Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 37

Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 ✝ ÞorsteinnGeirsson fædd- ist á Reyðará í Lóni 8. apríl 1926. Hann lést á hjúkrunar- og dvalardeild HSSA 24. október 2014. Foreldrar Þor- steins voru Geir Sigurðsson, bóndi á Reyðará, f. 21.7. 1896, d. 10.2. 1974, og Margrét Þor- steinsdóttir, f. 18.9. 1896, d.13.4. 1987. Þorsteinn átti þrjú systk- in: Aðalheiði, f. 11.3. 1923, d. 24.2. 2014, Sigurð, f. 5.2. 1924, d. 18.8. 2004, og Baldur, f. 11.9. 1930. Þorsteinn kvæntist 10.7. 1965 Vigdísi Guðbrandsdóttur frá Heydalsá í Strandasýslu, f. 24.5. 1929, d. 21.9. 2005. Hún var dóttir hjónanna Guðbrandar Björnssonar, bónda á Heydalsá, f. 14.8. 1889, d. 2.7. 1946, og Ragnheiðar Sigureyjar Guð- mundsdóttur frá Ófeigsfirði, f. 24.8. 1894, d. 24.10. 1972. Synir Þorsteins og Vigdísar eru: 1) Geir, f. 24.4. 1965, eiginkona hans er Björk Pálsdóttir, f. 18.10. 1970. Börn þeirra eru: Þorsteinn, f. 27.1. 1996, og Vig- dís María, f. 19.5. 2002. Fyrir átti Geir soninn Stefán Mikael, f. Þorsteinn ólst upp á Reyðará í Lóni. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Laugaskóla árið 1949. Á Reyðará bjó hann félagsbúi frá 1950-1964. Það ár flutti Vig- dís til hans og þau tóku við bú- skapnum. Þau bjuggu þar óslit- ið til 1997 er þau fluttu á Höfn. Þorsteinn var barnakennari í Lóni og á Mýrum í tuttugu og tvo vetur. Hann var oddviti Bæj- arhrepps frá 1982-1998. Eftir hann hafa komið út bækurnar Gamla hugljúfa sveit í fjórum bindum. Þar fjallar hann um sveitina sína og fólkið sem þar bjó en ættfræði og varðveisla sagna voru honum hugleikin. Hann var ungmennafélags- maður og keppti í frjálsum íþróttum um árabil. Hann sat meðal annars í stjórn: Stétt- arsambands bænda, Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, Búnaðarsambands A- Skaftfellinga, sauðfjárræktarsambands A- Skaftfellinga, sauðfjárrækt- unarfélags Lónmanna, bún- aðarfélags Lónmanna, KASK sýslunefnd A-Skaft., menning- arsambands A-Skaftfellinga, í sóknarnefnd Stafafellskirkju, í hreppsnefnd Bæjarhrepps, í ungmennafélaginu Hvöt í Lóni og héraðssambandinu Úlfljóti. Hann var aðalhvatamaður að endurgerð Stafafellskirkju og Fundarhúsi Lónmanna. Útför Þorsteins verður gerð frá Hafnarkirkju, Hornafirði, í dag, 8. nóvember 2014, kl. 13. 19.9. 1990, barns- móðir Geirs er Bjarndís Mikaels- dóttir. 2) Gunnar Bragi, f. 13.8. 1966, kvæntist Herborgu Þuríðardóttur, f. 23.12. 1968. Þau skildu. Börn þeirra eru: Elín Sól, f. 20.1. 1993, Þórdís, f. 3.9. 1996, og Birta, f. 3.9. 1998. Fyrir átti Herborg soninn Gísla Halldór, f. 31.7. 1987. Vigdís átti fyrir son- inn Guðbrand Ragnar Jóhanns- son, f. 19.8. 1949, hann kvæntist Benediktu Theódors, f. 24.11. 1949. Þau skildu. Synir þeirra eru: Páll, f. 30.9. 1974, d. 26.5. 1976, og Páll, f. 13.4. 1979, eig- inkona hans er Guðný Þórsteins- dóttir. Synir þeirra eru; Sindri Pálsson, f. 11.8. 2008, og Styrmir Pálsson, f. 7.2. 2013. Fyrir átti Benedikta dótturina Guðbjörgu Jóhannesdóttur, f. 12.5. 1969, gifta Sigurði Páli Haukssyni, f. 12.7.1968. Þau eiga fimm börn. Sambýliskona Guðbrands var Þórdís Sigurðardóttir, f. 2.2. 1939, d. 24.12. 1994. Sambýlis- kona Guðbrands er Kristín Sig- ríður Kristjánsdóttir, f. 11.9. 