Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er nauðsynlegt að skoða svona
kosti með jákvæðu hugarfari. Ekki
er víst að þetta skip henti best en það
sýnir að til eru fleiri möguleikar,“
segir Sigurmundur G. Einarsson,
framkvæmdastjóri í Vestmannaeyj-
um. Hann hefur lagt til að skoðuð
verði kaup eða leiga á grískri far-
þega- og bílferju, í stað þess að láta
smíða nýjan Herjólf, og skoðaði ferj-
una ásamt hópi úr Eyjum fyrir
nokkrum dögum.
Sigurmundur gerir úr farþegabát-
inn Víking í Vestmannaeyjum og
hefur lengi tekið þátt í umræðu um
samgöngumál Eyjanna. Hann telur
að sú ferja sem stjórnvöld undirbúa
smíði á sé of lítil. Hún taki of fáa bíla
og farþega. Nefnir til rökstuðnings
að Herjólfur sé fullur á sumrin. Nýi
Herjólfur verði minni og geti ekki
annað flutningunum. „Fólk er ekki
tilbúið að láta segja sér að fara á öðr-
um tíma en það vill.“ Þá vitnar hann
til spár Vegagerðarinnar um að 740
þúsund farþegar fari á milli lands og
Eyja á árinu 2017.
Ódýrari kostur
Gríska ferjan sem Sigurmundur
vill að stjórnvöld skoði betur er í sigl-
ingum á milli eyja í Grikklandi. Hún
tekur 1.000 farþega og er með bíla-
brýr í stefni og skut þannig að hún
þarf ekki að snúa í höfnum. Fjórar
snúningsskrúfur eru á skipinu og tel-
ur Sigurmundur að það ætti að
tryggja öryggi siglinga inn í Land-
eyjahöfn. Þá er skipið mun ódýrara
en nýsmíði Herjólfs svo munar millj-
örðum.
Sigurmundur var að koma úr fríi í
Grikklandi með tíu manna hópi
Eyjamanna. Hópurinn skoðaði um-
rædda ferju og leist vel á. Hann
leggur á það áherslu að það sé
stjórnvalda að ákveða með sam-
göngumál. Hann hefur verið í sam-
bandi við fulltrúa stjórnvalda og er
að afla frekari pappíra um umrædda
ferju til að koma til Vegagerðarinn-
ar.
Kaupleiga möguleg
„Hægt er að fá skipið á kaupleigu.
Við viljum fá að prófa það í eitt eða
tvö ár og sjá hver þörfin er. Það er
óþarfi að borga marga milljarða fyrir
nýtt skip og lenda svo í því að það er
of lítið,“ segir Sigurmundur og hvet-
ur stjórnvöld til að skoða málið með
opnum huga.
Ljósmyndir/Sigurmundur G. Einarsson
Eyjahaf Ferjan sem hópur Vestmannaeyinga skoðaði í Grikklandi er í siglingum á milli grísku eyjanna.
Líst vel á ferjuna
Hópur fólks úr Vestmannaeyjum skoðaði gríska bílferju
Lagt er til að stjórnvöld prófi ferjuna í eitt til tvö ár
Bíladekk Rúmgott er á bíladekki grísku ferjunnar. Hún getur tekið 170 bíla
í hverri ferð. Ekið er inn að aftan og út að framan og öfugt í næstu höfn.
Endanlegar tölur um fjölda farþega
með skemmtaferðaskipum til
Reykjavíkur liggja núna fyrir hjá
Faxaflóahöfnum. Með alls 91
skemmtiferðaskipi komu tæplega
105 þúsund farþegar og er þetta í
fyrsta sinn sem fjöldinn fer yfir 100
þúsund. Fjöldi skipa hefur heldur
ekki verið meiri áður.
Aukningin á sér ekki aðeins stað í
Reykjavík heldur um allt land, þar
sem tekið er á móti skemmti-
ferðaskipum, einkum þeim af minni
gerðinni. Alls voru 305 skipakomur í
sumar en samkvæmt upplýsingm frá
samtökunum Cruise Iceland er búið
að bóka 415 skipakomur á þessar
hafnir næsta sumar, sem er aukning
milli ára um 36%.
Að því er fram kemur á vef Faxa-
flóahafna var heildarfjöldi farþega
til Reykjavíkur rúmlega 25 þúsund
árið 2000, þannig að frá aldamótum
er fjölgunin meira en fjórföld.
Flestir gestir með skipunum í
sumar voru frá Þýskalandi, eða 35%,
25% voru frá Bretlandi og 18% frá
Bandaríkjunum. Samtals stoppuðu
25 skip yfir nótt í Reykjavík og segja
Faxaflóahafnir það áframhald á þró-
un sem hófst fyrir nokkrum árum.
Með þessum skipum komu rúmlega
33 þúsund farþegar, sem höfðu því
rýmri tíma til að skoða sig um í
borginni.
Á næsta ári hafa 103 skip bókað
komu sína til Reykjavíkur og í þeim
er pláss fyrir um það bil 100 þúsund
farþega. Nokkur breyting er á stærð
og tegund skipanna en mun fleiri eru
af minni gerðinni, stundum kölluð
leiðangursskip, að því er segir á vef
Faxaflóahafna. bjb@mbl.is
Metfjöldi far-
þega í sumar
Um 105 þúsund
skipafarþegar til
Reykjavíkur
Morgunblaðið/Ómar
Skemmtiferðaskip Stöðug aukn-
ing er í þessari ferðaþjónustu.
Rekstrarstjóri hjá
Jóa Fel - Hringbraut
Óskum eftir að ráða rekstrarstjóra til
framtíðarstarfa í bakarí Jóa Fel
við Hringbraut (JL húsið)
Viðkomandi þarf að sjá um vaktaskipun, starfsmannaráðningar,
innkaup og allan daglegan rekstur á bakaríinu.
Reynsla af störfum í bakaríi eða á veitingastað er nauðsynleg.
Æskilegt að viðkomandi sé ekki yngri en 25 ára.
Viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum á joifel@joifel.is
Holtagarðar - Smáralind - Kringlan - Garðabær - Hringbraut
Hæ sæti, hvað ert þú að borða?
Smáralind | Kringlunni | Krossmóa Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
– Bragðgott og hollt fóður sem inniheldur
100% náttúruleg efni.
– Inniheldur ENGIN gerfiefni
– Engin litarefni.
– Engin auka bragðefni.
– Engin erfðabreytt matvæli eru í fóðrinu.
Verð frá 2.49
4 kr.
Ekkert verður af því að innanríkis-
ráðuneytið festi kaup á ferjunni
Baldri sem varaferju fyrir Herjólf.
Samningaviðræður Vegagerð-
arinnar og Sæferða sigldu í strand
eftir að ljóst var að ekki myndi fást
úr því skorið í tíma hvort ferjan gæti
uppfyllt kröfur um siglingu á svo-
kölluðu B-hafsvæði sem er á milli
lands og Eyja. Leyfið lá ekki fyrir og
því seldu Sæferðir skipið til fyr-
irtækis á Grænhöfðaeyjum. Voru
Sæferðir bundnar tímamörkum þar
sem nú eru síðustu forvöð fyrir skip-
ið að sigla suður á bóginn áður en
veturinn skellur á af fullum krafti og
sjólag breytist. Ferjan fer utan í
dag. vidar@mbl.is
Baldur seld-
ur úr landi
Baldur Ferjan Baldur fer úr landi.