Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 ✝ Theodór SævarEggertsson fæddist á Siglufirði 18. janúar 1940. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsi Ak- ureyrar 27. október 2014. Foreldrar hans voru hjónin Eggert Páll Theodórsson lagerstjóri, f. 1. júní 1907, d. 9. mars 1984, og frú Elsa Sigurbjörg Þor- bergsdóttir, f. 29. maí 1914, d. 3. október 1994. Systkini hans voru Svanhildur Ólöf, f. 28. ágúst 1931, d. 21. mars 2009, Sigríður Þóra, f. 6. maí 1933, Kolbrún, f. 9. nóvember 1936, d. 10. júlí 2011, Kristín María, f. 10. maí 1945, Svava, f. 2. október 1947, og Guð- björg Sjöfn, f. 3. október 1949. Theodór (Dúddi) giftist árið 1981 Sólveigu Höllu Kjart- ansdóttur en þau slitu samvistum árið 2000. Halla er dóttir Sigrún- ar Þóru Ásgrímsdóttur og Kjart- ans Jónssonar Hallgrímssonar frá Tjörnum í Sléttuhlíð, Skaga- firði. Börn þeirra eru: 1) Sigrún inni í Suðurgötu 43. Fyrir ferm- ingu var hann eins og aðrir á þessum árum farinn að vinna í síldinni. Hann fór um göturnar og ræsti fólk út í vinnu. Eftir það var hann um tíma á milli- landaskipi. Hann vann á bílastöð Siglufjarðar með sinn eigin vörubíl og síðan á flutn- ingabílum í mörg ár. Hann var lengi á sjó, bæði á Jökli og Hug- borgu með Bergmundi Ög- mundssyni mági sínum, og síðan á Guðrúnu SI með Aðalsteini Bernhardssyni mági sínum. Einnig var hann og mágar hans Jens og Aðalsteinn með útgerð saman á Nausta SI. Hann vann svo á annað ár í Kísiliðjunni við Mývatn. Hann vann á lager hjá SR síldarverksmiðjum í mörg ár. Um tíma vann hann hjá Aðalbak- aríi og í Fiskbúð Siglufjarðar, einnig var hann um tíma hús- vörður í Kringlunni í Reykjavík. Dúddi var mjög mikill prakkari og grínisti. Dúddi var mjög vina- margur. Dúddi verður jarðsunginn í dag, 8. nóvember 2014, í Siglu- fjarðarkirkju, klukkan 14. Þóra, f. 20. júní 1977, maki Leiknir Sigurbjörnsson, fæddur 1. sept- ember 1972. Henn- ar börn eru Rakel Rósa, fædd 9. nóv- ember 1996, Sólveig Erla, fædd 1. mars 2000, og Friðbert Óskar, fæddur 6. júlí 2003. Faðir þeirra er Þorsteinn Erlingsson. 2) Páll Sævar, f. 24. maí 1981, og 3) Theodóra Sif, fædd 11. janúar 1991, maki Jónas Kristinn Guðbrandsson, fæddur 20. ágúst 1982. Þeirra dóttir er Indíana Sól, fædd 22. febrúar 2014. Fyrir átti Dúddi Eggert Pál, f. 12. mars 1964 með Guð- rúnu Guðmundsdóttur. Hans synir eru Björn Sævar, fæddur 4. júlí 1993, móðir Jóhanna Björns- dóttir, og Jóhann Magni, fæddur 11. desember 2003, móðir Laufey Logadóttir. Þegar Dúddi var um eins árs aldur fór hann að mestu leyti að sofa hjá föðurafa sínum, Theo- dóri, sem bjó alltaf á neðri hæð- Elsku pabbi. Þetta er allt svo óraunveru- legt, finnst eins og ég lifi í draumi og eigi bara eftir að vakna. En ég veit að svo er ekki. Þú varst besti vinur minn og ég elska þig alveg endalaust og ég veit eiginlega ekki hvernig lífið verður án þín hérna á Sigló, það verður lengi að venjast. Þetta skeði allt svo snöggt, eina stundina var ég að hlæja að bröndurunum þínum og þá næstu var ég komin upp á spítala með þig og ég gerði mér ekki strax grein fyrir því að þú værir svona mikið veikur. En ég vildi að ég hefði gert það því þá hefði ég sagt þér allt sem ég vildi segja þér á meðan þú varst með meðvitund. En ég veit að þér líður betur núna, því að þér leið ekki vel á spítalanum. Það var svo erfitt að sjá þig liggja svona veikan í sjúkrarúminu, alveg meðvitund- arlausan, tóman í augunum og enginn pabbi á bak við. Og vita til þess að það var ekkert sem ég gat gert fyrir þig annað en bara að vera hjá þér. Það er samt svo erfitt að venj- ast því að þú sért ekki hér, alltaf þegar ég er á leiðinni út er ég að fara hringja og athuga hvort þig vanti ekki eitthvað, alltaf þegar einhver er búin að segja mér eitt- hvað merkilegt er ég búin að taka upp símann og er að fara stimpla inn númerið þitt, en man þá að þú ert farinn. Þetta er svo sárt því að ég missti bæði besta vin