Morgunblaðið - 21.11.2014, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Laugavegi 34, 101 Reykjavík
Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf
V E R S L U N
Ullarflauelbuxur 18.900,- Peysa verð 16.900,- stk.
Gallabuxur 14.900,-
Úrval af buxum og peysum
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu sérstaklega að þér við akstur í
dag. Ekki eyða orku í að vinna gegn fáfræði
og vanþekkingu annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er mikilvægt að þú haldir áfram að
koma skipulagi á eigur þínar. Þrá þín eftir að
sneiða framhjá væntingum annarra í kring-
um þig virðist kannski galin en er það alls
ekki.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Búðu þig undir að þurfa að leggja
heilmikið á þig á komandi árum. Skipuleggið í
kvöld hver á hvaða svæði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í sjálfu sér eru hlutunum engin tak-
mörk sett önnur en þau sem við setjum
okkur sjálf. Hann er álitinn stuðboltinn í
hópnum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Skipun að ofan krefst þess besta frá
þér, og þú gefur þeim allt sem þú átt til og
slærð í gegn. Mundu að það getur allt gerst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú færð hugsanlega peninga í
gegnum maka þinn. En gefðu þér góðan tíma
því mikið ríður á að framsetning þín sé ljós.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur látið margt reka á reiðanum en
nú verður ekki hjá því komist að taka málin
föstum tökum. Ef þú nauðsynlega þarft að
afboða einhver mannamót settu þau þá strax
á nýja dagsetningu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Duttlungar þínir í viðhorfinu til
eigin tilveru eru ómótstæðilegir í augum
annarra. Beittu heldur fyrir þig kímninni því
gamanið er allra meina bót.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver smámisklíð kemur upp á
milli þín og samstarfsmanna þinna. Virðuleg
framkoma þín segir meira en sæmileg saga.
Núna nennirðu bara ekki að slást – það kem-
ur seinna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Notið tækifærið til að rétta vinum
ykkar hjálparhönd sem þurfa á henni að
halda nú fyrir jólin. Farðu eitthvað eða sestu
aftur á skólabekk.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú lætur hugsanlega eftir þér að
kaupa eitthvað án umhugsunar í dag. Ef þú
notaðir ekki tækifærið í gær reyndu þá að
leyfa þér að láta eins og barn á ný í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ágætt að eiga sér draum en
hann getur aldrei leyst veruleikann af hólmi.
Vog og vatnsberi skilja þarfir þínar. En svo
má líka hjálpa öðrum án þess að ætlast til
einhvers í staðinn.
Eins og lesendur Vísnahornsvita eru þrjár ljóðlínur í brag-
hendu. Fyrsta ljóðlínan er það löng
að hún kemst ekki fyrir í blaða-
dálki, svo að það verður að skipta
henni, þó þannig að „önnur brag-
línan“ verði inndregin, þannig:
Útgáfu- til herlegs -hófs
skal hér með bjóða:
út er komin skrýtin skræða
skal ég þetta betur ræða.
Í Vísnahorni í gær var önnur
línan ekki inndregin og er beðist af-
sökunar á því.
Eins og við er að búast er mikið
um bókatíðindi og vísur um bækur
á Leirnum. Sigurlín Hermanns-
dóttir er nýkomin í hóp Leirverja.
Hún getur þess að hún hafi verið að
skoða auglýsingu um nýju bókina
hans Guðna Ágústssonar og fannst
eitthvað undarlegt við kápu-
myndina:
Um kvenskörunginn Guðni skrifað getur
og gefur okkur nýja mynd í vetur;
mynd sem aldrei aftur verður slík.
Við fáum nýtt um Hallgerði að heyra.
Ég horfi á kápu og undrast sífellt meira
hve Gerða sú og Guðni eru lík.
Þann 16. nóvember, á degi hinn-
ar íslensku tungu, skrifaði Davíð
Hjálmar Haraldsson:
Frjálsræðið hentar hinum ungu,
hópast þeir saman hvar sem er
og hver upp í annan treður tungu
tiltekinn dag í nóvember.
