Morgunblaðið - 21.11.2014, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2014
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það má segja að ég taki forskot á sæluna,“ segir Stein-
grímur Þórhallsson tónskáld og organisti um tónleika
sem haldnir verða í Neskirkju á morgun kl. 17. Yfirskrift
tónleikanna er Tónverk á tímamótum og eru þeir haldnir
í tilefni af því að Steingrímur fagnar 40 ára afmæli sínu í
byrjun næsta mánaðar. Á efnisskrá tónleikanna eru ein-
vörðungu verk eftir Steingrím samin á síðustu fjórum
árum. „Þetta er nokkurs konar bland í poka. Um er að
ræða tvö stór verk, eitt millistórt og sex minni kórverk,“
segir Steingrímur og tekur fram að um frumflutning sé
að ræða á einu verkanna, þ.e. „Lífið er leiðin til dauðans“
við ljóð Matthíasar Johannessen.
Steingrímur lauk mastersprófi í orgelleik frá Pontifi-
cio Instituto di Musica Sacra í Róm, en hafði áður lokið
píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og
kantorsprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Fyrir tveimur
árum útskrifaðist hann síðan úr tónsmíðadeild Listahá-
skóla Ísladns. Aðspurður segist hann hafa byrjað að
semja fyrir alvöru fyrir um sjö árum. „Til að byrja með
samdi ég einföld píanólög í tölvunni í ætt við kvikmynda-
tónlist, en smám saman jókst hlutfall klassískra verka. Í
dag sem ég jöfnum höndum popplög og klassíska tón-
list,“ segir Steingrímur sem nýverið vann til verðlauna í
lagakeppninni 6-pack í Bandaríkjunum sem í ár er haldin
í 10. sinn.
Vann til verðlauna í lagakeppni í Bandaríkjunum
„Keppt er í sex efnisflokkum og ég vann í flokki sem
heitir Visual þar sem keppendum var gert að semja
stemningstónlist við ljósmynd,“ segir Steingrímur og
tekur fram að hann fái m.a. forláta hljómborð frá Yam-
aha í verðlaun. „Úrslit í öðrum flokkum skýrast ekki fyrr
en um miðjan desember,“ segir Steingrímur sem varð
hlutskarpastur í keppninni árið 2009.
Spurður hvernig hann skilgreini tónlist sína segir
Steingrímur að hún feli ekki í sér öfgar í neinar áttir.
„Markmið mitt er að þetta verði ekki of einfalt en fólk
hafi samt gaman af því. Þetta verður að vera skemmti-
legt og áhugavert bæði fyrir mig sem tónskáld, flytj-
endur og áhorfendur,“ segir Steingrímur. Flytjendur á
tónleikunum á morgun eru Hallveig Rúnarsdóttir sópr-
an, Kammerkórinn Melodía undir stjórn Magnúsar
Ragnarssonar, Pamela De Sensi flautuleikari og Kór
Neskirkju undir stjórn Steingríms. Þess má að lokum
geta að aðgangur er ókeypis á tónleikana.
„Bland í poka“
Steingrímur Þórhallsson fagnar tímamótum á tónleikum
Tónskáldið Steingrímur Þórhallsson tónskáld og org-
anisti byrjaði að semja fyrir alvöru fyrir um sjö árum.
Íslenski sönglistahópurinn kemur
fram á tónleikaröðinni Á ljúfum
nótum í Laugarneskirkju í hádeg-
inu í dag. Yfirskrift tónleikanna er
Libera me, en á efnisskránni eru
trúarleg tónverk frá ýmsum tímum
án undirleiks. Tónleikarnir eru
haldnir í Laugarneskirkju, hefjast
kl. 12.00 og standa í um hálfa
klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur en
vakin er athygli á því að enginn
posi er á staðnum.
Tónverk frá ýmsum
tímum í hádeginu
Söngelsk Íslenski sönglistahópurinn.
Lumine Maris
Ubique nefnist
sýning Alexand-
ers Zaklynskys
sem verður opn-
uð í Gallerí Bak-
arí á Skólavörðu-
stíg 40 í dag kl.
17.
Næstum þrjú
ár eru liðin frá
seinustu sýningu
Zaklynskys í Reykjavík, en á síðustu
árum hefur hann unnið í gestaíbúð-
um erlendis og tekið þátt í sýningum
víðsvegar í Evrópu og Bandaríkj-
unum. Samkvæmt upplýsingum frá
sýningarhaldara eru verkin á nýju
sýningunni lauslega innblásin af
Dieter Roth, reynslunni af að flytja
aftur til Íslands og ekki síst Seyð-
isfjarðar sem og ferðalögum hans á
meginlandi Evrópu seinustu ár.
