Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
BIBLÍUMATUR
holabok.is • holar@holabok.is
Girnilegar og hollar
mataruppskriftir
frá landi mjólkur og hunangs,
s.s. Spínatsúpa faraós,
Baunasalat Hebreams,
Kvöldskattur tollheimtu-
mannsins og Lambakjöts-
réttur Rebekku.
Úr ritdómi í Akureyri vikublað:
„Syndsamlega góður
biblíumatur.“
Björn Þorláksson
Um helgina fer fram sýningin Matur og drykkur
2014 í Laugardalshöll. Að sýningunni koma 30
íslensk fyrirtæki sem munu kynna nýjungar í
mat, drykkjum og eldhústækjum. Sýningin er
opin öllum.
Meðal annarra mun Arna kynna nýjar mjólk-
urvörur og Foss distillery birkisíróp og birki-
líkjöra. Þá mun nýtt íslensk viskí verða kynnt.
„Þetta er fyrsta íslenska viskíið og hefur vakið
mikla athygli,“ segir Ólafur M. Jóhannesson sýn-
ingarhaldari. Eins má nefna að Gæðabakstur
býður upp á súkkulaðihúðaðar kleinur og Ópal
býður meðal annars upp á rétti sem búnir eru til
úr makríl. Sýningin stendur yfir laugardag og
sunnudag frá kl. 10-18.
Viskí og kleinur í höllinni
Morgunblaðið/Kristinn
Matarsýningin Matur og drykkur 2014 fer fram í Laugardalshöll um helgina
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
HF Verðbréf fengu greiddar rúm-
lega 116 milljónir króna frá Hafnar-
fjarðarbæ fyrir ráðgjöf um fjárhags-
lega endurskipulagningu fyrir árin
2013 og 2014. Þetta kom fram á bæj-
arráðsfundi Hafnarfjarðarbæjar í
fyrradag þar sem lagður var fram
listi yfir útgjöld vegna ráðgjafar.
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður
bæjarráðs, segir að þessi upphæð
hafi komið núverandi meirihluta al-
gjörlega í opna skjöldu því þau hafi
ekki haft hugmynd um samninginn
sem gerður var við HF Verðbréf
fyrr en sl. vor.
Rósa sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hún vissi nú að
fyrrverandi meirihluti gerði samn-
ing við HF Verðbréf í maí 2013.
„HF Verðbréf vann þessa vinnu í
eitt ár, frá vori 2013 til vors 2014.
minnihluta bæjarstjórnarinnar höfð-
um ekki hugmynd um að svona
samningur hefði verið gerður. Hann
var hvorki lagður fyrir bæjarráð né
bæjarstjórn þegar hann var gerður
og fyrir honum var engin fjárheim-
ild í fjárhagsáætlun. Ég beinlínis
efast um að þetta sé löglegt og
hyggst láta kanna það,“ segir Rósa.
Rósa segir að það hafi ekki verið
fyrr en í ársbyrjun þessa árs sem
minnihlutinn hafi fengið upplýsingar
um að HF Verðbréf hefðu verið ráð-
in til ráðgjafar.
Hún hafi beðið um yfirlit um
kostnað bæjarins vegna ráðgjafar
og þá hafi þessi upphæð bara skotið
upp kollinum og verið kynnt á bæj-
arráðsfundi í fyrradag.
Gunnar Axel Axelsson, bæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, var for-
maður bæjarráðs á síðasta kjörtíma-
bili, þegar samningurinn við HF
Verðbréf var gerður. Hann var
spurður í gær hvers vegna minni-
hlutinn hefði ekki verið upplýstur
um gerð samningsins.
Segir yfirlitið villandi
„Ég tel að bæjarráð Hafnarfjarð-
arbæjar hafi á öllum stigum verið
upplýst um samninga við HF Verð-
bréf. Ég held að fjármálastjóri hafi
kynnt samninginn fyrir bæjarráði á
sínum tíma.
Ég tel að það sé í besta falli vill-
andi að setja þetta fram eins og gert
er í þessari samantekt um útgjöld
vegna ráðgjafar. HF Verðbréf koma
tvisvar fyrir á listanum, annars veg-
ar upphæðin 11,25 milljónir króna
og hins vegar upphæðin 104,96
milljónir króna. Seinni upphæðin er
vegna fjármögnunarkostnaðar
vegna útgáfu skuldabréfaflokks í
tengslum við endurfjármögnun sl.
vor, en ekki ráðgjafarlaun eins og
yfirlitið gefur til kynna.“
Efast um lögmæti samnings
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir samning við HF
Verðbréf hafa verið gerðan á laun Gunnar Axel, fyrrverandi formaður, hafnar því
Rósa
Guðbjartsdóttir
Gunnar Axel
Axelsson
Vinnan var fólgin í ráðgjöf vegna
endurfjármögnunar á tólf milljarða
skuldum Hafnarfjarðarbæjar,“
sagði Rósa.
