Morgunblaðið - 28.11.2014, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2014
Fyrir rúmum 15 ár-
um, 10. september
1999, birtist í Morgun-
blaðinu grein sem ég
skrifaði undir þessari
fyrirsögn. Ég benti á
að ríkið, þjóðin öll er
eigandi að landinu sem
mestur hluti flugvall-
arins er á. Við lok
stríðsins afhentu Bret-
ar íslensku þjóðinni
flugvöllinn ásamt öll-
um þeim mannvirkjum sem honum
tilheyrðu. Þá þegar höfðu stórhuga
arkitektar og verkfræðingar mik-
inn áhuga á að byggja fyrirmyndar
borg á flugvallarsvæðinu. Þá datt
engum í hug að leggja niður innan-
landsflugið, svo að sjálfsögðu væri
skylda þeirra að byggja á eigin
kostnað, að öllu leyti, sambæri-
legan flugvöll með öllu tilheyrandi,
sem allir viðkomandi aðilar sættu
sig við, áður en hróflað yrði við
Reykjavíkurflugvelli.
Flestir vissu þá, og
vita enn, að þetta er
útilokað.
Mikið mannvirki
Á meðfylgjandi
mynd, sem tekin var
hinn 20. ágúst 1942
úr þýskri njósna-
flugvél, má sjá hvað
Reykjavíkurflugvöllur
er mikið mannvirki.
Aðeins 27 mánuðum
áður var þar aðeins
malarborin flugbraut
fyrir smá flugvélar. Dökku fern-
ingarnir á miðri myndinni voru
kartöflugarðar sem fólk leigði frá
borginni. Fram yfir 1950 bjó fólk í
mörgum kartöfluskúrum. Hægra
megin, neðst á myndinni er Klepp-
ur, og þar fyrir ofan Vatnagarðar,
með flugskýlinu og brautinni fyrir
sjóflugvélar. Nú er skýlið á Hnjóti
á Vestfjörðum og Sundahöfn á öllu
svæðinu. Svona man ég vel
Reykjavík á stríðsárunum.
Þjóðarvilji
Það er staðreynd að mikill
meirihluti þjóðarinnar vill ekki að
neitt verði gert sem gæti á nokk-
urn hátt truflað eða skaðað neitt af
þeirri starfsemi sem nú er á
flugvallarsvæðinu.
Árið 1999 fékk ég þær upplýs-
ingar, að árið áður, 1998, komu og
fóru rúmlega 440 þúsund farþegar
um Reykjavíkurflugvöll. Gerum
dæmið auðveldara og reiknum með
að á einu ári væru þeir „aðeins“
fjögur hundruð þúsund, sem
þyrftu að fara eða koma með flugi
um Keflavíkurflugvöll. Nú, í nóv-
ember 2014, kostar far með rútu
aðra leiðina 1.950 kr. eða 3.900 kr.
báðar leiðir. Fjögur hundruð þús-
und sinnum það, eru samtals
1.560.000.000 kr. Fimmtán hundr-
uð og sextíu milljónir króna á ári
yrði aðeins þessi eini aukakostn-
aður. Ætla má, að með öllu tæki
ferðin á milli Reykjavíkur og
Keflavíkur minnst klukkutíma. Þá
þarf að bæta við útgjöldin 800.000
klukkutíma auknum ferðatíma á
ári eða sem svarar til 20 þús. glat-
aðra vinnuvikna, á meðan eknir
eru 32 milljónir farþegakílómetra
(þ.e. 1 farþegi = 1 km.) Hér er að-
eins nefndur einn auka-útgjalda-
liður fyrir farþega í eitt ár miðað
við minni fjölda flugfarþega en fyr-
ir 16 árum. Þá fékk ég þær upp-
lýsingar, að á Reykjavíkurflugvelli
störfuðu um eitt þúsund manns,
beint og óbeint við farþegaflugið,
auk landhelgisgæslunnar,
alþjóða-flugumferðarstjórnar og
allrar starfsemi í sambandi við
Fluggarða. Ekki mundi missir allr-
ar þeirrar atvinnustarfsemi bæta
hag Reykvíkinga.
Nú er öldin önnur! Fólkið sem
Reykvíkingar treystu best, í síð-
ustu kosningum, til að vinna að
hagsmunamálum höfuðborg-
arinnar, og þjóðarinnar allrar, hef-
ur í mörg ár, undir forystu sjálfs
borgarstjórans unnið ötullega að
eyðileggingu flugvallarins, og nú
síðast skapað sér vinnufrið við þá
iðju mánuðum saman með því að
plata stjórnvöld til að samþykkja
að skipa launaða nefnd „sérfræð-
inga í flugvalla-plássaleit“ við að
leita með logandi ljósi að „heppi-
legu plássi“, sem hann ætlar að
byggja á fullkominn flugvöll,
ásamt neyðarbraut fyrir
Keflavíkurflugvöll (í stað braut-
arinnar sem hann er nú þegar bú-
inn að gefa verktökum heimild til
að eyðileggja). Við þann nýja flug-
völl yrði að sjálfsögðu að vera full-
komin flugstöð, sem yrði að öllu
leyti sambærileg við Reykjavík-
urflugvöll á allan hátt.
En hvernig væri, ef ríkisstjórnin
bæði borgarstjórann að leyfa okk-
ur að nota flugvöllinn áfram og
biðja athafnamennina, vini sína, að
hjálpa þjóðinni að byggja Land-
spítala fyrir hluta af kostnaðinum
við byggingu flugvallarins og flug-
stöðvarinnar ?
Eftir Óskar
Jóhannsson » Árið 1999 fékk ég
þær upplýsingar, að
árið áður, 1998, komu og
fóru rúmlega 440 þús-
und farþegar um
Reykjavíkurflugvöll.
Höfundur er fyrrverandi
kaupmaður í Reykjavík.
Óskar
Jóhannsson
Reykjavíkurflugvöllur er
ekki einkamál Reykvíkinga
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Reykjavíkurflugvöllur Myndin er tekin 20. ágúst 1942 úr þýskri njósna-
flugvél. Á henni sést vel hvað Reykjavíkurflugvöllur er mikið mannvirki.
X
E
IN
N
IX
14
10
00
1
Kíktu við að Fosshálsi 1 í Reykjavík
og skoðaðu fallega og skemmtilega
öðruvísi gjafavöru frá
BoConcept.
HAUSTÚTSALA
25-50% afsláttur
af fallegri gjafavöru
frá BoConcept!
Jól 2014
Opið virka daga 10-18 og laugardag 11-17
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Tékkneskur 72 ára kvæntur karl-
maður óskar eftir pennavini/vinum.
Áhugamál hans eru meðal annars
landafræði, íþróttir, músík, hann
safnar mynt og stimpluðum póst-
kortum líka. Honum er sama um
aldur, kyn og trú þeirra sem vilja
skrifast á við hann. Áhugasamir
sendi til:
Zdenek Texl
NA Zavadilce 783
55101 Jaromer
Czech Republic.
Pennavinur
Póstkort Enn eru þeir til sem finnst gam-
an að fá póstkort inn um lúguna hjá sér.
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/