Um þessar mundir vinnur Alex-
ander að þróun og endurvakningu
málmsmiðjunnar í Tækniminjasafni
Austurlands, en veffjáröflun í gegn-
um Karolina Fund hófst fyrr í vik-
unni. Allar nánari upplýsingar eru á
vefnum karolinafund.com/project/
view/671. Þess má að lokum geta að
sýningin stendur til 5. desember.
Litagleði Verk eftir Alexander Zaklynsky unnið í brons, ál, tré og pappír.
Zaklynsky með nýja sýningu
Alexander
Zaklynsky
Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl.
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 22/11 kl. 13:00 23.k. Lau 20/12 kl. 13:00 Aukas. Lau 10/1 kl. 13:00
Sun 23/11 kl. 13:00 24.k. Sun 21/12 kl. 13:00 31.k. Sun 11/1 kl. 13:00
Lau 29/11 kl. 13:00 25.k. Fös 26/12 kl. 13:00 Lau 17/1 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 26.k. Fös 26/12 kl. 16:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 27.k. Lau 27/12 kl. 13:00 Lau 24/1 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 28.k. Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 25/1 kl. 13:00
Lau 13/12 kl. 13:00 29.k. Lau 3/1 kl. 13:00
Sun 14/12 kl. 13:00 30.k. Sun 4/1 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi á Stóra sviði Borgarleikhússins!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 21/11 kl. 20:00 24.k. Lau 29/11 kl. 17:00 aukas. Sun 7/12 kl. 20:00
Lau 22/11 kl. 20:00 25.k. Lau 29/11 kl. 20:00 26.k. Lau 13/12 kl. 20:00
Sun 23/11 kl. 20:30 aukas. Lau 6/12 kl. 20:00
Nýjar aukasýningar komnar í sölu!
Gaukar (Nýja sviðið)
Lau 29/11 kl. 20:00 17.k. Sun 30/11 kl. 20:00 18.k.
Grátbroslegt verk um karlmenn, tilfinningar og sparakstur
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 21/11 kl. 10:00 Lau 22/11 kl. 16:30 AUKAS. Sun 23/11 kl. 17:00 3.k.
-Táknmálstúlkuð
Táknmálstúlkuð sýning 23. nóv kl. 17
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fös 21/11 kl. 20:00 13.k. Sun 30/11 kl. 20:00 19.k. Lau 13/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 22/11 kl. 20:00 14.k. Fim 4/12 kl. 20:00 20.k. Sun 14/12 kl. 20:00 aukas.
Sun 23/11 kl. 20:00 15.k. Fös 5/12 kl. 20:00 21.k. Fös 19/12 kl. 20:00 aukas.
Fim 27/11 kl. 20:00 16.k. Lau 6/12 kl. 20:00 22.k. Lau 20/12 kl. 20:00 aukas.
Fös 28/11 kl. 19:00 17.k. Sun 7/12 kl. 20:00 23.k. Lau 27/12 kl. 20:00 aukas.
Lau 29/11 kl. 19:00 18.k. Fös 12/12 kl. 20:00
ATH janúar sýningar komnar í sölu!
Jesús litli (None)
Fim 27/11 kl. 20:00 1.k. Fös 5/12 kl. 20:00 5.k. Sun 28/12 kl. 20:00
Fös 28/11 kl. 20:00 2 k. Fim 11/12 kl. 20:00 6.k. Mán 29/12 kl. 20:00
Mið 3/12 kl. 20:00 3.k. Fös 12/12 kl. 20:00 7.k.
Fim 4/12 kl. 20:00 4.k. Sun 14/12 kl. 20:00 8.k.
Jólahátíð Skoppu og Skrítlu (Nýja sviðið)
Lau 29/11 kl. 13:00 1.k. Lau 6/12 kl. 13:00 4.k. Lau 20/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 2 k. Lau 6/12 kl. 15:00 5.k. Sun 21/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 15:00 3.k. Sun 14/12 kl. 13:00
Bestu vinkonur barnanna koma okkur í hátíðarskap
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
Karitas (Stóra sviðið)
Fös 21/11 kl. 19:30 15.sýn Lau 29/11 kl. 19:30 19.sýn Fös 12/12 kl. 19:30 23.sýn
Lau 22/11 kl. 19:30 16.sýn Fim 4/12 kl. 19:30 20.sýn Lau 13/12 kl. 19:30 24.sýn
Fim 27/11 kl. 19:30 17.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 21.sýn Þri 30/12 kl. 19:30 26.sýn
Fös 28/11 kl. 19:30 18.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 22.sýn Sun 4/1 kl. 19:30 27.sýn
Seiðandi verk sem hefur hlotið frábærar viðtökur. Nýjar sýningar komnar í sölu.