minn og besta pabba í heimi sama daginn. Ég vildi óska þess að ég gæti heyrt röddina þína bara einu sinni enn, og bara fengið knús frá þér einu sinni enn. Ég er svo þakklát fyrir allt sem þú hefur gefið mér og ég mun aldrei gleyma því, ég er líka svo þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með þér. Ég er líka svo glöð yfir að þú hafir fengið að kynnast Indíönu áður en þú kvaddir. Hún mun þekkja afa sinn í gegnum okkur öll. Samt vildi ég óska að þú hefðir getað verið hjá okkur lengur, en það er bara eigingirni í mér. Því núna líður þér betur en þér hefur liðið í mörg ár og ég vil bara að þér líði vel, elsku pabbi. Það eru líka svo margir vinir þínir sem biðu eftir þér þarna uppi og tóku vel á móti þér, ég hlakka sjálf til að hitta þig þegar minn tími kemur. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði.) Þín Theodóra Sif. Elsku dásamlegi pabbi minn. Ég trúi því ekki að ég sé að skrifa minningargrein um þig, það er sárara en orð fá lýst, elskan mín. Ég veit ekki hvar ég á að byrja, en vil byrja á því að þakka þér fyrir að hafa verið pabbi minn og afi barnanna minna, því dásamlegri manni hef ég ekki kynnst. Ég ólst upp í endalausri ást frá þér og að fá pabbaknús var það besta í heimi. Að fá þann heiður að þekkja allar sögurnar þínar og, vá, það var svo gaman að hlusta þegar þú varst að segja frá hrekkjunum þínum. Betri vin var ekki að finna, elsku pabbi. Þegar ég var unglingur þá fannst mér þú ekkert svakalega spennandi, þú sóttir mig niður í bæ og lagðir mér lífsreglurnar, en í dag er ég þér þakklát, pabbi. Þegar ég fór að eignast mín börn þá varstu alltaf til staðar fyrir mig í öllu og að fá þig til mín í heimsókn var það besta sem við vissum. Afi að koma – og þá fóru allir á yfirsnúning, spennan varð svakaleg. Þú varst sá sem gaf börnunum mínum súkkulaði í fyrsta skipti og þegar ég skamm- aði þig þá sagðirðu við mig að þetta væri þitt hlutverk, að spilla barnabörnunum. Öll jólin og páskarnir sem við áttum saman eru minningar í dag. Börnin mín þekkja ekkert annað en páska hjá afa, þar sem þú faldir eggin og við tók margra klukkutíma leit og þú í hláturs- kasti. En í hvern hringi ég núna á hverjum degi, bæði til að létta á mér eða bara hlæja? Að missa besta vin sinn er hræðilegt. Pabbi, ég mun elska þig alltaf, nú slokknar ljósið sem skinið hefur svo skært og lýst upp líf svo margra. En minninguna munum ávallt – ég og þú – geyma í hjarta okkar. Ég kveð þig nú með sárum söknuði því þú gafst mér svo margt. Við höldum áfram en sporin eru þung. Það er svo tómlegt án þín. En er ég hugsa um allt það góða sem þú gafst mér þá fyllist ég af gleði. Góða ferð, elsku pabbi minn, minning þín mun lifa í hjarta mínu. Elska þig. Þín Sigrún Þóra. Elsku pabbi minn. Ég vissi ekki að að væri hægt að sakna einhvers jafn mikið og ég sakna þín. Ég er ennþá að bíða eftir því að þetta sé allt saman bara einn risastór hrekkur hjá þér og þú komir hlæjandi með prakkarag- lottið þitt og segist hafa náð mér, ég gæfi allt fyrir að það væri raunveruleikinn. Seinustu daga hef ég hugsað um lítið annað en þær góðu minn- ingar okkar. Bæði síðan ég var barn og þú að kenna mér hluti og þegar ég var að gera eitthvað af mér. Þú sagðir þá alltaf, þegar ég var að gera eitthvað af mér og einhver hringdi og var að væla yf- ir því, að hann Páll þinn „gerði ekki svona“ og lagðir á. En þú sagðir svo við mig að ég yrði að passa mig að láta ekki ná mér þegar ég væri að gera eitthvað svona. Það var strax á þeim tíma sem ég fattaði að þú varst ekki bara pabbi minn heldur varstu líka besti vinur minn. Seinustu ár hefur þú verið mikið veikur, elsku pabbi, líkam- inn var búinn en þú samt barðist svo hart, enda þrjóskari en allt. Menn þurfa jú að vera þrjóskir að halda með liði eins og Liverpool. Ég gleymi aldrei þegar við vorum að horfa á úrslitaleik Meistara- deildar og AC Milan var að vinna 3-0 í hálfleik og ég var að