Morgunblaðið - 21.11.2014, Page 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Vilhjálmur Árnason,
þingmaður og fyrsti
flutningsmaður frum-
varps um smásölu
áfengis í almennum
verzlunum, vék orðum
að afstöðu Félags at-
vinnurekenda (FA) til
frumvarpsins í Morg-
unblaðinu þriðjudag-
inn 18. nóvember.
FA hefur lagt
áherzlu á mun víðtæk-
ari breytingar á áfengislöggjöfinni
en gert er ráð fyrir í frumvarpinu
og meðal annars hvatt þingmenn til
þess að afnema löngu úrelt og göt-
ótt bann við áfengisauglýsingum,
sem kemur harðast niður á inn-
lendum áfengisframleiðendum. Það
sama hafa fleiri hagsmunasamtök í
atvinnulífinu gert.
Vilhjálmur segir í blaðinu að
smásala áfengis og auglýs-
ingabannið séu „alls óskyld“ mál.
Hann segist telja að FA sé að
reyna að stöðva frumvarpið með
„vafasömum“ hætti og andstaða fé-
lagsins sé „ógeðfelld“. „Þeir eru að
nota núverandi auglýsingabann til
að stoppa málið,“ segir Vilhjálmur.
Höfum það fyrst á hreinu að Fé-
lag atvinnurekenda styður frelsi og
virka samkeppni í viðskiptum með
áfengi, rétt eins og aðrar vörur.
Hins vegar hefur FA bent á að
nálgunin í frumvarpi Vilhjálms og
meðflutningsmanna hans sé of
þröng, meðal annars af því að það
tekur ekki til auglýsingabannsins.
Hvert er samhengið?
Það er alrangt að ekkert sam-
hengi sé á milli smásöluverzlunar
með áfengi og banns við áfeng-
isauglýsingum. Með frumvarpi Vil-
hjálms er lagt til að færa smásölu
áfengis úr einokunarumhverfi í fá-
keppnisumhverfi matvörumark-
aðarins. Gera má ráð fyrir að fáir
stórir aðilar á matvörumarkaðnum
muni ráða miklu um
hvaða vörur seljast.
Framleiðendur og inn-
flytjendur nytu þá
eðlilega ekki lengur
þess jafnræðis sem
ÁTVR hefur verið
skylduð til að viðhafa
gagnvart birgjum, en
vegna auglýs-
ingabannsins ættu þeir
hins vegar enga mögu-
leika á að kynna vörur
sínar sjálfstætt fyrir
neytendum. Þetta
kæmi sérstaklega hart
niður á smærri framleiðendum, sem
reyna að koma nýrri vöru á mark-
að.
Af hverju þingmaðurinn kallar
það vafasamt og ógeðfellt af Félagi
atvinnurekenda að benda á þetta er
erfitt að útskýra. Ætti hann ekki
sem talsmaður frjálsra viðskipta að
vera sammála því að leggja sem
minnstar hömlur á umhverfi við-
skipta með áfengi? FA hefur sent
allsherjar- og menntamálanefnd Al-
þingis vel útfærðar tillögur sínar
um afnám auglýsingabannsins og
drög að ströngum siðareglum um
markaðssetningu áfengis, sem að-
ildarfyrirtæki FA eru reiðubúin að
fylgja, verði auglýsingabannið af-
numið.
Misskilningur um áfengisgjald
Það hentar Vilhjálmi að reyna að
gera grýlu úr „stóru framleiðend-
unum og heildsölunum“ sem vilji
ekki styðja frumvarp hans óbreytt.
Það er oft klókt að gera þeim sem
ekki eru manni sammála upp ann-
arleg sjónarmið. Sannleikurinn er
hins vegar sá að smærri fyrirtæki í
innflutningi og framleiðslu áfengis
hafa meiri áhyggjur af ágöllum
frumvarpsins en þau stærri.
