Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 38

Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 ✝ Þórdís Rögn-valdsdóttir fæddist 5. maí 1920 að Dæli í Skíðadal. Hún lést 29. októ- ber 2014 að heimili sínu Dalbæ, Dalvík. Foreldrar henn- ar voru Rögnvald- ur Tímótheus Þórð- arson, f. 15. nóvember 1882, d. 26. mars 1967 og Ingibjörg Árnadóttir, f. 28. júní 1888, d. 23. ágúst 1982. Þórdís ólst upp í foreldrahúsum í Dæli í hópi 11 systkina en þau eru: Árni Marinó, f. 1909, d. 2004, Guðlaug Halldóra, f. 1910, d. 1980, Jón Kristinn, f. 1913, d. 1999, Gunnar Kristmann, f. 1915, Lilja, f. 1918, Rögnvaldur, f. 1923, d. 1988, Snorri Þór, f. 1926, d. 2008, Hörður, f. 1928, Ármann, f. 1931 og Auður, f. 1934. Þann 28. maí 1950 giftist Þórdís Sveini Vigfússyni, bónda á Þverá í Skíðadal, og áttu þau 3 Á yngri árum vann Þórdís bú- störf á heimili foreldra sinna í Dæli og einnig ráðskonustörf fyrir bræður sína. Þórdís gekk í Kvennaskólann að Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1941-1942 og árin þar á eftir vann hún nokkra vetur á Akureyri. Fyrst á Hótel KEA en síðar 2 vetur í mötu- neyti Menntaskólans á Akur- eyri. Einnig sá hún einn vetur um heimilisstörf fyrir kaup- mannshjón sem áttu verslunina Hamborg í Hafnarstræti. Þórdís og Sveinn hófu búskap saman á Þverá í Skíðadal vorið 1949 og bjuggu þar til ársins 1975 er þau fluttu til Dalvíkur. Búskapur þeirra á Þverá var farsæll og heimilið þekkt fyrir rausn og snyrtimennsku. Eftir að Sveinn og Þórdís fluttu til Dalvíkur áttu þau heimili að Skíðabraut 13 og vann Þórdís við þrif í Dalvíkurskóla í mörg ár. Þórdís tók þátt í ýmsum félagsstörfum, var félagi í ung- mennafélaginu Skíða og síðar í kvenfélaginu Tilraun. Einnig söng hún með kór í nokkur ár. Síðustu æviár sín bjó Þórdís á dvalarheimilinu Dalbæ, Dalvík. Útför Þórdísar fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, 8. nóv- ember 2014, kl. 13.30. börn. Áður átti Þórdís soninn Ingva með Eiríki Lárussyni frá Hnit- björgum í Jökuls- árhlíð. Ingvi er fæddur 20. nóv- ember 1946, kvænt- ur Sigrúnu Þor- steinsdóttur og eiga þau 5 börn og 8 barnabörn. Börn Þórdísar og Sveins eru: 1) Vignir, f. 1. október 1950, kvæntur Valdísi Gunn- laugdóttur og eiga þau 4 börn og 4 barnabörn. 2) Soffía Heið- björt, f. 25. janúar 1955, gift Stefáni Steinþórs Jakobssyni. Fyrir hjónaband eignaðist Stef- án 1 son en börn Soffíu og hans eru 3. Barnabörn þeirra eru 7. 3) Ragna Valborg, f. 8. apríl 1956, var gift Heiðari Theódóri Ólasyni sem lést 2001. Fyrir hjónaband eignaðist Ragna 1 son en börn Heiðars og hennar eru 2. Barnabörn hennar eru 6. Hinstu kveðjur sendum þér, elsku besta móðir. Þakklæti efst í hugum er. Þú flýgur á nýjar slóðir. Þakklæti fyrir allt þú gafst og gjörðir þínar allar, saman við höfum margt aðhafst, því lýkur nú…….? þá drottinn á þig kallar. Elsku mamma, sárt við mun- um sakna þín. Takk fyrir allt og allt. Biðjum að heilsa pabba. Guð geymi ykkur. Soffía og Stefán. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ragna. Í dag kveðjum við tengdamóð- ur mína, Þórdísi Rögnvaldsdótt- ur, fyrrum húsfreyju á Þverá í Skíðadal. Það var vorkvöldið 30. apríl 1971 sem Vignir sonur hennar kynnti mig fyrir væntanlegum tengdaforeldrum mínum, þegar þau komu suður að Bifröst til að vera viðstödd útskrift okkar dag- inn eftir. Hafi verið hjá mér kvíði þá hvarf hann fljótt vegna hins látlausa og vingjarnlega viðmóts sem mér mætti. Áður var ég búin að mynda mér ákveðna skoðun um þau, af ummælum Vignis sem einkenndust af væntumþykju og virðingu. Sá ég fljótt að þar hafði ekkert verið ofsagt. Í fyrsta skipti sem ég kom heim í Þverá sá ég strax hversu snyrtilegt og myndarlegt heim- ilið var, hvort sem var úti eða inni. Sérstaklega er mér minn- isstætt hversu fallega Þórdís lagði