Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
✝ Sigríður GuðnýMatthíasdóttir
fæddist í Garðs-
horni í Arnardal 21.
júní 1929. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða á Ísafirði
30. október 2014.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Hall-
dóra Friðgerður
Katarínusdóttir, f. í
Fremri-húsum í
Arnardal 16. nóvember 1906, og
Matthías Berg Guðmundsson, f. í
Súðavík 6. nóvember 1900. Sig-
ríður var næstelst sex systkina
sem upp komust, hin eru Guð-
ríður Jóhanna, f. 12.2. 1928, d.
13.8. 2006, gift Jóhannesi Guðna
Jónssyni, þau eignuðust þrjú
börn, Guðmundur, f. 15.6. 1932,
kvæntur Fríðu Ólafsdóttur, þau
eignuðust fimm börn, Halldór
Katarínus, f. 22.9. 1933, d. 22.4.
2013, Matthías, f. 8.12. 1935,
kvæntur Jónínu Jensdóttur, þau
eignuðust fimm börn, og Rann-
veig, f. 24.2. 1941, d. 24.1. 2012.
Hún eignaðist einn son með
Stefáni Björnssyni,
Matthías Berg Stef-
ánsson, f. 19.1.
1953, kvæntur Ey-
rúnu Þóru Guð-
mundsdóttur og
eiga þau tvær dæt-
ur. a) Guðmunda
Björk sem er gift
Garðari Rafni Eyj-
ólfssyni og eiga þau
tvö börn: Þóru Dís
og Eyjólf Rafn, b)
Sigríður Guðný, sem er gift
Tryggva Ölveri Gunnarssyni og
eiga þau tvö börn, Matthías Má
og Söru Björt.
Sigríður gekk í barnaskóla í
Arnardal og í Skutulsfirði, sem
var farskóli og síðan í Gagn-
fræðaskólann á Ísafirði. Eftir
það hóf hún störf hjá Kaupfélagi
Ísfirðinga, fyrst í mjólkurbúðinni
og síðan á skrifstofu félagsins
þar sem hún starfaði nánast sam-
fleytt til starfsloka.
Útför Sigríðar verður gerð frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 8. nóv-
ember 2014, og hefst athöfnin kl.
14.
Elsku amma. Mikið sakna ég
þín en ég veit að þér líður vel þar
sem þú ert núna. Eflaust ertu
hrókur alls fagnaðar og gleði og
hlátur fylgja þér, sem ég á eftir
að sakna að heyra ekki aftur.
Margt er það og margt er það
sem minningarnar vekur,
og þær eru það eina
sem enginn frá mér tekur.
(Davíð Stefánsson)
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor,
því hún var mild og máttug
og minnti á – jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson)
Ástarkveðja,
Guðmunda.
Sigríður Guðný
Matthíasdóttir
✝ Magnús Jóns-son var fæddur
7. janúar 1918 í
Glasgow í Skot-
landi. Hann lést
þann 2. nóvember á
hjúkrunarheim-
ilinu Hulduhlíð á
Eskifirði.
Foreldrar hans
voru Guðni Jónsson
frá Sellátrum í
Helgustaðahreppi,
fæddur 7. október 1889, lést
25.janúar 1981, og Barbara All-
an Jónsson frá Glasgow í Skot-
landi, fædd 20. júlí 1890, lést 30.
október 1960. Hann átti eina
systur, Elísabet Guðnadóttur
fædda 24. október 1921, lést 4.
janúar 2004. Eiginmaður El-
ísabetar var Stefán Bjarnason,
fæddur 10. júlí 1920, lést 13.
apríl 1945, seinni maður hennar
var Þorsteinn Thengs, fæddur
12. febrúar 1909, lést 10. mars
2001.
Þegar Magnús var 11 ára
flutti fjölskyldan búferlum til Ís-
lands og sigldu þau
til landsins með
gufuskipinu Lag-
arfossi. Þau
byggðu Hvamm í
Helgustaðahreppi,
þar bjó hann með
foreldrum sínum
og eftir andlát móð-
ur fluttust þeir
feðgar inn á Eski-
fjörð, á Sólbakka,
til systur Magnúsar
og bjó hann þar allt til ársins
2004 þegar hann fór á hjúkr-
unarheimilið Hulduhlíð.
