Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Atburðirnir 1989 standa fyrir sigur frels- isins á kúguninni. Fyrst og fremst ber að votta borgurum Þýska al- þýðulýðveldisins, DDR, virðingu. Sívaxandi fjöldi þeirra krafðist umbóta og frjálsra kosninga í mótmæla- göngum og án hug- rekkis þeirra hefði múrinn ekki fallið þann 9. nóvember 1989. Við höfum minnst þessa örlagaríka dags fyrir 25 árum með sýningu fjölda kvikmynda undanfarna daga. Af þessu tilefni hafa einnig nokkrir Íslendingar, sem upplifðu sjálfir þennan dramatíska og ógleymanlega viðburð í mannkynssögunni á staðnum, í Berlín, sagt okkur frá reynslu sinni af honum með áhrifarík- um hætti. 25 árum síðar Flestir Austur-Þjóð- verjar vonuðust fyrst og fremst eftir auknu frelsi við endursameininguna – ferðafrelsi og tjáning- arfrelsi, auk betri lífs- kjara. Flestar vonir þeirra hafa orðið að veruleika. Framþróun í austurhluta Þýskalands hefur verið gífurleg. Hver hefði búist við því fyrir 25 ár- um að 96 prósent Austur-Þjóðverja 30 ára og yngri segðu í dag að endursam- einingin hefði orðið þeim til fram- dráttar? Við getum verið stolt af því. Þjóðarframleiðsla í Austur-Þýska- landi hefur meira en tvöfaldast frá því við upphaf tíunda áratugar síðustu aldar. Brottflutningur íbúa virðist vera hættur, árið 2013 flutti í fyrsta sinn fleira fólk til austurs en vesturs. Borgir sem þá voru í mikilli niður- níðslu hafa breytt algjörlega um svip. Hver sá sem í dag gengur um Brand- enborgarhliðið eða virðir fyrir sér gömlu hverfin í Görlitz, Erfurt, Stral- sund, Quedlinburg eða Potsdam sér hve mikið hefur breyst til batnaðar frá 1990. Vitaskuld afneitum við því ekki að atvinnuleysi í Austur-Þýskalandi er enn meira en í vestrinu. En það er núna um 10% og hefur aldrei verið minna frá endursameiningu. Diplómatískt afrek Eftir fall múrsins og fyrstu frjálsu kosningarnar til austur-þýska þings- ins, Volkskammer, gátu Helmut Kohl og Hans-Dietrich Genscher ásamt lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Lot- hars de Maizère lagt grunninn að endursameiningunni í erfiðum samn- ingaviðræðum, svokölluðum 2+4- samningum við Bandamenn úr seinni heimsstyrjöld. Það sem skömmu áður þótti óhugsandi var nú staðreynd: Sovétríkin, sem þá voru, töldu að bæta mætti upp minni áhrif sín í Mið- Evrópu með nýjum hætti í samstarfi við sameinað Þýskaland. Bretar og Frakkar sannfærðust um að Þýska- land yrði traust samstarfsríki í NATO og áfram hluti af Evrópusam- bandinu og drifi áfram evrópska sam- runaferlið enn frekar en áður. Ekki má heldur gleyma að við nutum stór- fellds stuðnings frá Bandaríkjunum í ferli þessu öllu. Og einmitt núna, þegar heimurinn virðist vera að „leysast upp“, eins og utanríkisráðherra okkar, Frank- Walter Steinmeier, orðaði það, og oft er talað um meintan „vanmátt utan- ríkissamskipta“, verður að minna á að í þessu tilviki var unnið diplómat- ískt afrek. Eftir Thomas H. Meister » Þjóðarframleiðsla í Austur-Þýskalandi hefur meira en tvöfald- ast frá því við upphaf tíunda áratugar síðustu aldar. Thomas H. Meister Höfundur er sendiherra Þýskalands á Íslandi. 