1950. Elskulegur tengdafaðir minn hefur nú kvatt þetta jarðlíf. Eftir stöndum við sorgmædd yfir því að hafa hann ekki leng- ur hjá okkur, en jafnframt þakklát fyrir að hann fái hvíld- ina eftir fimm ára heilsuleysi. Hann var mikið náttúrubarn og vissi fátt betra en að ferðast um fjöll og firnindi í sveitinni sinni. Nú er hann líklega á hlaupum um móa og mela í óþekkta landinu ásamt Dísu sinni. Þorsteinn, eða Steini eins og hann var alltaf kallaður, fæddist á Reyðará í Lóni og bjó þar lengst af eða til ársins 1997 er hann og Vigdís, oftast kölluð Dísa, eiginkona hans, fluttu til Hafnar og Gunnar, sonur þeirra, og Herborg, fyrrverandi eiginkona hans, tóku við bú- skapnum. Fljótlega upp úr því var ákveðið að festa kaup á sumarhúsi sem skyldi standa við Karlsfjall í nágrenni við Reyðará. Þannig gátu þau notið þess að vera í sveitinni á efri árum og hjálpað til í búskapn- um. Við tókum þátt í þessu með þeim og það var afskaplega skemmtilegur tími og ósjaldan skroppið upp í Karlsbrekku. Steini hafði gaman af ættfræði og er mér minnisstætt úr fyrstu ferðum mínum að Reyð- ará þegar hann fór að spyrja mig út úr. Geir glotti bak við blað meðan ég rembdist við að telja upp mína nánustu og ég komst ekki mikið lengra en að ömmum og öfum. En Steini og Dísa tóku afar vel á móti mér, og síðar þegar foreldrar mínir fluttu hingað á Höfn tóku þau þeim opnum örmum og voru dugleg að bjóða þeim heim. Ég hef sjaldan kynnst eins orku- miklum manni og Steina. Hann vílaði ekki fyrir sér að ganga til kennslu á Mýrum á sínum yngri árum þegar hann var barnakennari þar, um 50 kíló- metra leið. Eitthvað sem fáum dytti í hug að gera í dag. Hon- um féll sjaldan verk úr hendi og allt þar til hann missti heils- una var hann mjög vinnusamur. Hann kom oft að hjálpa til í byggingarvinnu með Geir hvort sem það voru stór eða smá verk. Steini var sannarlega í essinu sínu þegar hann var með barnabörnunum sínum. Hann gaf þeim góðan tíma og lék sér við þau og um leið og þau höfðu visku til fór hann að kenna þeim að lesa og reikna. Gott fyrir unga og óreynda foreldra að fá aðstoð við það. Árið 2005 lést Vigdís úr krabbameini. Það var honum afar erfitt. En það sem hjálpaði honum var að hafa eitthvað fyrir stafni, fara í göngur, vera með fjölskyldunni, gæta barnabarna og kenna þeim, hjálpa til með hestana, lesa og skrifa. Elsku Steini, hafðu þökk fyrir allt og allt sem þú hefur kennt mér og mínum. Nú er gott að ylja sér við góðar minningar og halda þeim á lofti, og aldrei að vita nema maður búi til ættartré og rifji upp hringdansa ykkur til heiðurs. Björk Pálsdóttir. Elsku afi minn, mér þykir svo vænt um þig og ég sakna þín. Þú og afi Páll eruð örugg- lega að spjalla saman með ömmu Dísu. Ég man vel eftir því þegar við vorum uppi í Lóni og fórum í fjallgöngu, að veiða eða byggja kofa með þér. Þú varst líka duglegur að kenna mér að lesa, skrifa og reikna. Ég man eftir þegar ég kom í heimsókn til þín, þá fékk ég oft heitt kakó og stundum mjólk með berjasafa. Elsku afi minn, hvíldu í friði, ég sakna þín. Ég samdi þetta ljóð til þín: Elsku afi þú varst göngugarpur elsku hjartans maður ég sakna þín hvíldu í friði. Vigdís María Geirsdóttir. Þorsteinn Geirsson var eft- irminnilegur maður. Ákaflega orðvar, vandaður og hógvær en þó heill í allri framkomu. Hann var sannkallaður héraðshöfð- ingi, þó ekki í þeim skilningi að hann bærist mikið á. Miklu frekar menningarlegur leiðtogi sveitar sinnar og byggðarlags. Þorsteinn var einlægur bóndi og á margan hátt frum- kvöðull og forystumaður í sinni grein. Umfram allt var hann þó félagsmálamaður fram í fing- urgóma. Sannur samvinnumað- ur í besta skilningi þess orðs, stjórnarmaður í kaupfélaginu og búnaðarsambandinu, oddviti Bæjarhrepps og þátttakandi í margvíslegu litrófi mannlífs og félagsmálastarfs. Hann unni því bæði mannrækt og jarð- rækt. Ég þekkti til Þorsteins í barnæsku en kynntist honum kannski