Mangi eins og hann var ætíð
kallaður var iðinn og reglulega
duglegur maður að eðlisfari.
Hann starfaði við margt á lífs-
leiðinni til dæmis var hann
bóndi að Hvammi, sinnti póst-
ferðum um sveitina og var til
sjós en hann starfaði þó lengst
af í frystihúsinu á Eskifirði.
Útför Magnúsar fer fram frá
Eskifjarðarkirkju í dag, 8. nóv-
ember 2014, og hefst athöfnin
kl. 14.
Þær eru mjög minnisstæðar
gömlu góðu ferðirnar austur á
Eskifjörð, sérstaklega þegar
kíkt var í heimsókn á Sólbakka
til þín, Mangi frændi. Þú tókst
alltaf vel á móti okkur með bros
á vör og oftar en ekki var eitt-
hvert bakkelsi á boðstólum. Ég
man vel gjafirnar sem þú færðir
okkur börnunum sem var oft
sælgæti eða vasapeningur. Sú
heimsókn sem mér efst í huga er
þegar þú hjálpaðir okkur Andra
að búa til flöskuskeyti sem við
ætluðum að senda langt út í
heim. Þú tókst til allt er þurfti
og fylgdir okkur niður í fjöru
þar sem við hentum flöskunum í
sjóinn.
Mangi frændi, þú varst ein-
staklega fjörugur og jákvæður
maður en um leið traustur og
hjálpsamur. Þú varst spaugari
mikill, fórst oft með góðar
skrítlur og reyndir ávallt að
draga fram bros hjá þeim er
urðu á leið þinni. Þrátt fyrir að
vera fluttur á hjúkrunarheimilið
Hulduhlíð, kominn þá á níræð-
isaldurinn, varstu ennþá að
hjóla á þrekhjólinu þínu og fórst
oft út í göngutúra.
Ég vil kveðja þig, elsku
frændi, með kvæði eftir Pétur
Jónsson:
Stattu við um stund á Hólmahálsi
og horfðu yfir fjörð og byggð og sæ,
og lít þú á, hve fjallahringur frjálsi
í faðmi sínum lykur sérhvern bæ.
Þarna sérðu Skrúð á stakki háum
standa
sem stoltan tryggan útidyra vörð,
en Vöttur gamli lýsir milli landa
með leifturkyndli veg á Reyðarfjörð.
Þarna sérðu gnæfa Hólmatindinn háa.
Það harmatröll er vinur þinn og minn,
hann dregur hugann frá því ljóta og
lága
og leið oss vísar upp í himininn.
Á brúðarslæður Bleiksárfossar minna,
sú bæjarprýði af höndum Drottins
gjörð.
Ég bið svo fyrir boð til vina minna
með bestu hjartans kveðju á Eskifjörð
(Pétur Jónsson)
Þinn frændi,
Bragi Fannar.
Elsku Mangi frændi. Í dag
kveðjum við litríkan karakter
sem var okkur fjölskyldunni af-
ar kær og þú munt búa í hjört-
um okkar um ókomna tíð. Við
erum þakklát fyrir að hafa feng-
ið að hafa þig svona lengi hjá
okkur og erum ánægð með að þú
hafir náð að flytja á nýja hjúkr-
unarheimilið sem þú hlakkaðir
svo til. Þú hefur fært okkur
margar góðar minningar í gegn-
um árin og eru það forréttindi
að hafa fengið að hafa Manga
frænda í fjölskyldunni því annan
eins gleðigjafa er erfitt að finna.
Þau orð sem okkur finnst lýsa
þér best, kæri frændi, eru fyrst
og fremst skemmtilegur, list-
rænn, duglegur og léttur í
lundu.
Í gegnum tíðina hefur þú
skemmt okkur öllum með alls-
kyns glensi og gríni. Að koma í
kjallarann á Sólbakka var alltaf
gaman og var það eins og vera
kominn í ævintýri því þú hafðir
alltaf eitthvað skemmtilegt í
hverri skúffu í skrifborðinu þínu
og svo ekki sé minnst á gauks-
klukkuna. Minning um þig að
hífa þig upp á upphífingartæk-
inu þínu í kjallaranum kemur
manni til að brosa.