Konan við 1000° (Kassinn)
Fös 21/11 kl. 19:30 Aukas. Fim 4/12 kl. 19:30 35.sýn Sun 11/1 kl. 19:30 39.sýn
Fim 27/11 kl. 19:30 30.sýn Fös 5/12 kl. 19:30 36.sýn Mið 14/1 kl. 19:30 40.sýn
Fös 28/11 kl. 19:30 31.sýn Lau 6/12 kl. 19:30 37.sýn Sun 18/1 kl. 19:30 41.sýn
Lau 29/11 kl. 19:30 33.sýn Mið 7/1 kl. 19:30 38.sýn
5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 29/11 kl. 11:00 Lau 6/12 kl. 14:30 Sun 14/12 kl. 13:00
Lau 29/11 kl. 13:00 Sun 7/12 kl. 11:00 Sun 14/12 kl. 14:30
Lau 29/11 kl. 14:30 Sun 7/12 kl. 13:00 Lau 20/12 kl. 11:00
Sun 30/11 kl. 11:00 Sun 7/12 kl. 14:30 Lau 20/12 kl. 13:00
Sun 30/11 kl. 13:00 Lau 13/12 kl. 11:00 Lau 20/12 kl. 14:30
Sun 30/11 kl. 14:30 Lau 13/12 kl. 13:00 Sun 21/12 kl. 11:00
Lau 6/12 kl. 11:00 Lau 13/12 kl. 14:30 Sun 21/12 kl. 13:00
Lau 6/12 kl. 13:00 Sun 14/12 kl. 11:00 Sun 21/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 10 leikárið í röð.
Ofsi (Kassinn)
Sun 23/11 kl. 19:30 Frums. Mið 26/11 kl. 19:30 2.sýn Mið 3/12 kl. 19:30 4.sýn
Þri 25/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 30/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 7/12 kl. 19:30 5.sýn
Átök sturlungaaldar á leiksviði
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 23/11 kl. 17:00 6.sýn
Sápuópera um hundadagakonung
Fiskabúrið (Kúlan)
Lau 22/11 kl. 14:00 Sun 23/11 kl. 14:00
Lau 22/11 kl. 16:00 Sun 23/11 kl. 16:00
Sannkölluð töfrastund fyrir yngstu áhorfendurna.
Ævintýri í Latabæ (Stóra sviðið)
Sun 28/12 kl. 13:00 Sun 28/12 kl. 16:30
Stórsöngleikur fyrir börn á öllum aldri í Þjóðleikhúsinu.
★★★★ – SGV, MblHamlet –
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Útlenski drengurinn (Aðalsalur)
Fös 21/11 kl. 20:00 Sun 30/11 kl. 20:00
Lau 22/11 kl. 14:00 Fim 4/12 kl. 20:00
Lífið (Aðalsalur)
Sun 23/11 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 13:00
Sun 7/12 kl. 13:00 Sun 18/1 kl. 15:00
Útgáfutónleikar Siggu Eyrúnar (Aðalsalur)
Lau 22/11 kl. 20:00
Coming Up (Aðalsalur)
Sun 23/11 kl. 20:00
Aðventa (Aðalsalur)
Sun 7/12 kl. 20:00 Sun 14/12 kl. 20:00
Ævintýrið um Augastein (None)
Sun 30/11 kl. 14:00 Sun 7/12 kl. 17:00
Lau 6/12 kl. 17:00 Sun 14/12 kl. 14:00
Borgarbókasafn tekur virkan þátt í glæpasagnahátíðinni Iceland Noir sem
hófst í gær og stendur til sunnudags. Þessa daga verða sýndar alls fjórar
rökkurmyndir (Film Noir) kl. 15 í Kamesi safnsins, sem er á 5. hæð í að-
alsafni, Tryggvagötu 15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir, en vakin
er athygli á því að ekki er um að ræða barnamyndir.
Í dag kl. 16 verður boðið upp á glæpasagnagöngu sem nefnist Blóðslóð
um miðbæ Reykjavíkur. Gangan fer fram á ensku og er lagt upp frá Nor-
ræna húsinu. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.
Rökkurmyndir og glæpasagnaganga