stríða þér og þú sagðir mér að fá mér ís og kæla mig niður, þínir menn myndu vinna. Það varð raunin og þá stríddir þú mér. Það verður aldrei aftur eins að horfa á fót- boltann án þín. En einhvers stað- ar endar leið okkar allra og þín er búin en þrátt fyrir það þá veit ég að þú ert kominn á stað þar sem þú ert orðinn 100% aftur og getur gert allt sem þú vilt. Ég elska þig, pabbi, og sakna þín stanslaust og hlakka til að hitta þig þegar það er minn tími til að fara en ég lifi með ljós þitt í hjarta mér alla mína daga. Takk fyrir að hafa verið besti pabbi í heiminum og langbesti vinurinn. Ég elska þig, pabbi minn. Pabbastrákurinn, Páll Ævar (Palli Dúdda). Theodór Sævar Eggertsson  Fleiri minningargreinar um Theodór Sævar Eggerts- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Davíð Ósvaldsson útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur Friðþjófsson útfararstjóri ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EIRÍKA KATLA DAGBJARTSDÓTTIR fyrrverandi veitingakona, Hjúkrunarheimilinu Sóltúni, lést þriðjudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 11.00. Magnús H. Valgeirsson, Jóhanna Stefánsdóttir Bryndís Valgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra ÁGÚSTA JÓHANNSDÓTTIR andaðist í Brákarhlíð í Borgarnesi mánudaginn 3. nóvember. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 15. nóvember kl. 14.00. Hanna Olgeirsdóttir, Ágúst Skarphéðinsson, Þorgerður Erla Jónsdóttir, Jóhann Skarphéðinsson, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, THEÓDÓR G. JÓHANNESSON (Dódó), áður frá Nýjabæ í Vestmannaeyjum, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 2. nóvember. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 12. nóvember kl. 13.00. Arnar Theódórsson, Sigríður Theódórsdóttir, Sigurður J. Ólafs, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HALLDÓR GUÐJÓN PÁLSSON frá Höfn, Eyrarbakka, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 15. nóvember kl. 11.00. Ingileif Guðjónsdóttir, Ólafur Leifsson, Margrét Guðjónsdóttir, Þór Ólafur Hammer, Siggeir Ingólfsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Elskuleg systir okkar, MARGRÉT ÞÓRHALLSDÓTTIR ljósmóðir, er látin. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 12. nóvember kl. 13.30. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Sigurður, Kristbjörg og Guðmunda Þórhallsbörn. ✝ Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS SÓLMUNDARDÓTTIR Borgarnesi, Akranesi, Gullsmára 8, Kópavogi, lést á Dvalarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík þriðjudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 15.00. Maríus Th. Arthúrsson, Sólmundur Þ. Maríusson, Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Guðrún Adda Maríusdóttir, Sigurjón Sigurðsson, Steinunn Þ. Maríusdóttir, Finnbogi Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín og besti vinur, móðir, tengdamóðir og amma, JÓNA JÓNMUNDSDÓTTIR, Fróðengi 9, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 1. nóvember. Að ósk hinnar látnu fer jarðarförin fram í kyrrþey. Baldur Garðarsson, Þór Kristjánsson, Hjálmar Kristjánsson, Halldóra Lára Svavarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSA HARALDSDÓTTIR frá Sandi í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis að Lindargötu 57, lést á Landakoti þriðjudaginn 4. nóvember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 13.00. Þráinn Sigtryggsson, Haraldur Þráinsson, Guðný Gunnarsdóttir, Kristjana Þráinsdóttir, Sigurbjörg Þráinsdóttir, Vignir Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR, Lönguhlíð 3, áður til heimilis á Hringbraut 54, er látin. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hilmar Guðlaugsson, Jóna G. Steinsdóttir Kristín Jóna Guðlaugsdóttir, Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, Heinz Dieter Ginsberg og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.