Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum | Palóma, Grindavík | Skóbúðin, Keflavík Ferðataska miðstærð Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is 30% afsláttur 4 hjól, 70 cm Verð áður 20.500 verð nú 14.350 Meðan birgðir endast 2 hjól, 65 cm Verð áður 18.200 verð nú 12.700 LAUGARDAGURTIL LISTA Arion banki býður þér á opnun sýningar á ljósmyndaverkumHrafnkels Sigurðssonar frá árunum1996-2014 í höfuðstöðvum bankans aðBorgartúni 19 í dag, laugardag. Sýningin verður opnuðmeð fyrirlestri Gunnars J. Árnasonar listheimspekings um verkHrafnkels. Fyrirlesturinn, sember heitið Náttúraog list, en einnig rusl, hefst kl. 13:30. Allir velkomnir. Verulegir óvissuþættir eru í verð- bólguspá Seðlabankans og eru meiri líkur á því að verðbólgu sé vanspáð á seinni hluta spátímans en að henni sé ofspáð, samkvæmt nýjustu útgáfu Peningamála sem birt var í tengslum við vaxaákvörðun bankans í vikunni. Eins og fram kemur í yfirlýsingu peningamálanefndar byggist ákvörð- un um vaxalækkun m.a. á því að bank- inn telur líkur á að verðbólga hjaðni frekar á næstu mánuðum og verði við eða undir markmiði fram yfir mitt næsta ár. Verðbólgan í þriðja árs- fjórðungi mældist 2,1% og spáir bankinn því að hún verði 1,7% í fjórða ársfjórðungi. Hann gerir svo ráð fyrir að verðbólgan þokist upp á við á ný og verði á bilinu 2½-3% frá árinu 2016. Í Peningamálum segir að „verð- bólguhorfur til næstu þriggja ára gætu auðveldlega breyst frá því sem gert er ráð fyrir í grunnspánni“. Bankinn bendir á nokkra óvissuþætti í þessu tilliti. Í spánni er gert ráð fyrir óbreyttu gengi á spátímanum, sem kunni að vera vanmat í ljósi bata efna- hags- og viðskiptakjara eða ofmat í ljósi mögulegs fjármagnsútflæðis við uppgjör slitabúa og losun fjármangs- hafta. Þá er gert ráð fyrir þremur kís- ilverum á spátíma en ekki fjórða kís- ilverinu eða álveri í Helguvík. Gert er ráð fyrir umtalsverðum launahækk- unum í spánni sem þó kunna að reyn- ast vanmetnar í ljósi óróleika á vinnu- markaði. Loks bendir bankinn á hugsanleg áhrif alþjóðlegra efnahags- mála þar sem blikur eru á lofti, óljósa þróun verðbólguvæntinga og loks misvísandi vísbendinga um hvort slakinn í þjóðarbúinu muni hverfa á spátíma eða síðar. Talsverð óvissa í verð- bólguspá Seðlabankans  Meiri hætta á vanspá en ofspá, samkvæmt Peningamálum Verðbólguspá og óvissumat 1. ársfj. 2012 – 4. ársfj. 2017 Spá Seðlabankans Verðbólgumarkmið 50% líkindabil 75% líkindabil 90% líkindabil 2013 2013 2013 2013 2013 2013 7 6 5 4 3 2 1 0 Heimild: Hagstófa Íslands, Seðlabanki Íslands Breyting frá fyrra ári (%) Opnað hefur verið fyrir umsóknir í viðskiptahraðlinn Startup Energy Reykjavík sem bráðlega hefur göngu sína í annað sinn. Valin verða sjö orkutengd sprota- fyrirtæki og þeim veitt tækifæri til að þróa hugmyndir sínar undir handleiðslu sérfræðinga. Nú þegar hafa 20 umsóknir borist. Að sögn Stefáns Þórs Helgason- ar, verkefnastjóra Startup Energy Reykjavík, koma fjölbreyttar hug- myndir til greina inn í hraðalinn. „Í rauninni þarf hugmyndin bara að tengjast orku á einhvern hátt og getur tengst öllu frá ylrækt og matvælaframleiðslu til borholu- tækni og eldsneytisframleiðslu. Í fyrra tóku til dæmis þátt reyndir veðurfræðingar með þjónustu til að spá um ákjósanlegustu stað- setningu vindmylla, raftæknifræð- ingur sem bauð bændum og öðr- um landeigendum að virkja smálæki, ráðgjafafyrirtæki og fleiri.“ Segir hann Íslendinga mjög framarlega á þessu sviði. „Hingað sækja erlendir aðilar í þá miklu þekkingu sem byggst hefur upp í orkugeiranum undanfarna ára- tugi. Ísland er að mörgu leyti kjörinn staður fyrir sprotafyrir- tæki í orkugeiranum.“ Bendir hann á að íslenski jarðvarma- klasinn velti milljörðum króna á hverju ári og að íslenskir sérfræð- ingar á því sviði séu eftirsóttir um allan heim. brynja@mbl.is Hraðall fyrir orkusprota  Startup Energy Reykjavík fer af stað í annað sinn Ljósmynd/Anton Brink Startup Stefán segir sjö fyrirtæki komast inn í viðskiptahraðalinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.