Þú varst mjög stoltur að eiga
nafna, hann Ragnar Magnús, og
er okkur minnisstætt þegar þú
komst í ferminguna hans þá 92
ára gamall í sérsniðnum jakka-
fötum fyrir tilefnið því, jú, ekki
mátti nú minna vera á leiðinni í
fermingu til nafna.
Pabbi átti margar góðar
stundir og minningar með þér
og það sem þú kenndir honum
býr hann að og má þar til dæmis
nefna að keyra bíl og svo margt
annað. Einnig eru honum minn-
isstæðar allar bílferðirnar á Fífí
með þér og langafa sem oft urðu
að dagsferðum um firðina og oft
á tíðum var slegið upp tjaldi til
að snæða og svo langafi gæti
hvílt sig. Pabbi minnist þess
með aðdáun hversu fyrirhyggju-
samur þú varst því þú passaðir
að allt væri til taks og á sínum
stað.
Þú varst góð fyrirmynd fyrir
okkur og fannst okkur stórkost-
legt hversu nýjungargjarn þú
varst, eflaust fáir níræðir ein-
staklingar á þrekhjóli og svo
mætti lengi telja.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
(Bubbi Morthens.)
Við kveðjum þig kæri frændi
með þökk fyrir allt.
Þorsteinn, Bára, Einar
Smári, Svava Kristín, Andri
Snær og Ragnar Magnús.
Magnús
Jónsson
Sigtúni 38, sími: 514 8000
erfidrykkjur@grand.is / grand.is
Hlýlegt og gott viðmót
Fjölbreyttar
veitingar í boði
Næg bílastæði
og gott aðgengi
erfidrykkjur
Grand
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
STOFNUÐ 1996
STOFNUÐ 1996
Elsku móðir okkar, amma og tengdamóðir,
HARPA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sóltúni 11,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
1. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 10. nóvember klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
og Karítas.
.
Guðbjörg Sævarsdóttir, Guðlaugur Maggi Einarsson,
Björn G. Straumland, Þóra Björk Árnadóttir,
Harpa, Hera, Einar Elías, Hilmir, Sævar, Þórey.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BENEDIKT SIGURÐSSON,
fv. kennari á Siglufirði,
lést 26. október sl. á dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 11. nóvember kl. 14.
.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
Ólöf Benediktsdóttir,
Valgerður Edda Benediktsdóttir,
Eva Benediktsdóttir, Baldur Sigurðsson,
Magnús Vagn Benediktsson, Elín Vigdís Ólafsdóttir,
Sigurður Benediktsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA SIGURJÓNSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Ísafold,
áður til heimilis að Grænatúni 20,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 4. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 17. nóvember kl. 15.00.
Pétur Ásbjörnsson, Lára Borg Ásmundsdóttir,
Guðlaug Ásbjörnsdóttir, Birgir Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN ARASON
Heimalind 1,
Kópavogi
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
4. nóvember. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 12. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Krabbameins-
félag Íslands.
Elín Krøyer,
Ari Kristinsson, Margrét María Pálsdóttir,
Ástríður Kristinsdóttir, Vigfús Ingvar Ingvarsson,
Kristrún R. Kristinsdóttir Sverre Rasch,
Sigríður Kristinsdóttir, Hallgrímur Helgi Helgason,
Elísa Kristinsdóttir, Vilhjálmur D. Sveinbjörnsson,
Róbert Guðlaugsson,
Díana Björnsdóttir,
Lára Björnsdóttir, Ólafur Þ. Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
SIGMAR HRÓBJARTSSON
múrarameistari,
frá Hamri í Hegranesi,
lést miðvikudaginn 5. nóvember
á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu
við Boðaþing í Kópavogi.
Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju
föstudaginn 14. nóvember kl. 13.00.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Bergdís Ósk Sigmarsdóttir,
Gunnlaugur Gísli Sigmarsson,
Sigurþór Heimir Sigmarsson,
Aðalsteinn Sigurgeirsson,
Sigríður Sigurgeirsdóttir,
Hansína Sigurgeirsdóttir,
Þorkatla Sigurgeirsdóttir,
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
og fjölskyldur.
Útfararþjónusta
Hafnarfjarðar
Sími: 565-9775
www.uth.is. uth@simnet.is.
Við sjáum um alla þætti útfararinnar.
Seljum kistur,krossa og duftker hvert
á land sem er.
Persónuleg þjónusta.
Stapahrauni 5 Hafnarfirði.