Tæpt prósent af 12 milljörðum
„Að það hafi verið samið við HF
Verðbréf um að í þeirra hlut komi
tæpt prósent af heildarupphæðinni,
kemur mér algjörlega í opna
skjöldu. Þetta er algjörlega for-
dæmalaust og við í fyrrverandi
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er ekki hægt annað en að vera
jákvæður og bjartsýnn um að þessi
gleðilega þróun haldi áfram,“ segir
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í
Vesturbyggð. Íbúum þar hefur fjölg-
að um 35 á þessu ári og vonast er til
að þeir nái þúsund íbúa markinu fyr-
ir áramót.
Íbúum Vesturbyggðar hefur verið
að fjölga síðustu árin eftir fækkun í
áratugi. Þegar sveitarfélagið var
stofnað með sameiningu Patreks-
fjarðar, Bíldudals og sveitahreppa
voru íbúar 1.390 en í lok árs 2011
voru þeir komnir niður í 890. Eftir
fjölgun síðan þá voru 949 íbúar í lok
síðasta árs og samkvæmt yfirliti í
byrjun þessarar viku búa nú 984 í
Vesturbyggð.
Ásthildur segir að atvinnu-
uppbygging sé ástæða fjölgunar-
innar, ekki síst í fiskeldinu. Barn-
margar fjölskyldur hafi verið að
flytja, aðallega til Bíldudals en einn-
ig til Patreksfjarðar. Ásthildur segir
að innviðir samfélagsins ráði vel við
þessa aukningu enda hafi þeir verið
byggðir upp fyrir mun fjölmennari
byggð. Þó kreppir að í húsnæðismál-
unum, erfitt er að finna húsnæði.
Bæði hafa íbúðarhús orðið að sumar-
húsum og mun færri eru í hverju
heimili en áður var.
Þúsundasti íbúinn
væntanlegur
Stöðug fjölgun í Vesturbyggð
Nýtt fasteigna-
mat Þjóðskrár
Íslands hækkar
fasteignamat at-
vinnuhúsnæðis í
landinu um 12,4%
á milli ára. Dæmi
eru um allt að
100% hækkun á
einstökum fast-
eignum eins og
undanfarið hefur
verið fjallað um í Morgunblaðinu.
Talið er að breytingarnar skili sveit-
arfélögum einum milljarði í viðbót í
gegnum fasteignagjöld fari svo að
álagningarprósenta fasteignagjalda
haldist óbreytt eða að ekki komi til
mildunar frá ríkisvaldinu.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands sveitarfélaga og borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
að sveitarfélögin muni væntanlega
reyna að minnka það högg sem at-
vinnurekendur fá á sig með þessari
hækkun. „Innanríkisráðherra
kynnti fyrir okkur aðgerðir vegna
hækkunarinnar á föstudag. Þetta
mun koma inn í þrepum. Ég býst við
að umræða verði tekin hjá sveitar-
félögum ef þetta nýja mat verður
íþyngjandi fyrir atvinnulífið. Sem
borgarfulltrúi mun ég að sjálfsögðu
ræða þetta mál í tengslum við fjár-
hagsáætlun og í hvaða stöðu fast-
eignaeigendur eru. Ef þetta er veru-
legt högg, verður borgin að koma til
móts við fasteignaeigendur að mínu
mati.“
Höggið
verði
minnkað
Halldór
Halldórsson
Dæmi um 130%
hækkun fasteigna
Samningar hafa tekist milli Sjúkra-
trygginga Íslands (SÍ) og Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) um
sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæð-
inu. Samningurinn tekur gildi 1. jan-
úar 2015 og gildir til sex ára. Á
heimasíðu ráðuneytisins er haft eftir
Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðis-
ráðherra að samningurinn sé kær-
kominn eftir langvarandi óvissu.
Hann tekur til allra bráðaflutn-
inga auk flutninga fyrir Landspítala
og aðrar stofnanir. Helsta nýmæli
samningsins felst í því að greiðslu-
þátttaka sjúkratrygginga og Land-
spítala byggist annars vegar á föst-
um mánaðarlegum greiðslum og
hins vegar á greiðslum fyrir hvern
flutning. Tekur greiðsla fyrir þjón-
ustuna því að hluta mið af fjölda
sjúkraflutninga í stað eingöngu
fastra mánaðarlegra greiðslna.
Samningar
loks í höfn
Ásthildur bæjarstjóri er farin
að huga að gjöfum fyrir 1000.
íbúa Vesturbyggðar sem vonast
er til að bætist í hópinn fyrir
áramót.
Gárungarnir minna bæjar-
stjórann þó á hvað gerðist 1970
þegar íbúar Patreksfjarðar voru
að nálgast þúsund íbúa markið.
Von var á fæðingum nokkurra
barna og sum talin líklegri en
önnur og bæjarstjórinn keypti
barnavagn og fleiri góðar gjafir
til að fagna 1000. íbúanum.
Hins vegar réðst það svo að
þrítugur maður, Gylfi Guð-
bjartsson, flutti í bæinn og
varð sá þúsundasti. Ekki er vit-
að hvað varð um barnavagninn.
Gjöfin fór fyr-
ir lítið 1970
HVER VERÐUR NR. 1000?