Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 31

Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 31
dreifingu smáskjálfta um alla sprungu 17. júní skjálftans tveimur vikum áður en hann brast á, eins og kom fram í næstsíðustu grein um að- draganda og forboða. Þetta og fleira kennir okkur að það dugir ekki að byggja á einstökum „forboðum“ án þess að skilja af hverju þeir stafa. Við þurfum á hverri stundu og út frá öllum tiltækum mælingum og vís- indalegri greiningu að fá sem ná- kvæmasta mynd af því hvaða skorpuferlar eru í gangi þarna niðri. Eins og sést í neðri hluta myndar 2 er mikill óstöðugleiki á svæðinu þar sem 21. júní skjálftinn var vænt- anlegur, en ekki mikil spenna. Það þurfti hnykk frá 17. júní skjálftanum til að hleypa skjálftaferlinu af stað þar og eftir þann hnykk liðu bara fjórir dagar þar til sjálfur skjálftinn brast á. Mikinn hluta grunnvinnunnar sem hér hefur verið fjallað um getur tölva unnið með augnablikshraða og kórrétt út frá gefnum forsendum. Það þarf hins vegar stöðugt atfylgi vísindamanna til að bregðast við breyttum forsendum og leggja loka- hönd á túlkun. Ég legg mesta áherslu á smá- skjálftamælingar til að undirbyggja jarðskjálftaspá, vegna þess hversu næmar þær eru og nákvæmar til að skynja þær örsmáu breytingar sem verða djúpt í skorpunni þar sem mis- gengishreyfing stórra jarðskjálfta byrjar. Þessar litlu breytingar á miklu dýpi mælast illa með yf- irborðsmælingum eins og GPS þeg- ar horft er til skamms tíma, en þegar til lengri tíma er litið skipta þær miklu máli til að skilja eðli brota- hreyfingarinnar. GPS mælingar til viðbótar við smáskjálftamælingar geta líka haft mikið gildi til að vara við stórskjálfta sem gæti fylgt í kjöl- far fyrsta skjálfta, því eftir fyrsta skjálfta verða hraðar breytingar á bjögun svæðis og þær því mæl- anlegar á stuttum tíma með GPS. Ég sagði frá því í fyrri greinum í þessum greinaflokki að á undan öll- um stórum skjálftum höfðu komið fram breytingar eða fyrirbæri, sem mælar skynjuðu eða dýr eða fólk. Vandinn var bara sá að menn vissu ekki fyrir fram hvað þetta boðaði. Slík fyrirbæri verða til efst í jarð- skorpunni, og það er mjög erfitt að skilja út frá þeim hvað er að gerast neðar. Með þeirri nálgun sem ég hef lýst er miklu meiri von til þess að við skiljum hvað þessi fyrirbæri boða. Þegar ég tala um gagnlega ná- kvæmni í tímaspá á ég við ná- kvæmni, sem getur gert viðbúnað okkar betri. Í spá okkar um síðari stóra skjálftann árið 2000 var tímaspáin ekki mjög nákvæm. Okk- ur fannst hún samt nægilega ná- kvæm til að hvetja aðila sem sinna almannavörnum til að fara strax að búa sig sérstaklega undir stóran jarðskjálfta nálægt Hestvatni. Hann varð svo þar sem við spáðum honum og áhrifum hans. Þetta kalla ég gagnlega spá þótt við á þessum tíma teldum hana það óörugga að ekki væri rétt að útvarpa viðvöruninni til almennings. Til þess væri hún á of veikum grunni. Höfundur er jarðskjálftafræðingur. Quake-Look Ragnar Slunga Shear stress median values for time period Jan 1 st 1992 - June 17th 2000 1500GMT Map of SIL area Quake-Look Ragnar Slunga The instability CFS, median values for the period Jan 1st 1992 - June 