Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Íslandsvinurinn og barnabókahöf-
undurinn Marjolijn Hof, sem fædd-
ist í Amsterdam í Hollandi árið
1956, hefur margoft komið hingað
til lands, ferðast um hálendið og
dvalið á gestavinnustofum lista-
manna, t.d. í Gullkistunni á Laug-
arvatni og í Herhúsinu á Siglufirði.
Það var einmitt á Síldarminja-
safninu á Siglufirði sem hugmyndin
að nýjustu bók hennar kviknaði. Og
ofan í lúkar í Tý SK 33, einum sýn-
ingargripnum í Bátahúsinu, sat hún
árið 2010, aflaði sér heimilda og hóf
að skrifa söguna De regels van drie
eins og hún heitir á frummálinu.
Þegar Marjolijn hafði þekkst boð
um að koma á barnabókahátíðina
Páfugl úti í mýri sem haldin var í
Norræna húsinu í október síðast-
liðnum gafst henni tækifæri til að
lengja dvöl sína hér á landi, skreppa
norður og kynna nýju bókina sína
fyrir siglfirskum börnum.
Nemendur í Grunnskóla Fjalla-
byggðar hafa reyndar lesið bók
hennar Minni líkur – meiri von, sem
kom út hjá Forlaginu fyrir nokkrum
árum og fyrr á þessu ári fæddist sú
hugmynd að koma á samstarfi milli
hollenskra og íslenskra nemenda,
þar sem íslensku börnin fræddust
um Holland með því að lesa Minni
líkur – meiri von og Hollending-
arnir lærðu um Ísland í gegnum
lestur bókarinnar De regels van
drie. Sú bók fjallar um Twan og tví-
burasystur hans, Lindu, sem hafa
ferðast til Íslands með ömmu sinni
og mömmu til þess að sækja langafa
þeirra og fara með hann til Hol-
lands og koma honum þar á elli-
heimili. Langafa grunar að ekki sé
allt með felldu og er búinn að gera
leynilega flóttaáætlun því frá Ís-
landi vill hann ekki fara. Systkinin
standa frammi fyrir því að þurfa að
taka erfiða ákvörðun – eiga þau að
hjálpa honum við flóttann eða segja
frá leyndarmálinu? Það er miður
vetur og í hinu framandi og snjó-
þunga fjallalandi er glímt við vanda
sem er ekki daglegt brauð hol-
lensku unglinganna.
Nýja bókin og bókin Minni líkur –
meiri von hafa báðar fengið virt
barnabókaverðlaun í Hollandi, sú
fyrri hefur verið þýdd á tólf tungu-
mál og standa vonir til að De regels
van drie verði þýdd á íslensku.
Verkefni úr bókunum
Nemendur í Het Palet-skólanum,
í bænum Hoogeveen, og nemendur
5. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggð-
ar byrjuðu í september á þessu ári
að lesa bækurnar og vinna verkefni
úr þeim. Stofnuð var bloggsíða
verkefnisins þar sem krakkarnir
spyrja hvert annað spurninga um
land og þjóð; sem dæmi höfðu hol-
lensku börnin mikinn áhuga á að
vita hvernig plokkfiskur væri. Verk-
efni eru unnin hjá myndmennta-
kennara og krakkarnir læra nokkur
orð á hvoru tungumáli.
Í heimsókn Marjolijn Hof til
Siglufjarðar á dögunum kom hún í
kennslustund með góðar gjafir frá
Hollandi og til baka fer hún með
bækur um Ísland, harðfisk og
hraunmola úr Holuhrauni, sem einn
nemandinn færði henni handa sam-
starfsbekknum í Hollandi. Verkefn-
inu lýkur nú í nóvember með skæp-
fundi bekkjanna.
Á Bókasafni Fjallabyggðar var
efnt til kynningarfundar fyrir bæj-
arbúa. Sagt var frá samstarfsverk-
efninu, börn lásu úr bók höfund-
arins og voru verk hennar kynnt að
öðru leyti.
Kom með barnabók
„heim“ til Siglufjarðar
Hollenskur rithöfundur fékk hugmynd að barnabók í
Síldarminjasafninu Hóf að skrifa söguna í skipslúkar
Ljósmynd/Guðný Róbertsdóttir
Fékk hraunmola Mikael Sigurðsson, einn nemenda í 5. bekk Grunnskóla
Fjallabyggðar, afhendir Marjolijn Hof mola úr Holuhrauni.
Boðið verður upp á fræðslugöngu
um Hverfisgötu með Guðjóni Frið-
rikssyni sagnfræðingi og Hjálmari
Sveinssyni, formanni umhverfis- og
skipulagsráðs, í dag, laugardag.
Gangan hefst við Safnahúsið klukk-
an 13 og henni lýkur við Snorra-
braut eða Hverfisgötu 105 þar sem
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
opnar endurgerð götukaflans frá
Vitastíg að Snorrabraut. Hverfis-
gatan hefur nú verið endurnýjuð
frá Klapparstíg að Snorrabraut.
Hverfisgatan í Reykjavík á sér
langa sögu en hún var upphaflega
aðalstígurinn í Skuggahverfi, gat-
an í hverfinu. Hún lengdist með ár-
unum til vesturs og austurs. Gatan
hefur gengið í gegnum margar
breytingar og nú hefur hún verið
endurnýjuð í samræmi við hjól-
reiðaáætlun Reykjavíkurborgar,
segir í tilkynningu frá borginni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýuppgerð Hverfisgatan hefur gengið í
endurnýjun lífdaga og er opin að nýju.
Fræðsluganga um
Hverfisgötuna
Hjartaheill og SÍBS bjóða öllum
sem vilja að koma í ókeypis mæl-
ingu á blóðþrýstingi, blóðsykri,
blóðfitu og súrefnismettun um
helgina 8. og 9. nóvember í SÍBS-
húsinu, Síðumúla 6. Opið er á milli
klukkan 10 og 16.
Á síðasta ári mættu ríflega 700
manns í mælingar og reyndust um
60% þeirra með of háan blóðþrýst-
ing. Þar af mældust 43 ein-
staklingar á hættusvæði og var í
kjölfarið bent á að snúa sér til lækn-
is, segir í fréttatilkynningu.
Hjúkrunarfræðinemar við Há-
skóla Íslands munu framkvæma
mælingarnar ásamt starfsfólki
Hjartaheilla. Þeir sem aldrei hafa
látið mæla gildi sín ættu sérstak-
lega að stökkva á þetta tækifæri,
segir í tilkynningunni.
Bjóða fólki ókeypis
heilsumælingar
Hin árlega kaffisala Kristniboðs-
félags karla verður haldin í Kristni-
boðssalnum að Háaleitisbraut 58-60
sunnudaginn 9. nóvember og hefst
með stuttri helgistund kl. 14 og lýk-
ur kl. 17. Ágóði kaffisölunnar mun
renna til kristniboðs- og þróun-
arstarfs Kristniboðssambandsins,
sem hefur m.a. tekið þátt í að
byggja 85 grunn- og framhalds-
skóla í Pókothéraði í Keníu. Allir
eru velkomnir í kaffið hjá körl-
unum og styðja um leið gott mál-
efni, segir í tilkynningu.
Karlar með kaffisölu
STUTT