Morgunblaðið - 28.11.2014, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Ferðamönnum til Þingvalla hefur á
tíu árum fjölgað um 77% en árið 2004
voru þeir 332 þúsund. Gert er ráð
fyrir 588 þúsund ferðamönnum til
Þingvalla í ár.
Gríðarlega hefur
fjölgað þeim
ferðamönnum
sem heimsækja
Þingvelli yfir
dimmustu vetrar-
mánuðina; jan-
úar, febrúar, nóv-
ember og desem-
ber. Þannig er
áætlað að þeir
hafi verið um 21
þúsund árið 2004 en 71 þúsund árið
2013, sem er fjölgun upp á 238%.
Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjón-
ustunnar gerðu í sumar könnun
meðal ferðamanna á Þingvöllum og
kynntu niðurstöður sínar í gær þar
sem þetta kemur fram.
Gróðurinn lætur á sjá
Ólafur Örn Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum, segir að
þessi mikla fjölgun hafi að sjálfsögðu
áhrif á þjóðgarðinn. „Það sér veru-
lega á gróðrinum. Eftir sumarið er
mosinn við gjábarma farinn að láta
verulega á sjá og þetta mun taka
mjög langan tíma að gróa. Sumir tala
um áratugi, aðrir jafnvel hundrað
ár.“
Þrátt fyrir þetta mikla álag á þjóð-
garðinn segir Ólafur að garðurinn og
starfsfólk hans ráði vel við þennan
fjölda. „Við fengum fé til fram-
kvæmda og við sjáum loksins fram á
bjartari tíma.“
Séu niðurstöðurnar úr rannsókn-
inni skoðaðar má sjá að töluverður
munur var á upplifun gesta af álagi á
náttúru Þingvalla. Rétt um þriðjung-
ur Íslendinga taldi að náttúra Þing-
valla væri undir miklu álagi ferða-
manna en aðeins 4% erlendra gesta
töldu svo vera.
Þriðjungur Íslendinga, eða 33%,
var samþykkur því að reist yrði hótel
á staðnum en minni áhugi var meðal
erlendra ferðamanna. Mikill meiri-
hluti Íslendinga var á því að á Þing-
völlum ætti að vera veitingastaður
eða 68%, en eins og flestum er kunn-
ugt brann Hótel Valhöll 2009.
Hótel á ekki erindi
„Það eru mörg hótel í hálftíma
akstursfjarlægð og enn fleiri í fjöru-
tíu mínútna fjarlægð. Það er ljóst að
fólk kann að meta grunngildi þjóð-
garðsins, náttúrufar, sögu og ásýnd,
fegurð og menningarverðmæti. Það
telja greinilega flestir að hótel eigi
ekki erindi í þjóðgarðinn. Það finnst
mér merkilegt og hjálpar okkur að
taka ákvarðanir um framtíðina.“
Hann segir að erlendir kollegar
sínir ráðleggi sér að byggja ekki hót-
el. „Það eru frárennslisvandamál,
rask og hávaði og ljósmengun. Og
næturgestir geta verið fjörugir,“
segir Ólafur Örn og hlær .
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fjölgun Ferðamönnum fjölgar jafnt og þétt í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Fjölgun sem
hefur áhrif
77% fleiri ferðamenn á Þingvöllum
Þingvallarannsókn
» Niðurstöðurnar byggjast á
þremur könnunum RRF; meðal
brottfararfarþega, símakönnun
og vettvangskönnun á Þing-
völlum í sumar.
» Hún var gerð frá síðari hluta
maí og fram í byrjun sept-
ember.
» Tveir spyrlar RRF fóru í tólf
skipti til Þingvalla á tímabilinu
og voru þar að jafnaði fimm
klukkustundir í senn.
Ólafur Örn
Haraldsson
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Með áframhaldandi forgangsröðun í
þágu heilbrigðisþjónustunnar mun
tækjakostur á Landspítalanum
komast í gott horf innan fárra ára.
Þetta segir Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítala. Samhliða fagnar
hann því að aukin framlög skuli
hafa verið sett í hönnun nýs Land-
spítala. Segir hann að það 875 millj-
óna króna framlag sem fjárlaga-
nefnd tilkynnti í gær að ætlað væri
til hönnunar spítalans í samræmi
við áætlanir um að hann muni rísa
2020-2021 verði til þess að áætlanir
standist. Áður höfðu verið settar 70
milljónir til hönnunarinnar í fjár-
lögum 2015.
