Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Hestamannafélagið Sprettur hefur stofnað áhugamannadeild Spretts. Um er að ræða keppnisröð fjögurra móta sem haldin eru annan hvern fimmtudag frá byrjun febrúar og fram í mars. Keppt er í jafn mörgum keppnisgreinum. Lið skipað fjórum knöpum keppist um að ná sem best- um árangri. Mótaröðin er að fyrir- mynd meistaradeildarinnar í hesta- íþróttum sem hefur verið haldin um árabil í Ingólfshöllinni í Ölfusinu. Áhugamannadeildin verður í nýju reiðhöll Spretts í Kópavogi. „Áhuginn er gífurlega mikill. Fyrst stefndum við að því að skrá í mesta lagi 10 lið en þau eru orðin 14 talsins og tvö bíða eftir að komast að,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri hestamanna- félagsins Spretts og skipuleggjandi áhugamannadeildarinnar. Hann segir mikinn áhuga hafa komið sér á óvart. „Þó það sé fullt af öðrum mót- um í boði þá er greinilega hópur af fólki sem langar að keppa sem liðs- heild og hafa gaman af því,“ segir Magnús og lofar mikilli skemmtun. Veitt verða verðlaun fyrir skemmti- legasta liðið og stuðningsmenn. Magnús segir áhugamenn eiga mjög góða hesta og búa yfir miklum metnaði til að bæta sig. „Þessir eiginleikar eiga eftir að blómstra í deildinni og margir eru þegar búnir að taka hestana sína inn og byrjaðir að undirbúa sig. Þetta hleypir lífi í hestamennskuna mun fyrr en ann- ars.“ Liðin eru mörg hver komin með þjálfara sem kemur úr röðum at- vinnumanna. Það er ljóst að allir eiga eftir að bæta í reynslubankann. Skilyrði fyrir þátttöku eru að vera áhugamaður, það er að segja að hafa ekki atvinnu af þjálfun eða reið- kennslu, þá má knapinn ekki heldur hafa keppt í meistaraflokki. Fjórir eru í liði en þrír keppa fyrir liðið á hverju móti. Keppt er í tölti, slaktaumatölti, fjórgangi og fimm- gangi. Fólki er frjálst að nefna liðin hvaða nafni sem er, til dæmis heitir eitt liðanna Poulsen sem vísar væntanlega til styrktaraðila. Á hverju móti verður eitt fyrirtæki með skemmtilega kynningu á starf- semi sinni. Að mótunum loknum verður hald- ið hressilega upp á árangurinn. Fyrsta mótið er 5. febrúar næst- komandi þar sem keppt er í fjór- gangi. Morgunblaðið/Ómar Mótsstjóri „Áhuginn er gífurlega mikill,“ segir Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Spretts og einn af skipuleggjendum deildarinnar. Mikil ásókn er í nýju deildina Áhugamannadeild Spretts » Fyrirmyndin er meistara- deild í hestaíþróttum. » Keppt er í fjórum greinum, fjórgangi, fimmgangi, slak- taumatölti og tölti. » Liðin eru 14 talsins, fjórir knapar en þrír keppa fyrir liðið í hverri grein. » Skemmtilegasta liðinu og stuðningsmönnum verða veitt verðlaun.  Halda keppnisröð fjögurra móta Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sín- um í gær að tillögu forsætisráð- herra að fela forsætisráðuneytinu að undirbúa stofnun stefnuráðs inn- an Stjórnarráðs Íslands. Stefnuráð- ið hefur það hlutverk að vera sam- hæfingar- og samráðsvettvangur innan stjórnsýslunnar til að efla og bæta getu hennar til stefnumótunar og áætlanagerðar. Hlutverk stefnu- ráðs verður að móta viðmið fyrir stefnumótun og áætlunargerð inn- an Stjórnarráðsins, að efla og sam- hæfa vinnubrögð ráðuneyta með fræðslu, ráðgjöf og tilmælum og að leiðbeina varðandi samspil við fjár- magn og lagafrumvörp. Samþætting opinberra áætlana er á meðal umfjöllunarefna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar og í frumvarpi til laga um opinber fjármál er að finna ríka áherslu á stefnumótun ráðuneyta. Þekking og reynsla innan ráðu- neyta af mótun langtímastefnu er á misjöfnu stigi. „Innan forsætisráðu- neytis hefur verið til skoðunar hvernig hægt sé að styðja við verk- efni af þessu tagi, þ.