Morgunblaðið - 21.11.2014, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Sollentuna. AFP. | Í stríðshrjáðu
landinu sem Mikhail Zuhir kemur
frá, Sýrlandi, getur bank á dyr að
kvöldlagi verið fyrirboði dauða, en
þegar Zuhir drepur á dyr hjá grönn-
um sínum í Svíþjóð á dimmu kvöldi
kemur hann með blóm og fær í stað-
inn bros. Í stað ótta og fordóma bíða
hans hlýjar kveðjur og heitur matur.
Zuhir er 29 ára og flúði stríð sem
hefur kostað yfir 195.000 manns lífið
á rúmum þremur árum. „Ef menn
koma ekki með blóm þegar þeim er
boðið í kvöldmat er öruggt að þeim
verður ekki boðið aftur,“ sagði Zuhir
og færði grönnum sínum blómvönd.
Gestgjafarnir, Urban Söderman
og Jenny Sigurs, buðu honum inn í
stofu og saman borðuðu þau þrjú
hefðbundinn sænskan mat: lax, kart-
öflur og eplaböku með þeyttum
rjóma.
20% af erlendu bergi brotin
Kvöldverðurinn var þáttur í fram-
taki sem miðar að því að auðvelda
flóttafólki að samlagast samfélaginu
nú þegar innflytjendum hefur fjölg-
að til mikilla muna í Svíþjóð. Hug-
myndina átti sænskukennarinn
Ebba Åkerman, sem telur að ekkert
sé betur til þess fallið að brjóta ísinn
en það að borða saman góðan mat.
Åkerman vonar að slík kvöld-
verðarboð greiði fyrir fordómalausri
umræðu um málefni flóttafólks í Sví-
þjóð sem hefur verið þekkt fyrir að
vera opin hælisleitendum. Sú stefna
er talin ein af meginástæðum þess
að fylgi Svíþjóðardemókratanna tvö-
faldaðist í þingkosningunum í Sví-
þjóð í september. Flokkurinn hafði
lagt áherslu á að ráðstafanir yrðu
gerðar til að fækka innflytjendum.
Könnun sem gerð var í fyrra
bendir til þess að 20% íbúa Svíþjóðar
séu af erlendu bergi brotin. Sam-
kvæmt annarri könnun hefur þó nær
fimmtungur Svía aldrei átt nein
samskipti við fólk frá landi utan
Evrópu.
Åkerman fékk hugmyndina fyrr á
árinu þegar hún varð forfallakennari
í sænsku fyrir útlendinga sem hafa
flust búferlum til Svíþjóðar. „Ég
varð forvitin um nemendur mína og
vildi kynnast þeim betur,“ sagði hún.
„Ég áttaði mig á því mjög fljótt að
ég var fyrsti Svíinn sem þau töluðu
við. Ég hugsaði með mér að þetta
yrði að breytast – til dæmis yfir
kvöldverði.“
Hjálpað að læra málið
Hugmyndinni var komið í fram-
kvæmd í mars og hún er einföld.
Innflytjendur, sem læra sænsku,
eiga góða stund með Svíum yfir
kvöldverði.
Markmiðið er tvíþætt. Annars
vegar er ætlunin að auðvelda inn-
flytjendum að laga sig að nýja sam-
félaginu og læra sænsku, og hins
vegar að hjálpa Svíum að venjast
nýjum samborgurum sínum.
Frá því í mars hefur kvöldverðar-
boðunum fjölgað jafnt og þétt og þau
eru komin yfir hundraðið í Stokk-
hólmi og nágrenni. Framtakið hefur
breiðst út til annarra staða í Svíþjóð
og jafnvel annarra landa. Hugmynd-
inni hefur þegar verið komið í fram-
kvæmd í Aþenu og slík kvöldverðar-
boð eru í undirbúningi í löndum á
borð við Litháen, Singapúr og
Bandaríkin.
