Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía Walthers Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is Vilt þú vita hvers virði eignin þín er í dag? Pantaðu frítt söluverðmat án skuldbindinga! „...veittu mér framúrskarandi þjónustu í alla staði, mæli hiklaust með þeim!“ Katrín Skeifunni 17 HRINGDU NÚNA 820 8080                                    !" #!" # $   $ % $ !# #%%  %! $$ &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5  ! #! ##   %%   ! #$$"  #% $"" "! ! #!" #%"   %%  %$ #$ $  $ $"$ # % Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Slitastjórn gamla Landsbankans (LBI) og Landsbankinn hafa ákveðið að framlengja í enn eitt skiptið frest vegna gildisskilyrða í samningi um breytingar á afborgunarferli og skilmálum 230 milljarða skuldabréfa Landsbankans. Í þetta sinn er fresturinn settur til 31. desember 2014. LBI hefur farið fram á víðtækar undanþágur frá fjármagns- höftum sem skilyrði samningsins. Fram kemur í tilkynningu frá LBI að framlengingin sé ákveðin með hliðsjón af fyrri samskiptum við Seðlabankann. Þar hafi komið fram að afstaða til samningins og undanþágubeiðna LBI gæti legið fyrir eigi síðar en í árslok. LBI hefur framlengt frestinn nú til áramóta ● Velta í virðisaukaskattsskyldri starf- semi í júlí og ágúst 2014 nam rúmum 610 milljörðum króna sem er 4,2% aukning miðað við sama tímabil árið 2013. Á síðustu 12 mánuðum hefur veltan aukist mest í bygginga- starfsemi og mannvirkjagerð, eða sem nemur 16,1%. Einnig er mikil aukning í rekstri gististaða og veitingastaða og í flokknum námugröftur og vinnsla hrá- efna úr jörðu, samanborið við 12 mán- uði þar á undan. Velta í byggingariðnaði eykst á milli ára STUTTAR FRÉTTIR ... Hörður Ægisson hordur@mbl.is Hagnaður Arion banka eftir skatta á þriðja ársfjórðungi nam 5,2 millj- örðum króna og jókst um milljarð frá sama tímabili fyrir ári. Á fyrstu níu mánuðum ársins var hagnaður bankans því samtals 22,6 milljarðar króna samanborið við 10,1 milljarðs hagnað á sama tíma árið 2013. Bætt afkoma Arion banka á milli ára skýrist að stórum hluta af hagnaði af aflagðri starfsemi, sem nam tæplega 6,6 milljörðum. Er sá hagnaður nær eingöngu tilkominn vegna sölu á 18,8% hlut bankans í HB Granda í apríl síðastliðnum. Fram kemur í afkomutilkynningu frá bankanum að arðsemi eigin fjár hafi tvöfaldast frá fyrra ári og verið 19,9%. Að sama skapi varð umtals- verð aukning í hreinum þóknana- tekjum en þær námu 10,1 milljarði króna fyrstu níu mánuði ársins bor- ið saman við 8,3 milljarða á árinu 2013. Er sá vöxtur einkum vegna hærri þóknanatekna af greiðslu- kortum og af starfsemi fjárfestinga- bankasviðs. Hreinar vaxtatekjur stóðu hins vegar í stað á milli ára og voru 18,3 milljarðar. Samtals námu rekstrar- tekjur bankans ríflega 38 milljörð- um króna og jukust um liðlega 6,7 milljarða frá fyrra ári. Til viðbótar við auknar þóknanatekjur er hækk- unin tilkomin vegna 3,3 milljörðum hærri fjármunatekna og 1,6 millj- arða viðsnúningi á hreinum geng- ishagnaði. Stöðugleiki í grunnrekstri Í tilkynningu frá Arion banka er haft eftir Höskuldi Ólafssyni, bankastjóra, að afkoman sé góð. „Þetta er sterkt uppgjör og er arð- semi bankans á tímabilinu rétt um 20%. […] Við erum ánægð að sjá áframhaldandi stöðugleika í grunn- rekstri bankans og eru allar tekju- skapandi einingar bankans að skila ágætri afkomu. Ég er sérstaklega ánægður með þann árangur sem hefur náðst á sviði þóknanatekna sem vaxa um 22% á milli ára og færast nær okkar markmiðum. Horft fram á veginn eru þó áfram áskoranir á kostnaðarhliðinni.