Morgunblaðið - 28.11.2014, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2014
Hin árvissa rit-
höfundalest
verður á ferðinni
um Austurland
um helgina. Les-
ið verður í Mikla-
garði á Vopna-
firði í kvöld kl.
20.30, á Skriðu-
klaustri á laug-
ardag kl. 14 og
kl. 20.30 í Skaftfelli á Seyðisfirði. Á
sunnudag verður lesið í Safnahús-
inu í Neskaupstað kl. 13.00.
Þórarinn Eldjárn les úr Fugla-
þrugl og naflakrafl og Tautar og
raular, Soffía Bjarnadóttir úr Seg-
ulskekkju, og Kristín Eiríksdóttir
úr bókinni KOK. Gyrðir Elíasson
les úr Koparakri og Lungnafisk-
unum og Gísli Pálsson úr Maðurinn
sem stal sjálfum sér. Þá slást í för-
ina austfirsk skáld og þýðendur:
Stefán Bogi, Hrafnkell Lárusson,
Kristian Guttesen, Sigga Lára Sig-
urjónsdóttir og Ingunn Snædal.
Rithöfundar lesa
upp á Austurlandi
Gyrðir Elíasson
Myndlistarþing um starfsumhverfi
myndlistar verður haldið í dag kl.
16-18 í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Málþingið er haldið af
Myndlistarráði og verður kynnt
skýrsla sem ráðið hefur látið vinna
um leiðir til að efla starfsumhverfi
íslenskrar myndlistar.
Meðal dagskrárliða eru ávörp
Ástu Magnúsdóttur ráðuneytis-
stjóra og Kristjáns Steingríms, for-
manns myndlistarráðs. Elín Hans-
dóttir fjallar um starfsumhverfi
myndlistarmanna og Hlynur Halls-
son um starfsumhverfi sýning-
arstjóra.
Myndlistarþing
haldið í dag
Í dag, föstudag klukkan 18, verður
innsetning eftir Kristínu Berman
opnuð í Tjarnarbíói. Innsetninguna
kallar hún Stundarfrið – Moment of
Peace og er fundarherbergi breytt
í framandi heim.
Kristína R. Berman er textíl-
menntaður leikmynda- og bún-
ingahönnuður sem er með vinnu-
stofu í Tjarnarbíói þennan
mánuðinn. Hún skapar sérstaka
upplifun þegar hún umbreytir her-
bergi í húsinu með leikmynd eða
innsetningu. Markmiðið er að
skapa annan heim inni í herberg-
inu, þar sem allt gæti gerst; rými
sem er nógu fallegt og gott til að
jafnvel rólegt og heimspekilegt
samtal við hið versta illmenni gæti
átt sér stað. Vinnustofan er opin og
geta gestir komið og spjallað við
Kristínu að störfum þegar hún er
að vinna að uppsetningunni.
Fundarherbergi breytt í framandi heim
Listakonan Kristína Berman verður í
Tjarnarbíói og hittir gesti að máli.
Sun Kil Moon, hljómsveit og sóló-
verkefni bandaríska söngvarans
og gítarleikarans Mark Kozelek,
heldur tónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík í kvöld. Kozelek á 22
ára feril að baki og eru tónleik-
arnir þeir fyrstu sem hann heldur
á Íslandi. Kozelek leiddi hljóm-
sveitina Red House Painters til
ársins 2002 og tók Sun Kil Moon
þá við. Hann hefur m.a. unnið
með hljómsveitum á borð við The
Album Leaf og Desertshore og
tónlistarmönnum á borð við Will
Oldham og Steve Shelley. Þá hef-
ur hann komið fram í kvikmynd-
um, m.a. Almost
Famous og Van-
illa Sky. Koze-
lek kemur fram
í kvöld með
trommuleikara,
hljómborðsleik-
ara og gítarleik-
ara. Nýjasta
breiðskífa Sun
Kil Moon, Benji,
kom út á þessu ári og er nú á
mörgum listum yfir bestu plötur
ársins til þessa, að því er fram
kemur í tilkynningu. Tónleikarnir
í kvöld hefjast kl. 20.45.