17 2000 1500GMT Larger circle means closer to instability (CFS=0) SIL area map 44 km x 24 km Unit 1 km Smallest circle 3.85 MPa, largest 5.63 MPa, linear scaling of the diameter SIL area map 44 km x 24 km Unit 1 km Smallest circle CFS= 6.83 MPa, largest CFS=-0.71 MPa, nonlinear scaling QUAKE-LOOK Ragnar Slunga, presented at EGU2007 Vienna QUAKE-LOOK Ragnar Slunga, presented at EGU2007 Vienna North June 17 June 21 East North East Há skerspenna fyrir 17. júní skjálftann Mynd 2 Spennuástand í brotabelti Suðurlands. Stórir hringir í efri hlutanum tjá að það er mjög há skerspenna í skorpunni nálægt upptökum 17. júní skjálftans í 8 ár áður en hann brast á og nálægt brotþoli bergsins. Stórir hringir í neðri hlut- anum segja hins vegar að á þessu sama tímabili var mikill óstöðugleiki í skorpunni þar sem 21. júní skjálftinn 2000 varð. Í reynd var þetta þannig að hin mikla spennuútlausn í 17. júní skjálftanum hnykkti 21. juní skjálftasprungunni af stað. UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Ertu að nýta alla næringu úr vítamíninu þínu? • Bætir ónæmiskerfið • Hressir, kætir og eykur orku • Bætir geðið og eykur virkni • Gott gegn streitu • Fyrir fólk á öllum aldri Epresat fljótandi fjölvítamín er framleitt fyrir þá sem eiga erfitt með að taka töflur og hylki eða nýta ekki nógu vel næringarefnin í því formi. Epresat vítamínin eru blönduð með jurtum sem örva meltinguna og sjá til þess að sýrustig magans haldist jafnt og upptaka næringarefnanna verði semmest. Nánari upplýsingar á www.heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum 66% skor í keppninni um Oddfellowskálina Önnur lota um Oddfellow-skálin var spiluð á mildu en brenns- isteinsdíoxíð-mettuðu mánudags- kvöldi. Tuttugu pör mættu til leiks og styrktu félagsauðinn. Það var stuð á Helga Gunnari Jónssyni og Hans Óskari Isebarn og enduðu þeir í 66% skori og tók heim verðlaun kvöldsins. Úrslit kvöldsins: Helgi G. Jónss. - Hans Óskar Isebarn 254 Þrándur Ólafss. - Gauti K. Gíslason 242 Sigurbj. Samúelss. - Helgi Samúelss. 226 Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson 225 Efstu pörin í keppninni: Helgi G. Jónss. - Hans Óskar Isebarn 473 Páll Hjaltason - Hjalti Pálsson 440 Sigurður Sigurðss. -Arnar Óskarsson 438 Jóhannes Sverrisson - Óskar Karlss. 379 Stefán R. Jónsson - Andrés Andréss. 368 Alls hafa 20 pör spilað í mótinu og gilda fjögur af sex bestu skor- unum til skálarinnar. Næst verður spilað á fullveld- isdaginn, 1. desember. Bridsfélögin á Suðurnesjum Spilaður var tvímenningur sl. miðvikudag. Kristján Pálsson spil- aði við Kristbjörn Albertsson og Þorgeir Ver Halldórsson og sigr- uðu þeir með 60% skor. Gunn- laugur Sævarsson og Arnór Ragn- arsson urðu í öðru sæti með 59,2%. Spilað er í félagsheimilinu á Mánagrund á miðvikudögum kl. 19. Félag eldri borgara í Reykjavík Fimmtudaginn 6. nóvember var spilaður tvímenningur á 14 borð- um hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Trausti Friðfinnss. – Guðl. Bessason 428 Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 380 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 341 Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 326 A/V Björn E. Péturss. – Valdimar Ásmundss. 