á m. með sam- hæfingu verkferla og bættri þekk- ingu starfsmanna. Í lok síðasta árs hafði forsætisráðuneytið forystu um að gefin var út Handbók um op- inbera stefnumótun og áætlana- gerð unnin af sérfræðingum allra ráðuneyta, þar sem sérstök áhersla var lögð á málefnasviðsstefnur,“ segir í tilkynningu. Stefnuráðið verður skipað full- trúum allra ráðuneyta. Stofnun stefnuráðs verður undirbúin  Á að móta viðmið fyrir stefnumótun Ertu þreytt á að vera þreytt? Getur verið að þig vanti járn? Magnaðar járn- og bætiefnablöndur úr lífrænt ræktuðum jurtum Nánari upplýsingar á www.heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum Þegar átta skákum er lokið íeinvígi Magnúsar Carlsenog Indverjans Wisvanat-hans Anands heldur Norð- maðurinn vinningsforskoti, 4 ½ : 3 ½ og aðeins fjórar skákir eftir. Í gær fékk Anand fékk loks tækifæri til að stýra hvítu mönnunum en komst ekkert áleiðis gegn Magnúsi sem mætti vel undirbúinn til leiks og náði jafntefli án mikilla erfiðleika. Á mánudaginn sátu þeir að tafli í sex og hálfa klukkustund og allan tím- ann reyndi Magnús að knýja fram sigur úr örlítið betri stöðu. Í enda- tafli varð Anand að gefa mann fyrir tvö peð en varðist fimlega og hélt jöfnu eftir 122 leiki. Þetta telst næst- lengsta skák heimsmeistaraeinvígja frá upphafi en Kortsnoj og Karpov tefldu þá lengstu; 5. einvígisskákin í Baguio á Filippseyjum sumarið 1978 endaði með því að Kortsnoj pattaði Karpov í 124. leik. Í sjöundu skák- inni í Sochi á mánudaginn tefldi An- and hið trausta Berlínar-afbrigði spænska leiksins. Eftir 76. leiki kom þessi staða upp: Magnús – Anand Magnús heldur enn í eitt peð en eftir 76. ... Hc3! sá hann fram á að ekki gengi að leika 77. Hxc3 Kxc3 78. Ke3 vegna 78. ... Kb4 79. Kd4 Kb5! sem heldur jöfnu. Hann lét því b3-peðið af hendi og lék 77. Rd3+ Kxb3 78. Ha1 og sættist á jafntefli 44 leikjum síðar. Magnús var gagnrýndur fyrir að tefla svo lengi áfram með kóng, hrók og riddara gegn kóngi og hrók en slíkar stöður eru taldar dautt jafn- tefli. Norski heimsmeistarinn upp- lýsti fyrir einvígið að undirbúningur hans hefði m.a. falist í athugun á ferli Bobbys Fischers og finna má dæmi úr skákum 11. heimsmeist- arans sem tefldi svipaða stöðu lengi vel gegn Florin Gheorghiu frá Rúm- eníu á skákmóti í Vinkovci í Júgó- slavíu árið 1968. Hafi það verið ætlan Magnúsar að „þreyta laxinn“ tókst það vel, tafl- mennska Anands í skákinni í gær var fremur þróttlaus og í fyrsta sinn í einvíginu mistókst honum að ná frumkvæðinu út úr byrjuninni með hvítu: 8. einvígisskák: Wisvanathan Anand – Magnús Carlsen Drottningarbragð 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5 8. a3 Rc6 9. Dc2 He8!? Leynivopn Magnúsar. Hann vissi að Anand var vel undirbúinn fyrir 9. ... Da5 sem er langoftast leikið en þá á hvítur ýmsa góða kosti, t.d. að hrókera langt. 10. Bg5 Be7 11. Hd1 Da5 12. Bd3 h6 13. Bh4 dxc4 14. Bxc4 a6 15. O-O b5 16. Ba2 Bb7 17. Bb1 Had8 18. Bxf6 Bxf6 19. Re4 Ekki er eftir neinu að slægjast með 19. Dh7+ Kf8 20. Re4, m.a. vegna 20. ... Hxd1 21. Hxd1 Hd8 o.s.frv. 19. ... Be7 20. Rc5 Bxc5 21. Dxc5 Í fljótu bragði virðist hvítur halda góðum færum en næsti leikur svarts jafnar taflið umsvifalaust. 21. ... b4! 22. Hc1 Eftir 22. Dxa5 Rxa5 23. axb4 Bxf3! 24. gxf3 Rc6! vinnur svartur peðið til baka. 22. ... bxa3 23. bxa3 Dxc5 24. Hxc5 Re7 25. Hfc1 Hc8 26. Bd3 Hed8 27. Hxc8 Hxc8 28. Hxc8 Rxc8 Nú blasir jafntefli við. 29. Rd2 Rb6 30. Rb3 Rd7 31. Ra5 Bc8 32. Kf1 Kf8 33. Ke1 Ke7 34. Kd2 Kd6 35. Kc3 Re5 36. Be2 Kc5 37. f4 Rc6 38. Rxc6 Kxc6 39. Kd4 f6 40. e4 Kd6 41. e5+. - og Anand bauð jafntefli um leið sem Magnús vitanlega þáði. Staðan: Magnús Carlsen 4 ½ : Wisvanathan Anand 3 ½. Níunda skák einvígisins er á dag- skrá á morgun. Magnús þokast nær titilvörn Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/fide.com Einvígi Carlsen og Anand mætast í níundu skák einvígisins á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.