Morgunblaðið - 21.11.2014, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Orka náttúrunnar hefur nú opnað
hraðhleðslustöð við Fríkirkjuveg í
samstarfi við Reykjavíkurborg.
Stöðin er sú fyrsta í miðborginni en
sú níunda sem Orka náttúrunnar
setur upp á árinu. Orka náttúrunn-
ar er dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur.
Nýting stöðvanna hér á landi er
tvöfalt meiri en í Noregi, segir í til-
kynningu.
Það var Pétur Viðar Elínarson,
rekstrarfulltrúi hjá sorphirðu
Reykjavíkurborgar, sem fékk
fyrstu hleðsluna úr stöðinni. Hann
notar rafmagnsbíl við störf sín en
næstum níu af hverjum tíu bílum
sem Reykjavíkurborg rekur eru
knúnir umhverfisvænni orku, met-
angasi eða rafmagni.
Pétur Viðar og aðrir sem nota
rafmagnsbíl til að komast á milli
staða geta hlaðið bíla sína að 80% á
20-30 mínútum á hraðhleðslustöð.
Hraðhleðslustöð
við Fríkirkjuveginn
Sunnudaginn 23. nóvember efna
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna til málþings um
málefni flóttamanna og umsækj-
enda og alþjóðlega vernd á Íslandi.
Heiti málþingsins er „Farðu burt“
og verður það haldið í stóra sal
Iðnó við Vonarstræti og stendur frá
kl. 10 og 17. Flutt verða 12 erindi
og er gestum frjálst að sækja ein-
ungis hluta málþings ef svo ber
undir. Engin skráning er nauðsyn-
leg og enginn aðgangseyrir er að
ráðstefnunni.
Kaffihúsið í Iðnó verður opið frá
klukkan 10 til 18.
Málefni flóttamanna
til umræðu í Iðnó
Eitt elsta barna- og unglingaskák-
mót landsins, TORG-skákmót
Fjölnis, verður haldið í 11. sinn
laugardaginn 22. nóvember. Teflt
verður í hátíðarsal Rimaskóla og
hefst mótið kl. 11:00. Þátttakendur
mæti tímanlega til skráningar.
Öllum skákkrökkum á grunn-
skólaaldri er heimilt að vera með í
mótinu og er þátttaka ókeypis. Það
eru fyrirtækin á TORGINU, versl-
unarmiðstöðinni Hverafold, sem
gefa vinningana. Tefldar verða sex
umferðir og umhugsunartími er
sex mínútur á skák.
Foreldrum er velkomið að fylgj-
ast með og þiggja kaffisopa.
Unglingaskákmót
Fjölnis í Rimaskóla
STUTT
Hljómsveitin Todmobile heldur
stórtónleika í kvöld, föstudaginn
21. nóvember, í Bíóhöllinni á Akra-
nesi.
Vinir Hallarinnar, starfsfólk Bíó-
hallarinnar og velunnarar hafa
ákveðið að styðja við söfnun Vest-
urlandsvaktarinnar vegna kaupa á
nýju tölvusneiðmyndatæki fyrir
sjúkrahúsið á Akranesi. Eins og
fram hefur komið hér í blaðinu gaf
gamla tækið upp öndina á dögunum
og var dæmt ónýtt. Allur ágóði af
tónleikunum í kvöld mun renna til
söfnunarinnar.
„Nú vantar aðeins herslumuninn
upp á að hægt sé að ganga frá
kaupum á búnaðnum,“ segir í til-
kynningu frá Bíóhöllinni.
Miðasala er hafin í Eymundsson
Akranesi og á midi.is.
Ágóðinn rennur til
kaupa á nýju tæki
Todmobile á tónleikum.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hornafjarðarbær hefur hafnað að
veita Jökulsárlóni ferðaþjónustu ehf.
stöðuleyfi fyrir yfirbyggða miðasölu-
kerru og yfirbyggða kerru fyrir flot-
galla við Jökulsárlón. Er það gert á
þeim grundvelli að ekki liggi fyrir
samþykki allra sameigenda jarðar-
innar Fells. Aftur á móti lítur bærinn
svo á að í leigusamningi Sameigenda-
félagsins Fells og eiganda Jökulsár-
lóns ferðaþjónustu felist samþykki
landeigenda fyrir starfsmannahúsi
og vörugeymslu og samþykkti bær-
inn stöðuleyfi fyrir þau.
Umrædd mannvirki og lausafjár-
munir hafa verið á athafnasvæði Jök-
ulsárlóns ferðaþjónustu án þess að
bærinn gerði athugasemdir, þar til
nú, þrátt fyrir að einn eigenda jarð-
arinnar Fells hafi í þrjú ár spurst fyr-
ir um leyfi fyrir ýmsum munum sem
eru í kringum hús Jökulsárlóns.
