Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Malín Brand
malin@mbl.is
E
ftir að hafa lesið fær-
eysku dagblöðin í
mörg ár og fylgst
vandlega með útsend-
ingum færeyska
Kringvarpsins var sannarlega freist-
andi að spreyta sig í færeyskunni í
viðtali við þremenningana en það
varð ekkert úr því. Hvorki skildu
þeir íslenskuna né undirrituð tungu
þeirra þegar á hólminn var komið.
Kannski næst! Viðtalið fór fram á
ensku, sem hentaði þeim félögum
ljómandi vel enda málamenn miklir
þrátt fyrir að þeir hafi ekki lært ís-
lenskuna.
Þeir eru rúmlega þrítugir og
hafa verið í tónlist í fjölmörg ár og
vel við hæfi að byrja á andliti sveit-
arinnar, Mariusi Ziska. „Ætli ég
megi ekki kallast lagahöfundur. Ég
hef samið tónlist síðan ég var fimm-
tán eða sextán ára gamall og fæst við
tónsmíðar dags daglega auk þess að
syngja,“ segir Marius sem komið
hefur víða við og samið tónlist með
tónlistarmönnum frá ýmsum lönd-
um, þar á meðal Íslandi. Þeir Marius
og Svavar Knútur sömdu saman lag-
ið Tokan/Þokan sem verður einmitt
á skífunni sem kemur út eftir ára-
mótin. Heðin er tónlistarkennari og
hefur samið tónlist síðan hann var
aðeins tíu ára gamall. Hann spilar á
gítar með Marius Ziska en leikur
auk þess á ýmis önnur hljóðfæri en
lauk námi í gítarleik frá Danmörku.
Bassaleikarinn Mikael er líka
menntaður í Danmörku og lifir og
hrærist í tónlistinni og er fjallað nán-
ar um hann í ramma hér til hliðar.
Forsætisráðherra í sánabaði
Aðspurðir hvernig sé að vera
stjarna í Færeyjum segja þeir að
það sé nú tiltölulega einfalt. „Fær-
eyingar eru nú ekki margir. Við er-
um um fimmtíu þúsund talsins og
flestir þekkjast. Ef einhver er í tón-
listinni þá vita allir af því en í raun-
inni breytir það engu því áreitið er
ekkert,“ segir Marius. Þeir Mikael
og Heðin taka undir þetta. „Fær-
eyingar virða einkalíf annarra. Til
dæmis fer maður í sund og forsætis-
ráðherrann situr kannski í sánab-
aðinu og fréttamaðurinn úr sjón-
Færeysk hljómsveit
á Íslandsflandri
Marius Ziska er þekkt nafn í Færeyjum. Það er nafn á tónskáldi, söngvara og
hljómsveit. Þeir Heðin Ziska Davidsen, Marius Ziska og Mikael Blak eru staddir
hér á landi bæði til að leika á fjölmörgum tónleikum og til að hljóðblanda breið-
skífu sína sem kemur út í byrjun mars á næsta ári. Þeir kunna vel við sig á Ís-
landi og segja Íslendinga opnari en Færeyinga. Þó sé munurinn ekki svo mikill.
Ljósmynd/Christian Johannesen
Á sviði Ljósmyndarinn Christian Johannesen hefur tekið fjölda mynda af
Marius Ziska á tónleikum gegnum tíðina. Þeir hafa spilað býsna víða.
Púsl eru ótrúlega vinsæl og hafa lengi
verið. Sumir geta dundað sér tím-
unum saman við að koma saman púsli
sem samanstendur af fleiri hundruð
bitum. Hvernig er þetta hægt? Er ein-
hver leynileg aðferð við að koma
þessu saman? Ef við tökum nýlegt ís-
lenskt púsl sem dæmi þá er 150 ára
afmælispúsl Akureyrarbæjar með
1.00 bitum. Myndin er lífleg, enda
teiknuð af meistaranum Brian Pilk-
ington.
Á vefsíðunni www.howcast.com eru
fjölmörg góð ráð og það fyrsta er ein-
mitt það að velja sér mynd sem fang-
ar augað. Því gæti myndin af Akureyri
virkað vel. Næsta skref væri að finna
sér sléttan og stóran flöt þar sem
hægt væri að dreifa úr bitunum og að-
greina þá sem mynda rammann og þá
sem enda inni í púslinu. Í þriðja lagi
gildir að best er að koma ramma
púslsins saman því þá er maður kom-
inn með afmarkað „vinnusvæði“.
