Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 08.11.2014, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014 Söfn • Setur • Sýningar Sunnudagur 9. nóvember kl. 14: Leiðsögn um Silfur Íslands í síðasta sinn 11.-16. nóvember: Bókamarkaður í Þjóðminjasafni Útsala á völdum bókum úr útgáfu Þjóðminjasafnsins, 10% afsláttur af öðrum bókum Þjóðminjasafns Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal Natríum sól á Veggnum Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni Spennandi ratleikir fyrir alla krakka Safnbúð og kaffihús Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga. Listasafn Reykjanesbæjar FERÐ – Finnur Arnar Arnarson 31. október – 21. desember Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Hönnun - Net á þurru landi Listasafn Erlings Jónssonar Opið virka daga 12-17, helgar 13-17. Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn Verið velkomin ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. JÓN ÓSKAR - NÝ VERK 7.11. 2014 - 8.2. 2015 LISTASAFN ÍSLANDS 1884-2014 - VALIN VERK ÚR SAFNEIGN 7.11. 2014 - 8.2. 2015 Sunnudagsleiðsögn kl. 14 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra. SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar SIGURÐUR GUÐJÓNSSON - Sýning á videólist hans á kaffistofu LÍ. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906, SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 30.11. 2014 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Lokað í des. og jan. www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17. VARA-LITIR Málverk eftir sjö íslenska samtímalistamenn Fjölskylduleiðangur Sunnudag 9. nóvember kl. 14 Listamannsspjall Fimmtudag 13. nóvember kl. 20 Helgi Þórsson Hádegistónleikar Þriðjudag 11. nóvember kl. 12 Kristján Jóhannsson tenór Verk úr safneign Elías B. Halldórsson Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Þrjár myndlistarsýningar verða opnaðar á Akureyri í dag. Af jörðu – De Terrae nefnist sýning Bryndísar Kondrup sem opnuð verður í Ket- ilhúsinu kl. 15. „Á sýningunni, sem fjallar um holdgervingu og hverf- ulleika mannsins, fléttar Bryndís saman verkum unnum í mismunandi miðla; málverkum, hlutum, víd- eóverkum og röntgenmyndum úr eigin líkama,“ segir í tilkynningu. Joris Rademaker opnar sýningu í Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri. „Til sýnis eru aðallega ný þrívíð verk þar sem Joris notast við lífræn efni og hluti sem finna má úti í náttúrunni. Verkin fjalla um samtal mannsins og umhverfisins, oft með tilvistarlegum spurningum.“ Loks sýnir Guðrún Pálína Guð- mundsdóttir í Populus Tremula í Listagilinu í dag og á morgun milli kl. 14 og 17. Á sýningunni sem ber yfirskriftina Nóvember getur að líta áður ósýndar vatnslitamyndir sem og þrjú lítil olíumálverk. „Í myndum sínum reynir Guðrún að láta litinn sem mest flæða óhindrað um mynd- flötinn og láta hann blanda þannig að mestu litatónana og laða fram til- finningaþrungið andrúmsloft og stemningu.“ Þrjár sýningar á Akureyri Af jörðu Verk Bryndísar Kondrup. AF AIRWAVES Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Airwaves-hátíðin hélt áfram áfimmtudagskvöldi, engusíðri en kvöldið áður. Það má reyndar deila um hvort hátíðin einskorðist við kvöldin, því miðborgin er undirlögð af Air- waves-tengdum viðburðum frá há- degi alla daga hátíðarinnar, eitt- hvað sem hver sem er getur kynnt sér, sér að kostnaðarlausu. Hryggjarstykki hátíðarinnar er þó auðvitað kvölddagskráin, sem er í auknum mæli að færast yfir í Hörpu, undirrituðum til takmark- aðrar ánægju. En maður verður víst að taka því sem býðst, þó svo að biðin í Hörpu minni oft meira á bið eftir flugi en tónleikum. „Við eigum 10 mínútur eftir. Við erum með klukku“ Hvað um það. Kvöldið hófst á Húrra þar sem RVK Soundsystem böðuðu