Og bætti síðan við: „Þessi bragar-
háttur heitir bull- eða galgopa-
háttur og líðst ekki meðal þeirra
sem taka sig alvarlega. En þetta er
Leir.“
Þann hinn sama dag orti Skírnir
Garðarsson með þessari athuga-
semd: „Have a næs dei á degi ísl
túngu“
Ýmislegt menn eru að bralla
orðastuðla með.
Tungnamenn ég tel oss alla
tæknilega séð.
Steingrímur Hólmsteinsson segir
frá því að hann hafi einu sinni
þekkt mann sem sig minnti að héti
Gvendur – „man það þó ekki alveg.
Hann var þekktur fyrir að ljúga, en
kvaðst þó aldrei hafa logið þó
stundum hafi hann bullað“.
Gvendur siðblindi sagður er mestur
siðlaus en alls ekki verstur
lýgur stundum smá
segir bara þá:
sannleikurinn er sagna bestur
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um Hallgerði og
dagur íslenskrar tungu
Í klípu
ÁNÆGJUVOG
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ MÁTT TAKA SKILTIÐ AF Í
HÁDEGISMATNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum bara eitt
augnaráð.
VIÐ SKEMMTUM OKKUR
FRÁBÆRLEGA Í
SKEMMTIGARÐINUM
PYLSURNAR...
POPPKORNIÐ... ...RÚSSÍBANARNIR...
ÉG BORÐA
VENJULEGAST
EKKI FYRIR
ÁRÁS...
MANÍSK
ÁNÆGÐ
Í LAGI
ÞUNGLYND
Það er ótrúlega gott verð fyrirsvona fínan bíl, sagði Heimir
Karlsson í bílahorni Bítis Bylgjunnar
í gærmorgun þegar hann var upp-
lýstur um að kaupa mætti ákveðinn
bíl fyrir tæplega 5,4 milljónir króna.
x x x
Víkverji hefur aldrei átt fimm millj-ónir króna í lausu, hvað þá að
honum hafi dottið í hug að kaupa bíl
fyrir svo háa upphæð. En þeir sem
fjalla um bíla – og reyndar einnig vín-
sérfræðingar – virðast oft lifa í öðrum
heimi en almenningur og í þeirra
huga eru fimm millur ekkert til að
tala um. Hjá þeim er bíll á fimm kúlur
eins og kók og prins hjá okkur hinum.
x x x
Sagt var að þegar skuldanið-urfærslan varð að veruleika
hefðu landsmenn brugðist skjótt við
og keypt húsnæði og bíla sem aldrei
fyrr. Fréttir voru sagðar af mikilli
aukningu í sölu raftækja, í ferðum til
útlanda og almennri jólaverslun. Allir
voru sagðir vera á ferðinni en Vík-
verji kannast ekki við þennan æði-
bunugang í sínu nærumhverfi.
x x x
Reyndar botnar Víkverji ekki ímörgum löndum þegar fjármál
eru annars vegar. Stjórnmálamenn,
sem hafa gagnrýnt skuldaniðurfærsl-
una sem mest voru fyrstir til þess að
sækja um niðurfellingu. Borgarstjóri,
sem getur ekki borgað tónlistar-
kennurum sömu laun og öðrum kenn-
urum, hefur ráð á því, fyrir hönd
sömu borgara, að láta reisa nýjan
flugvöll í Reykjavík eins og hendi sé
veifað. Hjá sumum stjórnmála-
mönnum er ekki spurt hvað hlutirnir
kosta heldur hvað þeir fá í sinn hlut.
„Vöfflugjafir“ borgarstjóra á Menn-
ingarnótt endurspegla innrætið.
x x x
Í svonefndu góðæri sögðu banka-stjórar að þeir þyrftu skrilljónir í
laun til að halda í við kollegana er-
lendis. Annars yfirgæfu þeir bara
landið. Þeir fengu sínu framgengt þó
að engin eftirspurn hefði verið eftir
þeim erlendis. Læknadeilan minnir
Víkverja á þessa tíma, nema hvað
læknar virðast alls staðar geta fengið
vinnu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Í því birtist kærleikur Guðs til okkar
að Guð hefur sent einkason sinn í
heiminn til þess að hann skyldi veita
okkur nýtt líf. (Fyrsta Jóhannesarbréf 4:9)