Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 13
2 stk. heilar endur
Saltlögur
4 l vatn
200 g salt
200 g sykur
Sjóðið upp á 1 lítra af vatninu og
leysið upp salt og sykur, hellið
blöndunni saman við kalda 2 lítra
af vatni og kælið alveg. Snyrtið
endurnar að utan og skerið burt
óþarfa fitu. Geymið háls og annað
sem fylgir með fyrir sósu (ath er
yfirleitt innan í öndinni). Leggið
endurnar ofan í saltlöginn og leyfið
þeim að standa í 6-8 klst. Takið
endurnar upp úr saltleginum og
skolið vel undir köldu vatni. Þerrið
vel með pappír og setjið fyllinguna
inn í öndina. Setjið öndina á grind
og djúpa ofnskúffu undir. Bakið í
ofni við 150°C í 2 klst. Takið öndina
út og hækkið hitann á ofninum í
210°C. Bakið í 5-10 mín. eða þangað
til skinnið er orðið stökkt. Fylgist
náið og vel með allan tímann svo
að öndin brenni ekki. Penslið með
gljáa og bakið í ca 5 mín.
Apríkósu andagljái
50 ml eplaedik
50 ml vatn
75 ml soyasósa
1 stk appelsína, safi og börkur
100 g apríkósur, saxaðar
3 döðlur, saxaðar
5 msk púðursykur
1 hvítlauksgeiri
2 cm engiferrót
Allt hráefni sett saman í pott og
soðið við vægan hita í ca 5 mín.
Sett í blandara og keyrt saman
þar til úr verður silkimjúkur gljái.
Sósa
Innmatur og hálsar úr öndum
1,5 l vatn
5 skalottlaukar, saxaðir
4 greinar blóðberg
1 dl appelsínusafi
2 cm engiferrót
2-3 msk andagljái
50 g smjör
salt og pipar
Brúnið innmat og hálsa vel í
potti og bætið grænmeti út í og
léttsteikið. Hellið appelsínusafa
yfir og leysið upp steikarskóf.
Sjóðið niður á miðlungshita um
2/3 og sigtið. Bætið í andagljáa
og smjöri. Smakkið til með salti
og pipar. Sósuna má þykkja með
sósujafnara ef þurfa þykir.
Fylling
5 stilkar sellerí (skornir í litla
teninga)
4 gulrætur (skornar í litla
teninga)
1 box fínt saxaðir Flúðasveppir
50 g saxaðar apríkósur
50 g saxaðar döðlur
½ sellerírót skorin í litla teninga
2 sneiðar af samlokubrauði
skorið í teninga
3 stilkar af fersku blóðbergi
1 grænt epli skorið í litla
teninga
50 g smjör
salt og pipar
Steikið grænmetið í stórum potti
upp úr olíu þar til það fer að
meyrna lítilega. Bætið út í smjöri,
döðlum, apríkósum og brauðinu
og leyfið smjörinu að freyða.
Smakkið til með salti og pipar.
www.noatun.is
Heilsteikt fyllt önd
meðapríkósugljáa
Fyrir 4
Við gerummeira fyrir þig
689kr./pk.
489kr./kg
Rauðu jólaeplin
fráUSA
599 kr./pk.
539kr./pk.
Hollt ogGott
paprikublanda,400g
Ö
ll
ve
rð
er
u
b
ir
t
m
eð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
p
re
n
tv
il
lu
r
og
/
eð
a
m
yn
d
a
b
re
n
gl
.
H am r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t
Bestir
í kjöti
585kr./pk.
Þykkvabæjar
kartöflugratínmeð
beikoni, 600g
299 kr./pk.
239kr./pk.
Sellerí stönglar,
pakkaðir, 200g
278 kr./kg
Perur
3998kr./kg
Lambakóróna
2998kr./stk.
Öndcherry
valley, 2,3kg
1499kr./kg
Nóatúns
grísahamborgar-
hryggur
1698kr./kg