Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ekki hefði verið sakfellt í Al Thani-
málinu samkvæmt dönskum lögum,
þar sem hvorki hefði verið sannað
að ásetningur til umboðssvika hefði
verið fyrir hendi né að markaðs-
misnotkun hefði átt sér stað. Þetta
er mat Eriks Werlauff, lagapró-
fessors við Álaborgarháskóla, sem
unnið hefur lögfræðilegt mat á
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur fyr-
ir verjendur þeirra Hreiðars Más
Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings, og Ólafs Ólafssonar,
fyrrverandi hluthafa í Kaupþingi.
Werlauff gagnrýnir einnig rann-
sókn málsins og telur hana stang-
ast í veigamiklum atriðum á við
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þeir Hreiðar Már, Ólafur, Magn-
ús Guðmundsson, fyrrverandi for-
stjóri Kaupþings banka í Lúxem-
borg, og Sigurður Einarsson,
fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, hlutu allir fangelsis-
dóma á bilinu þrjú til fimm og hálft
ár í Héraðsdómi Reykjavíkur í des-
ember síðastliðnum fyrir umboðs-
svik eða hlutdeild í umboðssvikum
og fyrir markaðsmisnotkun, með
þætti sínum í sölu á hlutabréfum í
Kaupþingi til Mohammeds Al
Thanis, sjeiks frá Katar. Verjendur
áfrýjuðu dómnum til Hæstaréttar
og verður málið tekið fyrir 26. jan-
úar næstkomandi.
Í kjölfar dómsins báðu verjendur
þeirra Hreiðars Más og Ólafs Erik
Werlauff að fara yfir dóminn og
veita lögfræðilegt álit á efni hans,
en Werlauff hefur verið prófessor í
viðskipta- og fyrirtækjarétti við há-
skólann í Álaborg frá árinu 1989.
Lars Bo Langsted, prófessor í
refsirétti við Álaborgarháskóla,
veitti síðan verjendum umsögn um
álit Werlauffs og tók undir það í
meginatriðum. Werlauff fékk að-
gang að þeim gögnum málsins sem
hann bað um, en þar á meðal voru
ákærur í málinu, greinargerðir,
þýðingar á lagaákvæðum og
skýrslur lykilvitna. Samkvæmt
heimildum blaðsins fékk Werlauff
greitt fyrir þann tíma sem hann
lagði í gerð skýrslunnar.
Enginn auðgunarásetningur
Werlauff fer yfir dóm héraðs-
dóms út frá dönskum lögum, Evr-
ópurétti og Mannréttindasáttmála
Evrópu. Niðurstaða hans er sú, að
ekki hefði verið sakfellt fyrir um-
boðssvik að dönskum rétti, þar sem
tvo grundvallarþætti skorti til þess.
Í fyrsta lagi hefði þurft að sanna
ásetning sakborninga til þess að
hagnast sjálfir eða tryggja þriðja
aðila hagnað á viðskiptunum. Í
öðru lagi hefði þurft að sýna fram á
að ásetningur sakborninga hefði
verið sá að valda Kaupþingi skaða.
Kemst Werlauff að þeirri niður-
stöðu að sakborningar hafi þvert á
móti reynt að auka hagnað Kaup-
þings með því að koma í verð
hlutabréfum í eigu bankans sem
annars væru verðlaus. Werlauff
rökstyður skoðun sína með því að
nefna nokkur fordæmi úr dönskum
rétti, þar sem sýknað var fyrir
skort á ásetningi. Werlauff tekur
fram að í tilviki umboðssvika hefði
ekki verið hægt að gera Hreiðar
Má ábyrgan fyrir mistökum undir-
manna sinna, þar sem hann vissi
ekki af þeim.
Raunveruleg sala á bréfunum
Werlauff lagði einnig mat á þann
hluta dómsins sem sneri að mark-
aðsmisnotkun. Er það niðurstaða
hans að ekki hefði heldur verið
sakfellt fyrir þann þátt málsins að
dönskum rétti, þar sem sala hluta-
bréfanna til Q Iceland Finance, fé-
lags Al Thanis, hefði verið raun-
veruleg sala og Al Thani hefði við
hana orðið hinn raunverulegi eig-
andi hlutabréfanna. Hann myndi
því bera þann hagnað eða það tap
sem yrði á verði bréfanna.
Í dómi héraðsdóms var komist
að þeirri niðurstöðu að Kaupþingi
hefði verið skylt að tilkynna það til
Kauphallar Íslands að Ólafur
Ólafsson átti eitt af þeim fyrirtækj-
um sem komu að fjármögnun söl-
unnar til Al Thanis. Werlauff hafn-
ar því með vísun í tilskipanir
Evrópusambandsins, sem einnig
gilda hér á landi. Kaupþing hefði
hvorki haft þá skyldu né nokkurn
rétt til þess að tilkynna fjármögn-
un sölunnar og hefði bankinn í
raun orðið brotlegur við lög um
bankaleynd hefði hann gert það.
