Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Einn frægastiblaða-manna-
fundur sögunnar
var haldinn að
kvöldi 9. nóvember
í Austur-Berlín fyr-
ir 25 árum. Stjórnmálaráðið,
æðsta valdastofnun landsins,
sat á sérstökum fundi vegna
þess að allt var á suðupunkti í
landinu vegna þess að yfirvöld í
landinu höfðu þráast við að
fylgja fordæmi Míkhaíls Gor-
batsjovs, leiðtoga Sovétríkj-
anna, um að slaka á klónni.
Til að greina frá gangi funda-
haldanna, sem voru í miðjum
klíðum, hélt Günter Scha-
bowski, sem sat í stjórn-
málaráðinu, blaðamannafund.
Fundurinn hafði verið lang-
dreginn og stofnanaleg svörin
allt annað en fréttnæm þegar
Riccardo Ehrman, blaðamaður
ítölsku fréttastofunnar Ansa,
loks komst að: „Var frumvarpið
um ferðaleyfi fyrir nokkrum
dögum ekki mistök?“ Scha-
bowski svaraði í löngu máli, en
allt í einu lögðu blaðamennirnir
við eyru. „ … því höfum við
ákveðið að setja í dag reglu,
sem gerir öllum borgurum
DDR [Þýska alþýðulýðveld-
isins] kleift að ferðast brott um
landamærastöðvar DDR,“ sagði
hann. Spurningunum rigndi yfir
hann og hann dró miða upp úr
vasanum, einstaklingar geti
sótt um að fara til útlanda í
einkaerindum, hægt verði að
nota allar landamærastöðvar
milli Austur- og Vestur-
Þýskalands og svo kom lyk-
ilorðið: „Strax.“
Ætlunin var hins vegar alls
ekki að opna landamærin strax.
Austurþýska fréttastofan ADN
sendi út frétt um að fylla yrði út
eyðublöð og fylgja forms-
atriðum.
Ítalska fréttastofan trúði
Ehrman ekki í fyrstu þegar
hann sagði að múrinn væri fall-
inn, en tæpum hálftíma síðar
kom fréttin eins og hann vildi
hafa hana: Múrinn er fallinn. Þá
var klukkan hálfátta.
Fjölmiðlar í Vestur-Þýska-
landi og Vestur-Berlín fluttu
fréttir um að landamærin hefðu
verið opnuð án tafar, en aust-
urþýskir fjölmiðlar reyndu að
bera á móti með fréttum um að
sækja þyrfti um leyfi.
Harald Jäger var á vakt á
landamærastöðinni á Bornhol-
mer-götu í Berlín. Hann sá
fréttir um yfirlýsingu Scha-
bowskis í sjónvarpinu og trúði
ekki sínum eigin augum. Mót-
mæli höfðu staðið vikum saman,
en hann átti von á rólegri vakt.
Hann hringdi í yfirboðara sinn,
sem skammaði hann fyrir að
hringja út af þessari vitleysu og
sagði honum að senda fólk heim
ef það væri ekki með gögn um
að það mætti fara yfir landa-
mærin.
Brátt dreif að
fólk og þegar ekk-
ert gerðist hrópaði
mannfjöldinn:
„Leyfið okkur að
fara.“
Jäger hringdi
aftur í yfirboðara sinn, sem
kvaðst ekki hafa neinar fyr-
irskipanir, enda voru allir
æðstu ráðamenn landsins lok-
aðir á fundi. Hann gæti ekki
sagt honum hvað hann ætti að
gera.
Enn fjölgaði fólkinu og Jäger
hringdi í þriðja skiptið og hróp-
aði: „Við verðum að gera eitt-
hvað!“ Þá var honum sagt að
hleypa þeim æstustu í gegn og
róa hina. Það hafði þveröfug
áhrif. Hann var ekki tilbúinn að
beita vopnavaldi og óttaðist að
fólk myndi troðast undir ef ekk-
ert yrði að gert. Klukkan hálf-
tólf gaf hann fyrirskipun: „Opn-
ið hliðin.“
„Ég hef aldrei séð aðra eins
gleði og aldrei síðan heldur,“
sagði hann í viðtali nú 25 árum
síðar.