Sun Kil Moon í Fríkirkjunni
Mark Kozelek
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég er himinlifandi yfir góðum við-
tökum á diskinum. Margir hafa auð-
vitað vitað í heillangan tíma að hann
væri á leiðinni,“ segir Hallveig Rún-
arsdóttir sópran um plötuna Í ást sól-
ar sem nýverið kom út. Á plötunni
flytja Hallveig og Árni Heimir Ing-
ólfsson píanóleikari 26 íslensk söng-
lög eftir sjö íslensk tónskáld, þ.e. þau
Atla Heimi Sveinsson, Tryggva M.
Baldvinsson, Jón Leifs, Hjálmar H.
Ragnarsson, Pál Ísólfsson, Huga
Guðmundsson og Hildigunni Rúnars-
dóttur.
Upptökur á plötunni fóru fram í
Fella- og Hólakirkju í maí 2007 og
júlí 2010, en upphaflega átti disk-
urinn að koma út árið 2008. „Af skilj-
anlegum ástæðum gekk það ekki eft-
ir, en þá gafst okkur kærkomið
tækifæri til að taka Ljóðalög Páls
upp aftur 2010,“ segir Hallveig og
viðurkennir fúslega að hún hafi verið
orðin ansi langeyg eftir að platan
kæmi út.
Röddin stækkað
„Ég er miklu ánægðari með plöt-
una en ég hélt að ég myndi verða,“
segir Hallveig og tekur fram að ým-
islegt hljómi öðruvísi á plötunni en
það myndi hljóma í dag. „Á þeim tíma
sem liðinn er frá því upptökurnar
voru gerðar hefur röddin mín breyst
og stækkað, enda hef ég í auknum
mæli á síðustu árum sungið meira af
óperutónlist. Sumt ætti ég erfiðara
með að syngja í dag eins og það
hljómar á diskinum,“ segir Hallveig
og nefnir sem dæmi flutning sinn á
þremur kirkjulögum eftir Jón Leifs.
„Á plötunnni langaði mig að láta lögin
hljóma mjög brothætt og viðkvæm.
Og ég er mjög ánægð með hvernig til
tókst,“ segir Hallveig og tekur fram
að hún hlakki til að æfa lögin á plöt-
unni upp aftur fyrir útgáfutónleika
„Það verður fróðlegt fyrir mig að
heyra hvort og hvað ég geri öðruvísi.
Sumt á vafalaust eftir að hljóma
fyllra,“ segir Hallveig og bendir á að
útgáfutónleikar plötunnar geti ekki
orðið fyrr en í febrúar þar sem Árni
er við rannsóknarstörf við Harvard í
Bandaríkjunum fram á næsta ár.
Sjaldheyrð músík
Að sögn Hallveigar átti Árni hug-
myndina að gerð plötunnar. „Við
lögðum upp með það að stór hluti
verkanna á plötunni væri eitthvað
sem ekki hefði komið út áður eða
væri orðið ófáanlegt. Sem dæmi hafa
söngvar Páls úr Ljóðaljóðunum verið
gefnir út áður, en þau eru ófáanleg í
dag. Það var því þörf fyrir að þau
kæmu út í veglegri útgáfu,“ segir
Hallveig þegar hún er innt eftir laga-
valinu á plötunni.
Hallveig bendir á að á öllum sínum
ferli hafi hún lagt mikla áherslu á að
flytja nýja músík sem og sjaldheyrða
músík. „Ég hef ávallt lagt mikla
áherslu á ný verk og látið semja
slatta af efni fyrir mig, sem er ekki á
þessari plötu en ratar kannski á
næstu plötu,“ segir Hallveig og bætir
við: „Við eigum svo ótrúlegan fjarsjóð
af nýrri tónlist fyrir söngvara sem
komið hefur út á sl. 20-30 árum og
margir vita ekki einu sinni að er til,“
segir Hallveig og nefnir í því sam-
hengi tónlist Huga og Hildigunnar.
