Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 21
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hornafjarðarbær hefur ekki fylgt
eftir ákvörðun sinni um að leggja
dagsektir á annað af tveimur fyrir-
tækjum sem sigla með ferðafólk á
Jökulsárlóni. Bæjarstjórinn veltir
því fyrir sér hvort sú aðgerð rekstr-
araðilans að fjarlægja allan búnað
sinn yfir nótt eftir að tilkynnt var um
dagsektirnar hafi leitt til þess að
hann fái sjálfkrafa nýja tveggja mán-
aða undanþágu til að starfa án stöðu-
leyfis en bæjarstjórinn tekur fram
að sjálfsagt þurfi enn eitt dómsmálið
til að fá úr því skorið.
Ekkert lát er á deilum á milli land-
eigenda austan við Jökulsárlón um
uppbyggingu varanlegrar aðstöðu
fyrir ferðafólk á svæðinu. Hagsmun-
ir rekstraraðila þeirra tveggja fyr-
irtækja sem bjóða siglingar á lóninu
blandast inn í þær sem og bæjar-
stjórn Hornafjarðar. Fyrir dómstól-
um er rekið mál þar sem meirihluti
landeigenda krefst riftunar samn-
inga við stærra bátafyrirtækið, Jök-
ulsárlón. Baldur Gíslason, formaður
Sameigendafélagsins Fells, segir að
það fari fyrir Hæstarétt á næstu
dögum.
Athugað með skiptingu jarðar
Sameigendafélagið, sem meiri-
hluti landeiganda stendur að, hefur
lagt fram hugmyndir um uppbygg-
ingu á svæði sem Hornafjarðarbær
hefur skipulagt sem þjónustusvæði.
Það hefur einnig stór landeigandi
gert en hann stendur að Jökulsárlóni
hf. Hvorugur samþykkir áform hins
en bæjarstjórn telur sig ekki geta
veitt leyfi til uppbyggingar nema
fyrir liggi leyfi allra landeigenda.
Þar stendur hnífurinn í kúnni. Raun-
ar hefur minnihlutaeigandinn krafist
þess að skipaður verði matsmaður til
að kanna hvort jörðin er skiptanleg
eða ekki. Komi í ljós að ekki sé hægt
að skipta mun þetta ferli væntanlega
leiða til kröfu um að sýslumaður
bjóði jörðina upp.
Kæra ekki á rökum reist
Krafa Hornafjarðarbæjar um að
Ice Lagoon fjarlægi búnað sem það
hefur ekki stöðuleyfi fyrir að viðlögð-
um 250 þúsund króna dagsektum
leiddi til ásakana um að fyrirtækið
Jökulsárlón væri ekki með stöðuleyfi
fyrir öllum sínum búnaði. Björn Ingi
Jónsson bæjarstjóri segir að það hafi
ekki reynst rétt. Búnaðurinn sé tal-
inn upp í samningi sem allir eigendur
jarðarinnar stóðu að. Það eina sem
út af standi sé ruslagámur og ekki sé
venjan að sveitarfélög krefjist stöðu-
leyfis fyrir ruslagáma.
Ice Lagoon kærði ákvörðun sveit-
arstjórnar um að hafna stöðuleyfi og
setja á dagsektir til úrskurðarnefnd-
ar umhverfis- og auðlindamála og til
Samkeppniseftirlitsins.
Innheimta ekki dagsektir
Engin lausn á deilum um uppbyggingu varanlegrar aðstöðu til að þjóna ferðafólki við Jökulsárlón
Hvorugur landeigendahópurinn samþykkir áform hins Dómsmál í gangi og kærur á báða bóga
Morgunblaðið/Ómar
Sigling Jökulsárlón er einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins, þangað koma hundruð þúsunda ferðafólks.
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
210 hestafla dísilvél, 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýri og loftpúðafjöðrun með Terrain Response drifbúnaði á öllum
hjólum gera Land Rover Discovery 4 að einum öflugasta og þægilegasta jeppa sem völ er á. Meðal nýjunga eru breyttur framendi
með nýjum aðalljósum, breytt afturljós, start/stopp ræsibúnaður og Meridian 380W hljómtæki.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
4
3
9
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
r
vi
ðm
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
Á LAND ROVER DISCOVERY 4
Discovery 4 S – verð frá: 11.890.000 kr.
Eldsneytisnotkun 8,8 l/100 km* í blönduðum akstri.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
SKOÐAÐU ÞIG UM
landrover.is
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
Björn Ingi bæjarstjóri segir aðal-
atriðið í þessu máli vera það að
veita þurfi þeim mikla fjölda
ferðafólks sem kemur að lóninu
þjónustu. Sú aðstaða sem nú er
geti ekki talist viðunandi, til
dæmis að hafa aðeins fjögur al-
menningsklósett á þessum vin-
sæla áningarstað.
Sveitarstjórnin sendi í haust
öllum eigendum jarðarinnar Fells
bréf þar sem þeir voru hvattir til
að setja niður deilur og koma sér
saman um uppbyggingu á því
svæði sem deiliskipulagt hefur
verið sem þjónustusvæði. Björn
tekur fram að þar sé pláss fyrir
alla. Sameigendafélag Fells svar-
aði bréfinu með því að skora á
alla eigendur jarðarinnar að
sameinast um samning við verk-
takafyrirtækið Þingvang um
uppbyggingu á svæðinu, það yrði
öllum til hagsbóta. Hluti landeig-
enda hafði áður hafnað þessum
samningum.
Björn Ingi hefur ekki trú á því
að málið leysist með þessum
hætti, miðað við það sem á und-
an er gengið.
Ferðafólkið
fái þjónustu
HVATT TIL UPPBYGGINGAR