Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Norska þjóðin býr sig núundir heimsmeist-araeinvígi þjóðhetj-unnar Magnúsar Carl-
sen við áskorandann Wisvanathan
Anand. Einvígið sem fram fer í
Sochi við Svartahaf var sett í gær
að viðstöddum Pútín Rússlands-
forseta og öðrum tignum gestum.
Sochi var ekki á óskalista heims-
meistarans og hann skrifaði undir
einvígisskilmálana með hangandi
hendi. Hann var í liði Kasparovs
fyrir forsetakjör FIDE í Tromsö á
dögunum og ósigurinn þar, stað-
arvalið nú og dagsetningin sem
upphaf einvígisins miðast við, 7.
nóvember – þann sama dag árið
1917 komust bolsévikar til valda í
Rússlandi – tákna Pútíns mekt.
Saga heimsmeistaraeinvígja í
Rússlandi á síðustu öld er full af
duldum táknum þar sem hvers-
dagslegir hlutir eins og kaffibrúsi
eða svört jakkaföt gátu haft djúp-
rætta merkingu. En það er ekki
búist við neinum uppákomum varð-
andi þetta einvígi þar sem annáluð
prúðmenni eigast við. Fyrsta skák-
in hefst í dag kl. 12 að íslenskum
tíma. Hægt er að fylgjast með
skákunum á fjölmörgum vef-
svæðum en reikna má með því að
beinar útsendingar norska sjón-
varpsins, NRK, verði vinsælar
meðal íslenskra skákáhugamanna.
Undanfarið hefur NRK verið með
beinar útsendingar frá þeim mót-
um þar sem Magnús hefur verið
meðal þátttakenda og það hefur
reynst vinsælt sjónvarpsefni í Nor-
egi. Þá má einnig benda á slóð
ICC, Chessbomb, chess24.com og
heimasíðu einvígisins:
sochi2014.fide.com/.
Þeir munu tefla 12 skákir, fyrst
tvær skákir, þá frídagur, aftur
tvær skákir, þá frídagur og svo koll
af kolli. Einvíginu lýkur í síðasta
lagi 28. nóvember nk. Nú er ár síð-
an einvígi þessara sömu aðila fór
fram í Chennai í Indlandi og lauk
með öruggum sigri Magnúsar,
6½:3½. Sigurinn staðfesti yfirburði
Norðmannsins yfir keppinautum og
flestir búast við því að hann nái að
verja titilinn sinn án mikilla erf-
iðleika. Þeir sem veðja á Anand að
þessu sinni geta gert það gott í
veðbönkum – ef Indverjinn vinnur
þar verður greitt út í hlutföllunum
1:6. Á þeim er meira en 20 ára ald-
ursmunur og líkamlegt úthald get-
ur skipt máli því skákir Magnúsar
verða oft langar og strangar og
tækni hans á því sviði þykir frá-
bær. Anand vann áskorunarréttinn
sl. vor og í því sambandi rifjast
upp tvö einvígi sem Botvinnik háði
eftir að hafa tapað heimsmeist-
aratitlinum og naut þar einvíg-
isskilmála sem hann hafði átt stór-
an þátt í að setja inn, hið fyrra við
Vasilí Smyslov árið 1958 sem hann
vann 12½:10½, hið síðara árið 1961
við Mikhael Tal og aftur vann
Botvinnik, 13:8. Smyslov og Tal
ríktu því í eitt ár og það sama gæti
hent Magnús Carlsen. Kring-
umstæðurnar eru aðrar og sál-
fræðistaðan líka. Garrí Kasparov
hefur gert þetta að umtalsefni og
telur að spurning sem brenni á
vörum Magnúsar gæti verið: af
hverju í fjáranum er ég aftur að
tefla við þennan mann? Hann telur
að það eina sem Magnús hafi fram
yfir Anand sé sú einfalda stað-
reynd að hann sé betri skákmaður.
Kasparov mætti til Chennai í fyrra
og virtist setja Anand úr jafnvægi
með stórkarlalegum yfirlýsingum í
samtölum við fréttamenn. Ekki er
von á honum til Sochi.
Vettvangur einvígisins í Sochi
minnir á grískt útileikhús, skák-
borð á miðju sviði og áhorf-
endasæti allt um kring. Magnús
lenti með fylgdarliði sínu Sochi sl.
miðvikudag en Anand kom nokkr-
um dögum fyrr.
Heimsmeistaraeinvígið hefst
í dag – Magnús ætti að vinna
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Mætast á ný Viswanathan Anand frá Indlandi og Magnus Carlsen frá Noregi tefla eina af skákum sínum í heims-
meistaraeinvíginu í Chennai á Indlandi fyrir ári. Einvígini lauk með öruggum sigri Norðmannsins, 6½:3½.
Náðu þér í aukin ökuréttindi
Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi
Öll kennslugöng innifalin
www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga
Næsta
námskeið
hefst
12. nov.