Ítalski blaðamaðurinn
Ehrman, sonur pólskra gyðinga
sem fyrir tilviljun ákváðu að
setjast að á Ítalíu og voru því
ekki í Póllandi þegar gyð-
ingahreinsanir nasista hófust,
og landamæravörðurinn Jäger,
sem var dyggur stuðnings-
maður kommúnistastjórn-
arinnar og liðsmaður Stasi,
þýsku öryggislögreglunnar, eru
ekki lykilpersónur sögunnar.
Múrinn hefði fallið fyrr eða síð-
ar þótt Ehrman hefði ekki kom-
ist að með spurningu sína. Síð-
an þurfti lágt settur yfirmaður
á landamærastöð að taka hina
sögulegu ákvörðun um að opna
múrinn. Hann hefði getað grip-
ið til ofbeldis og ógerningur er
að segja hvernig þá hefði farið.
Fyrir tilviljun áttu þessir
tveir menn hins vegar þátt í því
að fella mannvirki, sem varð að
táknmynd ófrelsis, kúgunar og
harðræðis; varð vitnisburður
um gjaldþrota hugmyndafræði,
sem varð ekki knúin fram nema
með kúgun og ógn.
Berlínarmúrinn féll 1989 og
um leið féll járntjaldið, sem
klofið hafði Evrópu í tæpa hálfa
öld og Sovétríkin liðuðust í
sundur. 1989 hefur líka yfir sér
blæ óraunveruleika vegna þess
að breytingarnar komu neðan
frá og urðu án blóðsúthellinga.
Það er allt annað en sjálfsagt.
Það sást sama ár þegar kín-
versk stjórnvöld brutu mót-
mælin á Torgi hins himneska
friðar á bak aftur með hervaldi.
Það sást aftur í arabaheiminum
í ólgunni sem hófst í desember
2010. Þar stóð vorið stutt og við
tók harðari vetur en ríkt hafði
áður en voraði.
Sögunni lauk ekki 1989, en
atburðir þess árs sýna að stund-
um verður hið ómögulega
mögulegt.
Birtingarmynd
gjaldþrota hug-
myndafræði var
sópað úr vegi}
Fall Berlínarmúrsins
A
irwavesgestir eru ólíkir öðrum
ferðamönnum sem koma til lands-
ins. Fyrir það fyrsta eru þeir í
versta falli öðruvísi asnalegir.
Týpulegir eins og týpur gerast
bestar; með skegg sem lætur mitt eigið virðast
vel snyrt og hóflegt og að jafnaði áratug eða
tveimur undir meðalaldri ferðamanns á Ís-
landi.
Ferðamennska er fyrir nokkru orðin einn
stærsti atvinnuvegur á Íslandi. En sú tegund
ferðamanna sem er hvað algengust á Íslandi
er, fyrir okkur sem ekki erum að reyna að
hagnast sem mest og best á þessu, skelfilega
óspennandi. Flestir eru þeir, eins og segir, um
það bil miðaldra og með yfirvaraskegg, óháð
kyni.
Tískuvitið virðist hafa gleymst í Leifsstöð,
því á heitum íslenskum júlídegi, þegar hitastigið fer næst-
um því í tveggja stafa tölu, veit Íslandsgesturinn ekkert
betra en þrjú lög af hnausþykkum útivistarfatnaði. Að-
alskemmtunin virðist vera í átt við það sem flestir Íslend-
ingar þekkja sem sauðfjárbúskap. Þeim er smalað að
morgunverðarhlaðborðinu, síðan upp í rútu og þaðan
keyrðir að náttúruperlum sem heimamenn hafa fyrir
löngu gefist upp á að heimsækja sökum þessa nýtilkomna
sauðfjárbúskapar.
Fyrir okkur hin virðist þetta vera ömurleg tilvist, þar
sem þessar jarmandi ferðakindur virðast ekki vera þátt-
takendur í nokkru sem fyrir augu þeirra ber, heldur
teymdir milli staða með myndavélina á lofti,
myndandi allt það sem þeim ferðahandbókin
segir þeim að sé frábært og æðislegt og sér-
íslenskt.