9. nóvember 1989 – fall Berlínarmúrsins Þegar Berlínarmúr- inn hrundi fimmtudag- inn 9. nóvember 1989, féll kommúnisminn um leið, þótt dauðastríð hans í Rússlandi ætti eftir að taka tvö ár í við- bót og enn standi tvö kommúnistaríki uppi eins og draugabæli, Kúba og Norður-Kórea. Talið er, að um hundrað milljón manns hafi týnt lífi af völdum kommúnismans, flestir úr hungri. En hvað olli falli hans? Hvers vegna var hann áhrifamikill á Íslandi? Og hvers vegna ættum við að minnast hans? Fall kommúnismans Frá einu sjónarhorni séð sætir furðu, að kommúnisminn skyldi ekki falla fyrr, því að hann er tilraun til þess að gera það, sem er öllum vald- höfum um megni, að breyta manneðl- inu. Kommúnistar skildu ekki, að mannlífið er ekki mauraþúfa, heldur heild ólíkra einstaklinga. Þegar árið 1922 gaf austurríski hagfræðingurinn Ludwig von Mises út bókina Sam- eignarskipulagið (Die Gemeinw- irtschaft). Þar sagði hann fyrir um það, að miðstýrður áætlunarbúskap- ur myndi mistakast. Valdhafar gætu aldrei safnað saman nægum upplýs- ingum til að finna framleiðsluöflum hagkvæmustu farvegi, en á frjálsum markaði gerist það sjálfkrafa í við- skiptum, þar sem ólíkir einstaklingar nýta saman vitneskju, þekkingu og kunnáttu hver annars. Málið snýst ekki aðeins um það, að menn keppa ekki af sama ákafa, þegar þeir fá ekki sjálfir að hirða ávinninginn, heldur líka um hitt, að þeir geta ekki vitað, að hverju þeir eigi að keppa, nema þeir búi við sífellda upplýsingagjöf gróða og taps. Samkeppni er umfram allt aðferð til að afla og miðla vitn- eskju, þekkingu og kunnáttu. Kommúnistar brugðust við reynsl- unni af búskaparlagi sínu með því einu að herða eftirlit og skjóta „skemmdarvarga“. Þeir sýndu, að þeir voru reiðubúnir að gera hvað sem er til þess að byltingin langþráða yrði. Gegn harðskeyttum hópi þeirra máttu fáir sín mikils, eins og reynslan sýndi í Rússlandi og Kína. Frá öðru sjónarhorni séð er það því undrunar- efni, að þeir skyldu með hinni skefja- lausu grimmd sinni og valdafýsn ekki ná valdi á allri jarðarkringlunni. Skýringin á því er sú, að eng- ilsaxnesku stórveldin tvö, Bandaríkin annars vegar og breska samveldið hins vegar, veittu þeim öfluga mót- spyrnu og urðu þeim að lokum yf- irsterkari. Hefði þeirra ekki notið við, þá hefði Stalín líklega lagt undir sig mestallt meginland Norðurálfunnar, en Maó eignast Austurálfu óskipta. Áhrif á Íslandi Íslendingar fylgdust frá upphafi áhugasamir með kommúnismanum. Tveir kornungir menn, Brynjólfur Bjarnason og Hendrik Ottósson, fengu styrk úr sjóðum Kremlverja til að sækja annað þing Alþjóða- sambands kommúnista í Moskvu sumarið 1920. Þá mynduðust tengsl íslenskra kommúnista við hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu, sem heita máttu óslitin næstu hálfa öld. Brynj- ólfur Bjarnason var for- maður komm- únistaflokksins frá 1930 til 1938, en þá tókst kommúnistum að kljúfa Al- þýðuflokkinn og stofna Sósíal- istaflokkinn, og var Einar Olgeirsson lengst formaður hans. Alþýðu- bandalagið tók við af Sósíal- istaflokknum 1968 og starfaði til 1998, en síðasta verk þess var að senda nefnd í boðsferð til kúbverska kommúnistaflokksins. Brynjólfur og Einar voru báðir í góðu sambandi við valdhafa í Rússlandi og Kína. Ís- lenskir kommúnistar hlutu verulega fjárstyrki