdóttir, safnvörður Ljós-
myndasafns Íslands, mun halda erindi um þessar áður
óþekktu ljósmyndir og tvö myndaalbúm sem varðveita
þær. Ljósmyndir eru stærsti efnisflokkur Þjóðminja-
safnsins og eru þær því á sérsafni. Fyrirlesturinn er öll-
um opinn. benedikta@mbl.is
Myndir eftir franskan ljósmyndara frá 6. áratug 19. aldar
Ljósmynd/Musée de Quai Branly
Áður óþekktar ljósmyndir af Íslandi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Samningafundur í kjaradeilu Starfs-
mannafélags Kópavogs (SK) og
samninganefndar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, fyrir hönd
Kópavogsbæjar, hefur verið boðaður
hjá ríkissáttasemjara klukkan 16 á
morgun. Allsherjarverkfall SK hefst
á mánudag náist ekki samningar.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
í Kópavogi, óskaði eftir því í gær að
samninganefnd sveitarfélaga legði
fram tilboð, fyrir hönd bæjarins, til
lausnar kjaradeilunni. SK svaraði
með sáttatilboði. Í tilboði Kópavogs-
bæjar felst m.a. að aðilar samþykki
kjarasamning sem Samband ís-
lenskra sveitarfélaga hefur gert við
önnur bæjarstarfsmannafélög.
Samningurinn gildi frá 1. október
2014. Auk þess greiði Kópavogsbær
105.000 króna eingreiðslu til starfs-
manna sem tekur m.a. mið af styttri
gildistíma samningsins. Með því
verði þeim lægst launuðu tryggð
hlutfallslega mest hækkun. Þá
tryggi Kópavogsbær ófaglærðum
starfsmönnum á leikskólum sömu
kjör og ófaglærðir njóta á leikskól-
um Reykjavíkur. Þessi störf voru
þau einu sem voru lægra borguð í
Kópavogi en Reykjavík. Einnig að
sérákvæði um háskólamenntaða falli
Samningafundur
haldinn á morgun
Sáttatilboð í Kópavogsdeilunni
Ármann Kr.
Ólafsson
Jófríður Hanna
Sigfúsdóttir
brott við lok samningstíma og að
bærinn skipi fulltrúa í stjórn Vís-
indasjóðs SK.
Í sáttatilboði starfsmannafélags-
ins felst m.a. að aðilar samþykki
fyrrnefndan kjarasamning með
sama gildistíma og aðrir eða frá 1.
maí 2014. Þeir sem störfuðu hjá
bænum frá og með 1. maí sl. fái
50.000 króna eingreiðslu. Ekki verði
hreyft við sérákvæði um háskóla-
menntaða. Bærinn skipi fulltrúa í
stjórn Vísindasjóðs SK.
Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, for-
maður starfsmannafélagsins, sagði
bæinn vilja að háskólamenntaðir
færu úr starfsmannafélaginu og í
viðkomandi fagfélög. Hún sagði að
starfsmenntasjóður SK styrkti
marga félagsmenn til mennta. Það
væri öfugsnúið að þeir yrðu að fara
úr félaginu sem styrkti þá þegar þeir
lykju háskólanámi.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Nýr
bæklingur á
www.ILVA.is