Á Airwaves breytist þetta allt. Í nóvember-
byrjun er það langt liðið á ferðafjárveiðiárið
að litríku miðaldra kindurnar eru flestar
horfnar til sinna heima. Í staðinn flykkist
hingað fólk úr öllum heimshornum með það
að markmiði að upplifa Reykjavík upp á sitt
besta, þrátt fyrir myrkur, vind og kulda. Og
ólíkt þessum jarmandi rútutúristum vilja
Airwavesgestir flestir einmitt upplifa Reykja-
vík og íslenska samtímamenningu, ekki bara
horfa á grjót og vatn og ganga Laugaveginn
vestari í nýju Scarpa-skónum sínum.
Þrátt fyrir að gestirnir séu margir hverjir
undir áhrifum ýmissa vímugjafa meðan á
heimsókninni stendur er reynsla lögreglunnar að jafnaði
sú að þessum aukna fjölda miðbæjargesta fylgi ekki auk-
in vandræði eða drykkjulæti. Á hinn bóginn virðast sauð-
fjárferðamenn standa flestum framar í að festa smábíla í
jökulám, keyra á tvöföldum hámarkshraða á þjóðvegum
landsins og velta bílum. Það síðasta á að vísu kannski ekki
fullkomlega við, því tveir Íslendingar hafa nýlega sýnt
fram á ótrúlega færni í að velta bíl með frjálsri aðferð.
Þessir ferðamenn virðast því miklu frekar til þess falln-
ir að leggja eitthvað til íslenskrar siðmenningar, annað en
peninga, heldur en nokkurn tíma litríku útivistarkind-
urnar. gunnardofri@mbl.is
Gunnar Dofri
Ólafsson
Pistill
Engir jarmandi rútutúristar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fram kemur í nýjum Pen-ingamálum Seðlabankansað alþjóðlegar hagvaxtar-horfur hafi versnað frá
því í ágúst, þegar ritið kom síðast út,
og sömuleiðis horfur um innflutning
helstu viðskiptalanda Íslands.
„Horfur eru tvísýnni en í ágúst og
meiri líkur á að hagvexti sé ofspáð
fremur en vanspáð,“ segir þar.
Bent er á að þriggja ára sam-
felldri rýrnun viðskiptakjara Ís-
lands hafi lokið á fyrri helmingi árs-
ins. Þá segir að leiðandi
vísbendingar bendi „til að áfram
muni fjara undan efnahagsbata
evrusvæðisins á seinni helmingi árs-
ins“. Vikið er að lækkandi verði á
hrávörum og hvernig viðskiptabann
Rússa á Bandaríkin, Ástralíu, Kan-
ada, evrusvæðið og Noreg er talið
geta haft í för með sér frekari verð-
lækkun á hrávörum.
Niðurstaða Peningamála er að
„þótt viðsnúningur hafi orðið í við-
skiptakjörum á öðrum ársfjórðungi
þessa árs eftir þriggja ára samfellda
rýrnun [hafi] horfur fyrir viðskipta-
kjör og útflutning heldur versnað“.
Sjávarafurðir hækka í verði
Samkvæmt Peningamálum hef-
ur verð sjávarafurða í erlendum
gjaldmiðlum hækkað um nær 10%
frá því í febrúar sl. eftir verðlækk-
anir frá því síðla árs 2012. Þá hafi ál-
verð hækkað frá miðju ári „og hafði
í ágúst ekki verið hærra í 1½ ár“.
Jón Bjarki Bentsson, hagfræð-
ingur hjá Greiningu Íslandsbanka,
segir viðskiptakjörin hafa áhrif á
gengi krónunnar. „Ef viðskipta-
kjörin batna ekki meira en Seðla-
bankinn gerir ráð fyrir – og ef raun-
gengið er áfram að þokast upp á við
og viðskiptaafgangur að hverfa – að
þá segir það allt saman þá sögu að
krónan sé í rauninni í sterkara lagi
frekar en hitt, að hún sé að minnsta
kosti ekki veik,“ segir Jón Bjarki og
útskýrir þetta hagfræðilega.