Ein helzta ástæðan fyrir því er
að það fjallar ekki um áfeng-
isauglýsingar. Önnur ástæða er sú
að flutningsmenn þess virðast hafa
misskilið núverandi löggjöf um inn-
heimtu áfengisgjalds og halda að
það sé smásalan sem standi skil á
gjaldinu til ríkisins. Svo er ekki;
það eru birgjarnir, innflytjendur og
framleiðendur, sem greiða áfeng-
isgjaldið í ríkissjóð en núverandi
smásali, ÁTVR, greiðir þeim skil-
víslega nokkrum dögum síðar. Í
frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir
að breyta því að birgjarnir standi
skil á áfengisgjaldi.
Ef heildsölum og/eða framleið-
endum er áfram gert að standa skil
á áfengisgjaldinu við afhendingu
eða tollafgreiðslu vörunnar en þeir
þurfa síðan í nýju markaðsumhverfi
að veita smásöluverzlunum gjald-
frest upp á allt að tvo mánuði, eins
og algengt er, hefur það gífurlega
neikvæð áhrif á sjóðstreymi og
rekstrarhæfi, ekki sízt smærri fyr-
irtækja, enda er áfengisgjald á Ís-
landi gríðarlega hátt og getur num-
ið upp undir 80% af verði vörunnar.
Þetta er eðlilega mikið áhyggju-
efni, sér í lagi fyrir smærri aðila á
markaði. Félag atvinnurekenda
leggur því þunga áherzlu á að það
verði smásalan sem skili áfeng-
isgjaldinu til ríkissjóðs, verði
ákveðið að afnema einkasölu rík-
isins á áfengi.
Það er ögn torskilið af hverju það
fer svona fyrir brjóstið á flutnings-
mönnum áðurnefnds frumvarps
þegar bent er á að það gangi ekki
nógu langt í frelsisátt og settar
fram vel rökstuddar og málefna-
legar tillögur um hvernig megi
skoða málið heildstætt, tryggja sem
frjálsast viðskiptaumhverfi áfeng-
issölu og bæta úr stórum og aug-
ljósum göllum á frumvarpinu.
Stuðningsmenn viðskiptafrelsisins
hljóta að vilja að þegar frelsisbíllinn
leggur af stað sé hann á öllum fjór-
um hjólum, en ekki bara einu eða
tveimur.
Frelsi á fjórum hjólum
Eftir Ólaf
Stephensen » Stuðningsmenn við-
skiptafrelsisins
hljóta að vilja að þegar
frelsisbíllinn leggur af
stað sé hann á öllum
fjórum hjólum, en ekki
bara einu eða tveimur.
Ólafur
Stephensen
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Því oftar sem ég
ferðast til annarra
landa, því sannfærðari
verð ég um að Ísland
er fegursta land í
heimi. Þessa fegurð,
einstætt landslag og
vistkerfi, ber okkur að
vernda með öllum til-
tækum ráðum. Hin of-
urviðkvæma náttúra
Íslands er hornsteinn
vaxandi ferðaþjónustu,
atvinnugreinar sem færir lands-
mönnum mestan erlendan gjaldeyri.
Það er mikið í húfi að okkur takist
að tengja betur saman nýtingu og
verndun. Hér þurfa allir sem að mál-
inu koma að taka saman höndum,
jafnt ferðaþjónustuaðilar og op-
inberar stofnanir, og koma í veg fyr-
ir landníðslu hvort heldur sem er
vegna of mikils álags af völdum
ferðamennskunnar eða ribbalda-
háttar fólks, sem kann ekki að um-
gangast landið. Ísland verður lítt
spennandi ef landið jaskast út eða ef
fólk fær átölulaust að skera í sundur
viðkvæman gróður og valda óbæt-
anlegum skaða.
Umhverfisáhrif
ferðaþjónustunnar
Á ráðstefnu sem Landgræðslan og
Umhverfisstofnun í samstarfi við
Ferðamálastofu héldu nýverið í
Gunnarsholti var það haft að leið-
arljósi að opna umræðuna um um-
hverfisáhrif ferðaþjónustunnar á
landslag og landslagsheildir og hvert
skal stefna. Það verður að móta
heildarstefnu í ferðaþjónustu, þann-
ig að hún skili sem mestu í þjóð-
arbúið um leið og kostir landsins eru
varðir. Hér verða menn að huga að
„umhverfissjálfbærni“ og átta sig á
að ferðamenn næstu ára og áratuga
munu því aðeins koma að Ísland
framtíðarinnar verði jafn heillandi
og það hefur verið. Sundurskorið og
rústað land er léleg söluvara.