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku
Meirapróf
Þekking og reynsla
í fyrrirúmi
Í Morgunblaðinu 3.
nóvember var fjallað
stuttlega um tillögu
sem fram er komin á
Alþingi þess efnis að
klukkum á Íslandi
skuli seinkað um eina
klukkustund árið um
kring. Þetta er í þriðja
sinn sem slík tillaga er
borin fram, en áður
hafa komið fram á Al-
þingi tillögur sem ganga í öfuga
átt við þessa. Í umfjöllun Morg-
unblaðsins segir: „Í tillögunni er
einnig bent á að með núverandi
fyrirkomulagi fái Íslendingar
bjartari kvöld á sumrin, en fórn-
arkostnaðurinn sé að á veturna
styttist birtutíminn um rúmar sex
vikur“. Þarna fer eitthvað á milli
mála, því að enginn er svo skyni
skroppinn að hann haldi að stilling
klukkunnar hafi áhrif á lengd
birtutímans. Blaðamanninum er
hins vegar nokkur vorkunn því að
orðalagið í þingsályktunartillög-
unni er villandi. Þar segir um still-
ingu klukkunnar eins og hún er nú
(„sumartími“ allt árið):
„Sumartími gefur okkur bjartari
kvöld á sumrin, en fórnarkostn-
aðurinn er sá að á veturna styttist
birtutíminn á morgnana um rúmar
sex vikur, vegna þess að við færum
ekki klukkuna aftur yfir á vetr-
artíma.“
Í fljótu bragði mætti skilja þetta
svo, að björtum stundum á morgn-
ana fækki sem svarar sex vikum,
þ.e. um meira en þúsund stundir.
Þetta er fjarri lagi. Rétt tala er
um 300 stundir fyrir Reykjavík og
tæpar 290 fyrir Akureyri. Þarna er
um að ræða eina stund fyrir hvern
dag ársins þegar eitthvert myrkur
er á annað borð. Þessar birt-
ustundir færast að sjálfsögðu yfir
á síðdegið og auka birtuna þar.
Hins vegar má til sanns vegar
færa, að með því að seinka klukk-
unni myndi okkur finnast skamm-
degið styttast um sex vikur eða
svo (þrjár að hausti og þrjár að
vori) ef eingöngu er litið til þess
hvenær birtir að morgni. Til dæm-
is telst birting í Reykjavík 5. októ-
ber nærri klukkan sjö. Væri
klukkunni seinkað
myndi birta klukkan
sex þennan dag. Við
fengjum þá þriggja
vikna frest þar til birt-
ingin hefði færst til
klukkan sjö. En
skammdegi er ekki
bundið við morgnana.
Á kvöldin myndi
seinkun klukkunnar
hafa gagnstæð áhrif
og lengja skammdegið,
bæði haust og vor.
Valið stendur um það hvort við
viljum að fyrr birti á morgnana
eða dagsbirtan nái lengra síðdegis.
Hér verður ekki rætt um þings-
ályktunartillöguna að öðru leyti.
Ég hef áður fjallað um sams konar
tillögu í blaðagrein (í Mbl. 14.
febrúar). Þá grein, ásamt yfirliti
um sögu þessa máls, er að finna á
vefsíðu Almanaks Háskólans:
http://www.almanak.hi.is/
timreikn.html.
Klukkan og birtan
Eftir Þorstein
Sæmundsson
Þorsteinn Sæmundsson
» Á kvöldin myndi
seinkun klukkunnar
hafa gagnstæð áhrif og
lengja skammdegið,
bæði haust og vor.
Höfundur er stjörnufræðingur.
Siglingu minni um
lögstíg lífsins skilaði
mér til „Hins myrka
hjarta Evrópu“. Þar
bjó ég um skeið í
heimavist á meðal vís-
indamanna frá ýms-
um löndum.
Nótt eina vaknaði
ég nokkrum sinnum
við óp frá nágranna
mínum í næsta her-
bergi. Hæverskum,
smávöxnum, rúmlega miðaldra
karlmanni. Næstu nótt á eftir hrökk
ég upp aftur og ákvað að drepa á
dyr nágranna míns. Hann vaknaði
upp svitastorkinn og úfinn. Dofinn.
Ég bauðst til að hella upp á te fyrir
hann sem hann þáði. Kunn-
ingsskapur okkar dafnaði í gegnum
sameiginleg fræði. Eina vökunótt
ræddum við um orsakir vanlíðanar
hans. Hann tjáði mér að hann hefði
sótt, vestur í gegnum „járntjaldið“,
alþjóðlega fræðaráðstefnu er varð
tilefni til rannsókna og
skrifa hans um ágæti
fjölþjóðasamninga um
verslunarkaup. Fræði-
bókina þurfti hann svo
að leggja undir rit-
skoðunareftirlit Leyni-
lögreglu alræðisrík-
isins. Ritskoðun leiddi
af sér yfirheyrslur og
einangrun vikum sam-
an. Næstu ár þar á eft-
ir fylgdist leyni-
lögreglan með honum
– dag og nótt. Ég
hugsa oft til þessa forna fræðavin-
ar míns sem lifði af þar til frelsið
birtist í brotsárum Berlínarmúrs-
ins.
Óp Berlínarmúrsins
Eftir Halldór Eirík
S. Jónhildarson
Halldór Eiríkur S.
Jónhildarson
»Fræðibókina þurfti
hann svo að leggja und-
ir ritskoðunareftirlit leyni-
lögreglu alræðisríkisins.
Höfundur er sósíaldemókrati og
lögfræðingur.
mbl.is
alltaf - allstaðar