Fjórða skrefið er að flokka bitana sem
eftir eru eftir litum, mynstri og lögun
og reyna að koma þeim saman. Þá
ætti að vera hægt að koma þeim inn á
sjálft vinnusvæðið, inn í rammann og
með þolinmæði kemur myndin í ljós.
Spil vikunnar: Akureyri í 1.500 bitum
Hvernig á að koma saman púsli?
Í dag, 8. nóvember, er sérstakur dag-
ur gegn einelti. Í lok ársins 2010
skipaði mennta- og menningar-
málaráðherra verkefnisstjórn þriggja
ráðuneyta til að fjallað um og fylgja
eftir tillögum að aðgerðum gegn ein-
elti í íslensku samfélagi. Tæpu ári
síðar, 8. nóvember 2011, var dagur
gegn einelti haldinn í fyrsta skipti.
Markmiðið með deginum er í raun að
búa til tilefni til þess að gefa gaum
og benda á margt það sem vel er gert
í þessum efnum auk þess sem vel er
við hæfi að líta yfir farinn veg, þétta
raðirnar, ákveða næstu skerf og
bretta upp ermarnar hver og einn í
sínu umhverfi. Það á ekki síður við
um vinnustaði en skóla og eins og
kemur fram á vefsíðunni www.geg-
neinelti.is er vel við hæfi að taka þátt
í baráttunni „með táknrænum við-
burðum eða viðfangsefnum sem hafa
það að markmiði að beina um-
ræðunni að einelti og alvarlegum af-
leiðingum þess í samfélaginu og ekki
síst mikilvægi jákvæðra og upp-
byggilegra samskipta.“
Á síðunni er einnig að finna Þjóð-
arsáttmála um baráttu gegn einelti.
Hver og einn getur skrifað undir sátt-
málann rafrænt á vefnum en með því
að gera það skuldbindur viðkomandi
sig til að „vinna af alefli og einurð
gegn einelti í samfélagi okkar“.
Alls hafa rúmlega 16.000 manns
skrifað undir. Ert þú búinn að því? Í
dag er prýðilegt tækifæri til að leggja
baráttunni gegn einelti lið.
Endilega …
… munið eftir degi gegn einelti
Morgunblaðið/Kristinn
Böl Einelti er samfélagsböl sem má uppræta með fjölmennu átaki.
Það er óhætt að fullyrða að Mikael
Blak, bassaleikari hljómsveit-
arinnar, sé lykilmaður í færeysku
tónlistarlífi. Hann er með eindæm-
um hógvær og fer lítið fyrir hon-
um, rétt eins og öðrum meðlimum
Marius Ziska. Hann er fæddur árið
1979 og er sonur danska tónlista-
mannsins Kristians Blak. Mikael
hefur spilað töluvert með Eivør
Pálsdóttur sem Íslendingar þekkja
margir hverjir. Auk þess hefur
hann komið að upptökustjórn og
útsetningum fyrir fjölda færeyskra
hljómsveita. Eins og segir á máli
frænda okkar þá er hann „tón-
leikari, tónaskald og tónleikafram-
leiðari“.
Spælir á ymisk ljóðføri
FJÖLHÆFIR FÉLAGAR
MATUROGDRYKKUR
ÍLAUGARDALSHÖLLUMHELGINAOPIÐFRÁ1018
„MATARHÁTÍÐIN“
Ég er svakalega spennt að smakka
þennan flotta mat, allskonar drykki sem boðið verður upp
á og skoða tilboðin. Svo er frítt fyrir yngri en 12 ára í fylgd
með fullorðnum, annars bara 1.000 kall sem er
hræódýrt miðað við sem er þarna í boði og svo
gildir miðinn báða dagana.
Ég er mjög forvitinn að skoða það sem
er á boðstólnum og svo er kannski hægt að kaupa
eitthvað á hagstæðu verði, sem er ekki verra fyrir jólin.
Hver sleppir svona sýningu? Ekki ég og mín fjölskylda.
Við förum öll fjölskyldan ekki spurning og amma líka.