frá Kremlverjum, og hefur það eflaust ráðið miklu um, hversu valdamiklir þeir voru í verkalýðs- hreyfingu og menningarlífi um miðja tuttugustu öld. Um skeið höfðu menningarpáfar kommúnista það jafnvel í hendi sér, hverjir töldust gjaldgengir rithöfundar á Íslandi. Þó risu margir íslenskir mennta- menn upp gegn ofríki kommúnista. Undir öflugri ritstjórn Valtýs Stef- ánssonar skýrði Morgunblaðið reglu- lega frá því, sem gerðist í Rússlandi, meðal annars hungursneyðinni í Úkraínu 1932-1933. Haustið 1938 komu út tvær bækur um Rússland kommúnista. Önnur varð illræmd, Gerska æfintýrið eftir Halldór Kiljan Laxness, þar sem hann söng stal- ínismanum lof og lýsti sakborningum í Moskvuréttarhöldunum eins og skordýrum. Hin bókin var Þjónusta, þrælkun, flótti eftir finnska prestinn Aatami Kuortti, sem hafði setið í þrælkunarbúðum Stalíns, en tekist að flýja til Finnlands. Var heldur hljóð- ara um hana en ferðabók Laxness, en hún ber aldurinn þeim mun betur. Árið 1941 kom út bók um undirróð- ursstarfsemi kommúnista, meðal annars á Norðurlöndum, eftir Jan Valtin, öðru nafni Richard Krebs. Ærðust þá kommúnistar, en Benja- mín Eiríksson hagfræðingur varði höfundinn. Bæjarstjórnarkosning- arnar í Reykjavík 1946 snerust upp í harðvítugar deilur um stjórnarfar í Ráðstjórnarríkjunum. Morgunblaðið dreifði sérstökum blaðauka með þýð- ingu á lýsingu ungverska rithöfund- arins Arthurs Koestlers á lífinu í kommúnistalöndunum. Sagði þá ung- ur kommúnisti, Jónas H. Haralz hag- fræðingur (sem síðar skipti um skoð- un), að Morgunblaðið hefði sett nýtt met í „siðlausri blaðamennsku“. Gáfu kommúnistar út sérstakt blað, Ný menning, sem þeir dreifðu í hvert hús í Reykjavík, þar sem lýsingum Koest- lers var mótmælt. Þeir kusu frelsið Kalda stríðið, sem hófst af alvöru eftir valdarán kommúnista í Tékkó- slóvakíu, gerði suma lýðræðissinna að betri mönnum, því að það sýndi, að þeir voru reiðubúnir að berjast fyrir sannfæringu sinni. Í ársbyrjun 1950 flutti Tómas Guðmundsson skáld snjalla ræðu á opinberum fundi gegn alræðistilhneigingum í Rússlandi. Uppskar hann harðar árásir Þjóðvilj- ans, málgagns kommúnista. Sama ár stofnuðu tveir ungir hugsjónamenn, Geir Hallgrímsson og Eyjólfur Kon- ráð Jónsson, bókaútgáfuna Stuðla- berg og gáfu út þrjár bækur um kommúnismann, Guðinn sem brást eftir Arthur Koestler og fleiri 1950, Nítján hundruð áttatíu og fjögur eftir George Orwell 1951 og Bóndann eftir Valentin Gonzalez 1952. Lárus Jó- hannesson, lögfræðingur og alþing- ismaður, tók sig til, þýddi og gaf út 1951 stórfróðlega bók, Ég kaus frels- ið, eftir flóttamann frá Úkraínu, Vík- tor Kravtsjenko. Stefán Pjetursson, fyrrverandi ritstjóri Alþýðublaðsins, sem sjálfur hafði næstum því lent í þrælkunarbúðum Stalíns, þýddi 1954 bókina Konur í einræðisklóm eftir þýska rithöfundinn Margarete Bu- ber-Neumann, sem hafði fyrst verið fangi Stalíns og síðan Hitlers. Sama ár flutti Gunnar Gunnarsson rithöf- undur skörulega ræðu gegn komm- únisma á fundi Heimdallar, og næstu ár tóku fleiri menntamenn til máls um kommúnisma á sama vettvangi, Guðmundur G. Hagalín, Kristmann Guðmundsson, séra Sigurður Pálsson og séra Sigurður Einarsson í Holti. Tímamót urðu síðan 