Afar lítið er rætt um stýringu
ferðamanna. Enn síður hefur verið
um það fjallað hvernig á að dreifa
ferðamönnum um landið og hvaða
svæði skal byggja upp. Hingað kem-
ur fólk vegna einstæðrar náttúrufeg-
urðar landsins og í leit
að ósnortinni náttúru.
Landið hefur slíkt yf-
irbragð, en vegna áhrifa
landnýtingar í aldanna
rás er það fjarri því
ósnortið. Umsvif aukast
og með sama áfram-
haldi verða óbyggð víð-
erni vandfundin fyrr en
varir.
Móta verður
framtíðarsýn
Við verðum að horfa
fram á veginn og marka
heildarstefnu til margra ára. Okkur
skortir framtíðarsýn. Verndun og
úrbætur verða að ná til Íslands í
heild sinni en ekki aðeins einstakara,
fjölsóttra ferðamannastaða.
Það er fagnaðarefni að iðnaðar- og
viðskiptaráðherra hefur sett í gang
vinnu við að móta stefnu og framtíð-
arsýn fyrir ferðaþjónustu á Íslandi í
öflugu samstarfi stjórnvalda, Sam-
taka ferðaþjónustunnar og annarra
hagsmunaaðila. Vonandi verður
verndun náttúruauðlindanna þar í
heiðurssæti. Á því grundvallast ís-
lensk ferðaþjónusta í bráð og lengd.
Það er brýnt að koma verndun
náttúruauðlindanna í betra horf og
tryggja fjármögnun þeirra ótal-
mörgu verkefna til úrbóta sem við
blasa. Á því byggist framtíð landsins
sem spennandi kostur fyrir ferða-
menn frá löndum sem mörg hver eru
orðin það mótuð af umsvifum manna
að þau hafa glatað hluta af sínum
töfrum. Sú ótrúlega fegurð sem Ís-
land býr enn yfir verður því enn
meira gefandi en ella.
Fegurð náttúrunn-
ar – okkar verð-
mætasta auðlind
Eftir Andrés
Arnalds
Andrés
Arnalds
» Fegurð Íslands er
hornsteinn ferða-
þjónustunnar, atvinnu-
greinar sem færir lands-
mönnum mestan
erlendan gjaldeyri.
Náttúruvernd verður að
efla.
Höfundur er fagmálastjóri
Landgræðslu ríkisins.
Ég versla reglulega í Fiskikónginum uppi á Höfða. Um daginn fór ég þar inn
til að kaupa fiskfars sem ég bý svo til bollur úr við miklar vinsældir barnanna
minna. Kílóverðið hefur verið 890 krónur en svo bar til þessa viku að á töflu í
versluninni stóð stórum stöfum TILBOÐ fiskfars kr. 990. Innilegar þakkir
fyrir þetta fína tilboð sem var 100 krónum hærra en verðið er venjulega.
Meðvitaður viðskiptavinur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Tilboð
Morgunblaðið/Sverrir
Fiskborð Gott úrval fisks og fiskrétta er í fiskborðum matvöruverslana og fiskbúða.
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Strigar, ótal stærðir
frá kr.295 Olíu/Acrýl/Vatnslitasett
12/18/24x12ml
frá kr.895
Acryllitir 75ml
555
Þekjulitir/
Föndurlitir
frá kr.845
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
frá kr.
Allt til listmálunar
Strigar, penslar, olíulitir,
acryllitir, trönur, pallettur,
spaðar, svampar, lím,
íblöndunarefni, varnish,
þekjulitir, teikniblokkir,
pappír og arkir
Mikið úrval
af listavörum
Trönur á gólf
frá kr.7.995
Límbyssur
frá kr.595
Olíulitir
ímiklu úrvali
Frábært úrval af
Kolibri hágæða-
penslum
Heftibyssur
frá kr.595