Zuhir er þess fullviss að hann
muni dvelja það sem eftir er ævinn-
ar í Svíþjóð og hefur skipulagt fram-
tíðina. „Fyrst þarf ég að læra að tala
sænsku vel, síðan þarf ég að fá rétt-
indi til að starfa sem rafvirki og þá
get ég fundið vinnu.“
Hann kveðst þó vera hættur í fót-
bolta, íþrótt sem hann æfði á hverj-
um degi í Sýrlandi. „Ég get ekki
hlaupið í þessum kulda. Það er al-
gerlega ómögulegt!“
AFP
Heimboð Mikhail Zuhir (fyrir miðju) og gestgjafar hans, Urban Söderman
og Jenny Sigurs, kynntust fyrir milligöngu „ráðuneytis heimboða“.
Góð kynni yfir
kvöldverði í
stað fordóma
Nýjum samborgurum hjálpað að
samlagast samfélaginu og læra sænsku
Hertogaynjan af Alba, auðugasta
kona Spánar, lést í höll sinni í Se-
ville í gær, 88 ára að aldri. Hún var
þekkt fyrir að binda ekki bagga
sína sömu hnútum og aðrir og bar
fleiri titla en nokkur annar að-
alsmaður í heiminum.
Maria del Rosario Cayetana Fitz-
James Stuart dó í höll sinni eftir
skammvinn veikindi. Hún hafði
komið þangað aftur á þriðjudaginn
var eftir að hafa legið á sjúkrahúsi
með lungnabólgu.
Hertogaynjan lætur eftir sig
eiginmann, Alfonso Diez, sem hún
giftist fyrir þremur árum og er 24
árum yngri en hún.
Hertogaynjan var ástsæl og kenj-
ótt, m.a. þekkt fyrir mjög sér-
stæðan klæðaburð og áberandi hár-
greiðslu. Hún átti fasteignir víða,
meðal annars hallir og stórhýsi.
Hún lætur einnig eftir sig stórt safn
málverka eftir marga af helstu
meisturum málaralistarinnar, með-
al annars Goya og Velazquez.
Hún mun hafa borið alls 55 titla
um ævina og fleiri en nokkur annar
aðalsmaður, ef marka má Heims-
metabók Guinness.
Hertogaynjan af Alba látin
AFP
Engum öðrum lík Hertogaynjan
með eiginmanni sínum.
Um 1,6 milljónir Sýrlendinga hafa
flúið til Tyrklands frá árinu 2011 en
aðeins um 220.000 þeirra dvelja í
flóttamannabúðum, að sögn Am-
nesty International. Mannréttinda-
samtökin segja að neyðarástand
blasi við hundruðum þúsunda Sýr-
lendinga sem eru á vergangi.
„Sumir eru svo örvæntingarfullir
að þeir íhuga að snúa aftur til
stríðshrjáða heimalandsins,“ segir
í skýrslu samtakanna.
Hundruð þúsunda á vergangi
1,6 MILLJÓNIR SÝRLENDINGA FLÚÐU TIL TYRKLANDS
AFP
Á flótta Sýrlendingar orna sér við eld í
flóttamannabúðum í Tyrklandi.
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Verð
hleðslutæki 12V
Straumur 4A
TW 807022
háþrýstidæla
165 bar þrýstingur,
vatnsflæði 8,5L/min,
2500W.
Pallabursti,
þvottabursti,
slanga f/stíflulosun
og turbo
spíss fylgja.
LA 809700002C
Verð
49.900,-
háþrýstidæla
150 bar þrýstingur,
vatnsflæði 7,5L/min,
2100W mótor.
Pallabursti, þvottabursti
og turbo spíss fylgja.
LA 80860002C
Síðumúla 11 - 108 Reykjavík | Sími 568-6899 | Póstfang: vfs@vfs.is | www.vfs.is
Verð
29.900,-
7.990,-
Lavor