17. júní 1955, þegar Almenna bókafélagið var stofn- að, og höfðu Bjarni Benediktsson, Geir Hallgrímsson og Gunnar Gunn- arsson forgöngu um það. Tilgangur félagsins var að hnekkja ofurvaldi kommúnista í íslensku menningarlífi. Sinnti það því vel, á meðan Eyjólfur Konráð Jónsson var framkvæmda- stjóri. Fyrsta útgáfurit þess var Ör- laganótt yfir Eystrasaltsríkjum eftir eistneska bókmenntaprófessorinn Ants Oras. Almenna bókafélagið gaf einnig út Hina nýju stétt 1958 eftir júgóslavneska andófsmanninn Milov- an Djilas og Eistland. Smáþjóð undir oki erlends valds 1973 eftir eistneska blaðamanninn Anders Küng, en þýð- andi þeirrar bókar var Davíð Odds- son, er átti löngu síðar sem forsætis- ráðherra eftir að endurnýja viðurkenningu Íslands á sjálfstæði Eistlands. Hefur verið ákveðið, að Al- menna bókafélagið endurútgefi þess- ar bækur og önnur merkileg rit á net- inu, svo að þau verði aðgengileg nýrri kynslóð. Er ég ritstjóri þeirrar ritrað- ar. Þarf að minnast kommúnismans? Nú kunna sumir að segja, að ekki þurfi lengur að deila um komm- únismann. Hann sé löngu dauður. En þótt vofa kommúnismans gangi vissu- lega ekki lengur ljósum logum um alla Norðurálfuna, er hún enn á kreiki hér uppi á Íslandi. Til eru þeir Íslendingar, sem vilja sem minnst vita af fórnarlömbum kommúnism- ans. Dæmi um þetta var, þegar spurðist snemma árs 2007, að verið væri að þýða stórmerkilega ævisögu Maós eftir rithöfundana Jung Chang og Jon Halliday. Þá brá tímarit Sögu- félagsins, Saga, við og birti langa, nei- kvæða og ósanngjarna umsögn um hið óútkomna rit. Eftir að ég hafði síðan 2009 þýtt Svartbók komm- únismans, spurði ég Sigrúnu Páls- dóttur, ritstjóra Sögu, hvort ég ætti ekki að senda henni bókina til um- sagnar. Nei, hún vildi það ekki, því að Saga birti ekki ritdóma um þýðingar! Var Svartbókin þó sögulegt uppgjör virtra fræðimanna við áhrifamikla stjórnmálastefnu, auk þess sem Saga hafði tveimur árum áður birt ritdóm um óútgefna þýðingu. Annað dæmi var, þegar ég skipulagði alþjóðlega ráðstefnu í Reykjavík haustið 2012 um fórnarlömb kommúnismans, og voru þau Stéphane Courtois prófess- or og Anna Funder rithöfundur með- al fyrirlesara. Þá furðaði Stefán Ólafsson prófessor sig á því í bloggi sínu, að ég væri að „halda ráðstefnur og teboð til að ræða glæpi sem kommarnir frömdu fyrir 70 til 100 ár- um“. Þegar Stefán skrifaði þetta, voru aðeins 23 ár frá hruni Berl- ínarmúrsins. Þá voru aðeins 50 ár frá því, að í Kína lauk hungursneyð af völdum kommúnista, sem kostaði lík- lega meira en 40 milljónir mannslífa. Þótt Sovét-Ísland, óskalandið, hafi ekki orðið að veruleika, eru drauga- bælin víðar en á Kúbu og í Norður- Kóreu. Eftir Hannes Hólm- stein Gissurarson » Tveir korn- ungir menn, Brynjólfur Bjarnason og Hendrik Ott- ósson, fengu styrk úr sjóðum Kremlverja til að sækja annað þing Alþjóðasam- bands komm- únista í Moskvu sumarið 1920. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði. AFP Berlínarmúrinn Aldarfjórðungur er frá falli múrsins. Bjarni Benediktsson Geir Hallgrímsson Valtýr Stefánsson Eyjólfur Konráð Jónsson Tómas Guðmundsson Aldarfjórðungur frá falli kommúnismans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.