á borð og bar fram mynd- arlegar veitingar. Mikil samhjálp einkenndi líka fjölskylduna og minnist ég þess ekki að hafa heyrt frá þeim systkinum „ég nenni ekki“ þegar til verka var boðað. Hefur þar greinilega skil- að sér í uppeldið hvatning, ósér- hlífni og vinnusemi foreldranna. Þórdís var einstaklega vel verki farin, vann hratt og vel. Handfljótari konu hef ég vart kynnst. Kom það sér vel í berja- mó, enda ófáir pottarnir sem hún var búin að tína. Handavinnu- kona mikil var hún, ekki síður á efri árum þegar meiri tími gafst frá daglegum verkum. Mörg eru milliverkin sem hún var búin að hekla bæði fyrir skylda og óskylda. Þrátt fyrir minnkandi sjón síðari ár var ótrúlegt hvað hún gat haldið lengi áfram að vinna handavinnu. Þórdís var mér afskaplega kær og góð tengdamóðir. Raunsæ, æðrulaus, jákvæð, með sjálfstæðar en ákveðnar skoðanir ef svo bar undir. Tilbúin að leið- beina og hjálpa þegar eftir því var leitað. Fyrir nokkrum árum ræddum við hversu heppnar við hefðum verið að upplifa aldrei núning okkar á milli, né að fallið hafi orð sem betur væru ósögð. Við áttum líka margar ánægju- legar samverustundir og einnig „stelpnastundir“ saman. Efst í huga er þegar við Vignir og börn- in okkar ásamt móður minni og þeim Þórdísi og Sveini vorum öll saman í sumarleyfi í Hollandi og við Þórdís fengum „frí“ seinni- part dags. Hjóluðum til næsta bæjar, fórum í búðaráp , sátum á útiveitingastöðum og spáðum í mannlífið. Þetta síðdegi var okk- ur báðum ómetanlegt og ógleym- anlegt. Þórdís hafði mikla ánægju af utanlandsferðum og fór hún í nokkrar á meðan heilsa leyfði. Þórdís var ekki síðri amma og langamma. Þegar hún varð 90 ára talaði ég til hennar og fór yfir kynni okkar. Bað ég þá börnin okkar Vignis, þau Birni, Brynju, Hildi Soffíu og Þórdísi Huld um að lýsa ömmu sinni með einni setningu hvert um sig. Með þeirra leyfi læt þau orð fylgja hér með og hef ég engu þar við að bæta. „Ljúfasta manneskja í heimi.“ „Hlý, létt, kát, kleinur, laufabrauð með kúmeni og svo margt fleira yndislegt.“ „ Æi, hún amma er svo mikil dúlla.“ „Lítil, krúttleg, heklandi góð amma sem á alltaf kleinur.“ Ég kveð Þórdísi tengdamóður mína með þakklæti í huga og veit að nú er hún sátt, búin að fá hvíldina sem hún var farin að þrá. Valdís Gunnlaugsdóttir. Elsku Amma Dísa. Nú skilja okkar leiðir. Það er svo sárt að kveðja þig Amma mín, en óum- flýjanlegt. Þú ert nú farin á þann stað sem þig hefur dreymt um svo lengi. Það er viss huggun. Þegar ég lít um öxl og fer í gegn- um minningabankann þá rennur á mig eitt stórt bros. Þú varst svo mikil Guðsgjöf fyrir okkur öll. Sterk, ákveðin og dugleg kona, kómísk, með hjartað á réttum stað. Gjafmildi þín og umhyggja var einstök. Þú kenndir mér svo margt um lífið og tilveruna, sem ég fæ þér aldrei fullþakkað. Ég var frá blautu barnsbeini óttalegur heimalningur hjá ykkur Afa í Skíðabrautinni, og mér gekk frekar illa að flytja að „heiman“, því hjá ykkur leið mér ávallt best. Það tókst þó að lokum þegar ég kynntist Jonnu minni, og ykkar vinátta varð báðum mjög dýr- mæt. Handavinna, gönguferðir, spilakvöld, sundferðir, sherrytár, Dallasþættir og Dælisreiturinn, kjötbollur, kvöldkaffi og kleinu- gerð eru orð sem munu alltaf fá mig til að brosa er ég hugsa til þín. Eftir 40 ára ferðalag með þér, kveð ég þig með miklum söknuði í hjarta. Þú varst mér svo mikið meira en bara amma. Blessuð sé minning þín. Sjáumst aftur seinna. Jóhann og fjölskylda. Þórdís Rögnvaldsdóttir  Fleiri minningargreinar um ÞórdísiRögnvaldsdótt- ur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigurjón GeirPétursson frá Tóarseli á Breiðdal var fæddur 31. október 1934. Hann lést 29. október á sjúkrahúsinu á Eg- ilsstöðum. Geir, eins og hann var oftast kallaður, var fæddur að Dísa- staðaseli í Breiðdal. Hann flutti á fyrsta ári ásamt foreldrum sínum að Tóarseli. Geir var sonur hjónanna Péturs Arnbjarnar Guðmundssonar, f. 4.3. 