Morgunblaðið - 08.11.2014, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2014
Best er að gangast við veik-leika fyrir geimvísinda-myndum strax í upphafi,hvort sem það er 2001,
geimkviða Stanleys Kubricks, eða
bémyndin Græna slímið, sem enn
birtist endrum og sinnum á erlend-
um fornmyndarásum og var á sínum
tíma sýnd í Gamla bíói. Interstellar
er frekar á bekk með fyrri myndinni
en þeirri síðari – mun frekar. Mun-
urinn á Kubrick og Christopher Nol-
an, leikstjóra Interstellar, er þó sá
að á meðan sá fyrrnefndi leitaðist
stöðugt við að sprengja kvikmynda-
formið er Nolan fullkomlega sáttur
við að vinna innan þess. Hann kann
hins vegar að nýta það til hins ýtr-
asta.
Interstellar er margslungin
mynd. Hún fjallar um tortíming-
arhneigð mannsins og sjálfsbjarg-
arviðleitni, tryggð og fyrirgefningu,
tíma, rúm og afstæði, lífsgátuna, líf í
geimnum, líf í öðrum víddum, sam-
band mannsins við alheiminn og
samband kynslóðanna, feðra og
dætra.
Aðeins brot af þessu væri þokka-
legt veganesti í bíómynd og augljóst
að Nolan, sem skrifar handritið með
bróður sínum, Jonathan, ætlast ekki
lítið fyrir, þótt ekki hafi hann alltaf
erindi sem erfiði.
Interstellar hefst úti í sveit. Sam-
félagið er hrunið. Uppskerubrestur
hefur orðið á hverri tegundinni á eft-
ir annarri, en þó er enn hægt að
rækta maís. Ekki er farið ofan í
saumana á því hvað hefur gerst, en
augljóst að fáir hafa lifað þær ham-
farir af og maðurinn getur sjálfum
sér um kennt. Aðalsögupersónan er
fyrrverandi geimfari, sem er nú
bóndi, og býr ásamt börnum sínum
tveimur og afa þeirra á bóndabæ.
Samfélagið er ekki löglaust, börnin
ganga í skóla og skammt frá er frið-
sæll bær, en metnaður mannsins er
horfinn, markmið flestra þeirra, sem
eftir eru, að halda í horfinu. Engin
þörf er lengur á hámenntuðum vís-
indamönnum, það vantar bændur.
Geimfaranum í bústörfunum líkar
ekki þessi uppgjöf og í myndinni er
upphaf ljóðs Dylans Thomas ítrekað
haft eftir: „Hægt skaltu ekki ganga í
þá góðu nótt.“
Framtíðin er hins vegar dapurleg
og óvíst hversu lengi verður líf-
vænlegt fyrir manninn á jörðinni.
Vísindi eru greinilega ekki í náð-
inni – sennilega hafa þau átt þátt í
fallinu – en á laun hefur bandaríska
geimvísindastofnunin, NASA, hafið
áætlun um að tryggja viðgang
mannkyns með því að nema nýjar
plánetur. Faðirinn (Matthew Mc-
Conaughey) kemst á snoðir um
þetta og er vitaskuld gerður að flug-
stjóra geimfars, sem á að senda í
fjarlægt sólkerfi í leit að byggilegum
hnetti í gegnum ormagöng, sem með
dularfullum hætti hafa opnast stein-
snar frá Satúrnusi. Eru geimverur
komnar til bjargar manninum?
Eiginlega er ekki hægt að fara
nánar út í söguþráðinn án þess að
skemma fyrir. Ferðalagið reynist
hið ævintýralegasta og á jörðu niðri
eru vísindamenn í kapphlaupi við
tímann að reyna að leysa jöfnuna,
sem á að gera björgun mannkyns
mögulega.
McConaughey dregur að venju
seiminn líkt og hann sé í kúreka-
mynd, en leikur sitt hlutverk af
krafti og innlifun. Sömuleiðis sýnir
Jessica Chastain í hlutverki dóttur
hans hvers hún er megnug sem leik-
kona og Anne Hathaway á góða
spretti sem ferðafélagi McConaugh-
eys í geimnum. Myndin er stjörnum
prýdd og er sérstaklega gaman að
sjá hvað gömlu brýnin Michael
Caine og John Lithgow eru öflugir.
Myndin var að hluta tekin á Ís-
landi og er landslagið bæði framandi
og kuldalegt.
Mikið gengur á í Interstellar.
