Morgunblaðið - 08.11.2014, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú heldur þínu striki í ótilgreindum
viðskiptahugleiðingum og myndir alveg
þiggja fjárfesti í augnablikinu. Leyfðu öðrum
að njóta nærveru þinnar og léttrar lundar.
20. apríl - 20. maí
Naut Jafnvel þó að nú sé hentugur tími til
þess að halda í við sig í mat heilla sætindin
þig. Reyndu að fara ekki allt of langt yfir
strikið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú skiptir öllu máli að halda þétt
utan um budduna ef ekki á illa að fara. Að
vera skýr í kollinum er verðmætara en marg-
ur hyggur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þetta er góður dagur fyrir þig. Vertu
óhræddur við að kanna nýjar leiðir og taka
einhverja áhættu. Aðrir líta til þín um forustu
svo þú mátt hvergi bregðast.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er ekkert að því að kveðja fleiri til
þegar vandasöm verk eru á döfinni. Hinn vel-
viljaði Júpíter, pláneta heppni og þenslu, er
áberandi í sólarkorti þínu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur skilað góðu verki og átt alveg
skilið að njóta góðra stunda af því tilefni.
Loksins losnarðu undan byrði sem hefur lengi
hvílt á þér og framtíðin virðist bjartari fyrir
vikið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Erfiðleikar hafa svo sannarlega látið á
sér kræla upp á síðkastið. Ef einhver myndi
bara vilja borga þér fyrir frábæra sviðs-
framkomu þína og eldmóð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Náinn vinur eða starfsfélagi gæti
viljað hjálpa þér í dag. Settu mál þannig fram
að enginn þurfi að efast um þig. Fyrstu kynni
eru mikilvæg.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Veltu fyrir þér tilfinningum sem
búa að baki skilaboðunum sem þér berast. Ef
þér finnst aðstæður erfiðar skaltu reyna að
þrauka þar til það versta er gengið yfir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sólin og venus eru í merkinu þínu
og því ertu orkumikil/l og hefur mikið að-
dráttarafl. Náðu stjórn á krafti aðdráttarafls-
ins með fálæti.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú vilt ná árangri og dagurinn í
dag ætti að skila þér góðri niðurstöðu. Marg-
ar hendur vinna létt verk.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þér falli hlutirnir vel í geð er ekki
þar með sagt að aðrir séu jafn hrifnir. Við-
mælendur þínir vita ekki hvað þeir eru að tala
um og reyna að slá ryki í augu þér.
Guðmundur Arnfinnsson orti síðustu vísnagátu:
Í mínum skó er mjúk og þjál,
í manni reynist stundum hál,
málið sem við mælum hér,
á mörgum bæjum nafnið er.
Og ráðning hans er þessi:
Mjúk er tunga í mínum skó,
í Marðar tungu lymskan bjó,
tungumál við tölum hér,
Tunga á bæjum heiti er.
Harpa á Hjarðarfelli kom með
þessa lausn:
Tennisskórinn tungu ber.
Tunga er í munni þér.
Tungumálið tölum vér.
Tunga bæjarnafnið er.
Helgi R. Einarsson svarar:
Tungan, grösug, fersk og frjó
finnst í skjóli dala,
uppí munni, oní skó,
allir hana tala.
Og nú hefur nýr vísnasmiður,
Pétur F. Þórðarson, bæst í hópinn
með þeim orðum að hann hafi haft
ánægju af að fylgjast með Vísna-
horninu og finna svör við gátunum:
Tungu úr skónum taka kann
Tungan bragðið skynja má
Tungum tveimur mælir hann
Tunga heitir bærinn sá
Árni Blöndal sendi inn þessa
skemmtilegu vísu:
Okkar tunga er íslenskt mál
undur hlýja málið snjalla
eins og blær en styrk sem stál
stendur hún um vegferð alla.
Mér berast fleiri gátur en rúm er
fyrir og er vandi að velja. Mér þótti
þessi gáta Guðmundar Arnfinns-
sonar eiga vel við:
Bunga hrauns all breið að sjá,
býsna mikil hrúga,
krummahöll í klettagjá,
konur þarna búa.