„Betri viðskiptakjör gera hag-
kerfinu, að öðru óbreyttu, auðveld-
ara að búa við hátt raungengi. Ef
viðskiptakjörin batna hratt, t.d.
vegna erlendrar verðhækkunar á
sjávarafurðum, getur verðlag í land-
inu frekar hækkað, án þess að það
komi niður á viðskiptajöfnuði. Ef
viðskiptakjörin batna ekki mikið
frekar og raungengið heldur áfram
að þokast upp og þurrka upp við-
skiptajöfnuðinn er það til marks um
að það væri heppilegra fyrir ytra
jafnvægi hagkerfisins að hafa held-
ur veikari krónu,“ segir Jón Bjarki
sem telur aðspurður að nýjar spár
um viðskiptakjör minnki líkurnar á
að raungengið styrkist á næstu ár-
um.
Skerðir samkeppnishæfni
Með því að launakostnaður hér
hækki umfram það sem gerist í
helstu viðskiptalöndum komi það
niður á samkeppnishæfni Íslands.
„Ef hér verður umtalsvert
meiri verðbólga heldur en í lönd-
unum í kringum okkur vegna þess
að innlendur kostnaður, t.d. launa-
kostnaður, er að aukast myndar það
meiri þrýsting á gengið. Það er
vegna þess að við erum ekki
að njóta bata í viðskipta-
kjörum sem hjálpar okk-
ur að búa við hærra
raungengi. Ef við-
skiptakjörin vinna
með okkur verður
töluvert auðveldara
að aflétta höftum.
Spár um að við-
skiptakjörin batni
allra næstu ársfjórð-
unga eru enn ein
vísbendingin um að
nú sé rétti tíminn til
að stíga þessi skref.
Við höfum ekki mik-
inn tíma til að hrinda
afnámi hafta í fram-
kvæmd áður en þjóð-
hagslegar aðstæður
fara að versna að nýju.“
Horfur hafa versnað
fyrir viðskiptakjörin
Ásgeir Jónsson, lektor í hag-
fræði við Háskóla Íslands, telur
að Seðlabankinn muni ekki
heimila frekari styrkingu á nafn-
gengi krónunnar.
„Vöruskiptin líta illa út. Við
höfum ekki aukið vöruútflutning
sem neinu nemur frá hruni. Út
frá vöruskiptajöfnuðinum myndi
núverandi gengisstig krónunnar
ekki ganga upp. Það sem hefur
gerst er að það hefur komið nýr
áhrifavaldur í hagkerfið sem er
ferðaþjónustan. Hún gerir það að
verkum að núverandi fast-
gengisstefna Seðlabank-
ans heldur vatni. Núver-
andi gengi krónunnar er
algerlega háð ferðaþjón-
ustu.“
Spurður um áhrif fjár-
festingar í kísilverum á
gengið segir Ásgeir að
áhrifin verði neikvæð á
framkvæmdatímanum.
Bæði þurfi að flytja inn
tæki fyrir milljarðatugi og
þá séu framkvæmdirnar til
þess fallnar að örva eft-
irspurn og innflutning.
Þegar framleiðsla í kís-
ilverunum verði komin í
fullan gang muni sá út-
flutningur styrkja geng-
ið.
Spáir ekki
styrkingu
RÝNT Í STÖÐUNA
Viðskiptakjör vöru og þjónustu 2008–2017
PM 2014/4
PM 2014/3
Vísitala, 2005 = 100
‘09 ‘15‘10 ‘16‘11 ‘17‘12 ‘13‘08 ‘14
Hagstofan birti í fyrsta sinn þjóðhagstölur skv. ESA 2010 19. september sl. Eitt af því sem þá breyttist var að sumt
af því sem áður taldist út- og innflutningur á vörum er nú talið til þjónustuviðskipta, kallast framleiðsluþjónusta.
Sú breyting hefuráhrif á það hvernig tölur um viðskiptakjör eru reiknaðar út aftur til ársins 2008.
98
96
94
92
90
88
86
84
82
Spá í Peningamálum (PM) Seðlabankans í ágúst (3) og nóvember (4) 2014
Heimild: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands