Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 33

Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 33
MESSUR 33á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 KRISTNIBOÐSDAGURINN 9. nóvember 2014 Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar er á morgun. Kristniboð er mikilvægt og hluti af köllun kirkjunnar. KRISTNIBOÐ ER • boðun og fræðsla • kærleiksþjónusta á sviði heilsuverndar og menntunar • þróunarsamvinna og neyðarhjálp VISSIR ÞÚ AÐ • rúmlega 40 íslenskir kristniboðar hafa starfað í Afríku og Asíu? • kristniboðarnir gera sér far um að læra tungumál og menn- ingu fólks? KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ HEFUR • tekið þátt í að byggja 85 grunn- og framhaldsskóla í Pókot- héraði í Keníu • byggt upp heilsugæslu víða í Eþíópíu og Keníu • stutt fjölda þróunarverkefna, s.s. á sviði landbúnaðar • boðað fagnaðarerindið og stofnað söfnuði, byggt kirkjur og kennt prestsefnum • alltaf lagt áherslu á að hjálpa konum og börnum til betra lífs Starf kristniboðsins er víða kynnt í guðsþjónustum dagsins. Tekið er við gjöfum til kristniboðsins í kirkjum landsins. Gjafareikningur 0117-26-002800. Kennitala 550269-4149. www.sik.is. Kristniboðsfélag karla í Reykjavík heldur árlega kaffisölu sína á kristniboðsdaginn sem hefst kl. 14 með helgistund og stendur til kl. 17 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60. í trú, von og kær lei ka KÆRLEIKSÞJÓNUSTUSVIÐKRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfsstræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Bænavikulestur lesinn. Barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum | Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjónusta laugardag kl. 12. Bein útsending frá Reykjavík- ursöfnuði. Barnastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs- vallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurannsókn laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðu- maður: Stefán Rafn Stefánsson. Barnastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum | Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Bænavikulestur lesinn. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi 67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guð- mundsson. Barna- og unglingastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laug- ardag kl. 11. Biblíufræðsla kl. 11.50. Ræðu- maður: Helgi Jónsson. Barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er sr. Sunna Dóra Möller. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Hildur Eir Bolladóttir. AKURINN | Samkoma kl. 14 í Núpalind 1, Kópavogi. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Regína Ósk söngkona syngur sálma af nýútkomnum diski sínum „Leiddu mína litlu hendi“, sem ætlaður er börnum og verðandi mæðrum. Prestur sr. Þór Haukson ásamt Ing- unni Björk Jónsdóttur djákna. Brúðuleikhús, Rebbi, Mýsla, sunnudagaskólasöngvar og mikil gleði. Kjartan Ognebene undirleikari. Kirkjukór- inn með kökusölu og Regína Ósk áritar disk sinn. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Linda Jóhannsdóttir djákni leiðir samveru sunnudaga- skólans. Séra María Ágústsdóttir héraðs- prestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kamm- erkór Áskirkju syngur, og Sólveig Óskarsdóttir, nemandi við Söngskólann í Reykjavík, syngur einsöng. Organisti Magnús Ragnarsson. Kaffi- sopi eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthías- ar V. Baldurssonar við undirleik húsbandsins sem skipa, auk Matthíasar, Friðrik Karlsson og Þorbergur Ólafsson. Leifur Sigurðsson kristni- boði prédikar. Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar og Bryndísar. Fjólublár dagur. Gestir komi í ein- hverju fjólubláu eða með eitthvað í þeim lit. Jól í skókassa halda áfram. Hressing og samfélag á eftir BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hafa Fjóla, Karen Ösp, Arngrímur Bragi og Guð- mundur Jens. BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma laugardag kl. 11. Ræðumaður er Guðrún Runólfsdóttir. Barnastarf meðan predikun stendur yfir. Ólav og Konni sjá um að leiða sönginn. Léttar veit- ingar og samfélag eftir samkomu. Sunnudag kl. 16 er námskeið í Opinberunarbókinni, síðustu bók Biblíunnar, um spádóma hennar. Fyrirlesari er dr. Steinþór Þórðarson. Allar nánari uppl. á bodunarkirkjan.is / Útvarp Boðun FM 105,5. Boðunarkirkjan er til húsa að Álfaskeiði 115, Hafnarfirði. Sími: 555-7676. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elí- dóttir. Þorgils Hlynur Þorbergsson prédikar. Kór Breiðholtskirkju syngur. Organisti er Örn Magn- ússon. Kaffi í safnaðarheimili á eftir. Tekið við framlögum til Kristniboðssambandsins að messu lokinni. BÚSTAÐAKIRKJA | Kristniboðsdagurinn og 21. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Barna- messa klukkan 11. Fræðsla, söngur og lofgjörð við undirleik Jónasar Þóris. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða sönginn við undirleik Jónasar Þóris. Einsöngvari er Steinunn Þorvaldsdóttir. Messuþjónar aðstoða og prestur er sr. María Ágústsdóttir. Molasopi og hressing eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Kristniboðsdagurinn. Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig S. Ein- arsdóttir. Félagar úr Samkór Kópavogs syngja. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu- dagsmessa. DÓMKIRKJAN | Séra Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Einar Gott- skálksson les upphafsbæn. Barnastarf á kirkju- loftinu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sig- urðar Jóns. Karlakór KFUM syngur undir stjórn Laufeyjar Geirlaugsdóttur. Sigurbjörn Þorkels- son og Elísa Schram lesa ritningarlestra. Daníel Steingrímsson, Áslaug Haraldsdóttir og Kristín Bjarnadóttir lesa almenna kirkjubæn. Messu- kaffi. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Davíð Baldursson, pró- fastur Austurlandsprófastsdæmis, setur sr. Ólöfu Margréti Snorradóttur og sr. Þorgeir Ara- son inn í embætti prests og sóknarprests í Eg- ilsstaðaprestakalli. Sr. Ólöf Margrét prédikar. Kórar Áskirkju í Fellum og Egilsstaðakirkju syngja saman undir stjórn Drífu Sigurðardóttur og Torvalds Gjerde. Fulltrúar sóknarnefnda í prestakallinu lesa ritningarlestra og bænir. Kaffi í safnaðarheimilinu eftir messu. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Prestur Sigurjón Árni Eyjólfsson. Umsjón með stundinni hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson. Litrófið syngur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur og Arnar Ýmis Arasonar. Kaffisopi eftir guðsþjónustuna. Boð- ið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá og brúðan Viktor er sjaldan fjarri góðu gamni. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn. Stjórnandi Örn Arn- arson. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Góð fræðsla, söngur, brúðuleikrit og létt hress- ing í lokin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Kvöldmessa kl. 20 í umsjón sr. Hjartar Magna Jóhannssonar. Gunnar Gunnarsson, organisti kirkjunnar, ásamt Sönghópi Fríkirkjunnar. Hljómlistarmenn kvöldsins eru Matthías Hemstock slagverks- leikari, Tómas R. Einarsson á kontrabassa og Þorleifur Gaukur Davíðsson á munnhörpu. GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa kl. 11. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Gler- árkirkju leiðir almennan söng. GRAFARVOGSKIRKJA | Kristniboðsdag- urinn. Guðsþjónusta kl. 11. Kristján Þór Hreins- son kristniboði flytur hugvekju. Séra Sigurður Grétar Helgason þjónar fyrir altari. Kór kirkj- unnar syngur. Organisti: Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Séra Arna Ýrr annast stundina ásamt Þóru Björg. Undirleikari: Stefán Birkisson. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Karl V. Matt- híasson. Barnakórstjórinn Ásbjörg Jónsdóttir sér um tónlistarflutninginn og barnakór Guðríð- arkirkju syngur. Meðhjálpari Jóhanna Hólm, kirkjuvörður Lovísa. Eyrbyggjar, hollvinafélag Grundarfjarðar, býður Grundfirðingum og fólki sem tengist á einhvern hátt staðnum upp á súpu í safnaðarheimilinu á aðeins 500 kr. eftir guðsþjónustu kl. 11. Ef einhverjir komast ekki kl 11 geta menn mætt um kl. 12.00 í súpu og kaffi. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Kristniboðsdagurinn – Afr- íkuþema. Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju syng- ur undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Anna Magnúsdóttir leikur á píanó. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guðmundur Sig- urðsson. Sunnudagskólinn tekur þátt í stund- inni. Kaffisopi, djús og kex á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar, ásamt fermingarbörnum. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Inga Harð- ardóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur Eiríkur Jóhannsson. Organisti Kári Allansson. Kór Háteigskirkju syngur. Einsöngv- ari Gyrðir Viktorsson. Umsjón með barnastarfi Gríma og Birkir, samskot dagsins renna til Kristniboðssambands Íslands. Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar og prédikar. Guðrún Kr. Þórsdóttir djákni leiðir bæn og Krist- inn I. Guðmundsson meðhjálpari les guð- spjallið. Kjartan Sigurjónsson leikur undir al- mennan söng á píanóið. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Kristniboðsdag- urinn hjá Þjóðkirkjunni. Við minnumst síðustu orða Jesú til lærisveina sinna, sem oft eru köll- uð skírnarskipunin eða kristniboðsskipunin. Sigfús Kristjánsson þjónar og predikar og Jón Ólafur Sigurðsson verður við orgelið og stjórnar félögum úr kór kirkjunnar, sem leiða safn- aðarsöng og svör. Sunnudagaskóli verður kl. 13 á neðri hæðinni í umsjón Kristínar og Mark- úsar. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Guðsþjón- usta á Kristniboðsdeginum kl. 17.00. Kór Hóla- neskirkju syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Fluttir verða sálmar úr nýju sálmabókinni. Séra Bryndís Valbjarn- ardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Barna- starf hefst kl. 11 með söng og sögum. Djús og föndur eftir stundina. HRAUNGERÐISKIRKJA í Flóa | Guðsþjón- usta kl. 13,30. Séra Þorvaldur Karl Helgason predikar og þjónar ásamt séra Axel Á. Njarðvík. Söngkór Villingaholts- og Hraungerðissókna leiða sönginn. Organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Fermingarbörn hvött til að koma. HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í Safn- aðarheimilinu í Sandgerði kl. 14. Ferming- arbörn og foreldrar þeirra sérstaklega boðuð. Stuttur fundur eftir messu. Kristniboðsdag- urinn. Kynning á kristniboði. Prestur sr. Sig- urður Grétar Sigurðsson. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Íslenska kirkjan í Svíþjóð. Gautaborg. Guðsþjónusta í Västra Frölundakirkju kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Þorsteins Sig- urðssonar. Orgelleik annast Lisa Fröberg. Nýir sálmar sungnir (úr sálmabókinni sálmar 2013). Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu. Sr. Ágúst Einarsson. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram predikar. Barnastarf á sama tíma. Kaffi eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Kl. 11 er guðsþjón- usta og barnastarf. Sérstaklega verður fjallað um kristniboð, en þessi dagur er kristniboðs- dagurinn. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Anna Hulda og Esther stýra barnastarfinu. Arnór Vil- bergsson er við hljóðfærið og leiðir hóp félaga úr Kór Keflavíkurkirkju sem syngja við raust. Messuþjónar lesa texta og taka þátt í stund- inni. Sjálfboðaliðar reiða fram krásir að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjuvinir syngja. Organisti: Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Um- sjón hefur Ástríður Guðmundsdóttir. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Skólakór Kársnesskóla syngur undir stjórn El- ínar Halldórsdóttur. Sunnudagaskólinn verður í kirkjunni. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þau Bjarmi Hreinsson, Ágústa Tryggva- dóttir og Oddur Ólafsson. KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í Laug- arneskirkju klukkan 14. Séra Arndís G. Bern- hardsdóttir Linn prédikar. Laufey Sigurðardóttir leikur á fiðlu. Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffi í safnaðarheimilinu. LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, sr. Guð- björg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar, Fé- lagar úr Kór Langholtskirkju synga undir stjórn Jóns Stefánssonar. Sunnudagaskólinn á sín- um stað. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sóknarprestur og messuþjónar þjóna, Ólöf I. Davíðsdóttir flytur guðspjallið. Kór Laugarneskirkju syngur við undirleik Kjartans Sigurjónssonar. Kaffi og samtal á eftir. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Séra Guðný Hallgríms- dóttir messar. Sunnudagaskólinn er í kirkjunni kl. 13. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11 í Lindakirkju og Boðaþingi. Kristniboð- salmanakið verður afhent í tilefni af kristni- boðsdegi. Messa kl. 20 í Lindakirkju. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Ein- arssonar. Egill Erlingsson og Hugrún Helgadótt- ir, sem nýverið fóru á slóðir kristniboða í Eþíóp- íu ásamt fleiri ungmennum, sýna myndir og segja frá ferðinni. Sr. Guðmundur Karl Brynj- arsson þjónar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þór- hallsson. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Söngur, sögur, brúður, leik- ir og gleði í barnastarfinu. Umsjón með sunnu- dagaskólanum hafa Sigurvin, Katrín, Ari og Oddur. Í lok messu verður tekið við framlögum til Kristniboðsins. Samfélag og kaffisopi á Torg- inu. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Kl. 14 verður guðs- þjónusta þar sem látinna er minnst. Barna- starfið á sama tíma. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Ragnar K. Kristjánsson. Unnur Sara Eldjárn syngur fyrir okkur. Kór safnaðarins leiðir sönginn undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Maul eftir messu og eru allir velkomnir. Sjá nánar á www.ohadisofnudurinn.is REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Messa kl. 14, prestur sr. Gunnar Kristjánsson, organisti Páll Helgason. Framhald aðalsafnaðarfundar eftir messu. SALT kristið samfélag | Stutt samkoma kl. 14 á Kristniboðsdaginn, í upphafi kaffisölu kristniboðsfélags karla í Reykjavík. Ræðumað- ur Leifur Sigurðsson. SELFOSSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11 á kristniboðsdegi. Minnst látinna. Séra Þor- valdur Karl Helgason predikar og þjónar ásamt séra Axel Á. Njarðvík. Organisti er Jörg Sonder- mann. Hugrún Kristín Helgadóttir æskulýðs- fulltrúi sér um barnastarfið. Kaffisopi eftir messu og súpa gegn vægu gjaldi. Orgelstund kl. 17. Kyrrðarbæn á mánudögum kl. 17. Morg- unbænir kl. 10 þriðjudaga til föstudaga. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tómas Guðni Egg- ertsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hátíðarmessa kl. 14 í tilefni af 40 ára afmæli Seltjarnarnessóknar. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup prédikar. Sr. Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar fyrir altari, ásamt sr. Frank M. Halldórssyni og sr. Sigurði Grétari Helgasyni. Ari Bragi Kárason, bæjarlistarmaður Seltjarnarness, leikur á trompet. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Kammerkór Seltjarnarneskirkju syngur. Kaffi- veitingar eftir afmælismessuna. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Ester Ólafs- dóttir. ÚTSKÁLAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Ferm- ingarbörn og foreldrar þeirra sérstaklega boð- uð. Stuttur fundur eftir messu. Kristniboðsdag- urinn. Kynning á kristniboði. Almennur söngur. Prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt Kolbrúnu Sigmundsdóttur og Torfeyju Rós Jónsdóttur. Rannveig Káradóttir óp- erusöngkona flytur tvö lög við undirleika Jó- hann Baldvinssonar organista. Kórfélagar leiða almennan safnaðarsöng. Sunnudaga- skóli á sama tíma undir stjórn Heiðars Arnar Kristjánssonar. Kl. 13 er tekið á móti 6 ára börnum í Garðabæ og þeim færð gjöf frá Ljós- berasjóði sem er ný barnabiblía. Sjá garda- sokn.is VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl- skyldustund kl. 10.30. Latibær kemur í heim- sókn og tekur okkur í morgunleikfimi. Athugið breyttan messutíma. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prests- þjónustuna. Orð dagsins: Konungsmaðurinn. (Jóh. 4) Ljósmynd/Ragnar Gunnarsson Kirkjan í Tolkoghin í Pókot í Keníu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.