Svör verða að berast ekki síðar
en á miðvikudagskvöld.
Gátunni fylgdi limra, „all abs-
úrd“ skrifar Guðmundur:
Hann Hákarla-Bergur í Hrísey
til helminga brandí og lýsi
sér skammtaði í skeið,
meðan skínandi leið
fullmáninn hátt yfir Hrísey.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af bungu hrauns
og Hákarla-Bergi
Í klípu
VIÐBRAGÐSFRÉTTIR. ALLT SEM ÞÚ
HÉLST ÞÚ HEFÐIR HEYRT.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„STOPPAÐU! MANNAVEIÐITÍMABILINU ER
LOKIÐ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera áttavillt án
hans.
ÉG VIL EXTRA-STÓRA FLATBÖKU
MEÐ ÞREFÖLDU ÁLEGGI AF ÖLLU.
JÁ... ÉG ER GAURINN
MEÐ KÖTTINN
AUMINGJAR
JÁ... ÉG SKAL SKILJA PENING-
INN EFTIR Í INNKEYRSLUNNI
HVERNIG
MYNDIRÐU LÝSA
EIGINMANNI
ÞÍNUM, HELGA?
HANN ER STERKUR, BLÍÐUR,
ELSKANDI, ÖTULL OG GÓÐ
FYRIRVINNA...
EN... ÞAÐ ER „EN-IГ
SEM NÆR
MÉR ALLTAF!
LÖGREGLUNA GRUNAR AÐ KVEIKT
HAFI VERIÐ Í SVEINI ÓSKARS.
SYNI OKKAR? NEI, SVEINI
ÓSKARS.
Hamingja í poka. Víkverji fór ogkeypti sér smá hamingju í poka
á fimmtudaginn. Miðnæturopnun í
Kringlunni var það, heillin mín, sem
dró hann nokkrum skrefum nær
hamingjunni. Því allt þetta glaðlega
fólk í auglýsingunum er hamingju-
samt – ekki satt.
Að sjálfsögðu lét Víkverji þetta
tækifæri ekki renna sér úr greipum.
Trúðar og tilboð – aðdráttarafl sem
enginn má láta fram hjá sér fara.
x x x
Víkverji kannaði að vísu ekki hvorttrúðarnir væru á tilboði og hefði
betur gert það. Hver hefði slegið
hendinni á móti því að fá eins og eitt
stykki trúð heim til sín eftir mið-
nætti því hann var bara hreinlega
svo ofboðslega ódýr að ekki var
hægt að sleppa því að kaupa hann.
x x x
Víkverji hefði dröslað honum innum dyrnar og slengt honum
framan í sambýlinginn. Hann hefði
örugglega verið hrifinn. Bara næst,
bara næst, væni minn.
Þetta segir Víkverji um leið og
hann skimar á heimasíðu versl-
unarmiðstöðvarinnar eftir því hve-
nær næstu tilboð verða og þá skal
trúðurinn handsamaður.
x x x
Þræll tískunnar heitir þetta víst ámannamáli. Kaupa, kaupa þetta
og hitt. Það vantar alltaf eitthvað
upp á til að ná fullkomnun. Lyfið við
þessu er að átta sig sem fyrst á því
að maðurinn er ófullkominn.
„Það er bara fjandi erfitt,“ rymur
í Víkverja. Óskiljanlegar vangavelt-
ur, lesandi góður, skilaboð móttekin.
x x x
Annars mælir Víkverji með að fólkkíki aðeins á bloggara sem skrif-
ar undir nafninu Trendsetterinn.
Hann nær utan um veruleikann með
hárbeittri ádeilu og gerir gys að
okkur hinum. Okkur sem myndum
allar athafnir okkar í bak og fyrir og
birtum á netinu. Ef það gerist ekki á
netinu þá gerðist það ekki. Þar eru
þessar myndir af okkur geymdar,
heiðarleg tilraun til fullkomnunar.
Henni eigum við aldrei eftir að ná
sem betur fer. víkverji@mbl.is
Víkverji
Annan grundvöll getur enginn lagt en
þann sem lagður er, sem er Jesús
Kristur. (Fyrra Korintubréf 3:11)
mbl.is