1906, og Borghildar Guðjónsdóttur, f. 6.6. 1907. Systkini Geirs eru eldri bróðir, Halldór Óskar Pét- Guðný Ósk, f. 14.7. 2007, Anton Breki, f. 10.11. 2009. Tvö fóst- urbörn, tvíburarnir Viktoría Sif og Petrea Dögg, f. 31.1. 2002. Börn með fyrri sambýliskonu, Svanhildi Ingólfsdóttur, Hilmir Snær, f. 2.5. 2000, og Elvar Snær, f. 13.5. 2002. Geir bjó að Tóarseli til ársins 1999 en þá flutti hann á Egils- staði. Þar kynntist hann sam- býliskonu sinn, Elínu Tóm- asdóttur, f. 7.4. 31. Bjuggu þau saman þar til að hann missti heilsuna og varð að fara á hjúkrunarheimili. Geir verður jarðsunginn frá Heydalakirkju í Breiðdal í dag, 8. nóvember 2014, og hefst at- höfnin kl 14. ursson, f. 23.10. 1930, látinn 25. febrúar 2011, eft- irlifandi maki er Guðlaug Gunn- laugsdóttir, þau voru barnlaus, og systir, Þórunn Björg Pétursdóttir, f. 22.0. 1948, maki Sveinn Lárus Jóns- son. Þau eiga tvær dætur, Unni og Petru Sveinsdætur. Gengu þau hjónin Hafþóri Sigurjónsyni í foreldra stað. Barnabörnin eru níu talsins. Geir átti einn son, Þorvald Hafþór Sigurjónsson, f. 20.12. 1976. Maki Erna Sif Gunnarsdóttir. Börn þeirra eru Okkur systurnar langar að minnast Sigurjóns Geirs eða Geirs eins og við kölluðum hann með fáeinum orðum. Það var árið 2001 sem við vorum kynntar fyrir honum sem vini móður okkar El- ínar Tómasdóttur en hún var þá orðin ekkja eftir föður okkar. Mamma hafði lagt leið sína á Eg- ilsstaði að heimsækja Björn bróður. Olla frænka dró hana með sér í eldriborgarastarfið, sem er mjög öflugt á Egilsstöð- um. Þar kynntust þau hún og Geir. Geir var hæglátur maður og traustur og alltaf var stutt í húm- orinn. Hann sá auðveldlega það skoplega við lífið og þjóðfélags- umræðuna á hverjum tíma. Geir var vinur okkar allra í fjölskyld- unni og afi barnanna okkar. Hann var mikill félagi mömmu og erum við mjög þakklát fyrir þann tíma sem hann bjó hjá henni eftir að hún flutti austur. Það var mik- ið spilað á heimilinu og ekki hvað síst við börnin þegar þau komu í heimsókn. Eftir að Geir varð vegna heilsu sinnar að flytja á hjúkrunarheimili hélt mamma áfram að fara til hans og sátu þau á saman og réðu krossgátur og spiluðu. Við eigum Geir mikið að þakka og munum sakna þess að hitta hann þegar við komum austur til mömmu. Við sendum syni hans, systur og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljót. Svo vöknum við með sól að morgni (Bubbi Morthens.) Björg, Guðrún og Sigurborg. Sigurjón Geir Pétursson Harpa Heimisdóttir Útfararstjóri Hrafnhildur Scheving Útfararþjónusta Kirkjulundur 19 • 210 Garðabær sími 842 0204 • www.harpautfor.is Gisting Kaupmannahöfn – yndislegar íbúðir. Tvær fullbúnarnotalegar íbúðir í sama húsi með garði. Stutt á Strikið, Tivoli og verslanir, matsölustaðir og kaffihús handan við hornið. Allt að 8 manns geta verið í hverri íbúð. Uppl. á netfanginu: lavilla16@hotmail.com Hljóðfæri Klassískur gítar kr. 19.900. Full stærð, poki, auka- strengir og stillitæki. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27, s. 552 2125. www.gitarinn.is, gitarinn@gitarinn.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Ný og ónotuð rafskutla til sölu kr. 199.000. Hámarkshleðsla 118 kg. Upplýsingar í síma 867 7866. Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Húsviðhald Húsasmiður Lærður húsasmiður / smiðir getur bætt við sig verkefnum, utan sem innanhúss. Góð þjónusta og gott verð. Áratuga reynsla. Sími 863 6095, Ioan Calin. Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 Hreinsa þakrennur, hreinsa ryð af þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Nýkomnar úlpur Sími 588 8050. - vertu vinur Smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.