tónleikagesti í grjóthörðu reggíi, eiginlega of hörðu framan af, því þokulúðrarnir á upptökum hlómsveitarinnar gerðu lítið annað en að pirra mann. Eftir því sem á leið fjölgaði á sviðinu, og náði sveitin hámarki þegar Amabadömur tóku yfir sviðið og fluttu ofursumarsmellinn sinn, „Hossa hossa“. Leiðin lá næst í Hörpu, þar sem restinni af kvöldinu var raunar var- ið. Þrátt fyrir að, eins og áður sagði, líða eins og á flugvelli og í allt of fínu umhverfi, þá hefur Harpa óneitanlega þann kost að þar getur maður verið innandyra allan tímann. Veðurguðirnir hafa reynd- ar verið óvenjugóðir við Airwaves- gesti það sem af er hátíðar, því hefðbundinn Airwaves-stormur hefur ekki látið á sér kræla. Kannski eru þeir með sam- viskubit eftir sumarið. Í kvöld má reyndar búast við frosti en það hlýt- ur að teljast minniháttar á Íslandi í nóvember. For a Minor Reflection tóku við keflinu klukkan níu í Silf- urbergi, þar sem þeir spiluðu það sem Guðfinnur Sveinsson, einn hljómsveitarmeðlima, lýsti sem þeirra bestu tónleikum hingað til. Tónlistin var þétt, rokkaðri en oft áður og ljósasjóið í bakgrunn- inum var frábært. Salurinn skellti upp úr þegar þeir bentu á að þeir ættu 10 mín- útur eftir af spilatíma, um það bil tvö lög. „Við erum nefnilega með klukku,“ sagði Guðfinnur og benti á klukku sem var í óða önn við að telja niður frá níu mínútum og fjörutíu og tveimur sekúndum. Ylja á öðru stigi Næst á dagskrá, að vísu í saln- um við hliðina á, var Ylja. Hljóm- sveitin var á sviði allt öðruvísi en maður á að venjast, miklu dekkri, án þess þó að vera beint drungaleg. Kannski meira fullorðinsleg. Nýja efnið frá þeim, sem kom opin- Gólfið dúaði á Airwaves La Femme Tónlistin og sviðsframkoman var stórskrýtin en frábær. » La Femme er aðmínum dómi það skemmtilegasta sem ég sá þetta kvöldið. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fyrirsögn mín þessa vikuna erstórkostleg tilraun til orða-leiks og vísa ég í sjálft Of- viðri Shakespears enda ber viðfang okkar sama eftirnafn og þetta síðari tíma þrekvirki stórskáldsins. Kate Tempest; rappari, tónlistarmaður, leikritaskáld og eitt umtalaðasta „ungskáld“ Breta í dag er reyndar með fleiri tengingar við William gamla. Fyrir utan að vera tungulip- ur með eindæmum, hæfileiki sem hún notar til að fjalla á ljóðrænan, stingandi og eftirminnilegan hátt um hið mannlega ástand (líkt og Shakespeare átti gott með) þá var hún ráðin af Konunglega Shake- speare félaginu til að flytja verk fyrir stafræna útrás þess og skilaði hún inn stuðandi verki þar sem hún jafnhattaði Kaupmanninn í Fen- eyjum. Áttu menningarrýnar hér á Bretlandseyjum ekki til orð yfir snilldina – frekar en annað sem hún hefur verið að dæla út. London Já, Tempest er sjóðandi heit, eða á ég kannski frekar að segja að það gusti um hana? Fleiri við- urkenningum hefur þá verið hlaðið á hana (t.a.m. hinum virtu Ted Hug- hes-verðlaunum sem hún fékk fyrir nýsköpun í ljóðlist) og hún var ein þeirra sem var tilnefnd til Mercury- verðlaunanna sem afhent voru í síð- ustu viku (og var það Edinborg- artríóið Young Fathers sem hreppti hnossið í þetta sinnið). Margir veðj- uðu á Tempest hins vegar en plata hennar, Everybody Down, hefur verið ein af þeim umtalaðri á árinu. Plötuna vann hún með Dan Carey (sem hefur m.a. unnið náið með Em- ilíönu Torrini) og þar fylgir hún þremur vinum í gegnum ömurðina og átökin sem stórborgin bíður gjarnan upp á. Tempest ólst upp í suðausturhluta London, ein af fimm systkinum, og listferilinn hóf hún með þátttöku í rapprimmum og opnum hljóðnema-kvöldum. Síðustu „Orð“-viðrið  Kate Tempest er orðlistamaður frekar en hljómlistarmaður  Kynngi hennar á því sviði hefur vakið verðskuldaða athygli Skáld Kate Tempest fer mikinn um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.