Morgunblaðið - 08.11.2014, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Finnbjörn Börkur Ólafsson er sérfræðingur á fjármálasviði íHáskólanum á Bifröst og sér um bókhald og launareikningaþar. Hann býr í Borgarnesi, er fæddur á Patreksfirði en ólst
að mestu leyti upp í Reykjavík. Hann fluttist árið 2002 á Bifröst
ásamt konu sinni þegar hann hóf nám í viðskiptafræði þar og klár-
aði síðar meistarapróf í alþjóðaviðskiptum við sama skóla. Eftir það
vann hann hjá Loftorku í Borgarnesi á tímabili og byrjaði svo að
vinna á Bifröst árið 2010. Konan hans, Erla Stefánsdóttir, er við-
skiptalögfræðingur hjá Arion banka í Borgarnesi og dætur þeirra
eru María Erla, f. 1994, Inga Dís, f. 1998, og Þórey Lilja, f. 2005.
En hvernig líkar honum vinnustaðurinn og að búa í Borgarnesi?
„Það er fínt, það er gott að ala upp krakka í Borgarnesi og svo er
þetta skemmtilegt svæði hér á Bifröst. Golfvöllurinn Glanni er
hérna nálægt, ég spilaði á honum nokkrum sinnum í sumar og það
er gaman að ganga upp á Grábrók og fara að fossinum Glanna og
Paradísarlaut. Ég á enn eftir að ganga upp á Hafnarfjall en það er
víst ómögulegt að búa í Borgarnesi nema hafa gengið upp á það. Svo
hef ég gaman af því að gutla á gítar, hef gert það af og til í gegnum
tíðina og svo er ég byrjaður að hlaupa.“
Finnbjörn heldur matarboð í dag í tilefni afmælisins fyrir for-
eldra sína, tengdaforeldra, systkini og maka þeirra, en þau búa öll á
höfuðborgarsvæðinu.
Finnbjörn B. Ólafsson er fertugur í dag
Í Selárdal í Arnarfirði Afmælisbarnið á ferðalagi á Vestfjörðum.
Á enn eftir að
ganga á Hafnarfjall
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akureyri Katrín Anna Hafsteinsdóttir
fæddist á Akureyri 8. nóvember 2013
kl. 10.25. Hún vó 4840 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Karen Sif
Stefánsdóttir og Hafsteinn Ingi
Pálsson.
Nýir borgarar
Hafnarfirði Rakel Lilja Ragnarsdóttir
fæddist á Landspítalanum 2. nóv-
ember 2013 kl. 2.38, vó 3.955 g og var
52 cm löng. Foreldrar hennar eru Að-
alheiður Júlírós Óskarsdóttir og
Ragnar Magnússon.
J
ófríður fæddist í Stykkis-
hólmi 8.11. 1974 og ólst
þar upp til 10 ára aldurs er
fjölskyldan flutti í Mos-
fellsbæinn: „Ég var fjóra
vetur í Varmárskóla í Mosfellsbæ en
flutti þá aftur í Stykkishólm og bjó
þar hjá eldri systur minni og hennar
fjölskyldu.
Ég lauk grunnskólanum í Stykkis-
hólmi, stundaði síðan nám við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti en var í
sumarvinnu í Stykkishólmi. Þá var
ég í tvö sumur á yngri árum hjá
móðurbræðrum mínum í Skáleyjum
á Breiðafirði við hefðbundin sveita-
störf í eyjunum.“
Jófríður útskrifaðist af fjarnáms-
deild Háskólabrúar Keilis vorið
2010, stundaði síðan nám í ferða-
málafræði við Háskólann á Hólum
og er með réttindi sem löggiltur
leigumiðlari frá árinu 2012.
Jófríður flutti í Reykjanesbæ vor-
ið 1993 þegar hún kynntist eigin-
manni sínum. Þar stundaði hún ýmis
störf, s.s. við Holtaskóla og við veit-
ingastaðinn Langbest. Hún var
markaðsfulltrúi og síðar auglýsinga-
stjóri á Víkurfréttum árin 2002-
2007, vann við uppbyggingu hjá
Keili frá stofnun, árið 2007, fyrst
sem umsjónarmaður fasteigna og
síðar sem sviðsstjóri húsnæðissviðs.
Hún hóf síðan störf við eignaum-
sýslu ISAVIA á Keflavíkurflugvelli
Jófríður Leifsdóttir umsjónarmaður í Leifsstöð – 40 ára
Í Flatey 2013 Jófríður og Einar með dætrunum, tengdasyni, Thelmu Lind og Bergi Snæ. Edda Kristný var ófædd.
Göngugarpur í Leifsstöð
Göngugarpar Jófríður og Einar í Skælingum með Uxatinda í baksýn.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
TILBOÐ
EX20
skrifstofustóll
ALMENNT VERÐ
95.026 kr.
TILBOÐSVERÐ
66.518 kr.
Hæðarstillanlegt bak
Armar hæða- og
dýptarstillanlegir
Dýptarstilling á setu
Hallastilling á baki,
fylgir hreyfingu notanda
Hæðarstilling setu
Mótstöðustilling fyrir
mismunandi þyngd notanda
Sjálfstæð „fljótandi“
hallastilling setu fylgir hreyfingu
notandans
Mjúk hjól
STOFNAÐ 1956
Íslensk
hönnun
& handverk
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is