Reksturinn styrktur
„Þetta er í samræmi við áætlanir
eins og búið var að setja þær upp
um að byggingarnar verði byggðar
2020-2021. Það er frábært,“ segir
Páll. Hann segir tækjakaupaáætlun
einnig skipta miklu.
„Það er verið að setja 1.200 millj-
ónir til tækjakaupa og með þessu
áframhaldi munu tækjamál spítal-
ans komast í gott lag á næstu árum.
Svo er reksturinn styrktur í ofaná-
lag. Þótt við verðum áfram að sýna
aðhald, þá gerir þetta fé það að
verkum að við getum tekið upp nýja
hluti og má þar sérstaklega nefna
rekstur skurðþjarka (róbóta),“ segir
Páll. Hann segir samanlögð framlög
í þágu tækjakaupa, rekstrar og ný-
bygginga sýna skýra forgangsröðun
í þágu spítalans.
„Við erum mjög ánægð með það
að heilbrigðisþjónustan skuli fá
hljómgrunn í áætlunum næsta árs,“
segir Páll Matthíasson að endingu.
Forgangsraðað í þágu
heilbrigðisþjónustu
Forstjóri LSH segir tækjakost komast í gott horf með
sama áframhaldi Fé til hönnunar gerir áætlanir raunhæfar
Morgunblaðið/Þórður
Rætt um spítala Félagasamtökin Spítalinn okkar stóðu í gær fyrir mál-
þingi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á myndinni má sjá Dag B. Eggertsson borg-
arstjóra og Pál Matthíasson, forstjóra Landspítalans, á fremsta bekk.
Starfsmenn Reykjavíkurborgar
unnu við það í gær að setja upp
Oslóartréð á Austurvelli. Kveikt
verður á jólaljósunum næstkom-
andi sunnudag kl. 15:30 og við tek-
ur skemmtidagskrá til kl. 17. Tréð
er gjöf Oslóarborgar til Reykvík-
inga og var fellt á dögunum við Öst-
marka í Osló. Þetta er í 63. skipti
sem Norðmenn gefa Reykvíkingum
jólatré. Hefur athöfnin markað
upphaf jólahalds í borginni.
Oslóartréð sett upp á Austurvelli
Morgunblaðið/Ómar
Kveikt á trénu í 63. skiptið
Félagsbústaðir
Reykjavíkur
áforma að fjár-
festa í félags-
legum íbúðum
fyrir 13,5 millj-
arða króna á
næstu fimm ár-
um. Fjölga á
íbúðunum um 500 á þessu tímabili,
eða til ársins 2019. Gert er ráð fyrir
að ríki og borg leggi fram um 30% í
eigið fé. Þegar hefur verið óskað
eftir formlegum viðræðum við fé-
lags- og húsnæðismálaráðherra um
þátt ríkisins.
Félagslegar íbúðir
fyrir 13,5 milljarða
Hæstiréttur sneri í gær við dómi
héraðsdóms yfir móðurfélagi Síldar
og fisks og Matfugls, Langasjó, og
staðfesti 80 milljóna króna sekt
Samkeppniseftirlitsins á félagið.
Eru félögin sektuð fyrir „ólögmætt
lóðrétt samráð félaganna við Bónus
um smásöluverð og afslátt af því í
verslunum Bónuss“, eins og segir í
dómnum. Árið 2010 gerði Sam-
keppniseftirlitið sátt við Haga og
sex kjötvinnslufyrirtæki vegna for-
verðmerkinga á kjötvörum. Fyrir-
tækin tvö neituðu hins vegar að
sættast á sinn hluta málsins. Sektin
sem héraðsdómur felldi úr gildi en
Hæstiréttur sneri síðan við í gær
var ákvörðuð 2011.
Lóðrétt samráð
kostaði 80 milljónir
Hæstiréttur hefur staðfest fimm
ára fangelsisdóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Leon Baptiste fyr-
ir tilraun til manndráps. Baptiste
stakk annan mann með hnífi í
hjartastað undir áhrifum kanna-
biss. Munaði aðeins nokkrum senti-
metrum að bani hlytist af, eins og
kemur fram í dómi Hæstaréttar.
Saksóknari áfrýjaði dómnum til
Hæstaréttar og vildi að refsing
Baptistes yrði þyngd. Á það féllst
Hæstiréttur ekki.
Fimm ár fyrir tilraun
til manndráps