Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 24

Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 2014 Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56 2 0207 • perlan@perlan.is • ww w.perlan.is Villibráðarhlaðborð Perlunnar er f rá 23. október til 19. nóvember 10.500 kr. tilboð mánud.-miðvik ud. 8.500 kr. Gjafabréf Perlunnar Góð gjöf við öll tækifæri Þjóðverjar hófu í gær hátíðarhöld í tilefni af því að á morgun verða 25 ár liðin frá falli Berlínar- múrsins. Á meðal þeirra sem eru viðstaddir há- tíðina er Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti forseti Sov- étríkjanna, sem er hér í Checkpoint Charlie, þekktustu landamærastöðinni milli Vestur- og Austur-Berlínar áður en borgin var sameinuð. Gorbatsjov, sem er 83 ára, tekur þátt í umræðu í dag um lok kalda stríðsins og spennuna sem er nú í samskiptum Rússlands og Vesturlanda. Há- tíðin nær hámarki á morgun með tónleikum þar sem margir heimsþekktir listamenn koma fram. Míkhaíl Gorbatsjov skoðar eitt tákna kalda stríðsins í Berlín AFP Aldarfjórðungur frá falli Berlínarmúrsins Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forsætisráðherrar norrænna ríkja hafa látið í ljósi áhyggjur af áformum ríkisstjórnar Bretlands um að tak- marka innflutning fólks frá aðildar- löndum Evrópska efnahagssvæðis- ins. Þeir segja að mikilvægt sé að halda reglunum um frjálst flæði vinnuafls milli landanna. Málið var rætt á fundi Davids Camerons, forsætisráðherra Bret- lands, með forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Finnlandi í gær og fyrradag. Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Hægriflokksins, sagði að reglurnar um frjálst flæði vinnuafls á Evrópska efnahagssvæðinu væru „afar mikilvægar fyrir Noreg“. Hún bætti við að þetta frelsi væri einnig „hugmyndafræðilega mikilvægt“ fyrir sig sem hægrimann. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að afnám reglanna um frjálst flæði vinnuafls gæti „eyði- lagt“ innri markaðinn sem Evrópu- sambandið kom á fót til að auka frelsi í viðskiptum á milli aðildarríkj- anna. Alexander Stubb, forsætisráð- herra Finnlands og leiðtogi flokks hægri- og miðjumanna, sagði að reglurnar um frjálst flæði vinnuafls væru „fremur heilagar“. Hann bætti við að það ætti að „umbuna Bret- landi með ESB-orðu fyrir að bera fram þann heilaga kaleik“ með því að opna dyrnar að Austur-Evrópu, að því er fréttavefur breska ríkisút- varpsins hafði eftir Stubb. Cameron hyggst skýra frá áform- um sínum í innflytjendamálum fyrir jól. Breskir fjölmiðlar segja að hann íhugi meðal annars að taka í „neyðarhemilinn“ til að draga úr inn- flutningi fólks frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eftir að hann fer yfir ákveðin mörk, eða takmarka fjölda nýrra sjúkratrygginganúmera fyrir innflytjendur. Angela Merkel hafnar breytingum á frelsinu Angela Merkel, kanslari Þýska- lands og leiðtogi hægriflokksins Kristilegra demókrata, hefur sagt að ekki komi til greina að semja um breytingar á reglunum um frjálst flæði vinnuafls. Þýska blaðið Spiegel skýrði frá því í vikunni að Merkel hefði rætt málið við Cameron á leið- togafundi ESB í síðasta mánuði og sagt að hann nálgaðist „vendimörk“ í samskiptunum við Evrópusamband- ið með stefnu sinni í innflytjenda- málum. Héldi hann áfram á sömu braut myndi þýska stjórnin ekki lengur beita sér fyrir því að Bretland yrði áfram í Evrópusambandinu fyr- ir þjóðaratkvæði sem Cameron hef- ur boðað um aðildina árið 2017 ef hann heldur völdunum. Norræn ríki vilja halda frelsinu  Forsætisráðherrar norrænna ríkja hafa áhyggjur af áformum Camerons í innflytjendamálum og vilja halda frjálsu flæði vinnuafls  Íhugar að nota „neyðarhemilinn“ til að draga úr fjölgun innflytjenda AFP Leiðtogafundur Forsætisráðherrarnir Helle Thorning-Schmidt Danmörku, David Cameron Bretlandi og Alexander Stubb Finnlandi í Espoo. Græddi 4.000 milljarða á innflytjendum » Innflytjendur frá öðrum ESB-löndum í Bretlandi greiddu meira í skatta en þeir fengu í bætur frá ríkinu á ár- unum 2001 til 2011, sam- kvæmt nýbirtri rannsókn. » Munurinn var 20 milljarðar punda, tæpir 4.000 milljarðar króna. Innflytjendur frá lönd- um utan ESB fengu 118 millj- arða punda í bætur umfram skattgreiðslur þeirra. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að senda 1.500 bandaríska her- menn til Íraks til viðbótar þeim sem þegar eru þar. Hann hefur og beðið Banda- ríkjaþing um 5,6 milljarða dala fjárveitingu. Bandaríkin ætla að herða baráttuna gegn samtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Hermennirnir eiga ekki að taka þátt í átökum heldur munu þeir þjálfa íraskar og eins kúrdískar ör- yggissveitir, veita þeim ráðgjöf og styðja í baráttunni gegn íslamska ríkinu. Josh Earnest, talsmaður Hvíta hússins, greindi frá þessu í gærkvöldi, að íslenskum tíma. Hann sagði að hermennirnir myndu fá heimild til að starfa á herstöðvum ut- an við Bagdad og Erbil. „Bandarískar hersveitir taka ekki þátt í bardögum en þær verða betur staðsettar til að styðja við íraskar ör- yggissveitir þegar þær berjast við íslamska ríkið,“ sagði Earnest.  Obama óskar eftir fjárveitingu Barack Obama 1.500 her- menn send- ir til Íraks

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.