411 Bjarni Guðnason – Guðm. K. Steinbach 373 Gunnar Jónss. – Guðbjörn Axelsson 365 Tómas Sigurjónss. – Björn Svavarss. 344 Spilað er í Síðumúla 37 mánu- daga og fimmtudaga kl. 13. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Auglýst er að bæta aðgengi að há- lendinu, en er ekki Vonarskarð inni á hálendinu og hvernig má fara þangað nema gangandi? Ekki hjálpar það eldra fólki eða hreyfihömluðu að ekki sé leyft að aka um skarðið. Núna er lokað á einum stað og sagst ætla að opna á öðrum. Þetta er fjar- stæðukennt lýðskrum því miður. Þessi vegur er 190 km (í Mýri) eða 250 km (að Fosshóli) sem samkvæmt skýrslu þarf að leggja. Aðeins er um sumarveg að ræða, uppbyggðan með malbiki og brúm. Vegagerðin í dag ræður ekki við að skafa núverandi veg oftar en 2-3 á ári. Þetta eru framtíðarplön og nú þeg- ar er lögð vinna og fjármagn í þennan undirbúning, verður það ekki til þess að fyrr eða síðar verður af þessu? Verður ekki sagt síðar að rannsókn- arkostnaður sé það mikill að ekki sé rétt að hætta við, og af hagkvæmnis- ástæðum hafi verið opnað fyrir virkj- anir á miðju Íslandi? Eins og að leggja veg yfir Mývatn Í mínum huga er það þó vegurinn sem veldur svöðusárinu, sker í sund- ur stærstu ósnortnu víðlendu í Evr- ópu, þetta er eins og að leggja veg yf- ir Mývatn, fá tvö dauð vötn. Sá vegur gæti aukið aðgengi, fært fólk nær fal- legum stöðum, stytt ferðatíma og gef- ið færi á að skoða fuglana á vatninu miðju, en verða þeir þarna lengur? Í dag erum við í basli að hafa stjórn, geta verndað og hlíft svæðum við byggð, hvernig í ósköpunum getum við þá bætt 50.000 km2 við? Kyrrðin, víðernið og ósnortin nátt- úra verður á stangli og malbikið eyðir miðhálendinu og brýrnar ævintýrinu. Að fara yfir óbrúaðar ár eða læki er ævintýri sem hægt er að selja. Óbyggðirnar í heild sinni eru sölu- vara Íslands, ekki einstakir staðir inni á Sprengisandi. Ísland er æv- intýraland. Fjöldi gesta vegna ráð- stefnu Arctic Circle var tvisvar sinn- um meiri en tala ráðstefnugesta. Komu ekki 1,5 milljarðar í kassann? Sagt var að Ísland væri spennandi, eða er fólk að flýta sér hingað áður en malbikað verður, brúað, upplýst, bensínstöðvar, skiltafjöld og girð- ingar? Hvers vegna er Ísland spennandi, ef ekki fyrir ósnert land? Er ekki verið að búa í haginn fyrir virkjanir? Þegar vegurinn verður kominn verða þetta svo hagkvæmir kostir. Vegagerðin hyggst styrkja ferða- þjónustuna. Hvaðan koma þær frétt- ir? Jú, úr Samgönguáætlun frá 2009, frá Alþingi! En í hverju gæti sú styrking falist? Hugsanlega í nokkrum gististöðum á hvorum endanum, en með þessu er verið að sniðganga annaðhvort Aust- urland eða Vesturland, og hver er þá ávinningurinn? Við, börnin okkar og ferðamenn, höfum ekki öll sömu væntingar til ferðalags. Sumir vilja þægindi, þjón- ustu og þýða vegi, en aðrir vilja nátt- úru, ósnert land og upprunann. Það fyrra geta menn fengið út um alla Evrópu, en það síðara bara á Íslandi. Og hvort verður verðmætara með tímanum? Dæmi hver fyrir sig. Krafan um Umboðsmann Íslands verður æ brýnni. Höfundur er leiðsögumaður og ferðaþjónustubóndi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.