Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 14

Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 FRÉTTASKÝRING Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ekki hefði verið sakfellt í Al Thani- málinu samkvæmt dönskum lögum, þar sem hvorki hefði verið sannað að ásetningur til umboðssvika hefði verið fyrir hendi né að markaðs- misnotkun hefði átt sér stað. Þetta er mat Eriks Werlauff, lagapró- fessors við Álaborgarháskóla, sem unnið hefur lögfræðilegt mat á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur fyr- ir verjendur þeirra Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi hluthafa í Kaupþingi. Werlauff gagnrýnir einnig rann- sókn málsins og telur hana stang- ast í veigamiklum atriðum á við Mannréttindasáttmála Evrópu. Þeir Hreiðar Már, Ólafur, Magn- ús Guðmundsson, fyrrverandi for- stjóri Kaupþings banka í Lúxem- borg, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hlutu allir fangelsis- dóma á bilinu þrjú til fimm og hálft ár í Héraðsdómi Reykjavíkur í des- ember síðastliðnum fyrir umboðs- svik eða hlutdeild í umboðssvikum og fyrir markaðsmisnotkun, með þætti sínum í sölu á hlutabréfum í Kaupþingi til Mohammeds Al Thanis, sjeiks frá Katar. Verjendur áfrýjuðu dómnum til Hæstaréttar og verður málið tekið fyrir 26. jan- úar næstkomandi. Í kjölfar dómsins báðu verjendur þeirra Hreiðars Más og Ólafs Erik Werlauff að fara yfir dóminn og veita lögfræðilegt álit á efni hans, en Werlauff hefur verið prófessor í viðskipta- og fyrirtækjarétti við há- skólann í Álaborg frá árinu 1989. Lars Bo Langsted, prófessor í refsirétti við Álaborgarháskóla, veitti síðan verjendum umsögn um álit Werlauffs og tók undir það í meginatriðum. Werlauff fékk að- gang að þeim gögnum málsins sem hann bað um, en þar á meðal voru ákærur í málinu, greinargerðir, þýðingar á lagaákvæðum og skýrslur lykilvitna. Samkvæmt heimildum blaðsins fékk Werlauff greitt fyrir þann tíma sem hann lagði í gerð skýrslunnar. Enginn auðgunarásetningur Werlauff fer yfir dóm héraðs- dóms út frá dönskum lögum, Evr- ópurétti og Mannréttindasáttmála Evrópu. Niðurstaða hans er sú, að ekki hefði verið sakfellt fyrir um- boðssvik að dönskum rétti, þar sem tvo grundvallarþætti skorti til þess. Í fyrsta lagi hefði þurft að sanna ásetning sakborninga til þess að hagnast sjálfir eða tryggja þriðja aðila hagnað á viðskiptunum. Í öðru lagi hefði þurft að sýna fram á að ásetningur sakborninga hefði verið sá að valda Kaupþingi skaða. Kemst Werlauff að þeirri niður- stöðu að sakborningar hafi þvert á móti reynt að auka hagnað Kaup- þings með því að koma í verð hlutabréfum í eigu bankans sem annars væru verðlaus. Werlauff rökstyður skoðun sína með því að nefna nokkur fordæmi úr dönskum rétti, þar sem sýknað var fyrir skort á ásetningi. Werlauff tekur fram að í tilviki umboðssvika hefði ekki verið hægt að gera Hreiðar Má ábyrgan fyrir mistökum undir- manna sinna, þar sem hann vissi ekki af þeim. Raunveruleg sala á bréfunum Werlauff lagði einnig mat á þann hluta dómsins sem sneri að mark- aðsmisnotkun. Er það niðurstaða hans að ekki hefði heldur verið sakfellt fyrir þann þátt málsins að dönskum rétti, þar sem sala hluta- bréfanna til Q Iceland Finance, fé- lags Al Thanis, hefði verið raun- veruleg sala og Al Thani hefði við hana orðið hinn raunverulegi eig- andi hlutabréfanna. Hann myndi því bera þann hagnað eða það tap sem yrði á verði bréfanna. Í dómi héraðsdóms var komist að þeirri niðurstöðu að Kaupþingi hefði verið skylt að tilkynna það til Kauphallar Íslands að Ólafur Ólafsson átti eitt af þeim fyrirtækj- um sem komu að fjármögnun söl- unnar til Al Thanis. Werlauff hafn- ar því með vísun í tilskipanir Evrópusambandsins, sem einnig gilda hér á landi. Kaupþing hefði hvorki haft þá skyldu né nokkurn