Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 52

Morgunblaðið - 08.11.2014, Page 52
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 312. DAGUR ÁRSINS 2014 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Gáfu í skyn færni við munnmök 2. Át auga konunnar 3. Þoldi ekki fötlunina og drap barnið 4. Ókunnugur maður í baði  Hljómsveitin Muck skrifaði í byrjun vikunnar undir samning við banda- rísku plötuútgáfuna Prosthetic Re- cords sem mun vera þungavigtar- útgáfa í þungarokksgeiranum. Prosthetic Records mun sjá um út- gáfu á nýrri plötu hljómsveitarinnar Your Joyous Future og verður hún gefin út á heimsvísu í febrúar 2015. Muck semur við Prosthetic Records  Ásgrímur Sverr- isson, umsjónar- maður kvik- myndavefjarins Klapptrés, greinir frá því á vefnum að árið 2014 stefni í að verða eitt það besta hvað varðar að- sókn að íslenskum kvikmyndum frá því mælingar hófust árið 1996. Frá 1. janúar til 2. nóvember hafi tæplega 124.000 manns séð þær átta ís- lensku kvikmyndir sem sýndar hafi verið í kvikmyndahúsum. Góðar líkur séu á því að heildaraðsókn fari yfir 150.000 manns á árinu öllu. Aðsókn- in var mest árið 2000 en þá sáu 170.590 manns þær sex íslensku kvikmyndir sem sýndar voru í bíó. 124.000 miðar seldir  Töfraflautan eftir Mozart hefur verið gefin út í nýrri útsetningu á diski sem fylgir nýrri myndskreyttri barnabók um verkið og verður út- gáfunni fagnað í dag kl. 14 í Penn- anum Eymundsson, Laugavegi 77. Per- sónur óperunnar, þ. á m. Papagenó, munu kynna sig og taka lagið við pí- anóleik Anton- íu Hevesí. Töfraflauta barnanna FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Áfram allhvasst eða hvasst. Él fyrir norðan, snjókoma austast, en yfirleitt léttskýjað sunnantil. Dregur úr vindi þegar líður á daginn. Frost um mestallt land. Á sunnudag Austan og norðaustan 5-13 m/s, en hvassast við A- og S-ströndina. Él aust- antil á landinu, en á stöku stað með norður- og suðurströndinni, léttskýjað SV-lands. Frost 0 til 10 stig, kaldast á norðanverðu landinu. Á mánudag Austlæg átt, 3-10 m/s og víða dálítil él, en bjart suðvestantil á landinu. Í umfangsmikilli úttekt Morgun- blaðsins á Olísdeild karla í hand- knattleik kemur fram hvaða leik- menn og hvaða lið hafa skarað fram úr í fyrsta þriðjungi deildakeppn- innar. Úrvalslið fyrsta þriðjungs er valið og farið yfir gang mála í deild- inni til þessa. Þá má sjá lista yfir markahæstu menn sem birtur er í íþróttablaðinu í dag. »2-3 Hverjir hafa skarað fram úr í handboltanum? Aðalkeppnin er ekki úr sögunni Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálf- ari í knattspyrnu, segist skynja mikl- ar væntingar til landsliðsins eftir frábært gengi þess í undankeppn- inni en hann segir að leik- urinn við Tékka verði gríðarlega erfiður. „Leikstíl þeirra svipar til okkar og ég reikna með að þetta verði stál í stál. Eitt stig yrði betra en ekkert en við förum í þenn- an leik til að reyna að vinna og ef það tekst þá mynd- um við koma okk- ur í algjöra drauma- stöðu.