“ Höskuldur nefnir einnig að hlut- fall vandræðalána bankans sé enn að lækka en víða erlendis sé því hins vegar öfugt farið. Var hlutfall vændræðalána hjá bankanum 4,6% í lok þriðja fjórðungs samanborið við 8,2% á sama tíma fyrir ári. Rekstrarkostnaður bankans nam um 18,6 milljörðum og hækkaði lít- illega á milli ára. Kostnaðarhlutfall lækkar í 48,7% en var 57,6% á sama tíma 2013. Er lækkunin vegna hærri rekstrartekna bankans. Eigið fé Arion banka er 159,8 milljarðar en nam tæplega 145 milljörðum á sama tíma 2013. Eig- infjárhlutfall bankans er 24,6% og hefur hækkað lítillega á milli ára. Hagnaður jókst um 12,5 milljarða króna Morgunblaðið/Ómar Uppgjör Hagnaður Arion banka var 5,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi. Afkoma Arion banka » Hagnaður Arion banka nam 22,6 milljörðum á fyrstu níu mánuðum ársins og jókst um 12,5 milljarða á milli ára. » Aukinn hagnaður er einkum tilkominn vegna sölu á 18,8% hlut í HB Granda í apríl. » Rekstrartekjur námu 38,3 milljörðum og jukust um 6,7 milljarða. Þóknanatekjur bank- ans voru 10,1 milljarður og hækkuðu um 22% milli ára.  Hreinar þóknanatekjur Arion banka hækka um 22% Hagnaður af rekstri Sjóvár var 210 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi, en hann var 851 milljón á sama fjórð- ungi í fyrra. Hagnaður af vátrygg- ingastarfsemi nam 171 milljón króna en var 449 milljónir á þriðja ársfjórð- ungi í fyrra. Fjárfestingarstarfsemi skilaði 87 milljóna króna hagnaði, samanborið við 640 milljónir á sama tíma 2013. Sé litið til fyrstu níu mánaða árs- ins nam hagnaður Sjóvár 415 millj- ónum króna en hann var 1.693 millj- ónir á sama tímabili í fyrra. Hagnaður af vátryggingastarfsemi nam 962 milljónum króna en fjár- festingarstarfsemi skilaði 452 millj- óna króna tapi fyrstu níu mánuði ársins. Samsett hlutfall samstæðunnar var 101,3% á þriðja ársfjórðungi og 96,5% fyrstu níu mánuði ársins í heild. Tjónahlutfallið var 82,4% á þriðja ársfjórðungi og 70,2% frá jan- úar til september. Haft er eftir Hermanni Björns- syni, forstjóra, í tilkynningu til Kauphallar að vátryggingarekstur hafi gengið vel á fyrstu níu mánuðum ársins. Hann segir að útlit sé fyrir að samsett hlutfall og raunvöxtur ið- gjalda verði í samræmi við horfur sem settar voru fram í skráningar- lýsingu í vor. Hins vegar valdi af- koma fjárfestinga því að hagnaður sem reiknað var með í lýsingu muni ekki nást. „Á þriðja ársfjórðungi hækka ein- stök stærri tjón tjónahlutfallið en slík einstök tjón eru innan eðlilegra sveiflna á vátryggingamarkaði. Enn sem komið er merkjum við ekki aukna tjónatíðni almennt, þó reikna megi með slíkri þróun á næstu miss- erum,“ segir Hermann Morgunblaðið/Golli Kauphöll Hermann Björnsson segir vátryggingarekstur Sjóvár ganga vel. Afkoma fjárfest- inga skaðar Sjóvá  Hagnaðarmark- mið mun væntan- lega ekki nást Formaður slitastjórnar Glitnis telur 35 prósenta skattlagningu á allar greiðslur yfir landamæri, sem myndi meðal annars ná til mögulegra út- greiðslna til erlendra kröfuhafa slitabúa föllnu bankanna, vera full- komlega óraunhæfa hugmynd. Morgunblaðið greindi frá því í gær að gert væri ráð fyrir slíkri skattlagningu í fyrirliggjandi til- lögum ráðgjafa stjórnvalda um af- nám hafta. Í tilfelli slitabúanna er ljóst að miðað við slíkt útgöngugjald gætu þau að óbreyttu þurft að greiða vel yfir 500 milljarða í skatt til ríkisins. Enginn greinarmunur verður gerður á útgreiðslu á inn- lendum eða erlendum eignum enda séu allar greiðslur til erlendra kröfu- hafa háðar sömu takmörkunum vegna reglna um fjármagnshöft. Umræður um ýmsar tölur Í samtali við mbl.is í gær sagði Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, að hún hefði orðið vör við umræðu um ýmsar töl- ur án þess að málið hefði þó sér- staklega verið rætt við forsvars- menn slitabúanna. Hún hefði þó aldrei heyrt tölu í líkingu við 35% og segir slíka skattlagningu „full- komlega óraunhæfa,“ standi á annað borð vilji til þess að leysa málið. Vildi hún að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Morgunblaðið/Golli Slitabú Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Skatturinn „óraun- hæfur“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.