rétt til þess að tilkynna fjármögn- un sölunnar og hefði bankinn í raun orðið brotlegur við lög um bankaleynd hefði hann gert það. Telur ásetning ekki fyrir hendi  Lögfræðiálit sem unnið var fyrir verjendur Hreiðars Más og Ólafs segir að ekki hefði verið sakfellt í Al Thani-málinu í Danmörku  Kaupþingi í raun óheimilt að upplýsa um fjármögnun sölunnar Morgunblaðið/Eggert Fyrir héraðsdómi Danskur prófessor í viðskiptarétti kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi tekist að sanna ásetn- ing til umboðssvika í Al Thani-málinu. Þá hefði Al Thani verið raunverulegur kaupandi hlutabréfa Kaupþings. Al Thani-málið » Sjeikinn Mohammed Al Thani keypti 5,01% hlut í Kaupþingi gegn fullri fjármögnun og 50% sjálfskuldarábyrgð » Lánað var í gegnum tvö fé- lög, annað í eigu Ólafs Ólafs- sonar og hitt í eigu Al Thanis. Q Iceland Finance, félag sjeiksins, eignaðist hlutabréfin. » Héraðsdómur dæmdi sak- borninga fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun 12. desem- ber síðastliðinn. » Hæstiréttur fjallar um málið í janúar. Stjórn Íbúasamtaka Engihjalla í Kópavogi efn- ir til íbúasamráðs og býður til íbúaþings í Álf- hólsskóla/Hjalla í dag, laugardag. Fundurinn hefst klukkan 10.30 og stendur til klukkan 14. „Helstu markmið íbúaþingsins eru að fá hugmyndir að endurnýjun, endurskipulagn- ingu og viðhaldi sameiginlegrar lóðar sem mun nýtast til stefnumörkunar á fram- kvæmdum og sem hluti af langtímasýn. Á þinginu geta íbúar komið sjónarmiðum sínum á framfæri svo að sem flestar hugmyndir og raddir heyrist,“ segir m.a. í tilkynningu. Gert verður ráð fyrir sérstökum vinnuhópum ung- menna og barna. Á þinginu munu m.a. landslagshönnuðir kynna nýjar hugmyndir og því lýkur með pall- borðsumræðum kl. 13.30. Íbúar við Engihjalla hittast á fundi Margir búa við Engihjallann. Stjórn N4 hefur ráðið Kristján Kristjánsson framkvæmda- stjóra fyrirtæk- isins. Kristján hefur frá árinu 2011 starfað hjá N4 og hefur þar sinnt ýmsum störfum. Nú síð- ast var hann framkvæmdastjóri framleiðsludeildar fyrirtækisins. N4 rekur sjónvarp, dagskrá og framleiðsludeild á Akureyri, en hjá fyrirtækinu starfa 17 manns. Ráðinn fram- kvæmdastjóri N4 Kristján Kristjánsson „Spítalinn okkar“ stendur fyrir við- burði í menningarhúsinu Hofi á Ak- ureyri laugardaginn 8. og sunnu- daginn 9. nóvember kl. 11.00 – 17.00 báða dagana. Kynnt verða landssamtökin Spít- alinn okkar, tilgangur þeirra og markmið. Fyrirhugaðar nýbygg- ingar Landspítala verða sýndar og rætt um mikilvægi þeirra fyrir heil- brigðisþjónustuna í landinu. Rökin fyrir því hvers vegna nauðsynlegt er að hefja byggingaframkvæmdir sem fyrst verða kynnt og mögu- legar leiðir til fjármögnunar rædd- ar, segir m.a. í fréttatilkynningu. Allir eru velkomnir á kynn- inguna. Spítalinn okkar með kynningu í Hofi STUTT Sterkt er tekið til orða í áliti Werlauffs um þá ákvörðun sérstaks sak- sóknara að láta alþjóða- lögregluna Interpol lýsa eftir Sigurði Einarssyni. Segir hann, að ef atburða- rásinni sé rétt lýst fyrir sér, sé framkoma ákæru- valdsins „svívirðileg“ og geti líklega talist brot á tveimur greinum Mannréttinda- sáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð, sér í lagi ákvæðið um að menn teljist saklausir uns sekt sannast og friðhelgi einkalífs. Á þeim tíma stóð ein- göngu til að yfirheyra Sigurð og vitað var hvar hann hélt sig. Lögregla og saksóknari hefðu því verið í slæmri trú þegar þau lýstu eftir Sigurði sem flótta- manni. „Svívirðileg“ framkoma HANDTÖKUBEIÐNI INTERPOL Sigurður Einarsson ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 553 8050 STEINAR WAAGE - SMÁRALIND & KRINGLAN WWW.SKOR.IS VERIÐ VELKOMIN Í NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN OKKAR Í KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.