Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 8

Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Tax Foundation í Bandaríkjunumgaf á dögunum út lista þar sem ríkjunum fimmtíu er raðað eftir skattaumhverfinu sem þau bjóða upp á. Þau sem bjóða upp á hóflega skatta og einfalt skattkerfi lenda of- ar á listanum en hin sem íþyngja borg- urunum með hærri álögum og flóknara kerfi.    Það mætti aðósekju verða skattheimtu- mönnum hér á landi, jafnt ríkisins sem sveit- arstjórnanna, til umhugsunar hvernig efstu og neðstu sæti skatta- listans eru skipuð.    Í efsta sætinu trónir Wyomingmeð einfalda og hóflega skatta. Þar er hagvöxtur 7,6%.    Í neðstu sætunum húka New York– heimili Frelsisstyttunnar – og New Jersey, sem leggja á háa skatta. Hagvöxtur er aðeins 1,1% í New Jersey og 0,7% í New York.    Skattheimta hefur mikil áhrif áefnahags- og atvinnulíf og að öðru jöfnu eru afleiðingar hárra skatta hægari hagvöxtur og minni velferð en unnt væri að ná með lægri sköttum.    Íslendingar, fyrirtæki sem al-menningur, líða enn fyrir skattahækkanir vinstristjórn- arinnar sem fór frá völdum fyrir hálfu öðru ári. Langflestir lands- menn þurfa líka að þola hæsta leyfi- lega útsvarshlutfall af hálfu sveit- arstjórna sinna.    Það er löngu tímabært að hvorttveggja verði lagfært í þágu vaxtar og velferðar í landinu. Áminning til skattheimtumanna STAKSTEINAR „Breytingarnar leiddu til uppsagna sautján starfsmanna rekstrarfélags- ins sem voru flestir í hlutastörfum. Meðalstarfsaldur var um ellefu ár. Þær tóku gildi 1. nóvember síðastlið- inn og er uppsagnarfrestur frá þrem- ur til sex mánaða,“ segir í svari Guð- mundar H. Kjærnested, framkvæmdastjóra rekstrarfélags Stjórnarráðsins, um ástæður þess að sautján konum var sagt upp störfum við ræstingar hjá fjórum ráðuneyt- um. Um er að ræða fjármála- og efna- hags-, innanríkis-, mennta- og menn- ingarmála- og umhverfis- og auð- lindaráðuneyti. Guðmundur segir að leitað verði leiða til að starfsmönn- unum gefist kostur á starfi hjá nýjum rekstraraðila. Rekstrarfélag Stjórnarráðsins hef- ur að undanförnu unnið að því að gera rekstur félagsins hagkvæmari og laga hann að fjárheimildum. Í þeim tilgangi ákvað stjórn rekstrarfélags- ins að breyta fyrirkomulagi ræstinga í þessum fjórum ráðuneytum sem fé- lagið annast og bjóða þær út. Gert er ráð fyrir að útboðið verði auglýst í nóvember og breytt fyrirkomulag innleitt í upphafi næsta árs. „Sú breyting mun þá eiga sér stað að ræsting verður unnin á dagtíma. Til þessa hefur ræsting verið í flat- armælingu og yfirvinnu. Breytingin leiðir til lækkunar kostnaðar en nið- urstaða útboðsins mun leiða í ljós hversu mikil hún verður.“ Ráðuneytin nú þrifin á daginn  Breyttar áherslur ráðuneytanna gagnvart þrifum spara fjármuni Morgunblaðið/Golli Þrifið Rekstrarfélag Stjórnarráðs- ins þurfti að hagræða í rekstri. Stefnt er að því að opna Apótek Hótel í gamla Reykjavíkur- apótekinu í Aust- urstræti í Reykjavík hinn 1. desember nk. Hótelið verður hluti KEA- hótelkeðjunnar. Þetta var ákveðið á fundi forsvarsmanna KEA-hótela og fulltrúa fasteigna- félagsins Regins, sem á húsið, í gær. Ólafur Ágúst Þorgeirsson, hótel- stjóri Hótel Borgar og Apótek Hót- els, segir að byrjað verði að koma fyrir innanstokksmunum 24. nóv- ember. Alls verða 43 herbergi í hót- elinu. Á jarðhæð verður veitinga- staður og er einnig stefnt að því að hefja þar rekstur 1. desember. Eftirspurnin eftir hótelgistingu í Reykjavík er enn að aukast. Þannig kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar að gistinætur á hót- elum í september voru 199.300 sem er 19% aukning frá í september 2013. Flestar gistinætur voru á höfuðborgarsvæðinu, eða um 125.100 sem er 15% aukning miðað við september 2013. baldura@mbl.is Reykjavíkur Apó- tek í Austurstræti. Opnað 1. desember  Í Apótek Hóteli verða 43 herbergi Hægt er að skoða bílana eftir samkomulagi. Fólki er frjálst að gera tilboð í blílana. Þetta er góð fjárfesting, krónan lækkar, bílarnir hækka í verði. Mögulegi að hafa leigutekjur af þeim t.d. kvikmyndir, brúðkauð. Auðvelt er að selja bílana erlendis. Svo er þetta svolítið sérstök jólagjöf. Með vinsemd og virðingu Þorsteinn Baldursson Kadó ehf sími 898 8577 Jæja gott fólk, minn tími fer að nálgast, því verða nokkrir af fallegustu fornbílum Íslands sýndir á Melabraut 19, Hafnarfirði dagana 8. og 9. nóvember frá kl. 13 – 17. For nbílasýning Veður víða um heim 7.11., kl. 18.00 Reykjavík 3 skýjað Bolungarvík -1 snjókoma Akureyri 2 rigning Nuuk 0 skýjað Þórshöfn 9 þoka Ósló -1 snjókoma Kaupmannahöfn 8 léttskýjað Stokkhólmur 2 alskýjað Helsinki 1 alskýjað Lúxemborg 6 alskýjað Brussel 10 léttskýjað Dublin 10 skýjað Glasgow 8 upplýsingar bárust ekki London 12 léttskýjað París 12 léttskýjað Amsterdam 8 léttskýjað Hamborg 7 heiðskírt Berlín 7 skýjað Vín 10 skúrir Moskva 6 skúrir Algarve 21 léttskýjað Madríd 17 léttskýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 21 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Aþena 17 skýjað Winnipeg 3 alskýjað Montreal 3 alskýjað New York 10 skýjað Chicago 5 skýjað Orlando 22 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:34 16:50 ÍSAFJÖRÐUR 9:55 16:39 SIGLUFJÖRÐUR 9:38 16:21 DJÚPIVOGUR 9:08 16:15

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.