Morgunblaðið - 19.11.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014
Margir barnabókahöfundar hafa
auðgað líf ungra lestrarhesta með
verkum sínum. Rithöfundurinn Roald
Dahl tilheyrir vafalítið þeim hópi. Á
vefsíðunni www.roalddahl.com er að
finna áhugaverðar staðreyndir sem
tengjast lífi hans og verkum. Hann
fæddist 13. september árið 1916 í
Llandaff í Wales. Roald Dahl var
skírður í höfuðið á norska landkönn-
uðinum Roald Amundsen en foreldrar
Dahls voru norskir.
Margar bíómyndir hafa verið gerð-
ar eftir sögum Dahls og má þar til
dæmis nefna sögurnar af Matthildi,
Kalla og sælgætisgerðinni, Refnum
frábæra og söguna af nornunum.
Fjölmargar bækur eftir Dahl hafa
komið út á íslensku í þýðingu Böðv-
ars Guðmundssonar, Árna Árnasonar,
Hjörleifs Hjartarsonar og fleiri þýð-
enda. Allar sögur Dahls eru mynd-
skreyttar af Quentin Blake.
Eins og lesa má um á vefsíðunni
var það hugsjón Dahls að skrifa bæk-
ur fyrir börn. „Til að skrifa sögur fyrir
börn er gott skopskyn lykilatriði“
mun hann hafa sagt. Á síðunni er
fjöldi tilvitnana auk þess sem hægt
er að fræðast um hverja einustu per-
sónu úr sögum Dahls.
Vefsíðan www.roalddahl.com
Quentin Blake
Fjölbreytt Teikning úr bókinni Danni heimsmeistari eftir Roald Dahl.
Séð með augum Roalds Dahls
Styrkleiki vinsemdar hefur víð-
tækari áhrif en margur hyggur,
m.a. á farsæld og samfélag. Vin-
semd verður í brennidepli á heim-
spekikaffinu í Gerðubergi í kvöld
kl. 20. Gunnar Hersveinn rithöf-
undur ræðir um einsemd og vin-
semd og veltir upp ýmsum spurn-
ingum og Margrét Leifsdóttir
heilsumarkþjálfi fjallar um sterkt
samband milli vinsemdar og
heilsufars, hvernig vinsamleg
samskipti geta bætt eigin heilsu
og annarra. Ókeypis og öllum op-
ið.
Endilega …
… kynnist áhrifum vinsemdar
Margrét Hún ætlar að fjalla um áhrif vin-
semdar á heilsuna.
Nú þegar kuldaboli
sækir að okkur
Frónbúum er um að
gera að taka til við
að prjóna á alla þá
sem manni þykir
vænt um hverslags
skjól á kroppinn,
hvort sem það eru
vettlingar, húfur eða
treflar. Heimaprjón-
að skjól er jólagjöf
sem alltaf gleður og
fyrir þá sem langar
að vera snöggir að
prjóna er um að
gera að sækja í
smiðju Guðrúnar S.
Magnúsdóttur, en
hún hefur áratuga
reynslu af prjóna-
skap, bæði í starfi
sínu sem handa-
vinnukennari og í
tómstundum. Hún
hefur nú sent frá sér
bókina Treflaprjón, sem er
stútfull af uppskriftum að
treflum, krögum og vefj-
um fyrir börn og full-
orðna.
Einnig eru í bókinni
gagnlegar leiðbein-
ingar, góð ráð og ör-
stutt kennsla í því
prjóni og hekli sem
kemur fyrir í uppskriftunum.
Gangi ykkur vel!