fyrst sem ungur mað- ur í Karlakórnum Jökli. Síðan lágu leiðir okkar saman í mörg- um verkefnum, safnamálum, húsavernd, sveitarstjórnarmál- um og svo varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fylgj- ast með honum við útgáfu bók- anna Gamla hugljúfa sveit en fjögur bindi þeirra litu dagsins ljós. Fáir ef nokkrir hafa samið jafneinlægan óð til heimasveit- ar sinnar og Þorsteinn í þess- um bókum. Hann reisti fólki og mannlífi í Lóni afar fagran og vel gerðan minnisvarða með því. Ekki er hægt að minnast bóndans á Reyðará án þess að nefna Vigdísi konu hans. Þau tóku manni opnum örmum hvar og hvenær sem var og fyrir það og fölskvalausa vin- áttu er hér með þakkað af ein- lægni. Gísli Sverrir Árnason og fjölskylda. Þorsteinn Geirsson  Fleiri minningargreinar um Þorstein Geirsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. önnumst við alla þætti þjónustunnar Þegar andlát ber að höndum Með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn Elín Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Ellert Ingason útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Ísleifur Jónsson útfararstjóri Jón G. Bjarnason útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Frímann Andrésson útfararþjónusta Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR MÖLLER, Kirkjusandi 3. . Kristján Ragnarsson, Margrét V. Kristjánsdóttir, Sæmundur Sæmundsson, Tómas Kristjánsson, Þóra Hrólfsdóttir, Hildur R. Kristjánsdóttir, Alexander K. Guðmundsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA ÓSKARSDÓTTIR, Háeyrarvöllum 28, Eyrarbakka, áður Melum í Melasveit, lést 21. október 2014. Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi. . Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og stuðning við fráfall ástkærrar eiginkonu minnar, móður, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVEINBJARGAR ZOPHONÍASDÓTTUR, Hraunbæ 103, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar LSH í Kópavogi og Karítas fyrir yndislega umhyggju og umönnun. . Sveinn Elíasson, Ingibjörg Soffía Sveinsdóttir, Baldur J. Baldursson, Elías Jón Sveinsson, Harpa Einarsdóttir, Baldur Sveinn Baldursson, Lára Helga Sveinsdóttir, Karl Baldvinsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sigurður Ólafsson, Guðrún Sigríks Sigurðardóttir, Karl Sigmar Karlsson, Margrét Sigurðardóttir, Gunnar Daníel Magnússon, Rut Sigurðardóttir, Jón Davíð Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra eiginmanns, föður, tengda- föður, afa og langafa, ÓLAFS JÓNS HJARTARSONAR vörubifreiðastjóra. Herborg S. Ólafsdóttir, Kristjana Ólafsdóttir, Sigurður G. Steinþórsson, Arnar E. Ólafsson, Birna Óladóttir, Kristín Ó. Ólafsdóttir, Málfríður Ó. Valentine, Ólafur Ólafsson, Anna Margrét Thoroddsen, afabörn og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, OTTÓS GÍSLASONAR. Aðstandendur þakka starfsfólki Seljahlíðar, Landspítala og Vífilsstaða fyrir einstaka umönnun og hlýju. Þórður Gísli Ottósson, Ingibjörg Ottósdóttir, Guðjón Hreiðar Árnason, Anna Karólína Ottósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og heiðruðu minningu okkar ástkæra GUNNARS BJARNASONAR húsasmíðameistara, Öldugötu 25, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á 11E, líknardeildar Landspítalans og Karitasar. Einnig þökkum við öllum vinunum í KFUM og KFUK og Gídeon fyrir alla aðstoðina. Guð blessi ykkur öll. Kristín Sverrisdóttir, Sverrir Gunnarsson, Guðrún Birna Brynjarsdóttir, Jakob Bjarni Sverrisson, Ólafur Bjarnason, Hallfríður Bjarnadóttir. ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.