“ »4 Skynjar miklar vænt- ingar til landsliðsins Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Þetta er einstaklega skemmti- legur og góður félagsskapur og gefandi að fá að taka þátt í þessu sjálfboðastarfi,“ segir Sigrún S. Hafstein, varaformaður Hringsins. Á morgun, sunnudag 9. nóvember, verða Hringskonur með sinn ár- lega jólabasar á Grand hóteli við Sigtún kl. 13. Jólabasar Hringsins markar fyrir marga upphaf jóla- undirbúningsins. Þar verða til sölu handunnir munir eftir Hringskonur, allt frá vettlingum og hosum til veglegra útsaumaðra jólatrésteppa og allt þar á milli. Einnig verður marg- rómuð kökusala þar sem Hrings- konur leggja fram dýrindistertur, smákökur og ýmiss konar annan bakstur. Allt auðvitað heimabakað. Jólakortin verða til sölu á sama verði og í fyrra. Allur ágóði rennur óskertur í Barnaspítalasjóð Hringsins. Um 350 konur eru í félaginu. Unnið er að undirbúningi jólabasarsins allt árið. Þó er tekið frí rétt yfir sum- arið, segir Sigrún glettin. Öll tæki keypt fyrir gjafafé „Það er óneitanlega sérstakt að nánast allur tækjabúnaður Barna- spítala Hringsins er keyptur fyrir gjafafé. Tækjabúnaðurinn þar er mjög góður miðað við aðrar deildir spítalans. Hringurinn nýtur trausts margra, ég held að ástæðan sé sú að það er engin yfirbygging í starfsemi okkar. Allt sem við söfnum rennur beint í þetta góða mál- efni,“ segir Sigrún og bendir á að traustið sjá- ist glögglega í stuðningi við félagið í verki. Stjórn Hringsins er í mjög góðu sambandi við starfsfólk Barnaspítalans. „Í nei- kvæðri umræðu um stöðu Land- spítalans er gott til þess að vita að það gengur vel að manna Barnaspítalann. Ungir læknar vilja koma heim og starfa þar. Það er vegna þess að aðstaðan er eins og best verður á kosið.“ Ljóst er að ef öflugs stuðnings Hringsins nyti ekki við væri Barnaspítalinn ekki búinn jafn- góðum tækjum og raun ber vitni. Í ár fagnaði Hringurinn 110 ára af- mæli sínu með því að gefa Barnaspítalanum milljón fyrir hvert ár, samtals 110 milljónir króna. Auk Barnaspítalans styður Hringurinn BUGL, Sjónarhól og ýmis önnur málefni sem stuðla að velferð barna á Íslandi. Markar upphaf jólahalds  Árlegur jólabas- ar Hringskvenna á sunnudag Undirbúningur Hringskvenna Jólabasarinn sem hefst á morgun hefur verið ár í undirbúningi. Hjá mörgum markar basarinn upphaf jólanna en Hringskonur hafa lagt sig allar fram við hvern grip sem boðinn er til sölu. Hringurinn er kvenfélag, stofnað árið 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðar- málum, sérstaklega í þágu barna. Á upphafsárum Hringsins víluðu Hrings- konur ekki fyrir sér að sýna leikrit í fjáröflunar- skyni. Aðalverkefni félagsins um áratugaskeið hefur verið uppbygging Barnaspítala Hrings- ins, þar með talin uppbygging Barna- og unglingageðdeildar Landspítala, BUGL. Mörg önnur verkefni sem tengjast veikum börnum hafa verið studd og styrkt. Barnaspítalasjóður Hringsins var stofnaður árið 1942. Í hann fer allt aflafé Hringsins. Hring- urinn rekur veitingastofu á Barnaspítala Hringsins. Léku í leikriti í fjáröflunarskyni HRINGURINN KVENFÉLAG STOFNAÐ ÁRIÐ 1904 Íslenska landsliðið í bad- minton tapaði fyrsta leik sínum í undanriðli EM gegn Króatíu í gærkvöld, 4:1, en riðillinn er leikinn í heild sinni hér á landi um helgina. Um er að ræða fyrstu lands- liðsverkefnin á heimavelli í langan tíma og þótt erfitt verði að komast áfram verður reynslan þeim mun meiri. »1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.