Morgunblaðið - 21.11.2014, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
ÁÁrni Pétur Reynisson er í meistaranámi á leiklistarsviði í list-kennsludeild í Listaháskólanum. „Ég er í námsleyfi fráReykjavíkurborg í vetur og geri ráð fyrir að klára masterinn
í vor. Þetta er frábærlega skemmtilegt nám en strembið um leið.
Maður þarf að vera á tánum.“ Árni nam leiklist og leikhúsfræði í
London, bætti við sig kennsluréttindum frá KHÍ og hefur verið um-
sjónarkennari á miðstigi í ellefu ár, en einnig verið með leiklistarval
alla jafna og annað svipað námsval eins og stuttmyndagerð. „Í meist-
araritgerðinni er ég að rannsaka samþættingu á leiklist og tungu-
málum, þ.e. hvað gerist þegar sett er upp leikverk á erlendu tungu-
máli og hvernig það kemur með nýjar víddir í námi á því tungu-
máli.“
Árni Pétur nýtur þess helst að slaka á í góðum félagsskap, t.a.m.
horfa á fótbolta, spila golf og spila músík. Hann er ásamt félögum
sínum úr árgangi 1970 af Akranesi í svokölluðum Smíðaklúbbi. Þeir
hafa komið saman árlega í tíu ár og haldið tónlistarhátíð þar sem
þeir koma fram með frumsamið efni og kæta félagana og aðra gesti.
Svo kjósa keppendur og gestir um hvert sé besta lagið og einnig er
keppt um titla eins og kynþokkafyllsta keppandann. „Það hefur ver-
ið keppt um ýmsa titla, ég barðist lengi fyrir því að valið yrði besta
orgelsólóið því ég var alltaf með orgelsóló í mínum lögum en fékk
því ekki framgengt. Einn vina okkar kallaði þetta „félag um inn-
byrðis aðdáun“ þar sem menn kepptust við að hæla hver öðrum.“
Kona Árna Péturs er Erla Sigurðardóttir grunnskólakennari og
börn þeirra eru Reynir Ími, 15 ára, Sæunn Erla, 13 ára, og Karólína
Björg, sex ára.
Árni Pétur Reynisson er 44 ára í dag
Séð yfir Álafosskvosina Árni Pétur úti á svölum heima hjá sér.
Stundar spennandi
framhaldsnám
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í dag er níræð Arndís Sigurðar-
dóttir Genualdo. Hún er elst tíu
systkina, þar af eru níu á lífi. For-
eldrar hennar voru Sigurður Krist-
jánsson alþingismaður og Ragna
Pétursdóttir húsfrú, Vonarstræti 2,
Rvík. Arndís var búsett í yfir fjöru-
tíu ár í Bandaríkjunum og er sjö
barna móðir. Hún fagnar deginum
með nánustu fjölskyldu og vinum.
Árnað heilla
90 ára
K
ristinn fæddist í
Reykjavík 21.11. 1964:
„Fyrstu fjögur árin
mín áttum við heima á
Langholtsvegi 71, í
kjallaranum hjá afa og ömmu. Við
fluttum í Fossvoginn 1968. Þar var
ég nánast samfleytt fram á fullorð-
insár.
Fossvogurinn var dæmigert ný-
byggingahverfi á mörkum borgar og
sveitar. Kópavogsmegin voru býli og
búpeningur á beit. Ég var í Foss-
vogsskóla og þrjú ár í Réttarholts-
skóla.
Þarna eignaðist ég góða félaga og
það var margt brallað, m.a. dúfna-
rækt. Yfirleitt var óheflað mótatimb-
ur notað í dúfnakofa. En eitt sinn
fundum við strákarnir sérstaklega
vandað efni og smíðuðum úr því
flottan dúfnakofa. Svo kom í ljós að
húsbyggjandi í nágrenninu hafði
keypt viðinn í þakkantinn sinn.
Hann fann von bráðar efnið sem
hafði horfið af lóðinni hans. Ég man
ekki hvernig fullorðna fólkið leysti
málið en það urðu einhver eftirmál
af þessu framtaki.
Ég var svo í sveit á Skinnastöðum
í Torfalækjarhreppi hjá yndislegu
fólki. Þar fékk ég gott uppeldi og
þaðan á ég sterkustu minningarnar
frá árunum fram yfir fermingu.
Þangað fór ég fyrst sjö ára, til
skemmri dvalar, en síðan lengdist
viðveran og var þá frá skólalokum í
maí og þar til skólinn byrjaði á
haustin. Það var alltaf gaman í sveit-
inni og í minningunni var þar alltaf
gott veður. Ég var að vísu skelfilega
matvandur og á íslensku sveitaheim-
ili var ekki nema mátulegur skiln-
Kristinn Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastj. hjá Hnit – 50 ára
Gengið á Úlfarsfell Björn í fanginu á Kristni, síðan dæturnar Stella og Sandra og loks Magnús, lengst til hægri.
Var skelfilega matvandur
Samhent hjón Kristinn og Marianne Elisabeth bregða sér í hlutverk jólasveina.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Skútuvogi 8 • 104 Reykjavík • Sími 567 6700 • www.vakahf.is
Dekkjasala
og þjónusta Varahlutir
Bifreiða-
flutningar
Endurvinnsla
bifreiða