„Þessi plata er þannig góð heimild
um íslenska músík og því finnst okk-
ur mikilvægt að koma diskinum út
fyrir landsteinana,“ segir Hallveig,
en Í ást sólar fer í sölu í Bretlandi í
næsta mánuði auk þess að vera að-
gengilegur á vef Amazon.
Samstarf í mörg ár
Að sögn Hallveigar hafa þau Árni
þekkst í mörg ár og unnið lengi sam-
an. „Við Árni kynntumst þegar ég
byrjaði í Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð haustið 1990, einni önn
áður en ég byrjaði í skólanum. Hann
spilaði nokkrum sinnum með mér
meðan við vorum enn í skólanum en
að loknu stúdentsprófi fórum síðan
sitt í hvora áttina. Þegar ég kom heim
úr námi 2001 leitaði ég til Árna um að
vera meðleikari minn eftir að hafa
starfað með nokkrum eldri og virðu-
legum píanistum. Ég sá fram á að
samstarf okkar Árna gæti verið á
meiri jafningjagrundvelli auk þess
sem samstarf okkar gæti staðið mjög
lengi,“ segir Hallveig og rifjar upp að
debút-tónleikar þeirra í Ými hafi
hlotið afskaplega góðar viðtökur og
glimrandi dóma.
„Það var upphafið að okkar far-
sæla samstarfi. Við störfuðum mikið
saman í nokkur ár, en annir Árna á
fræðasviðinu leiddu til þess að hann
spilaði lítið um tíma og ég fór að
vinna með öðrum dásamlegum pían-
ista og fyrrverandi mennta-
skólafélaga, því Hrönn Þráinsdóttir
tók við keflinu af Árna,“ segir Hall-
veig og fagnar því að þau Árni séu
aftur farin að starfa meira saman og
bendir á að þau muni m.a. koma fram
á sönghátíðinni Kammertónleikar á
Kirkjubæjarklaustri 2015.
Aðspurð hvort hún sé farin að huga
að næstu plötu svarar Hallveig því
neitandi, en tekur fram að hún vonist
þó til að vinnslan við næstu plötu taki
ekki jafnlangan tíma og Í ást sólar.
„Við Hrönn pöntuðum verk fyrir
Myrka músíkdaga 2010 eftir Hildi-
gunni, Þóru Marteinsdóttur og Önnu
Þorvaldsdóttur sem gaman væri að
koma út,“ segir Hallveig að lokum.
„Ánægð með hvernig til tókst“
Hallveig Rúnarsdóttir og Árni Heimir Ingólfsson senda frá sér plötuna Í ást sólar
26 íslensk sönglög eftir sjö tónskáld sem mörg hver eru ófáanleg í upptökum
Morgunblaðið/Þórður
Fjársjóður „Við eigum svo ótrúlegan fjarsjóð af nýrri tónlist fyrir söngvara
sem komið hefur út á sl. 20-30 árum og margir vita ekki einu sinni að er til.“
LEIÐRÉTT
Féll niður texti
Í umfjöllun Sölva Sveinssonar um
viðtalsbók Guðna Einarssonar,
Hreindýraskyttur, féll niður eft-
irfarandi setning: „Viðtölin eru mis-
jöfn, en langmestur veigur er í kafl-
anum þar sem Sigurður Aðal-
steinsson á Vaðbrekku hefur orðið,
margfróður um dýrin, hátterni
þeirra og veiðar.“ Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Bókaðu snemma
til að tryggja
þér pláss
DANMÖ
RK
2 fullor
ðnir
með fól
ksbíl
Netverð
, frá kr.
74.500á mann
FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl
Netverð, frá kr.34.500á mann
Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með
Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að
tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka
snemma og tryggja sér besta fáanlega verð.
Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu
okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma
5708600 og 4721111.