Fékk upplýsingar eftir ítrekun
Bjarni Sævar Geirsson, einn af eig-
endum Fells, spurðist í haust fyrir
um stöðu leyfa við Jökulsárlón en
hann hafði fengið ákveðnar upplýs-
ingar hjá Hornafjarðarbæ fyrir
þremur árum. Síðan hafa mannvirki
og lausafjármunir bæst við. Hann
fékk fyrst þau svör frá Birni Inga
Jónssyni bæjarstjóra að stöðuleyfis-
mál Jökulsárlóns ferðaþjónustu ehf.
væru til skoðunar hjá sveitarfélaginu
og það væri bundið trúnaði um þau
samskipti. Á sama tíma afgreiddi
bæjarráð kvörtun eiganda Jökulsár-
lóns ferðaþjónustu á hendur minni
keppinauti við lónið, Ice Lagoon,
þannig að honum var gert að fjar-
lægja þá muni sem hann hafði ekki
stöðuleyfi fyrir að viðlögðum 250 þús-
und króna dagsektum.
Bjarni ítrekaði fyrirspurn sína til
bæjarins og óskaði eftir upplýsing-
um, með tilvísun til upplýsingalaga,
um stöðu leyfismála vegna fjórtán at-
riða. Í svarbréfi skipulags- og bygg-
ingarfulltrúa kemur fram að Jökuls-
árlóni ferðaþjónustu hafi verið
veittur tíu daga frestur til að skila inn
umsóknum fyrir stöðuleyfisskylda
lausafjármuni sem þar hafa þá verið
án leyfa. Fram kemur í bréfinu að
fyrirtækið hafi þegar sótt um leyfi
fyrir fernum lausafjármunum. Bær-
inn veitti síðar leyfi fyrir tvennum en
hafnaði tvennum á þeim forsendum
að leyfi allra sameigenda lægi ekki
fyrir.
Fram kemur í bréfinu að sveitarfé-
lagið geri ekki athugasemd við land-
gang og fleiri framkvæmdir sem til-
greindar eru í leigusamningi aðila frá
því árið 2000. Þá er spurningum um
olíugeyma, olíuskilju og vatnsból vís-
að til viðeigandi eftirlitsaðila. Loks
kemur fram það álit að sorpgámur og
kerra fyrir pappír séu ekki stöðuleyf-
isskyld.
Lausafjármunir standa án
stöðuleyfa við Jökulsárlón
Hornafjarðarbær hafnaði stöðuleyfum fyrir yfirbyggðar kerrur við lónið
Morgunblaðið/Ómar
Jakar Jökulsárlón er einn af vinsælustu viðkomustöðum ferðafólks á Íslandi. Harðar deilur eru á milli ferðaþjón-
ustufyrirtækja og á milli landeigenda innbyrðis. Hornafjarðarbær hefur dregist inn í deilurnar.
Óskað var eftir lögregluaðstoð í
heimahús á Ísafirði aðfaranótt
mánudags vegna manns í sjálfsvígs-
hugleiðingum. Í tilkynningu til lög-
reglu fylgdu upplýsingar um að
maðurinn væri með skurðáverka á
handleggjum.
Samkvæmt tilkynningu sem lög-
reglan á Vestfjörðum hefur sent frá
sér vegna málsins kemur fram að
maðurinn hafi hótað lögreglumönn-
um með hnífi og vegna ógnandi til-
burða hans hafi þeir neyðst til að
vopnbúast. Við það róaðist mað-
urinn og gaf sig á vald lögreglu.
Farið var með manninn á sjúkra-
hús þar sem gert var að sárum hans
en að því loknu var hann færður í
fangaklefa. Að yfirheyrslum lokn-
um var hann frjáls ferða sinna. Í til-
kynningunni kemur fram að lög-
regla hafi áður þurft að hafa
afskipti af manni þessum vegna ým-
issa brota.
Hótaði lögreglu-
mönnum með hnífi
Svarbréf byggingarfulltrúa Hornafjarðar til Bjarna Sævars Geirssonar
er skrifað 17. október. Þess má geta að í fréttagrein um deilurnar við
Jökulsárlón sem birtist í Morgunblaðinu 8. nóvember vísaði Björn
Ingi Jónsson bæjarstjóri á bug ásökunum um að leyfismál Jökuls-
árlóns ferðaþjónustu væru ólagi. Það eina sem út af stæði væri
ruslagámur sem ekki væri venja að krefjast stöðuleyfis fyrir. Um-
hverfis- og skipulagsnefnd Hornafjarðar hafði á fundi sínum fáeinum
dögum fyrr, 5. nóvember, veitt stöðuleyfi til tólf mánaða fyrir starfs-
mannahús og vörugeymslu en hafnað leyfi fyrir yfirbyggða miða-
sölukerru og yfirbyggða kerru til geymslu á flotgöllum.
„Mér finnst þetta einkennilegt. Þeir hafa verið að hundelta einn
aðila um svæðið og veifa lögum og reglum en svo fá aðrir að vinna
eftir allt öðrum reglum. Ég er ekki að mæla því bót að gefinn sé af-
sláttur af reglum en sömu reglur eiga að gilda fyrir alla,“ segir Bjarni
Sævar.
Sömu reglur gildi fyrir alla
AÐGERÐIR HORNAFJARÐARBÆJAR GAGNRÝNDAR
Ný sending
Mikið úrval af töskum,
fötum og fallegum
fylgihlutum
Fagleg þjónusta í 60 ár
Kringlan 4-12 • Sími 533 4533
www.facebook.com/HYGEA