Telur ásetning ekki fyrir hendi
Lögfræðiálit sem unnið var fyrir verjendur Hreiðars Más og Ólafs segir að ekki hefði verið sakfellt
í Al Thani-málinu í Danmörku Kaupþingi í raun óheimilt að upplýsa um fjármögnun sölunnar
Morgunblaðið/Eggert
Fyrir héraðsdómi Danskur prófessor í viðskiptarétti kemst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi tekist að sanna ásetn-
ing til umboðssvika í Al Thani-málinu. Þá hefði Al Thani verið raunverulegur kaupandi hlutabréfa Kaupþings.
Al Thani-málið
» Sjeikinn Mohammed Al Thani
keypti 5,01% hlut í Kaupþingi
gegn fullri fjármögnun og 50%
sjálfskuldarábyrgð
» Lánað var í gegnum tvö fé-
lög, annað í eigu Ólafs Ólafs-
sonar og hitt í eigu Al Thanis. Q
Iceland Finance, félag sjeiksins,
eignaðist hlutabréfin.
» Héraðsdómur dæmdi sak-
borninga fyrir umboðssvik og
markaðsmisnotkun 12. desem-
ber síðastliðinn.
» Hæstiréttur fjallar um málið í
janúar.
Stjórn Íbúasamtaka Engihjalla í Kópavogi efn-
ir til íbúasamráðs og býður til íbúaþings í Álf-
hólsskóla/Hjalla í dag, laugardag. Fundurinn
hefst klukkan 10.30 og stendur til klukkan 14.
„Helstu markmið íbúaþingsins eru að fá
hugmyndir að endurnýjun, endurskipulagn-
ingu og viðhaldi sameiginlegrar lóðar sem
mun nýtast til stefnumörkunar á fram-
kvæmdum og sem hluti af langtímasýn. Á
þinginu geta íbúar komið sjónarmiðum sínum
á framfæri svo að sem flestar hugmyndir og
raddir heyrist,“ segir m.a. í tilkynningu. Gert
verður ráð fyrir sérstökum vinnuhópum ung-
menna og barna.
Á þinginu munu m.a. landslagshönnuðir
kynna nýjar hugmyndir og því lýkur með pall-
borðsumræðum kl. 13.30.
Íbúar við Engihjalla hittast á fundi
Margir búa við Engihjallann.
Stjórn N4 hefur
ráðið Kristján
Kristjánsson
framkvæmda-
stjóra fyrirtæk-
isins.
Kristján hefur
frá árinu 2011
starfað hjá N4
og hefur þar
sinnt ýmsum
störfum. Nú síð-
ast var hann framkvæmdastjóri
framleiðsludeildar fyrirtækisins.
N4 rekur sjónvarp, dagskrá
og framleiðsludeild á Akureyri,
en hjá fyrirtækinu starfa 17
manns.
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri N4
Kristján
Kristjánsson
„Spítalinn okkar“ stendur fyrir við-
burði í menningarhúsinu Hofi á Ak-
ureyri laugardaginn 8. og sunnu-
daginn 9. nóvember kl. 11.00 –
17.00 báða dagana.
Kynnt verða landssamtökin Spít-
alinn okkar, tilgangur þeirra og
markmið. Fyrirhugaðar nýbygg-
ingar Landspítala verða sýndar og
rætt um mikilvægi þeirra fyrir heil-
brigðisþjónustuna í landinu. Rökin
fyrir því hvers vegna nauðsynlegt
er að hefja byggingaframkvæmdir
sem fyrst verða kynnt og mögu-
legar leiðir til fjármögnunar rædd-
ar, segir m.a. í fréttatilkynningu.
Allir eru velkomnir á kynn-
inguna.
Spítalinn okkar
með kynningu í Hofi
STUTT
Sterkt er tekið til orða í
áliti Werlauffs um þá
ákvörðun sérstaks sak-
sóknara að láta alþjóða-
lögregluna Interpol lýsa
eftir Sigurði Einarssyni.
Segir hann, að ef atburða-
rásinni sé rétt lýst fyrir
sér, sé framkoma ákæru-
valdsins „svívirðileg“ og
geti líklega talist brot á
tveimur greinum Mannréttinda-
sáttmála Evrópu um réttláta
málsmeðferð, sér í lagi
ákvæðið um að menn
teljist saklausir uns sekt
sannast og friðhelgi
einkalífs.
Á þeim tíma stóð ein-
göngu til að yfirheyra
Sigurð og vitað var hvar
hann hélt sig. Lögregla
og saksóknari hefðu því
verið í slæmri trú þegar
þau lýstu eftir Sigurði sem flótta-
manni.
„Svívirðileg“ framkoma
HANDTÖKUBEIÐNI INTERPOL
Sigurður
Einarsson
ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 553 8050
STEINAR WAAGE - SMÁRALIND & KRINGLAN
WWW.SKOR.IS
VERIÐ VELKOMIN
Í NÝJA OG GLÆSILEGA VERSLUN
OKKAR Í KRINGLUNNI