Myndin nýtur sín einstaklega vel á
stóru tjaldi með voldugu hátalara-
kerfi. Ferðalagið um óravíddir al-
heimsins er á köflum stórbrotið, sér-
staklega reiðin í gegnum orma-
göngin, þótt engin leið sé að óreyndu
að segja hvort hún sé trúverðug.
Nolan á hins vegar til að teygja lop-
ann þannig að myndin dettur niður
en nær sér þó alltaf aftur á strik.
Lífsbarátta í óravíddum alheims
Geimkviða Matthew McConaughey, Anne Hathaway og David Gyasi í hlutverkum sínum í Interstellar.
Sambíóin/Smárabíó
Interstellar bbbmn
Leikstjóri: Christopher Nolan. Leikarar:
Matthew McConaughey, Anne Hath-
away, Jessica Chastain, Michael Caine,
Matt Damon, John Lithgow, Mckenzie
Foy og Ellen Burstyn. Bandaríkin, 169
mín.
KARL
BLÖNDAL
KVIKMYNDIR
Sýning á ljósmyndaverkum eftir
Hrafnkel Sigurðsson myndlist-
armann verður opnuð í höfuð-
stöðvum Arion banka, Borgartúni
19, á laugardag klukkan 13.30.
Sýningin er opnuð með fyrirlestri
Gunnars J. Árnasonar listheimspek-
ings um verk Hrafnkels. Á sýning-
unni gefur að líta ljósmyndaverk
hans frá árinu 1996 til dagsins í dag,
allt frá spegluðu landslagi og svíf-
andi sorpi að tjöldum á jöklum og
fljótandi bóluplasti í djúpu, tæru
vatni. Þetta er í fyrsta sinn sem öll
þessi verk eru sýnd saman.
Hrafnkell (f. 1963) hefur unnið í
ýmsa miðla en er ekki síst kunnur
fyrir ljósmyndaverk sín, þar sem
meginviðfangsefnið er samband
manns og náttúru. Hann nam mynd-
list við Myndlista- og handíðaskóla
Íslands, Jan Van Eyck-akademíuna í
Maastricht og Goldsmiths í London.
Hrafnkell hefur sýnt verk sín víða
um heim og verk hans eru í eigu
virtra safna í Bandaríkjunum og
Evrópu. Árið 2007 hlaut hann ís-
lensku Sjónlistaverðlaunin.
Undanfarin ár hefur Arion banki
staðið fyrir listsýningum í höf-
uðstöðvum sínum og m.a. sýnt verk
Guðmundu Andrésdóttur, Helga
Þórssonar, RAX og Kees Visser.
Myndverk Hrafnkels
sýnd í Arion banka
Ljósmyndaverk „Speglað landslag
1“, verk eftir Hrafnkel frá 1996.
Daníel Björnsson opnar í dag kl. 17
einkasýningu í Kling & Bang-
galleríi og ber hún heitið Bismút.
Daníel teiknar upp sýningarrýmið
með lituðu ljósi og stillir þar upp
nýjum skúlptúrum úr brunni sínum,
segir í tilkynningu. Verkin snerti á
umbreytingum, enda dragi sýn-
ingin nafn sitt af frumefninu bismút
sem sé þungur, brothættur, hvít-
kristallaður málmur sem umbreyt-
ist við hitun í tilkomumikinn kristal
í öllum regnbogans litum. „Verk
Daníels draga fram hið stöðuga
ferli sem núningur tímans við efni,
anda og aðstæður er,“ segir í til-
kynningunni.
Sýningin stendur til 14. desem-
ber. Kling & Bang er opið fimmtu-
daga til sunnudaga kl. 14-18.
Umbreytingar á sýningunni Bismút
Litríkt Kynningarmynd fyrir Bismút.
BRÁÐSKEMMTILEG
MYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Ísl. tal
-H.S., MBL
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
16
16
L
L
L
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 5 - 8 - 10:30
JOHN WICK Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:10
GRAFIR OG BEIN Sýnd kl. 6
BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 3:55 - 8 - 10:10
KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 2 - 4
KASSATRÖLLIN 3D Sýnd kl. 1:50
SMÁHEIMAR 2D Sýnd kl. 1:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
MARGUR ER
KNÁR
ÞÓTT HANN SÉ
SMÁR...
Töff, naglhörð og
dúndurskemmtileg
hefndarmynd sem ætti
alls ekki að valda
hasarunnendum
vonbrigðum.
-T.V. - Bíóvefurinn.is
Hörku spennumynd
Keanu Reeves