Gaman er að prjóna á köldum kvöldum
Kátir treflar sem hlýja öllum
Snjókarlar
og -kerl-
ingar Þegar
krakkarnir
fara út að
gera snjókarl
er gott að hafa
hlýtt um háls-
inn.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ljóðið er svo mikið ólíkinda-tól og magnað fyrirbæri,það getur tekið á sigmynd einhvers sem allir
vilja heyra, og þannig hefur það allt-
af verið, hvort sem það eru ævaforn
ljóð Egils Skallagrímssonar eða ljóð
hins 19 ára Yahya Hassans, sam-
tímamanns okkar, sem var hér í Ís-
landsheimsókn um daginn. Ljóðið
hefur aldrei dáið drottni sínum þó að
það leggist stundum í dvala, það
sprettur alltaf fram með nýjum
sannindum og nýrri sýn. Þegar ég
var fyrst að gefa út ljóðabækur, fyrir
fimmtán árum, var mikið talað um
ljóðið í öndunarvélinni, að það væri
að líða undir lok, en nú heyrast þess-
ar raddir hvergi, enda hefur færst
mikið líf í ljóðasenuna hér á landi,
fjöldi ungs fólks hefur valið sér ljóð-
ið sem tjáningarform,“ segir rithöf-
undurinn Sigurbjörg Þrastardóttir
sem nýlega sendi frá sér ljóðabókina
Kátt skinn (og gloría).
Hvað sem er getur kveikt
Sigurbjörg segir að það liggi að
einhverju leyti næst henni að fást við
ljóð, en hún hefur fengist við hin
ýmsu form, skáldsögur, ljóð og leik-
rit. „Ljóðin halda á einhvern hátt í
mér lífinu. Að skrifa skáldsögur tek-
ur lengri tíma og krefst meiri þolin-
mæði, það reynir á að sjá ekki fyrir
endann á langri sögu. En það krefst
líka þolinmæði að setja saman ljóð,
það er bara öðruvísi þolinmæði.
Hvert ljóð er ekki endilega lengi að
verða til, en það tekur tíma að ganga
frá því, hvernig eigi að skipta á milli
lína, hvernig það eigi að enda og
fleira í þeim dúr. Þó að ég haldi
stundum að ég sé komin með efni í
ljóðabók, þá veit ég að fenginni
reynslu að það geta liðið margir
mánuðir áður en hún er raunveru-
lega tilbúin,“ segir Sigurbjörg.
„Flest ljóðin í nýju bókinni eru frá
síðustu tveimur til fjórum árum, en
þar er samt líka eitt fimmtán ára
gamalt ljóð.“
Sigurbjörg segir nánast hvað
sem er geta kveikt hugmynd að ljóði.
„Málverk, ljósmynd, atvik, minning,
ferðalag; bæði lítil atriði og stór. Lít-
ið atriði getur bólgnað út og orðið að
löngu ljóði, rétt eins og stór atburð-
ur getur pakkast saman í knappt
ljóð. Kraftbirtingarhljómur guð-
dómsins í Borgarleikhúsinu hjá
Ragnari Kjartanssyni kveikti til
dæmis eitt ljóð í þessari bók. Tíðar-
andinn leitar líka inn í ljóðin, ég leik
mér að því að snúa röngunni út á
neysluhyggjunni.“
Dreymir stundum ný orð
Glíman við orðin hugnast Sigur-
björgu vel, sem og nýyrðasmíð.
„Mér finnst það svo skemmtilegt. Ef
ég ramba á nýtt safaríkt orð þá opn-
ast heill heimur, það kveikir ótal
myndir og ég get gleymt mér í því.
Þó að orðaforði íslenskunnar sé 615
þúsund orð samkvæmt nýjustu töl-
um, þá er enn hægt að búa til orð og
verður alltaf.“ Sigurbjörgu dreymir
einstaka sinnum ný orð og eitt slíkt
Ljóðin halda á ein-
hvern hátt í mér lífinu
„Þessi ljóð fjalla m.a. um það hvernig fólki líður í eigin skinni, hvernig það er að
vera manneskja. Snerting er grunnþáttur í samlífi og samskiptum og þá snertir
fólk húð. Þau fjalla líka um allskonar innri og ytri veruleika. En líka um ýmislegt
fleira sem fellur undir orðið skinn, til dæmis handrit á kálfskinni,“ segir Sigur-
björg Þrastardóttir um nýju ljóðabókina sína Kátt skinn (og gloría).
Getty Images/iStockphoto
Feldur Orðið skinn getur merkt margt, m.a. feld á skepnu.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.